Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Blaðsíða 36
36 DVSPOKT FÖSTUDAGURW.OKTÓBER2003
+-
Helgi Jónas meiddur
KÖRFUKNATTLEIKUR: Helgi
Jónas Guðfinnsson, sem valinn
var leikmaður ársins í Inter-
sport-deildinni í körfuknattleik
. á síðasta tímabili, mun ekki
leika með Grindavík í kvöld
þegar liðið mætir Njarðvík á
heimavelli í 1. umferð Inter-
sport-deildarinnar. Helgi Jónas
mun að öllum líkindum verða
frá næstu vikurnar en það
kemur í Ijós á allra næstu dög-
um hversu alvarleg meiðslin
eru.
Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari
Grindvíkinga, sagði í samtali
við DV Sport í gær að þetta
væri að sjálfsögðu mikið áfall
fyrir liðið. „Helgi Jónas er einn
af lykilmönnum liðsins og það
er alltaf slæmt að missa slíka
menn."
Framarar semja
KNATTSPYRNA: Miðjumenn-
irnir Viðar Guðjónsson og Freyr
Karlsson skrifuðu í gær undir
tveggja ára samninga við
Fram.
Viðar lék 16 leiki með Fram í
Landsbankadeildinni ísumar
og skoraði í þeim eitt mark en
Freyr lék 14 leiki. Viðar og
Freyr eru báðir uppaldir Fram-
arar.
Stórleikur á Ásvöllum í bikarnum
HANOKNATTLEIKUR: Igær
var dregið í 16 liða úrslitum SS-
bikars karla í handknattleik og
8 liða úrslitum SS-bikars
kvenna.
Stórleikur 16 liða úrslita karla
er án efa viðureign Hauka og
KA-manna á Ásvöllum en lið í
RE/MAX-deildinni mætast í
þremur öðrum leikjum. FH tek-
ur á móti Aftureldingu, Breiða-
blik sækir Víking heim ÍVÍkina
og ÍR-ingar fá Framara í heim-
sókn í Austurberg.
Aðrir leikir í 16 liða úrslitunum
eru þeir að bikarmeistarar HK
sækja FH 2 heim í Kaplakrika,
(BV 2 tekur á móti Fylki, Valur 2
og ÍBV mætast á Hlíðarenda og
íVíkinnifærVikingur2Val í
heimsókn. Þessir leikir fara
fram dagana 5. og 6. nóvem-
ber næstkomandi.
(8 liða úrslitum SS-bikars
kvenna er stærsti leikurinn
viðureign (BV og Stjörnunnar í
Vestmannaeyjum. Fram tekur
á móti Haukum, Fylkir/ÍR fær
FH í heimsókn og Grótta/KR
sækir FH 2 heim í Kaplakrika.
Þessir leikir fara fram dagana
29. og 30. október næstkom-
andi.
Viggó Sigurðsson um leikinn gegn Barcelona:
Þurfum að
spila agað
Það veröur sannkallaður stór-
leikur í handboltanum á
sunnudaginn þegar íslands-
meistarar Hauka fá Barcelona
í heimsókn. Börsungar eru eitt
sigursælasta félag í handbolt-
anum og hefur félagið fjórum
sinnum unnið meistaradeild-
ina. Liðið er með valinn mann í
hverju rúmi en Haukar sýndu
það síðast þegar þessi lið
mættust að þeir eru sýnd veiði
en ekki gef in þegar þeir taka á
móti sterkustu liðum heims á
Ásvölium.
Eins og handboltaáhugamenn
muna þá lék Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, með Börsungum
þegar hann var á hátindi ferils
síns. Viggó sagði í samtali við DV
jj að Haukar ætluðu að veita stór-
veldinu harða keppni og skoraði á
alla íþróttaáhugamenn, ekki bara
stuðningsmenn Hauka, að mæta
á þennan stórviðburð í íslensku
íþróttalífi.
„Þessi leikur hefur verið mikið í
umræðunni og eru nokkrar vænt-
ingar til skemmtanagildis leiks-
ins. Við ætlum að standa okkur en
erum samt raunsæir. Barcelona er
með frábært lið og hefur á að
skipa einn af fjórum bestu leik-
mönnum heims í hverri stöðu.
