Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Qupperneq 12
72 FttÉTTBt LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 Einstök tónleikaferð um allt land með lifandi goðsögnum úr íslenskri tónlist september 06. Þórsmörk - Básar 10. Selfoss - Pakkhúsið 11. Vestm. eyj ar - Höllinn 12. Vík í Mýrdal - Leikskálar 13. Höfn - Hótel Höfn 14. Seyöisfj örður - Skaftfell 16. Egilsstaðir - Hótel Hérað 17. Eskifj örður - Valhöll 18. Húsavík - Hótel Húsavík 19. Akureyr i - Sj allinn 20. Siglufjörður - Bíó Café 21. Sauðárkrókur - Kaffi Krókur 23. Stykkishólmur - Hótel St. 24. Ólafsvík- Hótel Ólafsvík 25. Bifröst - Háskólinn á Bifröst 26. Mosfellsbær - Hlégaróur 27. Kópavogur - Salurinn októbear 02. Hafnarfjörður - Hafnarborg 03. Akranes - Bíóið 04. Reykjavík - Austurbær 10. Keflavík - Stapi 11. ísafjörður - Hnífsdal MITSUBISHI MOTORS én í íé.OOö eirttök ^ seld af plötunni 22 ferðalög Útlönd Hékmwmn itmotskwm Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson Netfang: gube@dv.is Sími: 550 5829 Slæm í umferðinni UMFERÐARMÁL For- eldrar sem aka börnum sinum í skóla á hverjum einasta degi eiga á hættu að þessi sömu börn verði hættuleg í umferðinni þegar þau vaxa úr grasi. Börnin eiga að fá að læra á um- ferðina af eigin raun. Þetta er mat danskra sérfræðinga í umferðar- öryggismálum, að sögn blaðsins Politiken. René la Cour Snell, for- stöðumaður umferðar- ráðs, segir að þessi of- vernduðu börn hafi enga tilfinningu fyrir umferðinni þegar þau fái sér fyrstu skellinöðr- una eða bílinn. Hermennirmr vilja fara heim VEL PASSAÐUR: Donalds Rumsfelds, landvarnaráðherra Bandaríkjanna, var vel gætt þegar hann heimsótti borgarstjórann i Mosul í frak í gær. Rumsfeld sagði bandarísk- um hermönnum í borginni að ekki væri þörf á að fjölga í hernámsliðinu. „Mér er andskotans sama um Rumsfeld. Það eina sem skiptir mig máli er að fara heim." Þetta sagði bandaríski hermaður- inn Rue Gretton við fréttamann Reuters í Tikrit, heimaborg Sadd- ams Husseins, fyrrum íraksforseta, í gær. Til stóð að Rumsfeld stappaði stálinu í hermennina í Tikrit með ræðu en vegna þess hve dagskrá ráðherrans var þéttskipuð og tím- inn naumur varð hann að aflýsa ræðunni í þetta sinn. „Það eina sem við höfðum upp úr heimsókninni var að við þurftum að taka til svo allt liti vel út. Og hann sá þetta ekki einu sinni,“ sagði Gretton eftir að hermennirnir höfðu sópað göturnar í kringum höllina. Rumsfeld hefur verið harðlega gagnrýndur, bæði innan bandaríska hersins og utan, fyrir tregðu sína við að end- urnýja í herliðinu. Rumsfeld gaf sér þó tíma til að þakka hermönnunum fyrir, eftir að hann ræddi við yfirmenn þeirra. „Þetta var gott fyrir liðsandann," sagði Josslyn Alberle major og tals- kona hermannanna í höllinni. í borginni Mosul sagði Rumsfeld við bandaríska hermenn að engin þörf væri á að fjölga í liðinu í írak, þrátt fyrir mikla aukningu í árásum á það síðustu vikurnar. Rumsfeld hefur verið harðlega gagnrýndur, bæði innan banda- ríska hersins og utan, fyrir tregðu sína við að endurnýja í herliði Bandaríkjamanna í írak. Bandarísk- ir hermenn þar eru um 150 þúsund en aðeins 22 þúsund frá öðrum löndum. Rússar hafna drögum ígor ívanov, utanrfkisráðherra Rússlands, tók í gær undir með Frökkum og Þjóðverjum og hafnaði drögum að ályktun sem Banda- ríkjamenn hafa kynnt í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Þar er hvatt til þess að fleiri þjóðir leggi til bæði hermenn og fé tU uppbyggingarinn- ar í Irak, undir merkjum SÞ. ívanov sagði að enn væri eftir mikU vinna við drögin. Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, sagðist í gær vera bjart- sýnn á að samkomulag myndi nást um ályktunardrög Bandaríkja- manna. Hann sagði að viðræður væru í gangi um að leysa ágreining landanna. „Ég er bjartsýnn," sagði Straw í ítölsku borginni Garda del Riva þar sem hann sat fund utanrrkisráð- herra Evrópusamandsins. Fréttir herma að bandarísk stjórnvöld ætli að þrýsta á að greidd verði atkvæði um ályktunina í Ör- yggisráðinu snemma í næstu viku. Líkur eru þó á að umræðurnar um hana dragist eitthvað á langinn þar sem mikill þrýstingur er á að gerðar verði á henni breytingar. Forráðamenn Brítish Airways Spá í flugskeytavarnir Breska flugfélagið British Airways íhugar að setja flug- skeytavarnarkerfi í farþega- þotur sínar til að vernda þær gegn hugsanlegum hryðju- verkaárásum. Forráðamenn félagsins hafa rætt við flugvélafyrirtæki en að sögn breska ríkisútvarpsins BBC eru þær viðræður á frumstigi. , Flugfélagið tilkynnti í gær að áætlunarflug þess til Sádi-Arabíu myndi hefjast á ný í dag, laugar- dag, eftir að öryggismál á flugvöll- unum í Riyadh og Jeddah voru endurskoðuð. Öllu flugi þangað var aflýst þann 13. ágúst af ótta við hryðjuverk. J ÍHUGAVARNIR: Forstjórar breska flugfélagsins British Airways kanna nú hvort fýsilegt sé að koma flug- skeytavarnarkerfum fyrir í farþega- þotum félagsins, af ótta við hryðju- verkaárásir. „Þar sem hætta er á hryðjuverk- um teljum við að árangursrrkasta leiðin til að koma í veg fyrir þau sé að viðeigandi yfírvöld átti sig á mögulegum skotstöðum í ná- grenni flugvalla," sagði talskona BA við BBC. Óttinn við flugskeytaárásir á farþegaflugvélar hefur farið vax- andi á undanförnum mánuðum. Skemmst er að minnast þess að breskur ríkisborgari var nýlega handtekinn í Bandaríkjunum þar sem hann reyndi að selja rúss- neskt flugskeyti útsendara alríkis- lögreglunnar FBI sem þóttist vera liðsmaður al-Qaeda. Sérfræðingar segja að helsti ljónið í vegi slíkra varnarkerfa sé hversu dýr þau eru.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.