Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Side 37
FÖSTUDAGUR 10. OKTÚBER 2003 DV SPORT 37 * Líklegast til Brann Sturm Graz góður kostur Ivar hugsar sér til hreyfings KNATTSPYRNA: Ólafur Örn Bjarnason staðfesti við blaða- mann DV Sport í gær að hann væri að öllum líkindum á för- um frá Grindavíktil norska fé- lagsins Brann, svo lengi sem það héldi sér uppi í norsku deildinni. Þrjár umferðir eru eftir aftímabilinu í Noregi og er Brann í 8. sæti með 28 stig. „Það er langlíklegast að ég fari til Brann. Ég er með lausan samning í Grindavík og þeir vita vel af tilboðinu frá Brann. Þetta er þó alls ekki gert í nein- um illindum," sagði Ólafur Örn. Samningstilboðið sem hann er með frá Brann hljóðar upp á skuldbindingu í 3 ár og er samkvæmt heimildum DV Sports gott fjárhagslega fyrir Ólaf Örn. KNATTSPYRNA: Landsliðs- markvörðurinn Árni Gautur Arason hefur fá tækifæri fengið að undanförnu hjá félagsliði sínu, Rosenborg í Noregi, og er víst að hann mun ekki teljast norskur meistari með liðinu, þar sem hann lék ekki nógu marga leiki á tímabilinu. Samn- ingur hans við félagið rennur út um áramótin og telur hann það af og frá að hann muni leika áfram með því. Austurríska fé- lagið Sturm Graz hefur sýnt Árna Gauti áhuga og gert hon- um tilboð. Honum er ekki frjálst að skipta um félag fyrr en um áramótin og því er alls óvíst hvað gerist. Árni Gautur segist þó ekki vita annað en félagið hafi enn áhuga og taldi að Sturm Graz væri góður kostur. KNATTSPYRNA: Eftir að hafa fengið fá tækifæri með aðalliði Wolverhampton Wolves í ensku úrvalsdeildinni, er lands- liðsmaðurinn ívar Ingimarsson farinn að hugsa sér til hreyf- ings. Þegar tímabilið hófst í haust var hann staðráðinn í að sanna sig fyrir knattspyrnu- stjóra liðsins, Dave Jones, en það hefur ekki gengið. „Ég hef engar haldbærar skýr- ingar fengið frá Dave Jones hvernig standi á því," sagði (v- ar við DV Sport í gær. „Ég er í hörkuformi og reynt að sýna , allt það sem ég get en án árangurs. Ég býst fastlega við því að ganga frá mínum málum eftir helgi og mun ég þá væntanlega leika með liði í ensku 1. eða 2. deildinni." Þurfum að sækja meira DV, Hamborg: Leik íslands og Þýskalands í síð- asta mánuði verður seint gleymt í Þýskalandi. Lögð var mikil áhersla á sigur f leiknum en eftir markalaust jafntefli, þar sem Þjóðverjar voru í mikl- um vandræðum, lét landsliðs- þjálfarinn Rudi Völler þýsku pressuna heyra það á blaða- mannafundi eftir leik. Sú ræða hljómar enn í eyrum þýskra blaðamanna þó svo að Völler sjálfur vilji ekkert um hana ræða. „Þetta umræðuefni er afgreitt af minni hálfu,“ sagði Völler í viðtali við SportBild á miðvikudag. Ekki aðeins þýski landsliðshóp- urinn verður í brennidepli þýskra fjölmiðla á laugardaginn. Eftir að Gunter Netzing og Richard Delling fóru ófögrum orðum um þýska lið- ið í sjónvaipsútsendingu ARD frá leiknum á Islandi verður sérstak- lega fylgst með hvað sérfræðingur- inn segir að leiknum loknum á morgun. Sjónvarpsstöðin ZDF mun sýna beint frá leiknum og sér- fræðingur þeirra er enginn annar en Franz Beckenbauer. Verður að rasa út „Ég mun gefa mitt álit á leiknum og liðinu alveg eins og ég hef hing- að til gert,“ sagði Beckenbauer við SportBild. En hefur hann áhyggjur af viðbrögðum Völler? „Nei, Rudi var árásargjarn ein- faldlega