Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 10.0KTÓBER2003 SKOÐUN 15
Loksins fékk
eldislaxinn sporð
KJALLARI
EiríkurSt. Eiríksson
ritstjóri Skipa.is og höfundur
Stangaveiöihandbókanna
Það hefur komið á daginn sem
allir hugsandi menn vissu að
myndi gerast. Eldislaxinn sem
slapp úr geymslukví í Norðfirði
20. ágúst sl. er farinn að koma
fram í laxveiðiánum fyrir aust-
an.
Þeir sem reyndu að telja fólki trú
um að laxinn myndi fljótlega drep-
ast í hafinu vegna þess að hann
kynni ekki að bjarga sér vissu þetta
líka. Þeir sem ábyrgðina báru
stungu höfðinu hins vegar í sand-
inn og báðu til Guðs um að stroku-
laxarnir gufuðu upp í hafinu eða
það sem betra væri, færu til Fær-
eyja!
Minkur í hænsnakofa
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra, sem hefur á ráðherraferli
sínum lagst gegn innflutningi á
krókódflum og gott ef ekki strútum
lflca, virðist vera undarlega sam-
settur maður. Öðrum þræði vill
hann vera fulltrúi alls hins þjóðleg-
asta og besta í landinu og sem slflc-
ur kjassar hann kýr og hrósar
hrossum í hástert. A hinn bóginn
virðist einnig búa í ráðherranum
fól sem hagar sér eins og minkur í
hænsnakofa. Dæmi um það er af-
staða ráðherrans til eldis á laxi af
norskum stofni hér við land, inn-
flutnings á lifandi laxfiskum til
landsins og viðbrögð hans við um-
hverfisslysinu í Norðfirði þegar
tæplega 3000 eldislaxar sluppu úr
geymslukví á hafnarsvæðinu.
Ósannindi
Fyrst eftir að eldislaxarnir, sem
nú er farið að kalla „Norðfirðinga",
sluppu úr kvínni bar ráðherrann sig
borginmanniega og gerði lítið úr
þeim skaða sem strokulaxamir
gætu unnið á náttúmlegum laxa-
Stofnum. Taldi hann sig hafa búið
þannig um hnútana með frábærri
reglugerð sem kveður á um að fisk-
eldi megi ekki stunda í nágrenni
laxveiðiánna. Af ummælum ráð-
herra mátti ráða að „Norðfirðing-
arnir" væru ekki með sporð og því
ósyndir með öllu eða þá að þeir
bæm svo mikla virðingu fyrir reglu-
gerðum landbúnaðarráðuneytisins
að þeir voguðu sér ekki inn á firði
eða flóa í næsta nágrenni laxveiði-
áa. Síðar beit ráðherrann höfuðið
af skömminni með ósannindum
um að í laxeldisævintýrinu hinu
fyrra hefði Faxaflói verið fullur af
eldiskvíum. Þá hefði ekki verið tek-
ið á málum af sömu festu og nú
væri gert. Hér á e.t.v. við hið fom-
kveðna að betra sé að veifa röngu
Kostaboð
„Við höfum því ákveðið að
bjóða ykkur að ganga til liðs við
Unga jafnaðarmenn (ungliða-
hreyfingu Samfylkingarinnar),
enda teljum við líklegt að Sam-
fýlkingin eigi betur við ykkur en
Sjálfstæðisflokkurinn."
Stjórn Ungrajafnaðarmanna í
yfirlýsingu tHþeirra 1152einstak-
iinga sem stjórn Heimdaiiar skráði
ekkiíféiagið fyrir aðaiafund.
'eWm
mm
MARGBROTINN RÁÐHERRA; „Öðrum þræði vill hann vera fulltrúi alls hins þjóðlegasta og besta í landinu og sem slíkur kjassar hann kýr og hrósar hrossum í hástert. Á hinn bóginn virðist
einnig búa í ráðherranum fól sem hagar sér eins og minkur í hænsnakofa," segir greinarhöfundur.
tré en öngvu en rétt er að ráðherr-
ann geri nánari grein fyrir ummæl-
um sínum.
Hið óumflýjanlega
Því miður reyndist bænhiti
Guðna Ágústssonar ekki nægilegur
til að koma í veg fyrir hið óumflýj-
anlega. Fyrstu strokulaxarnir eru
Af ummælum ráðherra
mátti ráða að „Norð-
firðingarnir" væru ekki
með sporð og því
ósyndir með öllu eða
þá að þeir bæru svo
mikla virðingu fyrir
reglugerðum landbún-
aðarráðuneytisins..."
komnir fram í Selá, Hofsá og Breið-
dalsá, sjö hængar og ein örmerkt
hrygna. Allir fiskarnir vom kyn-
þroska. Enginn veit um fjölda
þeirra „Norðfirðinga" sem nú em á
hrygningarstöðvum náttúmlegu
laxastofnanna í umræddum ám og
víðar. Því var haldið fram á heima-
síðu Sfldarvinnslunnar í Neskaup-
stað 22. ágúst sl. að laxinn sem
slapp væri að stærstum hluta ókyn-
þroska lax sem óvíst væri að leita
myndi í ferskvatn. „Fiskurinn er
eldislax og alinn upp sem slíkur og
mun því lfldega leita að eldiskvíum
þar sem hann er vanur að fá æti.
