Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2003, Side 38
38 DVSPORT MIÐVIKUDAGUR 16.JÚLÍ2003
Kluivert um kyrrt á Spáni
Chelsea hækkar tilboðið í Duff
KNATTSPYRNA: Patrick Klui-
vert, hollenski sóknarmaðurinn
hjá Barcelona, hefur bundið
enda á endalausar vangaveltur
^’varðandi framtíð sína með því
að lýsa yfir vilja til að vera um
kyrrt hjá félaginu. Kluivert, sem
orðaður hefur verið við fjöl-
mörg lið í Englandi á undaförn-
um vikum, segist ætla að sætta
sig við launalækkun hjá
Barcelona en hún gerði honum
kleift að fara frá Barcelona ef
eitthvert lið byði rétt um 200
milljónir í hann. Kluivert varð
fokillur þegar honum var tjáð
um launalækkunina fyrir tæp-
um mánuði og sagðist ætla að
fara annað hið snarasta. Hvers
vegna honum hefur skyndilega
snúist hugur er hins vegar enn-
þá hulin ráðgáta.
KNATTSPYRNA: Þriðja tilboði
Chelsea í írska vængmanninn
hjá Blacburn, Damien Duff, var
hafnað í gær. Nýjasta tilboðið
hljóðaði upp á rétt um tvo
milljarða króna en í síðustu viku
var tilboðum fyrst upp á 1,5
milljarða og síðan 1,8 milljarða
króna í leikmanninn hafnað.
Vitað er að Roman Abramovich,
hinn nýi og vellauðugi eigandi
Chelsea, hefur mikið álit á Duff,
og er talinn ætla að gera allt
sem í hans valdi stendur til að
klófesta leikmanninn. Graeme
Souness, stjóri Blacburn, vill
hins vegar fyrir alla muni halda
Duff í sínum röðum og segist
vona að þessi nýjasta tilboðs-
höfnun verði til þess að slökkva
á áhuga Chelsea á leikmannin-
um.
Stoke kaupir varnarmann
KNATTSPYRNA: Varnarmaður-
inn Clint Hill, sem lék við góðan
orðstír hjá Oldham í 2. deildinni
á síðasta ári, er genginn til liðs
við (slendingaliðið Stoke City.
Kaupverðið á hinum 24 ára
gamla miðverði, sem sagður er
skora mikið af varnarmanni að
vera, var ekki gefið upp en í til-
kynningu frá Stoke segir að upp-
hæðin sé með sex tölustöfum í
pundum talið. Stoke er orðað
við fjöldann allan af leikmönn-
um þessa dagana en þekktasta
nafnið í þeim hópi er sennilega
Ed de Goey, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður Hollands, sem
nú er á mála hjá Chelsea, og er
vís til að fara frá félaginu í sumar.
Hvort hann er reiðubúinn að
leika í ensku 1. deildinni er hins
vegarallt annað mál.
Dregið í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gær:
Haukar duttu
í lukkupottinn
íslandsmeistarar Hauka í hand-
* knattleik duttu heldur betur í
lukkupottinn í gær er þeir dróg-
ust gegn portúgalska liðinu San
Bernardo Averio í fyrstu umferð
Meistaradeildar Evrópu í hand-
knattleik. Liðið leikur í 2. deild-
inni í heimalandi sínu og fari svo
að Haukar beri sigur úr býtum
bíða þeirra leikir gegn liðunum
Barcelona og Magdeburg.
Liðin mætast heima og að heim-
an og fer liðið, sem nær betri sam-
r anlögðum árangri í leikjunum
tveimur, áfram í riðlakeppni meist-
aradeildarinnar. f þá riðla var
einnig dregið í gær og fer sigurveg-
arinn úr viðureignum Hauka og San
Bernardo í B-riðilinn. Þar er að
finna ekki ómerkari lið en spænska
stórveldið Barcelona og þýska liðið
Magdeburg, en eins og flestir vita er
það Alfreð Gíslason sem situr þar
við stjórnvölinn og með liðinu leik-
ur einnig Sigfús Sigurðsson. Þá er
einnig firnasterkt lið frá Makedón-
íu, Vardar Skopje, í riðlinum.
Heppnin með okkur
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka,
var eins og gefur að skilja í skýjun-
um þegar DV-Sport ræddi við hann
eftir dregið hafði verið í gær.
„Jú, það má með sanni segja að
heppnin hafi verið með okkur í
þetta skiptið, bæði hvað varðar
mótherja og ferðakostnað,“ sagði
Viggó, en þetta er alls ekki í fyrsta
skipti sem Haukar mæta liði frá
Portúgal í Evrópukeppni undir
stjórn Viggós.
í október árið 2000 mættu Hauk-
ar liði Braga í tveimur leikjum og
töpuðu með einu marki samanlagt.
„Það má með sanni
segja að heppnin hafi
verið með okkur í þetta
skiptið."
Rétt um hálfu ári síðar mættu
Haukar síðan liði Sporting. Þar
náðu þeir fram hefndum og sigruðu
með einu marki samanlagt.
«
Alfreð Gíslason, þjálfari Magdeburg:
Engin miskunn
„Það verður mjög skemmtilegt
fari svo að Haukar komist áfram í
riðilinn og þeir eru verðugir and-
stæðingar,"
sagði Alfreð
Gíslason, hinn
íslenski þjálfari
Magdeburg,
við DV-Sport í
gær eftir að
ljóst var að góð-
ar líkur væru á
að Haukar og Magdeburg yrðu
saman í meistaradeildinni í vetur.
