Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Blaðsíða 20
20 FÓKUS MIÐVIKUDAGUR 16.JÚLÍ2003
fókus
Umsjón: Höskuldur Daði Magnússon og Sigrún Ósk
Kristjánsdóttir.
Netföng: fokus@fokus.is, hdm@fokus.is, sigrun@fokus.is
Sími: 550 5894 -550 5897
www.fokus.is
BflEI
Handboltamennirnir Dagur SSgurðs-
son og Patrekur Jóhannesson skemmtu
sér á Gauknum um síðustu helgi. Þeir fé-
lagar voru að sjálfsögðu með konur sínar
upp á arminn en auk þess voru þeir með
þýskan umboðsmann í eftirdragi. Guð-
mundur Gfslason umboðsmaður var á
ferðinni með konu sína, Ásthildur Helga-
dóttir leit inn með stelpunum í landslið-
inu i fótbolta, Jörundur Áki og Herdfs Sig-
urðardóttir
voru líka á
meðal gesta
og þá sást til Margrétar Eir Hjartardótt-
ur söngkonu. Róbert Sighvatsson hand-
boltamaður sást stíga létt spor. Þau
Vignir, Hanni og Birgitta Haukdal ur íra
fári voru að sjálfsögðu mætt eins og
þeir Jómbi, Jenni og Gulli úr Brain
Police. Rótararnir Orri og Daði tóku
nýjasta meðliminn Jón inn í hópinn og
að sjálfsögðu sást til Buffaranna Pét-
urs, Bergs og Villa Goða eins og þeirra
Matta úr Pöpunum og Silla Geirdals.
Helgin var tilkomumikil á Hverfisbarnum eins og alltaf og var
staðurinn stappaður af „skemmtilegu og fallegu fólki" eins og að-
standendurnir vilja hetst. Af þeim helstu má nefna Jón Gunnar Geir-
dal markaðsmann, Auðun Blöndal sjónvarpsmann úr 70 mínútum
sem fagnaði 23 ára afmæli sínu þetta kvöld, Sverri Bergmann, söngv-
ara úr Daysleeper, og Rakel Sif Sigurðardóttur söngkonu en tvenn-
um sögum fer af því hvort hún sé enn í Buttercup. Ásgeir Kolbeins-
son útvarpsmaður af FM957 mætti á
svæðið ásamt Atla litla bróður sínum,
Þórdfs Anna Oddsdóttir Frelsisstelpa var
hress rétt eins og hinar gellurnar, Marfn
Manda Magnúsdóttir fyrirsæta, sem enn
stundar nám f Kaupmannahöfn, og Manú-
ela ósk Harðardóttir fegurðardrottning.
Þá vantaði ekki fótboltafólkið frekar en
fyrri daginn og um helgina sást í Björgólf
Takefusa, markakóng úr Þrótti, og Veigar
Pál KR-ing sem hafði öllu meiru að fagna.
Að síðustu ber að geta glæsiparsins Árna
Þórs Vigfússonar og Marfkó Margrétar
Ragnarsdóttur sjónvarpskonu.
írskir dagar voru á Akranesi um helgina og fjölmargt lið sem er
merkilegra en aðrir iagði þangað leið sfna. Meðal þeirra var diskó-
drottningin Helga Möller sem gerði sér lítið fyrir og sigraði í golf-
móti, knattspyrnugoðið Jóhannes Karl Guðjónsson og frú, Siggi
Jóns, þjálfari Vfkings, leikmenn IA, Gunniaugur Jónsson og Hjörtur
Hjartarson auk FH-mannsins Heimis Guðjónssonar. Pönkdrottningin
Ellý úr Q4U og golfsnillingurinn Birgir Leifur Hafþórsson létu sig
heldur ekki vanta.
e
oru hvor?
Fókusauglýsingamódelið Sigga er byrj-
uð að vinna á ölstofunni og stóð sig bara
vel í því að skenkja í glösin. Fréttamaður-
inn Rnnur Becká RÚV nýtti sér m.a þjón-
ustu hennar ásamt félögum sínum og það
sama gerðu einnig, Hallgrímur Helgason,
rithöfundur með meiru, sem greinilega er
mættur aftur á mölina, stjórnmálafræð-
ingurinn Eirfkur Bergmann Einarsson og
Ijóðskáldið Steinar Bragi sem gekk á milli
manna og reyndi að selja Ijóðabókina sína.
Á miðvikudagskvöldið í síðustu viku sást
til Þórunnar Lárusdóttur leikkonu á sama
stað og fréttamannsins Árna Snævarr auk
Arthúrs Björgvins Bollasonar Njálusérfræðings og Gunnars Páls
Ólafssonar myndbandaleikstjóra.
Verura þakklát fyrir tunguna. Án hcnnar myndum við bara scgja eö eö uu.
Á morgun verður íslenska kvikmyndin Ussss frumsýnd í Háskóla-
bíói. Flestir sem að henni stóðu gáfu vinnu sína og eru leikarar
þar engin undantekning. Davíð Guðbrandsson var sá eini þeirra
sem eitthvað hafði lært í leiklist en hann útskrifaðist úr Leiklist-
arskólanum í vor. í sumar vinnur hann við að malbika í Breiðholt-
inu en segist vona að það verði ekki hans endastöð.