Hæpið er að þessi lax eigi miklar
lífslíkur við náttúmlegar aðstæður
og því lfldegt að mest af honum
drepist."
Orð ráðherrans
í Fréttablaðinu 7. október sl.
mátti lesa eftirfarandi:
„Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra sagði í fyrirspurnartíma á
Alþingi í gær að hann vonaði að
laxinn sem slapp út úr eldiskví í
Norðfirði fýrir nokkmm vikum
myndi annað hvort drepast eða
fara til Færeyja.
Hann sagðist vonast til þess að
laxinn yrði ósjálfbjarga í hafinu
eins og Keikó. Guðni svaraði fyrir-
spurn Kolbrúnar Halldórsdóttur
um til hvaða aðgerða landbúnaðar-
ráðuneytið hygðist grípa til að
bregðast við því að eldislaxinn
slapp. Kolbrún spurði ráðherrann
hvort hann væri að fara með böl-
bænir til handa færeyskum sjávar-
útvegi en ráðherrann sagði slíkt af
og frá.
Hann sagði að slysið í Norðfirði
hefði verið hörmulegt slys en það
myndi ekki þýða endalok fyrir sjó-
kvíaeldi við Island."
Tifandi tímasprengjur
Svo mörg vom þau orð og merki-
leg. Það merkilegasta er að ráðherr-
ann virðist loksins hafa áttað sig á
því að jafnvel eldislax er með sporð
jtví án hans væri víst lítið um Fær-
eyjaferðir. Það hefur lengi legið fyr-
ir að lax sem sleppur úr eldi getur
synt mörg þúsund kflómetra áður
en hann kemur fram og yfirleitt
fylgja strokulaxarnir hafstraumum.
Bann við fiskeldi í Faxaflóa og í öðr-
um fjörðum og flóum í nágrenni
laxveiðiáa er því marklaust. Tifandi
tímasprengjur á Austfjörðum geta
eyðilagt laxveiðiár á Vesturlandi
svo lengi sem leyft verður að ala hér
lax af framandi stofni. Sagan hefur
leitt í ljós að það vom mistök að
heimila innflutning á minkum til
landsins upp úr miðri síðustu öld.
Sömu rök vom notuð þá og em
notuð nú varðandi laxeldið. Mink-
urinn átti ekki að sleppa út í náttúr-
una frekar en eldislaxinn. Enn á eft-
ir að reyna á sjálfar eldiskvíarnar en
í ljósi þess að óveður í Vestmanna-
eyjum rústaði Keikókvína á sínum
tíma er ljóst að laxeldiskvíar stand-
ast ekki verstu vetrarveður. Það er
enn tími til að grípa í taumana og
koma f veg fyrir stórkostlegt um-
hverfisslys og óborganlegan skaða
á náttúrulegum laxastofnum lands-
ins. Vonandi sér landbúnaðarráð-
herrann að sér, nú þegar hann hef-
ur áttað sig á því að m.a.s. eldislax-
ar em með sporð. Annars ætti hann
að panta sér far til Færeyja sem
fyrst - aðra leiðina.
Lítil viðbrögð
„Nú má velta fyrir sér: Hvað
ætli hefði gerst ef komið hefði í
Ijós að morðingi Önnu Lindh
væri fulltrúi öfgasamtaka eða
einhvers konar pólitískur morð-
ingi? Jú, það hefði örugglega
ekki skort viðbrögð, aukið fjár-
magn til öryggislögreglu og vik-
ingasveita, hertar reglur þvers
og kruss og þar fram eftir götun-
um. Á þess konar viðbúnaði hafa
valdsmenn alltaf kunnað tökin."
Ármann Jakobsson á Múrn-
um.is, umskortá viðbrögðum við
þvíað svo virðistsem morðingi
Önnu Lindh sé geðsjúkur maður
„sem kerfið var ekki að sinna sem
sky/di'
Verri en illmennin
„Barátta Schwarzeneggers við
fjármál Kaliforníuríkis verður lík-
lega erfiðari en barátta hans við
illmennin á hvita tjaldinu, sér-
staklega í Ijósi þess að hann þarf
Amold Schwarzeneggers
að búa við meirihluta demókrata
í þinginu og getur því lent í erf-
iðleikum með að koma hug-
myndum sínum í framkvæmd."
Vefþjóöviljinn á Andriki.is.
Steinhissa
„Ég átti á dauða mínum von
fremur en því að hinn nýi félags-
málaráðherra léti hafa sig í það að
gefa ítalska verkatakanum, Impregi-
ló, siðferðisvottorð í bak og fyrir."
Össur Skarphéðinsson á
Samfylking.is.
össur Skarphéðinsson