Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Side 23
FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 TILVERA 23
Skáld mánaðarins
eru fíngerð verk, eins konar
þrívíddarteikningar á vegg, og
er yrkisefni þeirra hið örsmáa
og viðkvæma í náttúrunni.
Hulda Stefánsdóttir teflir sam-
an Ijósmyndum og málverkum
á neðri hæð safnsins á sýningu
sem ber heitið Leiftur. Sýning-
arnar standa til 2. nóvember.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.
ÞJÓÐMENNINGARHÚS©: ídag
kl. 17.00 verðuropnuðsýningin
Skáld mánaðarins í bókasal
Þjóðmenningarhússins. Að
þessu sinni er það Matthías Jo-
hannessen. Guðríður Sigurðar-
dóttir, forstöðumaður Þjóð-
menningarhússins, flytur ávarp.
Matthías Johannessen les eigin
Ijóð, Ingibjörg Gísladóttir, bóka-
safnsfræðingur við þjóðdeild
Landsbókasafns (slands - Há-
skólabókasafns, kynnir efni sýn-
ingarinnar og SkúliThoraren-
sen, framkvæmdastjóri Skóla-
vefjarins ehf., kynnir umfjöllun
um Matthías á Skólavefnum.
Skáld mánaðarins er samvinnu-
verkefni Þjóðmenningarhússins,
Landsbókasafns íslands - Há-
skólabókasafns og Skólavefjar-
ins ehf.
Tvær sýningar
HAFNARBORG: Tvær sýningar
verða opnaðar í Hafnarborg á
morgun. Pétur Halldórsson sýnir
málverk í aðalsal. Pétur vinnur á
hefðbundinn hátt. Hann nýtir
ýmislegt sem gert hefur verið á
auglýsingastofunni, alls kyns
kynningarefni sem gert hefur
sitt gagn á íslenskum markaði.
[ Sverrissal og apóteki Hafnar-
borgar verður opnuð sýning á
leirlist Sigríðar Erlu Guðmunds-
dóttur. Sigríður hefur haldið
tvær einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum hér heima
og erlendis. Á sýningunni verð-
ur Sigríður Erla með verk sem
öll eru unnin úr íslenskum hrá-
efni. Leir er aðalefnið, brenndur
og óbrenndur, ásamt kuðung-
um og rekavið. Sýningarnar
standa til 27. október.
DOCTOR SLEEP: Goran Visnijic leikur.
elsis eða vinnubúða. Stanley vel-
ur búðirnar og þar fær hann það
verkefni að grafa stórar holur eft-
ir fyrirskipun varðarins (Sigour-
ney Weaver). Það sem Stanley og
aðrir sem grafa vita ekki er að
vörðurinn er í raun að leita að
týndum fjársjóði.
Leikstjóri Holes er Andrew
Davis sem leikstýrt hefur
nokkrum þekktum kvikmynd-
um. Má þar nefna Under Siege,
The Fugitive, Chain Reactction
og nú síðast Collateral Damage
þar sem ríkisstjóri Kaliforníu,
Amold Schwarzenegger, var í
aðalhlutverki.
Doctor Sleep
I upphafi hét Doctor Sleep
Hypnotic en einhvers staðar á
leiðinni til okkar hefur hún feng-
ið sama nafn og bókin sem hún
er gerð eftir. 1 myndinni segir frá
ungum lækni með dáleiðslu-
hæfileika sem eitt sinn, þegar
hann dáleiðir mann gegn reyk-
ingum, fær sýn þar sem hann sér
stúlku fljóta á vatni. Þegar svo
lögreglan kallar hann til sín til að
aðstoða við að dáleiða máliausa
stúlku, sem talið var að hafi ver-
ið í haidi hjá raðmorðingja, sér
hann að það er sama stúlkan.
Doctor Sleep er bresk kvik-
mynd. í aðalhlutverkum eru
Goran Visnijc, sem margir
þekkja úr Bráðavaktinni,
Miranda Otto, sem leikur í
Hringadróttinssögu, Shirley
Henderson, Fiona Shaw og Cor-
in Redgrave. Leikstjóri er Nick
Willing og er Doctor Sleep fyrsta
kvikmyndin sem hann leikstýrir.
-komiö í búðir
S m Áauglýsingar
5 5 0 5 0 0 0