Þeir hafa tvo toppmenn í hverri
stöðu og er engan veikleika að
finna.
Peningar eru ekki vandamál á
þessum bæ og er þetta nánast
bara spurning hvaða leikmenn
þeir vilja til sín. Knattspyrnuliðið
styrkir handboltann verulega og
er handboltadeildin ekki háð
neinum styrktaraðilum eins og
gengur og gerist í Þýskalandi.
Barcelona hefur einnig úr mun
meiri peningum að spila en félög-
in í Þýskalandi. Barcelona var að
spá í Ólaf Stefánsson um tíma en
fékk til sín mjög góðan leikmann í
sömu stöðu sem er yngri og ekki
mikið síðri leikmaður. Það var
gerður langtímasamningur við
hann og því er sú staða á vellinum
„Peningar eru ekki
vandamál á þessum
bæ og erþað er nán-
ast bara spurning
hvaða leikmenn þeir
vilja fá til sín."
hjá þeim í góðum málum."
Barcelona hefur haft sama þjálf-
ara síðan 1982 og því er hann bú-
inn að þjálfa liðið í 21 ár. Viggó
spilaði með kappanum á sínum j
tíma en hann tók síðan við þjálfun I
liðsins tímabilið eftir að Viggó fór |
frá félaginu.
Spurður um helsta styrkleika j
Börsunga og hvað Haukar þyrftu I
helst að varast sagði Viggó að
hraðaupphlaupin væru helsti |
styrkur liðsins.
„Hraðaupphlaupin eru þeirra I
helsti styrkur. Við þurfum að spila J
virkilega agaðan sóknarleik svo að j
við fáum ekki hraðaupphlaup í
bakið. Við þurfum að vera viðbún-
ir þrátt fyrir að við skorum úr
sókninni þvf að þeir taka snögga
miðju. Við verðum að hanga á
boltanumogsýnamikinnagaíleik |
okkar. Þeir koma til með að spila
5-1 vörn og eru vanir að halda sig j
við hana," sagði Viggó og er hvergi
banginn fyrir viðureignina.
ben@dv.is
LOKAUMFERÐIN UM HELGINA: Lokaumferð Islandsmeistaramótsins ( ralli verður ekin á morgun, laugardag, og að þessu sinni verða
eknar tvaer sérleiðir,Tungnaá og Dómadalur, en hvor leið verður ekin þrisvar. Bræðurnir Rúnar og Baldur Jónssynir eru búnir að tryggja
sér Islandsmeistaratitilinn en spennan stendur um það hverjir ná öðru sætinu og jafnframt (slandsmeistaratitlinum í 2000-flokki. Þar
keppa til úrslita Hlöðver Baldursson og Halldór G. Jónsson við Daníel Sigurðsson og Sunnevu Lind Ólafsdóttur sem sjást hér á myndinni
að ofan. DV-myndJAK
KEFLAVÍK- GRINDAVÍK
104-73(57-42)
Oómarar:
Leifur Garðarsson og
Gunnar Freyr Steinsson
mo
Gæfii leiks:
7/10
Ahorfendur:
70
Best á vellinum: m.
María Ben Erlingsdóttir, Keflavfk
Gangur leiksins:
2-0,11-5,17-9, 22-15, (32-16), 39-18,
43-26, 54-35, (57-42), 59-42,67-47,
77-53, (80-58), 86-61, 95-66,104-73.
Öruggt hjá
Keflavík
KEFLAVÍK
Stig skorufi (Frakost) Stoðsendingar
Erla Þorsteinsdóttir 19 1
Brina Valgarðsdóttir 17 6:2
Marfa Ben Erlingsdóttir 16 5) 0
Erla Reynisdóttir 12(5)3
Kristín Blöndal 10íO>6
Svava Ösk Stefénsdóttir 8 3) 4
Rannveig Randversdóttir 8 6
Halldóra Andrésdóttir 6 (3) 0
Bryndfs Guðmundsdóttir 4:3
Marfn Rós Karlsdóttir 4 ö) 2
Stig skorufi (Frátóst) Stoðsendingar
Sólveig Gunnlaugsdóttir 24 Í5) 2
Petrúnella Skúladóttir 12; 1
Guðrún Guðmundsdóttir 10 1
ÓlöfPálsdóttir 10.;.!} 5
María Guðmundsdóttir 6(1! 5
Sandra Guðlaugsdóttir 5(1)3
Helga Hallgrfmsdóttlr 25: 1
Harpa Hallgrfmsdóttir 2(7)0
Jovana Stefánsdóttir :.;.;2.0)2.
