Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Blaðsíða 32
i 32 ... MIÐVIKUDAGUR 16.JÚLÍ2003 fóÍkí'Mttum Jón Hjaltalín Magnússon verkfræðingur og fromkvæmdcistjóri Altech JHM Jón Hjaltalin Magnússon, verk- fræðingur og framkvæmdastjóri ALTECH JHM hf., hefur verið í fréttum vegna endurskipulagningar fyrirtækis síns og stórra verkefna þess á næstunni. Starfsferill Jón fæddist í Reykjavík 2.4. 1948 og ólst þar upp við Sölvhólsgötuna í Skuggahverfmu. Hann lauk stúd- entsprófi frá MR 1968 og prófi í raf- eindaverkfræði frá Tækniháskólan- um i Lundi í Svíþjóð 1973. Auk þess hefur hann setið fjölmörg námskeiö á sviði verkfræði, verkefnastjómun- ar og markaðsmála. Jón var verkfræðingur hjá Kock- ums Mekaniska Verstad AB í Malmö 1973-75 og Kockums Autom- ation AB 1975-79 við þróun á sjálf- virkum hleðslukerfum fyrir risaol- íuflutningaskip og hjá íslenska jám- blendifélaginu hf. 1979-82. Hann hef- ur verið framkvæmdastjóri eigin verkfræði- og viðskiptaþjónustu frá 1982 og síðan ALTECH JHM hf. frá 1987. Auk þess forstjóri Atlantsáls hf. frá 2001 sem vinnur að byggingu álvers á Húsavik með erlendum fyr- irtækjum. Jón var ráðgjafi atvinnumála- nefndar Reykjavíkur og HÍ um efl- ingu hátækniiðnaðar og samskipta HÍ og atvinnulifsins 1983-86, stunda- kennari við rafmagnsverkfræöi- deild HÍ 1983-88, varaformaður Fé- lagsins Verkefnastjómun 1985-89 og talsmaður Verkfræðingafélags ís- lands um iðnaðarmál frá 1991. Jón keppti með meistaraflokki Víkings í handbolta og síðan með Lugi í Lundi 1969-78 en það varð Svíþjóðarmeistarar 1975. Þá lék Jón fimmtíu og fjóra landsleiki með ís- lenska landsliðinu, tók þátt í heims- meistarakeppninni í handbolta í Frakklandi 1970 og keppti á Ólymp- íuleikunum í Múnchen 1972. Hann var formaður Handknatt- leikssambands íslands 1984—92 og sat í framkvæmdanefhd Ólympiu- nefndar íslands 1984-89. Jón hefur skrifað greinar um at- vinnumál og iðnaðarmál, einkum um sjálfvirkni í iðnaði. Hann hann- aði fyrsta íslenska vélmennið fyrir álver sem sett var upp hjá ísal 1987 auk þess sem hann hefur þróað tölvuforrit fyrir tjáskipti fatlaðra. Hann var sæmdur gullmerki ÍSÍ 1987, gullmerki Víkings 1991, gull- merki Ólympíunefndar íslands 1995, var valinn frumkvöðull árins 2002 af DV, Viðskiptablaðinu og Stöð 2, hlaut Nýsköpunarverðlaun Útflutn- ingsráðs og Rannsóknarráðs 2003 og var gerður að heiðursdoktor við Southem University of Metallurgy i Kína í janúar 2003. Fjölskylda Jón kvæntist 16.8. 1969 Guðrúnu Sonju Guðmundsdóttur, f. 1.4. 1947, skrifstofustúlku. Hún er dóttir Guð- mundar Jónassonar, bifvélavirkja og framkvæmdastjóra, og Svövu Jónsdóttur húsmóður. Böm Jóns og Guðrúnar Sonju eru Magnús Hjaltalín, f. 29.7.1973, lækn- ir; Ólafur Öm, f. 16.2.1975, flugmað- ur; Svava Jónsdóttir, f. 28.12. 1978, nemi. Dóttir Jóns er Guðlaug Jónsdótt- ir, f. 1.11.1968, arkitekt í Los Angel- es í Bandaríkjunum, en móðir henn- ar er Kristín Sighvatsdóttir. Systkini Jóns: Karl Georg, f. 5.10. 1949, húsasmíðameistari og öryggis- fulltrúi íslenskra aðalverktaka, bú- settur í Njarðvík; Hilmar Þór, f. 21.7. 1951, d. 10.8. 1966, háseti; Þór- dís, f. 19.7.1954, yfirhjúkrunarfræð- ingur; Stefán, f. 21.7. 1959, verk- stjóri. Hálfsystir Jóns, sammæðra, er Bergþóra Bergþórsdóttir, f. 7.11. 1944, skrifstofumaður í Reykjavík. Foreldrar Jóns: Magnús Jónsson, f. 27.11. 