vegna þess að hann var full eftir leikinn. Hann sá hversu lélegt liðið var. Og þegar Delling talaði um nýja lægð í þýskum fótbolta missti hann einfaldlega stjórn á sér. Hann varð að fá að rasa út." Viljum sækja meira Völler viðurkennir að leikurinn á íslandi hafi einfaldlega verið slak- ur. Hann segir sína menn hafa skort vilja og ákveðni. „Við viljum sækja meira fram á við og vera jafn- framt á verði í vöminni." Landsliðsþjálfarinn gerir ekki lít- ið úr hlut Michaels Ballacks í þýska landsliðinu en hann hefur verið tæpur að undanförnu vegna meiðsla en mun engu að síður spila með á laugardaginn. .„Michael veit vel að hann er þungamiðjan í liðinu. Hann er sá sem skapar sóknarleikinn og ég vil að hann verði duglegur að því leyt- inu til," sagði Völler. Franz Beckenbauer er einnig þeirra skoðunar að Ballack skipti sköpum fyrir landsliðið. „Svo lengi sem Oliver Kahn og Michael Ballack spila, skiptir ekki nokkxu máli hverjir hinir 9 em í byrjunarliðinu," sagði Becken- bauer. „Okkar styrkleiki felst í því að við erum sterkur hópur, ekki einstaklingslið." Vandræði á vinstri kantinum Mikið hefur verið rætt um stöðu vinstra kantmanns. Tobias Rau er meiddur og telja þýskir blaðamann að valkostir Völler í þessari leik- stöðu séu ekki miklir. Helst koma „Og ég vona að frammistaða okkar gegn Skotlandi hafi ekki verið nein tilvilj- um. Ég vil halda áfram á þessari braut. En það næst aðeins efmenn verða einbeittir." til greina Michael Hartmann og Christian Rahn en báðir hafa átt í erfiðleikum með að festa sig í sessi í félagsliðum sínum. „Eg mun sjá til hvernig þeir munu standa sig á æfingum. Ég ít- reka þó að það þarf ekki endilega að vera örfættur maður á vinstri kantinum," sagði Völler. Sjálfsagt er það rétt sem Becken- bauer segir, aðalatriðið hjá þýska landsliðinu hlýtur að vera að menn standi saman. Og Völler getur tekið undir það að reiðikast hans á fs- landi hafi þjappað mönnum sam- an. „Ég held að það hafi gert það. Og ég vona að frammistaða okkar gegn Skodandi hafi ekki verið nein tilvilj- um. Ég vil halda áfram á þessari braut. En það næst aðeins ef menn verða einbeittir og að góð stemning verði í hópnum. Aðeins þá er hægt að ná árangri," sagði Völler. eirikurst@dv.is Líkleg byrjunarlið íslands og Þýskalands á morgun DV, Hamborg: Líklegt þykir að bæði Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar fslands, og Rudi Völler, landsliðsþjálfari Þýskalands, muni spila sama leikkerfi, 3:5:2, og í fyrri leik lið- anna á Laugardalsvelli. Ásgeir og Logi þurfa að gera þrjár breytingar á liði sínu vegna meiðsla Heiðars Helgusonar og Lárusar Orra Sigurðssonar og leikbanns Jó- hannesar Karls Guðjónssonar. Helgi Sigurðsson kemur væntan- lega inn fyrir Heiðar, Pétur Mar- teinsson fer af miðjunni f vörnina og Amar Þór Viðarsson og Brynjar Björn Gunnarsson koma inn á miðjuna. eirikurst@dv.is Eiður Smári Guðjohnsen Helgi Sigurðsson Arnar Þór Viðarsson Rúnar Krístinsson Þórður Guðjónsson Indríði Sigurðsson Brynjar B^Gunnarsson Hermann Hreiðarsson Pétur Marteinsson * Ólafur Örn Bjarnason * Ámi GauturArason Kevin Kuranyi Bernd Schneider Michael Ballack Fredi Bobic Carsten Ramelow Christian Rahn Frank Baumann Christian Wörns Oliver Kahn Andreas Hinkel Ame Friedrich

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.