SAMANBURÐUR
Keflavfk Grindavik
38(15) Fráköst (sókn) 30(8)
ErlaÞ.9-Harpa7
27 Stoðsendingar 20
Rannveig 6, Kristín 6 - Ólöf 5, Marfa 5
22 Stolnlr boltar 7
Erla R. 4, Svava 4 - Guðrún 2, Marla 2
4 Varln skot 0
Birna 2 - engin
GEGNUMBROT: Haukamaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson sést hér brjótast í gegnum
vörn portúgalska liðsins Bernardo Aveiro í leik liðanna í forkeppni meistaradeildarinn-
A arádögunum.
20 Tapaolr boltar 31
13/5 (39%) 3ja stiga skot 20/11 (55%)
38/27(71%) Vitanýting 18/10(56%)
Keflavíkurstúlkur sigruðu
granna sína frá Grindavík
104-73 í fyrsta heimaleik sín-
um í 1. deild kvenna á fimmtu-
dagskvöld. Keflavíkurstúlkur
koma sterkar til leiks í úrvals-
deild f körfuknattleik í vetur
þar sem allir 10 leikmenn liðs-
ins voru komnir á blað eftír 7
mínútna leik.
Leikurinn fór frekar rólega af
stað og jafnræði var með liðunum
fyrstu fimm mínutur leiksins, en
þá tóku heimastúlkur sig til og
komust 16 stigum yfír, 32-16, þeg-
ar hálfleikurinn var hálfnaður, en
leikmenn gestanna voru ekki á því
að gefast upp og skoruðu 42 stig á
heimastúlkur f fyrri hálfleik sem
þykir bara nokkuð gott í körfu-
bolta, en Keflavíkurstúlkur höfðu
þó 15 stiga forystu í hálfleik, 57-42.
„Við stefnum að þvíað
vinna alla leikisem við
tökum þátt í og í fram-
haldinu allaþá titla
sem iboði eru."
í sfðari hálfleik var um einstefnu
að ræða hjá heimastúlkum sem
voru grimmar í vörninni og
refsuðu liði gestanna hvað eftir
annað með auðveldum körfum og
í raun sáu Grindavíkurstúlkur
aldrei til sólar í síðari hálfleik og
þrátt fyrir að skora 73 stig í leikn-
um þá töpuðu þær eins og áður
sagði með 31 stigs mun, 104-73.
Keflavíkurliðið var mjög jafnt þar
sem liðið hefur á að skipa 8 lands-
liðskonum en þð var það hin 15 ára
gamla María B. Erlingsdóttir sem
var að gera frábæra hluti bæði í
vörn og sókn. Sólveig Gunnlaugs-
„Við mættum einfald-
lega betra liði hér í
kvöld og íraun er ég
nokkuð sáttur við það
að skora 73 stig á móti
þessu liði."
dóttir var yfirburðamaður í liði
gestanna bæði í vörn og sókn.
„Við erum með frábæra liðs-
heild og gaman að sjá ungu stelp-
urnar, Maríu Ben og Bryndísi,
koma svona sterkar til leiks. Við
stefnum að því að vinna alla leiki
sem við tökum þátt í og í fram-
haldinu alla þá titla sem í boði
eru," sagði Anna María Sveins-
dóttir, leikmaður Keflavfkur, eftir
leikinn.
„Við mættum einfaldlega betra
liði hér í kvöld og í raun er ég
nokkuð sáttur við það að skora 73
stig á móti þessu liði sem eðlilega
mundi skila okkur sigri, en vörn-
ina verðum við að laga og þá sér-
staklega fráköstin sem voru að
drepa okkur í kvöld, en við eigum
fullt inni ennþá," sagði Pétur Guð-
mundsson, þjálfari Grindavíkur.
JG