Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2003, Síða 20
20 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 \ð vera í takt við tímann Það á að gera framhald afvinsælustu kvikmynd allra tíma á íslandi, Með allt á hreinu. Ágúst Guðmundsson leikstjóri sest aftur við stjórnvöl- inn eftir rúmlega 20 ára hlé. Hann rifjaði upp nokkrar minningar með Helgarblaði DV. „Að vera í takt við tímann, getur tekið á. Að vera „up to date“ er okkar innsta þrá. Hverskyns fanatík er okkur framandi. Hún er handbremsa á hugann lamandi." Þetta eru línur úr texta Stuðmanna við gleðilagið Búkalú sem þeir sungu við raust á legíó sveitaballa á níunda áratugnum. Það var á þeim árum sem þessi ólseiga kátínu- sveit naut hvað mestra vinsælda í kjölfar kvikmyndarinnar Með allt á hreinu sem fleiri Islendirigar sáu en nokkra aðra kvikmynd. Umrædd bíómynd hefur síðan verið eins og exem á líkama þjóðarinnar og eftir sífelldar endurútgáfur og dreifingar með pylsupökkum og á DVp og hver veit hvað eru áreiðanlega fleiri Isleridingar sem kunna utanbókar tilsvör þessarar myndar en geta vitnað í Njálu. Ævintýri Stuðmanna Það er sanngjarnt að segja að Stuðmenn hafa, eins og segir í ofangreindum texta, alltaf viljað vera „up to date“. Þeir hafa synt gegn- um tímann f augsýn þjóðarinnar, stundum farið í taugarnar á okkur en oftar höfum við elskað þá og sungið með. Þeir hafa frá fyrsta degi gert miskunnarlaust grín að leit sinni að hægum sessi við arineldinn í stásstofu þjóð- arinnar eins og lagið Að slá í gegn ber fagurt vitni um. Hver man ekki eftir nöprum hár- leysisbröndurum sem loddu við umrædda bíómynd eins og hár í súpunni. „Það varJakob Magnússon sem kom að máli við mig um veturinn og með okkur tókst gott samstarf. Til var söguþráður sem byggðistá Tívolí-plötunni en ég lagði til annan söguþráð og eftir honum var gert það handrit sem dugði tilþess að fá svolítinn styrk til verksins." Sennilega er sanngjarnt að segja að þegar best hefur látið á bráðum 30 ára ferli Stuð- manna hafi þeim tekist þetta ætlunarverk sitt og þjóðin hefur tekið þá í fangið, mætt á dansleikina, keypt plötumar, lesið viðtölin og sungið hástöfum með öllu saman. Þetta gerðum við svikalaust sumarið á Sýrlandi og ekki síður í Tívolí-ævintýrinu og keyrði um þverbak þegar allir vom með allt á hreinu. Svo getum við líka rifjað upp ævintýri eins og Hvíta máva sem áttu að verða næsta metsölu- mynd og við getum reynt að blístra lagið Moscow Moscow sem átti að tryggja þeim heimsfrægð kringum leiðtogafundinn 1985 og þá áttum við okkur á því að það hafa ekki allar tilraunimar tek- ist sem skyldi. En það er enginn fullkominn - hvorki við né Stuðmennimir. Og nú byrjum við aftur Nútíminn er tmnta og bítur stundum f sitt eigið tagl og nú hafa bjartsýnismenn í hópi hljómsveitarmanna og kvikmyndaleikstjóra ákveðið að gera framhald af vinsælustu kvik- mynd íslands rúmum 20 ámm eftir fmrrraýn- ingu fyrri myndarinnar. Framleiðslufyrirtækið Bjarmaland hefúr verið endurreist, það er búið að semja fullt af lögum og skrifa handrit að kvikmynd sem heitir í takt við tímann óg tökur á henni hefj- ast í Tívolí í Kaupmannahöfn þann 12. sept- ember. Þar verður þráðurinn tekinn upp aft- ur þar sem frá var horfið í fyrri myndinni og Stuðmenn halda mikla tónleika í Kristalsaln- um í þessum elsta skemmtigarði heimsins. Þáð verða sætaferðir með Flugleiðum og pöntunuin rignirinn því þama vilja állir vera þótt það séu liðin 20 ár og allir orðhir jafn- mörgum árúm eldri. Byrjað á endinum Þetta er ekki lokaatriði kvikmyndarinnar en þegar Ágúst Guðmundsson leikstjóri hóf tökur á Með allt á hreinu sumarið 1982 þá var byrjað á endinum. Það vildi þannig til að Stuðmönnum var boðið að spila á þjóðhátíð f Kaupmannahöfn og þegar það fréttist til annarra Norðurlanda vildu íslendingar í Nor- egi ekki láta sitt eftir liggja og bandið þurfti að bregða sér þangað líka. Þetta skýrir tilvist umræddra atriða í kvikmyndinni og rugling- inn í kringum Holmenkollen-stökkpallinn í Ósló og skýrir einnig þann mismun sem er á blæ lokaatriðisins og öðmm atriðum f mynd- Við vorum hálfblankir Þegar þessir hlutir gerðust var Ágúst Guð- mundsson, sem er oft talinn upphafsmaður íslenska kvikmyndavorsins, búinn að gera tvær kvikmyndir í fúllri lengd í samvinnu við ísfilm sem