Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Page 11
■
FÖSTUDAGUR 10. OKTÚBER 2003 FRÉTTIR 11
Siðareglur
LÖGREGLAN: Almenningur
getur nú nálgast kynningarefni
um lögregluna með aðgengi-
legum hætti á Netinu. Á vefn-
um er hægt að kynna sér siða-
reglur lögreglunnar; kynna sér
afbrotatölfræði, fræðilegar
rannsóknir og sögu lögregl-
unnar, svo fátt eitt sé nefnt.
Lögregluvefurinn hefur net-
slóðina www.lr.is.
Aukið peningamagn í umferð
KAUP: Vaxtaþróun á peninga-
markaði endurspeglar nú mikið
magn lauss fjár í umferð. Helstu
ástæðu þessarar þróunar má
rekja til þess að í september í
fyrra hóf Seðlabankinn kaup á
gjaldeyri til að styrkja gjaldeyris-
forðann. Alls hefur bankinn
keypt gjaldeyri fyrir um 40 millj-
arða króna og stendur gjaldeyr-
isforði bankans nú í 46 milljörð-
um króna. Kaup bankans hafa
komið fram í miklu framboði á
krónum sem þrýst hefur vöxtum
á peningamarkaði niðurog
undir stýrivexti Seðlabanka.
Með áframhaldandi kaupum á
gjaldeyri má því ætla að vextir á
peningamarkaði kunni að lækka
meira og að munur á peninga-
markaðsvöxtum og stýrivöxtum
aukist enn frekar.
STOLTUR: Bubbi Morthens vann til gullplötu á fyrsta söludegi nýrrar hljómplötu.
DV-mynd VALG
Vjnnur ekki framar
í ísbirninum
Bubbi Morthens tókekkilagið í útgáfuhófií tilefni nýrrar plötu
Á vinnustofu listmálarans Tolla
fór í gær fram fjörugt útgáfu-
teiti í tilefni af nýrri hljómplötu
Bubba Morthens.
í útgáfuhófi í gærkvöldi í tilefni
af nýrri hljómplötu Bubba
Morthens var honum afhent gull-
plata sem tákn um sex þúsund seld
eintök. Þó hefur umrædd plata,
Þúsund kossa nótt, ekki verið „á
götunni" nema þessa viku. Svo eft-
irvæntingarfullir hafa aðdáendur
stjörnunnar verið að þeir höfðu
þegar tryggt sér 6.200 eintök í net-
sölu til að missa ekki af fyrstu
sendingu.
Stríð og friður, þriggja manna
hljómsveit sem leikið hefur með
Bubba á þremur síðustu plötum
hans veitti einnig gullplötum við-
töku en það eru þeir Guðmundur
Pétursson gítarleikari, Arnar
Ómarsson trommuleikari og Jakob
Svo eftirvæntingarfullir
hafa aðdáendur stjörn-
unnar verið að þeir
höfðu þegar tryggt sér
6.200 eintök í netsölu
til að missa ekki af
fyrstu sendingu.
Magnússon bassaleikari.
Hófið fór fram á vinnustofu list-
málarans Tolla, bróður Bubba, í
húsakynnum gamla ísbjarnarins á
Seltjarnarnesi og var því málverka-
sýning í leiðinni. Bubbi sagði að
venjan fram til þessa hefði verið að
spila nokkur lög í útgáfuhófum,
eins og til frekari kynningar á plöt-
unni, og raynar hefðu hljóðfæri
verið komin á staðinn þegar gam-
alt loforð rifjaðist upp fyrir honum.
Eins og menn minnast sagði hann í
texta á fyrstu plötu sinni fyrir rúm-
lega 20 árum að hann ætlaði aldrei
aftur að vinna í ísbirninum. Þetta
vildi hann standa við, og því var
engin tónlist í útgáfuhófinu.
Síðasta plata Bubba, Sól að
morgni (2002), seldist í tæpum 14
þúsund eintökum og hefur notið
gríðarmikilla vinsælda. Nýja platan
er að sögn Bubba lokaplata í þríleik
sem hófst með Lífið er ljúft (1993)
og hefur Sól að morgni í miðið. All-
ar leggja þessar plötur í texta og
tóni áherslu á hin sönnu lífsgæði,
hamingjuna í skauti fjölskyldunnar
og ástina til hennar. Þó hefur
Bubbi ekki gleymt að reiðast órétt-
læti heimsins og taka upp hansk-
ann fyrir lítilmagnann eins og
heyra má á nýju plötunni í lögum
eins og „Mamma vinnur", „Fastur
liður“ og „Fagur er fiskur í sjó“.
PÁÁ/SA
ICELANDAIR
www.icelandair.is