Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 16.JÚLÍ2003 TILVERA 25
Ljóðaunnendur og skáld
UÓÐALEIKUR: Eittafljóða-
kvöldunum á vegum Hins
hússins verður á Bláa barnum
í kvöld en sá staður er fyrir
ofan Pasta Basta á Skóla-
vörðustíg. Það hefst kl. 21.30
og eftir að hefðbundinni dag-
skrá lýkur verður hljóðnem-
inn opinn fyrir hvern sem hef-
ur einvern kveðskap fram að
færa. Það eru tvær stúlkur í
Hinu húsinu, þær Steinunn
og Guðríður, sem standa bak
við dagskrána og leiða saman
þá sem áhuga hafa á Ijóðinu,
þar á meðal skáld á öllum
aldri. „Við hvetjum öll skúffu-
skáld til að hafa samband við
okkur," segja þær stöllur því
þær ætla að halda leiknum
áfram.
gun@dv.is
Sletta úr klaufunum á Borg
gunJs
LÍNUDANSAMÓT: Sérstakt
línudansamót verður haldið
að Borg í Grímsnesi dagana
1 .-4. ágúst næstkomandi,
það er að segja um verslun-
armannahelgina. Þar ættu
línudansarar þessa lands að
geta dansað óáreittir. Gesta-
kennari verður á staðnum til
að kenna byrjendum og líka
þeim sem lengra eru komn-
ir í listinni.Tjaldsvæði er á
Borg og stutt í gististaði á
Laugarvatni og víðar.
En þátttöku þarf að til-
kynna til Elsu í síma 698
1750
netfang elsas@islandia.is
eða Bödda s. 892 2654.
gun@dv.is
Sögðum þingfulltrúum
sögur afíyrkjaráni og gosi
- segir Hera Ósk Einarsdóttir um umdæmisþing Rótary í Eyjum
Eyjalíf - fólk - náttúra - um-
hverfi - var yfirskrift umdæmis-
þings Rótary í Vestmannaeyj-
um, sem haldið var nýlega, og
voru þessir þættir kynntir með
fyrirlestrum, söng og skoðunar-
ferðum á milli hefðbundinna
þingstarfa.
„Þetta tókst vonum framar og
veðrið lék við okkur," segir Hera
Ósk Einarsdóttir í Rótary-klúbbi
Vestmannaeyja. Hún sá ásamt öðr-
um konum í stjórn klúbbsins, með
Halldóru Magnúsdóttur skólastjóra
í forsæti, um skipulagningu um-
dæmisþingsins. „Við erum bara 15 í
klúbbnum hér en tókum á móti um
140 gestum og kynntum þeim sögu
Eyjanna eftir bestu föngum. Meðal
annars komu Tyrkjaránið og gosið
sterkt inn í þá mynd,“ heldur Hera
Ósk lýsingunni áfram. Hún segir
þingið hafa verið haldið í Höllinni,
ágætu ráðstefnuhúsi Eyjanna, en
hefð sé fyrir því að sá klúbbur sem
sjái um þingið haldi líka rótar-
yfund. Þeim Eyjamönnum hafi
fundist við hæfi að skella upp stóru
tjaldi í sínum Herjólfsdal og funda
þar. „Eins og þeir þekkja sem kom-
ið hafa á þjóðhátíð hefur umhverfi
dalsins og náttúra sína einstöku
töfra og þar myndaðist góð stemn-
ing eins og vænta mátti. Vil ég nota
tækifærið og þakka þeim fjölmörgu
Eyjamönnum sem lögðu okkur lið
við þinghaldið."
Útrýma barnalömunarveiki
Á þinginu kom m.a. fram að á
starfsárinu lögðu íslenskir Rótary-
félagar tæplega 35 þúsund dollara
til Rótary-sjóðsins, menningar- og
mannúðarsjóðs hreyfmgarinnar.
