Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 10. OKTÚBER 2003
í haldi
INDÓNESfA: Lögreglan í
Indónesíu hefur handtekið bíl-
stjóra flutningabíls sem lenti í
árekstri við langferðabíl á mið-
vikudag, með þeim afleiðing-
um að rúmlega fimmtíu börn
fórust. Bílstjórinn flúði af vett-
vangi eftir slysið.
Að sögn indónesísku lögregl-
unnar er verið að yfirheyra bíl-
stjórann.
George W. Bush Bandaríkjaforsetí ver gjörðir sínar í írak:
Útlönd
Heimurinn i hnotskurn
Umsjón: Guðlaugur Bergmundsson, Erlingur Kristensson
Netfang: gube@dv.is, erlingur@dv.is
Sími: 550 5829
Ömurlegur landsfundur
STJÓRNMÁL Landsfundur
breska (haldsflokksins, sem
lauk í gær, var sá versti i manna
minnum. Andrúmsloftið á
fundarstað í Blackpool var öm-
urlegt og niðurdregið.
Þetta er mat þingmannsins
Michaels Portillos sem sagði í
viðtali við BBC að hann teldi
ekki að lain Duncan Smith yrði
vikið úr leiðtogaembættinu.
Formaður flokksins, Teresa
May, sagði að Duncan Smith
myndi leiða flokkinn í næstu
kosningum. Ekki er þó Ijóst
hvort frammistaða hans í
ræðustól í gær hafi þótt nógu
góð til að þagga niður í óróa-
seggjunum. Duncan Smith
réðst harkalega að Tony Blair
forsætisráðherra og fékk
dúndrandi klapp fyrir.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hélt enn í gær uppi vörnum
fyrir stríðið í írak og sagðist
hafa látið til skarar skríða til að
vernda bandarísku þjóðina fyr-
ir brjálæðingnum Saddam
Hussein. Ekki væri hægt að
tryggja öryggi landsins með
einhverri hálfvelgju.
„Ég lét til skarar skríða af því að
ég ætlaði mér ekki að láta öryggi
landsins í hendur brjálæðingi. Ég
ætlaði mér ekki að sitja með hend-
ur í skauti og treysta á geðheilsu og
hófstillingu Saddams Husseins,"
sagði Bandaríkjaforseti í New
Hampshire í gærdag.
Greinilegur kosningabaráttu-
bragur var á ræðu hans, enda New
Hampshire ríkið þar sem fyrstu al-
vöru forkosningarnar fyrir forseta-
kjörið fara fram á næsta ári.
Enn meira mannfall
Bush hefur legið undir miklu
ámæli heima, bæði vegna vaxandi
efasemda um réttmæti stríðsins,
þar sem enn hafa gjöreyðingar-
vopn Saddams ekki fundist, og
vegna mikils mannfalls f röðum
bandanskra hermanna í írak frá því
hinu eiginlega strfði lauk 1. maf.
Mannfallið hélt áfram í gærkvöld
þegar tveir bandarískir hermenn
týndu lífi og fjórir særðust í fyrirsát
í Sadr-borgarhverfmu í Bagdad.
Hermennirnir voru í eftirlitsferð
um hverfið þegar ráðist var á þá.
Drepinn á nærbuxunum
Fyrr um daginn fórust tíu írakar f
sjálfsmorðsárás á lögreglustöð í
þessu sama hverfi í Bagdad, þar
sem sítar eru í meirihluta. Þá féll
bandarískur hermaður einnig í
gærdag og spænskur stjórnarerind-
reki var skotinn þar sem hann var
að reyna að flýja berfættur og á
nærbuxunum einum fata undan
árásarmönnum. Mennirnir höfðu
bankað upp á heima hjá honum.
Spánverjinn, hinn 34 ára gamli
José Antonio Bernal, var liðþjálfi í
spænska flughernum og vann fyrir
leyniþjónustudeild spænska sendi-
ráðsins í Bagdad. Ekki er vitað hvað
morðingjunum gekk til.
„Þetta var hryðjuverk. Hann var
atvinnumaður í öryggismálum og
við vitum ekki hvers vegna hann
opnaði dyrnar, með svona þjálfun
að baki,“ sagði embættismaður í
spænska utanríkisráðuneytinu í
viðtali við spænska útvarpið.
Mannvitsbrekkan
Bush sagði síðan í Kentucky í
gærkvöld að endurreisnarstarfið í
lrak miðaði í rétta átt.
„Mér er alveg sama hvað þið les-
ið,“ sagði forsetinn og hafði fátt
nýtt fram að færa í röksemdafærslu
sinni fyrir því að tii betri vegar
horfði í írak.
„Hryðjuverkamennirnir
í írak telja að með árás-
um á saklaust fólk tak-
istþeim að veikja stað-
festu okkar. Þeir telja
að við munum hlaupast
á brott frá ögrandi
verkefnum."
Paul Wolfowitz, andstoðarland-
varnaráðherra og einn aðalhaukur-
inn í stjórn Bush, sagði í gær að
Bandaríkin myndu ekki láta nær
daglegar árásir á hermenn sfna slá
sig út af laginu. Hann lýsti því þess
í stað yfir að bandarísku hersveit-
irnar í írakværu á góðri leið með að
hafa sigur í baráttu sinni.