Skófla í annarri,
sígaretta í hinni
Ussss er framtak
nokkurra kvikmynda-
gerðaráhugamanna og
hugarfóstur leikstjór-
ans, Eiríks Leifssonar.
Myndin fjallar um þá
Sæla og Rebba, smá-
glæpamenn sem reka
safnarabúð í miðbæ
Reykjavíkur. Hún er
þó í raun skálkaskjól
fyrir sölu þýfis. „Rebbi
er mjög atorkusamur,“
segir Davíð um
karakterinn sem hann
leikur í myndinni.
„Hann er hress og
gerir það sem honum
sýnist. Eiginlega hress
iðjuleysingi. Myndin
gerist öll á einum degi
í Reykjavík og sá dag-
ur er ekkert sérstak-
lega góður
Rebba.“
lífi
Ert þú hress iðjuleys-
ingi?
„Nei, ekki lengur.
Ég er enn þá hress en
ekki iðjuleysingi leng-
ur. Eftir að ég útskrif-
aðist úr Leiklistarskól-
anum var ég bara að
slæpast í mánuð. Ég
veit ekki hvort við
Rebbi eigum eitthvað
sameiginlegt. Eflaust,
allir eiga sínar dökku
hliðar. En ég vona að
ég sé ekki of líkur
honum. Annars sagði
Eiki (Eiríkur Leifsson
leikstjóri) mér ein-
hvem tfmann að
hann hefði haft mig í
huga fyrir þennan
karakter þegar hann
skrifaði handritið.
Kannski sér hann mig
Hvað hefurðu verið að
gera í sumar, efúr að þú
hættir að slæpast?
„Ég er að malbika
hjá malbikunarfyrir-
tækinu Höfða. Legg
götumar héma f
Breiðholtinu og er bú-
imi að eyða sumrinu
ber að ofan með skóflu
í hendi og sígarettu í munnvikinu. Ég get nú ekki sagt að
þetta sé draumastarfið en fín sumarvinna. Ég er að vinna
með hressum verkaköllum og það er gaman í vinnunni. En
ég hefði ekki drullað mér í leiklistarskóla ef ég ætlaði mér að
enda héma. Ég vona að þetta sé ekki endastöðin."
Heldurðu að myndin
verði til þess að þú fáir
vinnu við leiklistina?
Verður Ussss stökkpall-
„Ég bara veit það
ekki, get ekkert sagt
fyrir um það. Okkur
þótti bara rosalega
gaman að gera þetta
og myndin er ágætis
sönnun þess að það er
hægt að gera kvik-
mynd sem kostar ekki
neitt. Það er ekki
nauðsynlegt að fá
styrki frá Kvikmynda-
sjóði og hvað þetta
heitir allt saman. Ef
fólk langar að gera
kvikmynd er það hægt
ef það er með góðan
hóp í kringum sig sem
hefur áhuga á þessu.
Flestir sem stóðu að
myndinni gáfu vinnu
sína og meginþorri
hennar var tekinn
upp á sex vikum. Svo
var fólk farið í ein-
hverjar utanlandsferð-
ir og í skóla svo það
tók aðrar sex vikur að
klára það litla sem eft-
Varst þú ekki sá eini
sem hafðir lært eitthvað
{leiklist?
„Jú. Þetta var bara
hópur af fólki sem
langaði rosalega mikið
að búa til bíó og allir
gáfú sig 100% í það.
Sirrý Jónsdóttir lék í
myndinni og hún er
reyndar í Los Angeles
núna að læra leiklist
en ég var sá eini sem
var búinn að læra ein-
hverja leiklist þegar
myndin var tekin
upp.“
Eitthvað fleira ...?
„Já, það kostar bara
800 kall á myndina
eins og á aðrar mynd-
ir. Ekki 1500 krónur
bara af því að hún er
íslensk. Af hverju er það annars? Er dýrara af því maður þarf
ekki að lesa texta? Ef ég væri að fara í bíó um helgina myndi
ég að minnsta kosti frekar velja Ussss en Terminator 3.“
Styrktarball Gay Pride á
Nasa
Á föstudagskvöldið verður
haldið styrktarball Gay Pride á
Nasa við Austurvöll. Allur
ágóði af ballinu rennur til
Hinsegin daga í Reykjavík
sem- haldnir verða 8.-9. ágúst
næstkomandi. Fram koma
Sigga Beinteins, Hafsteinn,
Davíð og dragdrottningin Star-
ína auk plötusnúðsins Páls
Óskars. Forsala aðgöngumiða
er hafin á Café Cozy f Austur-
stræti, við hliðina á Subway.
Skráning hafin í Idol
Skráning keppenda í þáttinn Idol
- Stjömuleit á Stöð 2 hófst í gær á
www.stod2.is. Eins og sagt hefur
verið frá hér f Fókus er um að ræða
íslenska útgáfu á vinsælum þætti í
Bretlandi og Bandaríkjunum og
mun þetta vera viðamesta verkefhi
sem Stöð 2 hefur ráðist í. Áheyrnar-
próf verða í Reykjavík 30.-31. ágúst
næstkomandi og á Akureyri 6.-7.
september en 80 manns komast
áffam eftir þau. Keppendum verður
svo fækkað niður í 32 en níu komast
í lokaúrslit. Keppendur eiga að vera
á aldrinum 16-28 ára. Dómnefnd