1918, fyrrv. vélvirkjameist- ari og yfirverkstjóri í Reykjavík, og k.h., Guðlaug Bergþórsdóttir, f. 16.11.1927, fyrrv. matreiðslukona. Ætt Magnús er sonur Jóns Hjaltalíns, b. á Kambi í Reykhólasveit, Brands- sonar, bróður Daníelu, ömmu Krist- jáns Loftssonar, framkvæmdastjóra Hvals hf. Móðir Magnúsar var Sess- elja Stefánsdóttir, bróður Snæ- bjöms, hreppstjóra í Hergilsey, afa Snæbjörns Jónassonar, fyrrv. vega- málastjóra. Stefán var sonur Krist- jáns, b. i Hergilsey, Jónssonar, hreppstjóra á Kleifum, Ormssonar, ættföður Ormsættarinnar, Sigurðs- sonar. Guðlaug er dóttir Bergþórs, bif- reiðarstjóra í Reykjavík, bróður Hannesar, fyrrv. forstjóra Hampiðj- imnar. Bergþór var sonur Páls, skipstjóra í Gufunesi, Hafliðasonar, og Guðlaugar Ágústu Lúðvíksdótt- ur. Móðir Guðlaugar er Þórdís, syst- ir Jóninu, móður Jóhannesar Helga rithöfundar. Þórdís var dóttir Jó- hannesar, trésmiðs i Reykjavík, bróðm- Guðrúnar, ömmu Magnúsar Gestssonar, rithöfundar og kennara, en bróðir Jóhannesar var Jón, afi Jóns Reykdals listmálara. Jóhannes var sonur Jóns, b. á Indriðastöðum, Jónssonar, b. á Sámsstöðum, Jóns- sonar, hreppstjóra, dbrm. og ættföð- ur Deildartunguættarinnar, Þor- valdssonar. Móðir Þórdísar var Helga Vigfúsdóttir, óðalsb. á Sól- heimum í Mýrdal, Þórarinssonar og Þórdísar Berentsdóttm-. Ásta Steingerður Geirsdóttir stundað ýmis störf utan heimilis, s.s. fiskvinnu, beitningu, húsvörslu, verið ráðgjafi hjá vinnumiðlun, stundað skrifstofustörf og verk- stjórn og er nú tryggingarfulltrúi hjá ríkinu. Ásta var búsett á Borgarfirði eystra til 1997. Þá fluttí hún til Eg- ilsstaða og var þar búsett til 2001. Hún flutti þá til Hafnaríjarðar og hefur verið búsett þar síðan. Ásta sat í stjórn Verkalýðsfélags Borgarfjarðar, var formaður þess um árabil og sat í úthiutunamefnd atvinnuleysisbóta. Hún sat í stjórn Leikfélagsins Vöku á Borgarfirði og Sm< i íauglýsi: 3V ngar ^ 5! 50 50 00 £ uyyyinyui lunuui Ásta Steingerður Geirsdóttir frá Borgarfirði eystra, er fímmtug í dag. Starsferill Ásta fæddist í Steinholti á Borg- arfirði og ólst upp á þeim slóðum. Hún sótti barna- og unglingaskóla Borgarfjarðar, stundaði nám við Menntaskólann á Egilsstöðum í ensku og bókfærslu 1997-2000, á skrifstofubraut 2000-2001 og út- skrifaðist vorið 2002. Þá hefur hún stundað nám í ensku við Ensku- skólann í Reykjavík. Auk húsmóðurstarfa hefur Ásta var formaður þess í nokkur ár og var formaður Tónlistarfélags Borg- arfjarðar, auk ýmissa nefndar- starfa. Fjölskylda Sambýlismaður Ástu var Elvar Hjaltason, f. 20.3. 1946, sjómaður. Þau slitu samvistir 1994. Hann er sonur Hjalta Péturssonar og Björg- heiðar Andrésdóttur sem lengi bjuggu á Snotrunesi. Björgheiður er nú látin. Dætur Ástu eru Ýrr Sigurðardótt- ir, f. 26.2. 1977, starfsmaður hjá Guðmundi Jónassyni, en dóttir hennar er Agnes Hlín, f. 1996; Sif Sigurðardóttir, f. 26.2.1977; búsett í Skotlandi. Synir Ástu og Elvars eru Andri Geir, f. 16.2. 1987, nemi; Elvar Freyr, f. 15.8. 1988, nemi. Ásta er yngst níu systkina. Hin eru Bjarni, f. 23.9. 1939, starfsmað- ur Eimskips, búsettur í Reykjavík, kvæntur Margréti Árnadóttur og eiga þau tvo syni; Haukur, f. 12.5. 1941, starfsmaður í álverinu í Straumsvík, búsettur í Hafnarfirði, var kvæntur Dönu Jóhannsdóttur, þau skildu en eiga þrjár dætur; Rúnar, f. 12.6. 1942, starfsmaður ísal, býr á Seltjarnarnesi, kvæntur Ragnhildi Jónsdóttur og eiga þau fjögur börn; Margrét, f. 13.9. 