„Hryðjuverkamennirnir í írak
telja að með árásum á saklaust fólk
takist þeim að veikja staðfestu okk-
ar. Þeir telja að við munum hlaup-
ast á brott frá ögrandi verkefnum.
Þar fara þeir villir vegar. Banda-
ríkjamenn eru ekki af þeirri sort-
inni sem leggur skottið á milli lapp-
anna," sagði Wolfowitz á samkomu
íhaldssamrar rannsóknarstofnunar
þar sem hann var heiðraður sem
„frelsari" fraks.
Wolfowitz þykir ein mesta
mannvitsbrekkan í liði Bush og var
helsti hugmyndafræðingurinn að
baki ákvörðunar forsetans um að
ráðast á írak.
NATO til í að aðstoða
George Robertson iávarður,
framkvæmdastjóri NATO, lét að því
liggja í gær að bandalagið væri
reiðubúið að veita Tyrkjum marg-
víslega aðstoð ef tyrkneskir her-
menn verða sendir til gæslustarfa í
Irak.
Tyrkneska þingið samþykkti á
dögunum beiðni stjórnvalda um að
fá að senda hermenn til fraks.
Bandaríkjamenn vilja að Tyrkir,
eina múslímaþjóðin í NATO, sendi
allt að tíu þúsund hermenn til íraks
við fyrsta tækifæri.
Óvíst um fundi
Efasemdaraddir heyrast nú í
nokkrum Evrópuríkjum um líkurn-
ar á því að í þessum mánuði verði
efnt til ráðstefnu ríkja sem eru
reiðubúin að láta fé af hendi rakna
til endurreisnarstarfsins í írak
nema bandarísk stjórnvöld fallist á
ályktun í Öryggisráðinu þar sem
Sameinuðu þjóðunum er fært auk-
ið hlutverk.
Hvíta húsið, framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins og spænsk
stjómvöld ítrekuðu þó í gær að ráð-
stefnan yrði haldin í Madríd dag-
ana 23. og 24. október, eins og fýrir-
hugað hefði verið. Skipti þá engu
þótt ekki hefði náðst samkomulag
um pólitíska framtíð íraks á vett-
vangi Sameinuðu þjóðanna.
BUSH FÉKK BORGARA: George W. Bush
Bandaríkjaforseti brá sér inn á skyndibita-
stað í Manchester í New Hampshire í gær
og fékk sér hamborgara, gómsætan ef
marka má myndina. Bush er á yfirreið um
landið til að verja stríðið í (rak og eftirleik
þess. Vaxandi gagnrýni gætir í garð forset-
ans fyrir stríðsreksturinn.
Arafat talinn þjást
af magakrabba
Clint Eastwood er afar ánægður með kosningu Schwarzeneggers:
Á eftir að standa sig vel í
embætti og koma á óvart
Clint Eastwood fagnar kjöri
Arnolds Schwarzeneggers í
embætti ríkisstjóra Kaliforníu.
Eastwood var ræðumaður hins
virta Féiags stúdenta í Oxford í
gær og gerði nýafstaðnar kosning-
ar í Kaliforníu að umtalsefni.
„Ég óska honum velfamaðar því
guð veit að Kaliform'a þarfnast
góðrar stjórnar," sagði Eastwood
og bætti við að hann væri sann-
færður um að Schwarzenegger
mundi standa sig vel í embætti og
ætti eftir að koma fólki á óvart.
Eastwood er ekki óvanur stjórn-
málum því hann gegndi embætti
RfKISSTJÓRINN: Arnold Schwarzenegger,
ríkisstjóri Kalifornfu, segir bókhald ríkisins
verða sitt fyrsta embættisverk.
bæjarstjóra Carmel í Kaliforníu
um nokkurra ára skeið. Hann
sagði marga hafa hvatt sig til
framboðs nú en afskiptum af
stjórnmálum væri lokið af sinni
hálfu. Schwarzenegger hélt blaða-
mannafund í gær þar sem hann
sagði nána skoðun á ríkisbókhald-
inu verða sitt fyrsta embættisverk.
Nauðsynlegt væri að skera úr um
hversu stór fjárlagahalli ríkisins
væri, hann er talinn nema 8 til 10
milljörðum dala, og fmna leiðir til
úrbóta. Fjárlög næsta árs þurfa að
vera tilbúin um miðjan desember
og verða lögð fyrir þingið í janúar á
næsta ári.
ARAFAT: Leiðtoginn er sagður við bága
heilsu.Talsmenn hans segja hann þó ekki í
lífshættu.
Slæmt heilsufar Yassers Arafats,
leiðtoga Palestínumanna, hefur
vakið mikla athygli að undan-
förnu.
Arafat hefur nærst á fljótandi
fæðu undanfarna daga og hefur
vart staðið undir sjáifum sér. í
nýjasta tölublaði bandaríska viku-
ritsins Time segir líklegt að Arafat
þjáist af magakrabbameini. Tals-
menn leiðtogans gefa ekkert út á þá
skýringu og segja hann ekki í lífs-
hættu.
Hörð átök ísraela og Palestínu-
manna voru við Rafah-flótta-
mannabúðirnar á Gaza í nótt.
Fimm Palestínumenn féllu og að
minnsta kosti tuttugu slösuðust.