Þar af fóru 11 þúsund dollarar beint
í bólusetningarátak alþjóðahreyf-
ingarinnar, Polio Plus, en með því
er stefnt að því að útrýma barna-
lömunarveiki. Góð von er um að
það markmið takist á árinu 2005, á
100 ára afmæli Rótary, en alþjóða
Rótary-hreyfingin hefur unnið að
þessu verkefni f 15 ár, ásamt Al-
þjóða heilbrigðismálastofnuninni
og fleiri aðilum, og lagt um 450
milljónir dollara í verkefnið.
Þá var á þinginu samþykkt skipu-
lagsskrá að Tónlistarsjóði Rótary á
Islandi, en hann er afrakstur Stór-
tónleika Rótary undanfarin ár og er
tilgangur hans að veita ungu tón-
listarfólki, sem skarað hefur fram
úr á einhverju sviði tónlistar, viður-
kenningu í formi fjárstyrks til
frekara náms.
Unga fólkið með
Hera Ósk segir ungt fólk hafa sett
svip sinn á umdæmisþingið því níu
erlendir skiptinemar séu hér í árs-
VERÐLAUNAAFHENDING: Kristján Bjarna-
son, garðyrkjustjóri Vestmannaeyjabæjar
og formaður Skógræktarfélags Vest-
mannaeyja, hlaut verðlaun Starfsgreina-
sjóðs Rótary fyrir ötult starf við varðveislu
og uppgræðslu lands og tilraunir með
plöntun trjáa við erfiðar aðstæður. I ræðu-
stólnum erGrétar Hrafn Harðarson dýra-
læknir sem afhenti verðlaunin.
dvöl á vegum íslenskra Rótary-
klúbba. .Æskulýðsstarf er um-
fangsmikill þáttur í starfi Rótary. í
vetur voru átta íslenskir skiptinem-
ar erlendis og sjö íslensk ungmenni
fara utan í sumarbúðir á vegum
Rótary í ár en 12 erlend ungmenni
koma hingað," segir hún.
Á lokahófinu í Höllinni fóru fram
umdæmisstjóraskipti og tók Bjarni
Þórðarson, tryggingastærðfræðing-
ur í Rótary-klúbbi Hafnarfjarðar,
við embætti umdæmisstjóra sem
hann mun gegna í eitt ár.
Umdæmisþingin eru haldin til
skiptis hjá klúbbunum sem mynda
net kringum landið. Að sögn Heru
Óskar eru þingin góð til að efla
tengslin og fara yfir það sem áunn-
ist hefur og fram undan er. „Svo
kynnist maður svo vel landi og
þjóð," segir hún og bætir við: „Ég
bý lengi að ferð sem ég fór til Húsa-
víkur á þing sem þetta og skoðaði
Mývatn og fleira fallegt á svæðinu."
gun@dv.is
HERA ÓSK: „Allt lagðist á eitt til að þingið tækist vel og það erum við ánægð með," segir Hera Ósk sem er ein stjórnarkvenna í Eyjum.
Tómatahús við þjóðveg: Við þjóðveginn milli Laugarvatns og Geysis hefur verið komið upp snotru húsi sem skýtur skjóli yfir nýja
tómata í plastpokum. Þarna geta vegfarendur smeygt sér (poka og borgað 150 krónur fyrir í bauk. Tómatahúsið stendur við bæinn
Rauðaskóg en þetta uppátæki bænda hefurvakið velvilja þeirra sem fram hjá fara.Tómatarnir eru frá Garðyrkjustöðinni Árbakka við
Syðri-Reyki. DV-mynd Óttar
Dakótaskógur á Hofsósl: I Konungsverslunarhúsinu á Vesturfarasetrinu á Hofsósi er sýn-
ingin Akranna skínandi skart þar sem gestir hafa margir hverjir verið spenntir að skoða
skóg sem er í líkingu við það sem maður myndi finna í Norður-Dakóta þar sem forfeður
okkar Islendinga settust margir að.Tré og tunglsljós, skordýr og snáka og margt annað
ber þarna fyrir augu. Með því að skoða sýninguna og aðrar i hinum fjölmörgu húsum set-
ursins í þorpinu á Hofsósi er auðveldlega hægt að komast inn í hugarheim vesturfaranna
og sjá hve framandi það er að koma í annað land. DV-mynd Óttar