var stofnað til stórra hluta á um- ræddu kvikmyndavori. önnur þeirra var Land og synir sem vár upphafsmynd vorsins en hin seinni var Útlaginn sem byggðist á Gísla sögu Súrssonar. Þar sást varla í nokkurn leikara fyrir hári og skeggi og þegarÁgúst sest niður með blaðamanni DV til að spjalla um tilurð nýju myndarinnar þá viðurkennir hann að hann hafi líklega ekki verið fyrsta val Stuðmanna til þess að stýra umræddri kvik- mynd því hann hafi verið talinn frekar alvar- legur. „Það var Jakob Magnússon sem kom að máli við mig um veturinn og með okkur tókst gott samstarf. Til var söguþráður sem byggð- ur var á Tívolí-plötunni, en ég lagði til annan söguþráð, og eftir honum var gert það hand- rit sem dugði til þess að fá svoh'tinn styrk til verksins. Víð hjá ísfilm höfðum grætt svolitla peninga á fýrstu mynd okkar en-tapað þeim á næstu mynd svo það lá ekkert sérstakt fyrir annað en að ráðast í þetta. Við vorum búnir með aurana. Ég og Stuðmenn stofnuðum saman fyrirtækið Bjarmaland og hófumst handa,“ segir Ágúst þegar hann rifjar þetta upp. Keypti notaðan Citroén - Hér þarf varla að rifja það upp að tæplega 120 þúsund fslendingar munu hafa séð Með allt á hreinu f kvikmyndahúsum á sínum tíma. Urðuð þið ekki moldríkir af þessu? „Ég man það ekki vel,“ segirÁgúst og glott- ir...... „Ég man samt að ég keypti mér notaðan bfl af Citroén gerð, mikinn kjörgrip.“ - Það er sérkennileg tilviljun að eftir þetta vel heppnaða verkefni skÚdu Ieiðir Stuð- manna og Ágústs og þeir gerðu kvikmynd sem hét Hvítir mávar en Ágúst gerði kvik- mynd sem hét Gullsandur. Báðar fjölluðu með einhverjum hætti um leitina að fjársjóði Hæfilega .wild': Ágúst Guðmundsson leikstjóri ætlar að taka aftur upp rúmlega 20 ára gamlan söguþráð og gera framhald af Með allt á hreinu. . DV-mynd ÞÖK og erlendur her kom við sögu í þeim báðum. Hvorug þessara mynda mun vera talin meðal bestu verka höfunda sinna. - Gerð framhaldsmyndarinnar mun hafa verið rædd árum saman á árshátíðum Bjarmalands en það var að frumkvæði Ágústs sem loks var látið til skarar skríða í vetur. Ágúst segir að í rauninni eigi nýja myndin að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið nema hvað það hafa liðið 20 ár. Að öðru leyti er Ágúst frekar fámáll um það hvað nákvæm- lega eigi að gerast í nýju myndinni umfram það að flestar söguhetjur verði á sínum stað. „Að vísu er þetta heldur stórt persónugall- erí til að hafa í kvikmynd en ég held að það vilji allir vera með.“ - En verður Dúddi á sínum stað spyr ég í þeirri sannfæringu að rótarinn og stórsnill- ingurinn Dúddi, sem Eggert Þorleifsson lék svo ógleymanlega á sínum tíma, sé sú per- sóna sem alls ekki mætti vanta í framhaíds- mynd eins og þessa. „Jú, Dúddi verður á sínum stað,“ segir Ágúst af festu og mér léttir stórlega fyrir hönd allra þeirra sem bíða án efa með tilhlökkun, vantrú eða sambland af þessu tvennu eftir umræddu framhaldsmeistaraverki. Hæfilega „wild" - Það liggur það orðspor á Með allt á hreinu að myndin hafi í rauninni verið gerð án handrits og nánast spunnin á staðnum. í heimildarmynd sem fylgir myndinni á DVD- diskinum segir Eggert Þorleifsson að hann hafi rekið í rogastans þegar hann sá endan- lega gerð myndarinnar því að honum kom á óvart að það skyldi vera söguþráður í henni. í sömu mynd segir Valgeir Guðjónsson frá því hvernig hann og félagar hans sömdu nokkur vinsælustu lög myndarinnar í einni rútuferð frá Egilsstöðum á kassagftar sem þeir tóku traustataki þar frá ffænda Valgeirs. „Það var auðvitað til handrit en það var mjög mikið vikið frá því og þótt við héldum okkur við þann söguþráð sem lagt var upp með þá bættust mörg fyncjustu atriðin við eftir að tökumar sjálfar hófúst," segir Ágúst sem viðurkennir að hann hafi aldrei áður gert framhald af neinni kvikmynd sem hann hef- ur átt þátt f. - Þegar Stuðmannaaðdáendur hugsa til allra þeirra uppátækja sem þessi stórhljóm- sveit fslands hefur tekið sér fyrir hendur um dagana verður okkur ljóst að þetta verður án efa eins og hin, hæfilega „wild" en snyrtrí mennskan þó ávallt í fyrirrúmi. Við mætum ömgglega. poili@dv.is ÞaÖ erhérria blátt relðhjól: Eggert Þorleifsson (hlutverki Dúdda miðils og rótara í ógleymanlegu sky.ggnilýsingar- atriöi I Með allt á hrelnu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.