„Það er alltaf gaman að koma
heim, hvort sem það er að keppa
leik eða bara f fríi. Við stefnum á
Alfreð Gíslason.
að komast áfram í 8-liða úrslit
keppninnar og til þess þurfum við
að enda í tveimur efstu sætunum.
Ég býst við því að Barcelona verði
okkar helstu keppinautar, en
Haukar eru sýnd veiði en ekki gef-
in. Við vitum hvað þeir geta og ég
og mitt lið mun ekki sýna þeim
neina miskunn ef við mætumst,"
sagði Alfreð.
„Þetta er í sjálfu sér drauma-
dráttur fyrir Magdeburg. Ég vildi
vera með Barcelona í riðli og svo
bætast Haukar mögulega við. Ég
gæti ekki verið sáttari," sagði
Alffeð að lokum.
vignir@dv.is
Leikur í 2. deild
Eins og áður segir er San Bern-
ardo Averio í portúgölsku 2. deild-
inni og verður að teljast mun slakari
andstæðingur en Braga og Sport-
ing. En að 2. deildar lið sé að taka
þátt í forkeppni meistaradeildar-
innar er auðvitað mjög undarlegt
og var Viggó ekki alveg viss um
hvernig það kom til.
„Það voru að ég held einhver lið í
deildinni dæmd úr leik. Hvort það
hefur verið vegna brotalaga á
rekstri eða annað er ég ekki viss um
en það fór svo að þetta efsta lið 2.
deildar keppti til úrslita við Porto
um titilinn. Þá viðureign vann Pono
en forráðamenn félagsins ákváðu
síðan að taka ekki þátt í meistara-
deildinni. Því tekur San Bernardo
Averio þeirra pláss,“ sagði Viggó og
bætti við að hann vissi nákvæmlega
ekki neitt um þetta lið.
„Það er síðan bara næsta verkefni
að afla sér upplýsinga um liðið. En
FÖGNU0UR: Þaðvarglatt
a hjalla hja Viggó Sigurðs-
syni og lærisveinum hans
ei þeirfögnuðu islands-
meistaratitlinum ívor. Hér
heldur fyrirtiöi Hauka.
Halldór ingolfsson, á
sjálfum bikarnum.
DV-mynd E.ÓI.
það er ljóst að
það er töluvert
veikara en Porto
og ég tel okkur
eiga góða
möguleika á að
komast áfram.
Við höfum öðlast
mikla reynslu með þátttökunni í
Evrópukeppni síðustu ár og eigum
að geta klárað dæmið. Það yrði
Fjárhagslega erþetta
ekki síður mjög gott
því Alfreð og Sigfús
trekkja."
frábært að komast
í riðlakeppnina og
fá að kljást við
Barcelona og
Magdeburg.
Fjárhagslega er
þetta ekki síður
mjög gott því
Alfreð og Sigfús trekkja," sagði
Viggó ennfremur. vignir@dv.is
Nýtt frjálsíþrótta- og sýningarhús rís við austurhlið Laugardalshallarinnar:
Mun gjörbreyta aðstæðum fyrir iðkendur
FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN: Þeir Þórólfur Árnason borgarstjóri og Vilhjálmur Einarsson,
silfurhafi á Ólympíuleikum, taka fyrstu skóflustunguna að nýrri byggingu. DV-mynd Pjetur
Þórólfur Árnason, borgarstjóri í
Reykjavík, tók í gær fyrstu
skóflustunguna að nýrri
íþrótta- og sýningarhöll sem
tengd verður Laugardalshöll-
inni til austurs. Jónas Egilsson,
formaður FRÍ, segir þetta vera
byltingu fyrir íþróttina.
Hin nýja íþrótta- og sýningarhöll
er sú fyrsta sinnar tegundar sem er
sérstaklega hönnuð fyrir sýningar
en auk 5000 fm sýningarsalar verð-
ur aðstaða fyrir fundi óg ráðstefnur.
Þá verða 400 ný bílastæði gerð við
höllina og eldri byggingar Laugar-
dalshallarinnar gerðar upp. Gert er
ráð fyrir að verkið kosti um 1400
milljónir króna og að því verði lok-
ið í ársbyrjun 2005. Mannvirkið,
sem er um 9500 fm að stærð, er
hannað af teiknistofunni Tark en
verkfræðihönnun er í höndum
VST.
„Þetta mun umbreyta frjálsum
íþróttum í landinu," sagði Jónas
Egilsson, formaður Frjálsíþrótta-
sambands íslands, í samtali við
blaðið í gær.
„Loksins almennileg
æfingaaðstaða."
„í fyrsta lagi hefur ekkert gerst í
innanhússmálum Reykvíkinga og
íslendinga allra í rúm 40 ár fyrr en
Egilshöllin og Fífan risu. Með þess-
ari byggingu erum við að fá raun-
verulega keppnisaðstöðu innan-
húss, sambærilega við þá sem er til
staðar erlendis. Frjálsíþróttir inn-
anhúss eru að verða jafn mikil
keppnisgrein og utanhúss og því
gífúrlega mikilvægt að viðunandi
aðstaða sé til staðar hér á landi.
Annað sem skiptir mildu máli er
að á meðan má finna æfinga-
aðstöðu fyrir iðkendur í bolta-
íþróttum um allt land hefur verið
mikill skortur í þessum efnum fyrir
frjálsíþróttafólk. Með þessu húsi
fær þetta fólk loksins almennilega
æfingaaðstöðu sem okkar besta af-
reksfólk getur æft í. Okkar besta
fólk í gegnum tíðina hefur nefni-
lega flest þurft að æfa erlendis úl að
ná árangri sem lýsir þvf best hversu
mikilvæg þessi nýja bygging er.“
agust@dv.is, eirikurst@dv.is