Dagblaðið Vísir - DV - 10.10.2003, Side 40
TJÍ
#-
«<•
'M
*
0t
FÖSTUDAGUR 70. OKTÓBER 2003
FRÉTTASKOTIÐ
SIMINN SEM ALDREI SEFUR
550 55 55
Við tökum við fréttaskot-
um allan sólarhringinn.
Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir
besta fréttaskotið í hverri
viku greiðast 7.000 kr.
Fullrar nafnleyndar er gætt.
SFS
Fjárhagsupplýsingakerfi
Irönsk bar
áttukona
fær friðar-
nóbelinn
(ranski mannréttindalögfræð-
ingurinn Shirin Ebadi hlýtur
friðarverðlaun Nóbels í ár. Geir
Lundestad, formaður norsku
Nóbelsnefndarinnar, greindi
frá þessu klukkan níu í morgun
að íslenskum tíma.
Ebadi hlýtur verðlaunin fyrir þrot-
lausa baráttu sína fyrir mannrétt-
indum og lýðræði í heimalandi sínu.
Nóbelsnefndin lagði áherslu á starf
hennar í þágu kvenna og barna.
„Ég er mjög ánægð og stolt," sagði
Ebadi í viðtali við norska ríkissjón-
varpið NRK í símaviðtali frá París.
„Þetta er mjög gott fyrir mig, mjög
gott fyrir mannréttindi í íran, gott
fyrir lýðræðið í fran og sérstaklega
gott fyrir réttindi barna í fran.“
Ebadi varð fyrst kvenna í íran til
að gegna dómarastarfi en hún
neyddist til að láta af því starfi í kjöl-
far klerkabyltingarinnar.
Verðlaunahafinn er aðeins ellefta
konan til að hljóta þennan eftirsótta
heiður frá því stofnað var til friðar-
verðlaunanna árið 1901.
Skömmu fyrir klukkan níu í morg-
un þótti ljóst að hverju stefndi þar
sem Nóbelsnefndin hafði samband
við fjölskyldu Ebadi til að fá síma-
númer hennar.
Mikill fjöldi þekktra manna var til-
nefndur til friðarverðlaunanna að
þessu. Þeirra á meðai voru Jóhannes
Páll páfi, Vaclav Havel, fyrrum for-
seti Tékklands, og írski poppsöngv-
arinn Bono. Tilnefndir voru 165, eða
fleiri en nokkru sinni.
Verðlaunaféð nemur um eitt
hundrað milljónum íslenskra króna.
Verðlaunin verða afhent við hátíð-
lega athöfn í Ósló þann 10. desem-
ber næstkomandi.
Ebadi hefur áður unnið til verð-
launa í Noregi fyrir baráttu sína. Það
var árið 2001 þegar hún fékk Rafto-
verðlaunin.
FRIÐARVERÐLAUNAHAFI: íranski lögfræðingurinn og baráttukonan Shirin Ebadi hlýtur friðarverðlaun Nóbels í ár fyrir ötula bar-
áttu fyrir mannréttindum og lýðræði í Iran.
Nýliðar Þórs Þ. unnu fyrsta leikinn
Intersport-deild karla í körfubolta hófst með fjórum leikjum í gær-KR, Snæfell, Haukarog ÞórÞ. ásigurbraut
Nýliðar Þórs frá Þorklákshöfn
komu á óvart í fyrstu umferð
Intersport-deildar karla í körfu-
bolta og unnu sinn fyrsta úrvals-
deildarleik frá upphafi - lögðu ÍR-
inga, 112-106, í framlengdum leik
í Þorlákshöfn í gær.
Bandarískir leikmenn voru
áberandi í fyrstu leikjunum og þrír
þeirra skoruðu yfir 40 stig í leikj-
um gærkvöldsins. Mest skoraði
IR-ingurinn Reggie Jessie eða 46
stig en hann lenti á íslandi fyrr um
daginn.
Af hinum leikjunum er það að
segja að KR-ingar unnu öruggan
sigur á Blikum og skoruðu 116 stig
í leiknum. Haukar og Snæfell
unnu síðan bæði útisigra á erfið-
um völlum, Haukar unnu 81-89 á
ísafirði og Snæfell vann 85-92 á
Sauðárkróki.
Sjá allt um leikina i Intersport-
deild karla á bls. 34 til 35.
Veðrið á morgun
Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp suðvestan tii, 10-15 og skýjað síðdegis,
en mun hægari og bjart norðan- og austanlands. Hiti 0 til 7 stig og hlýjast sunn-
anlands en víða frost í nótt, einkum inn til landsins.
Komd’ að leika!
SRANIHG ER HAFIN
Veðríðídag
^X)ramdsmt^di
Simi 5517300 • www.dramasmidjan.is
Veðrið kl. 6
Sólarlag
í kvöld
Rvík 18.27
Ak. 18.12
Sólarupprás
á morgun
Rvfk 8.04
Ak.7.55
Síðdegisflóð
Rvík 18.36
Ak. 23.09
Árdegisflóð
Rvfk 6.22
Ak. 10.55
Akureyri
Reykjavík
Bolungarvík
Egilsstaðir
Stórhöfði
Kaupmannah
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
London
Barcelona
NewYork
París
Winnipeg
f morgun
alskýjað
hálfskýjað
alskýjað
rigning
hálfskýjað
rigning
skýjað
2
2
1
3
4
12
5
6
8
14
skýjað
skýjað
léttskýjað 15
þokumóða 17
skýjað 13
heiðskfrt 15
Sm áauglýsingar ý
550 5000 ?