Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Qupperneq 19
DV Fókus FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 19 Mussuliðið Barðist fyrir betri heimi og mussan sjálf var liður i baráttunni. Mussan var meira en bara flík á árunum í kringum 1970; hún var lífsstOl. Konur skyldu ekki lengur klæðast þröngum kjól- um til að ganga í augun á karlmönnum, heldur var frelsið fólgið í víðum mussum sem voru þægilegar og huldu vöxtinn. „Þetta var alveg ferlega þægileg tíska, ódýr og hentaði manni mjög vel sem blönkum námsmanni," segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um mussuna. En mussan endur- Horfnar hugsjónir speglaði líka vissa afstöðu. „í klæðum endurspeglast oft ögrun gegn ríkjandi yfirvaldi og ég tók þátt í ákveðnu andófi. Mussan tengdist þessu andófi eins og að ganga með hring í nefinu seinna meir eða með buxurnar á hælun- um. Þetta var partur af kúltúr 68- kynslóðarinnar." Kvennahreyfingin komst fyrst á skrið hérlendis árið 1970, þegar konur gengu fylktu liði um götur Reykjavíkur 1. maí og báru stórt líkneski af konu sem á stóð „mann- eskja, ekki markaðsvara". Rauð- sokkahreyfingin var svo stofnuð um haustið og tók fyrir málefni eins og launamisrétti, verkaskiptingu á heimilum, getnaðarvarnir og dag- vistun barna. Danskar rauðsokkur höfðu þá þegar framið fræga aðgerð þegar þær hentu brjóstahöldurum, gervinöglum og gerviaugnahárum í sinni fyrstu mótmælagöngu. Stall- systur þeirra hérlendis fylgdu í kjöl- farið, þó ekki með eins dramatískum hætti, en gengu um ómálaðar og án heftingar „fegrandi undirfata." í stað þess að ganga um f þröngum kjól- um, háhæluðum skóm og með meik tók nú mussan við. En muss- ■ anvarallsekkijafneinhæfflík I og margir gætu ímyndað sér. I „Það voru til mjög margar gerðir af mussum," segir Ingi- björg, og þær voru til í öllum regnbogans litum. Mussutísk- an koðnaði þó smám saman niður eftir því sem leið á ára- tuginn. Konur höfðu enn áhuga á að klæðast fötum sem tendruðu áhuga karla, og þröngu fötin og meikið komu aftur. Nú má segja að við lifum á öld g-strengja og wonderbra. „Klæðaburðurinn er partur af [ sexúaliseringu þjóðfélagsins," segir Ingibjörg. En saknar hún mussunnar? „Já, að ýmsu leyti. Ekki fyrir mig sjálfa, en fyrir ungt fólk. Það er líklega erfiðara að vera námsmaður og fylgjast með tísk- unni í dag. Þegar neyslusamfélagið hefur gengið mjög langt kemur and- svar, og mér sýnist mussan vera að ganga í endurnýjun lífdaganna." Ung móðir - útivinnandi Það er ekki heiglum hent að vera útivinnandi og með lítið barn. Það krefst gríðarlegrar skipulagningar sem er ekki mín sérgrein. Hér áður íyrr vaknaði maður bara, skellti sér í sturtu, burstaði tennurnar með hraði og hljóp út. Allur tíminn fór í punt á manni sjálfum. Nú hefur blaðið snúist við. Rútínan er algerlega breytt. Nú vakna ég, reyni að einhverju leyti að taka mig til, vek dóttur mína, klæði hana, gef henni að borða, reyni að klára að hafa mig til ív og hleyp út með barn- ftiili ið Henný annarri og skiptitöskuna í hinni, nánast alltaf fimm mínútum á eftir áætlun og með maskaraklessu út á kinn. Ég er ekki að upphefja sjálfa mig með því að segja að ég sé dug- leg og mikill kraftur í mér. Frekar það að ég geti þetta alveg, eins óskipulögð og ég er. Ég vinn mikið og svo þegar heim er komið er sko langt frá því hægt að slappa af. Þá tekur við barnaupp- eldi, matartími, háttatími og það að koma stelpunni í rúmið, sem geng- ur frekar vel miðað við tanntöku á háu stigi. Loksins þegar tími er fyrir mig þarf að taka til heima fyrir og skipuleggja morgundaginn. Svo þegar f rúmið er komið seint að kveldi get ég varla sofnað fyrir stressi vegna morgundagsins. Öll rútínan sem bíður mín á það til að hræða mig, svo ég tali nú ekki um hugmyndaflæðið í hausnum á mér á hverju kvöldi. Þegar maður starfar sem blaðamaður þarf rennslið í höfðinu á manni að vera stanslaust og nýjar og skemmtilegar hug- myndir það sem vænst er af manni á degi hverjum. Ég er ekki skipulagðasta mann- eskja í heimi, og í raun ekkert nálægt því að vera skipulögð. En það að vera útivinnandi móðir krefst mikill- ar skipulagningar. Ég er öll að koma til, en þó koma oft dagar þegar mað- ur einfaldlega nennir ekki að halda af stað út f heim rútfnunnar. f amstri dagsins verður maður bara að vera bjartsýnn og muna að það er aldrei meira lagt á okkur en við þolum. Ég er nokkuð viss um að ég þoli þetta. Og rúmlega það. Ég elska þetta; barnið, mig og vinnuna. Skemmtileg þrenning; eins og Ríó tríó upp á sitt besta. Held nánast að ég sé heppin með lífið. Tilboð til áramóta. Sími 550 5000 éttablaðið 995 kr. Sími 515 7500 FRETTABLAÐIÐ 151.640 lesendur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.