1943, starfsmaður hjá Kópavogsbæ, bú- sett í Kópavogi og á hún þrjá syni; Anna, f. 1.12. 1944, húsmóðir á Vopnafirði, gift Erlingi Pálssyni og eiga þau þrjú börn; Svandís, f. 14.8. 1946, starfsmaður Securitas á Akur- eyri, var gift Skúla Kristinssyni en þau skildu og á hún eina dóttur en sambýlismaður hennar er Ólafur Þ. Jónsson; Karl Brynjar, f. 13.8. 1947, d. 28.9. 1965; Hjálmar, f. 4.1. 1950, sjómaður á Borgarfirði, og á hann tvo syni. Ásta er dóttir Geirs Sigurjónsson- ar, f. 18.10. 1912, d. 7.4. 1982, bónda og verkamanns á Borgar- firði, og Sigríðar Eyjólfsdóttur, f. 30.7.1921, fyrrv. bókavarðar. Ætt Föðurforeldrar Ástu voru Sigur- jón Bjarnason, togarasjómaður og bóndi, og Guðfinna Þórðardóttir, Þorvarðarsonar frá Núpi á Beru- fjarðarströnd. Móðurforeldrar hennar voru Eyjólfur Hannesson, Sigurðssonar, í Stokkhólma í Skagafirði, Ámason- ar, og Anna Helgadóttir, Jónssonar fræðimanns Sigurðssonar í Njarð- vík. Stórafmæli 90 ára Katrín Jónsdóttir, Breiðagerði 10, Reykjavík. 85 ára Hafiiði Þórir Jónsson, Njálsgötu 1, Reykjavík. Ólöf Snælaugsdóttir, Guttormshaga, Hellu. Ragnhildur Sigurjónsdóttir, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. 80 ára Karl G. Sigurbergsson, Suðurgötu 26, Keflavík. Sigríður Sigursteinsdóttir, Krókatúni 3, Akranesi. 75 ára Kristín Tryggvadóttir, Bakkaflöt 12, Garðabæ. 70 ára Guðni Þorsteinsson, Æsufelli 4, Reykjavík. Eiginkona hans er Júlíana Guðrún Ragnarsdóttir. Þau verða að heiman í dag en verða með heitt á könnunni í sumarbú- stað sínum í Kjósinni nk. sunnudag. Björn Þorkelsson, Lyngholti 9, Akureyri. Erna Helgadóttir, Laufbrekku 30, Kópavogi. Inga Bjarney Óladóttir, Ásvöllum 2, Grindavík. Jón Eyfjörð Sæmundsson, Norðurgarði 13, Keflavík. Jón Sigurðsson, Óðinsgötu 17a, Reykjavík. Kristveig Jónsdóttir, Grænumýri 20, Akureyri. Oddgeir (saksson, Melgötu 6, Grenivík. Stefán SigurðurÁrnason, Þórustöðum 1, Akureyri. 60 ára Agnes Elnarsdóttir, Bleikjukvísl 8, Reykjavík. Auður Pétursdóttir, Kleppsvegi 142, Reykjavík. Ingunn Stefánsdóttir, Hverafold 42, Reykjavík. Jóhannes Vfðir Sveinsson, Austurbergi 18, Reykjavík. PéturJónsson, Grandavegi 45, Reykjavík. 50 ára Ásgeir óskarsson, Þórustöðum 2, Selfossi. Eva Garðarsdóttir, Víðivöllum 19, Selfossi. Eyjólfúr Guðmundsson, Brimslóð 14, Blönduósi. Guðrún María Benediktsdóttir, Holtsbúð 54, Garðabæ. Haraldur Aðalbjörn Haraldsson, Sigtúni 41, Patreksfirði. Hrönn Albertsdóttir, Álfaheiði 1, Kópavogi. Jónas Ágúst Ágústsson, Dvergholti 15, Mosfellsbæ. Lilja Albertsdóttir, Frostafold 95, Reykjavík. Sigríður Björg Ström, Austurbrún 33, Reykjavík. Sigrfður Guðlaugsdóttir, Meistaravöllum 25, Reykjavík. Sigurbjörg Óskarsdóttir, Álfheimum 26, Reykjavík. Þórhallur Hólmgeirsson, Barónsstíg 20, Reykjavík. 40ára Björn Guðgeir Sigurðsson, Fífulind 4, Kópavogi. Halldór Halldórsson, Furugrund 32, Kópavogi. Ingunn Benedikta Þórisdóttir, Borgarbraut 7, Grundarfirði. Páll Bjömsson, Markarflöt 12, Garðabæ. Sigrfður Bech Ásgeirsdóttir, Blöndubakka 6, Reykjavík. Sigurjón Sigurbjömsson, Baldursbrekku 4, Húsavík. Skúli Þór Sigurbjartsson, Sólbakka, Hvammstanga. Sævar Þórsson, Skólavegi 45, Vestmannaeyjum. Þorsteinn Gunnarsson, Núpalind 8, Kópavogi. Ægir Stefán Hilmarsson, Dælengi 19, Selfossi. Öm Hermannsson, Garði, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.