Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2003, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2003 Siðast en ekki síst DV Sturla skerpir skærin Hinum dagfarsprúða sam- gönguráðherra, Sturlu Böðvars- rpjv syni, mun í dag hlotnast sá heiður að klippa á borða á nýrri brú yfir Þjórsá. Segja heimildarmenn blaðsins að síð- ustu daga hafi ráðherra dundað sér við að fægja skærin - og upp úr buxnavasanum hafi hann dregið brýni til að skerpa biti skæranna. Þau munu því án nokkurs vafa svínvirka í borðaklippingunni í dag. Það heyrir hins vegar til nokk- urra tíðinda að samgönguráð- herra komi í þessum erindagjörð- um austur fyrir fjall, því eins og manna í þessu embætti er siður vilja þeir fátt frekar en að leggja vegi og byggja brýr í sfnum eigin kjördæmum. Þannig hafa miklar framkvæmdir verið á Vesturlandi en síður fyrir austan fjall. í dag ætlar Sturla hins vegar að sýna fólki að undantekningin sannar regluna. Sturla Böðvarsson Samgönguráðherrann klippiráborða á nýrri brú yfir Þjórsá i dag. Skák Staða dagsins er frá sterku móti í Ungverjalandi í síðasta mánuði og það eru tveir Rúmenar sem eigast við. Öflugir skákmenn þótt þeir séu lítt þekktir hér á landi. En hvað með það, lokin eru skemmtileg. Það eru sterk al- þjóðleg mót um alla Evrópu í hverri viku og marga hér á Fróni klæjar í puttana! Hvítur á leik! Hvítt Levente Vajda (2537) Svart: Vladislav Nevednichy (2575) Stórmeistaramót, Nagykanizsa (6), 10.11.2003 70.Dh8! Db4 71.Hxd7+ Ke6 72.De8+ Kd5 73.Df7+ Kc5 74.Hxd6 1-0 • Tíu ára afrnæli Kaffibarsins var fagnað á staðnum um síðustu helgi. Staðurinn var pakkfullur af gestum sem flestir hafa verið fastagestir í gegnum árin og var gleði og glaumur mikill. Staðurinn Síðast en ekki síst var reyndar svo pakkfuilur að Baltasar Kormákur, eigandi Kaffi- barsins, þurfti sjálfur að gera sér ferð út á stétt til að ræða við lög- regluþjóna sem væntanlega hafa verið að gera athuga- semdir við fjölda gesta á staðnum. Baltasar tók sér að því loknu stöðu í dyrunum, gaf dyraverðin- um smáfrí og valdi sjálfur hverjir fengu að fara inn og hverjir ekki... • Og meira af Baltasar. Kvik- myndin 101 Reykjavík gerir enn ágætis hluti úti í heimi; hefur verið sýnd á fjölda kvikmyndahátíða eins og kunnugt er og hlotið fjöl- mörg verðlaun. í gær var myndin svo Mynd dagsins á kvikmynda- vefnum Intemet Movie Database, www.imdb.com. Sá vefur er nokk- urs konar biblía kvikmyndaunn- enda þannig að þessi heiður ætti að tryggja nokkra áhorfendur í viðbót... I • Krakkarnir í körfuknattleiks- deild ÍR eru með jóladagatal á heimasíðu sinni, ir-karfa.is. Leik- menn liðsins í karla- og kvenna- flokki sitja fyrir á flottum mynd- um til að krydda biðina eftir jól- unum. í fyrra voru nokkrir leik- menn fáklæddir á myndunum og bíða gestir síðunnar spenntir eftir að sjá hvað gerist í ár ... HVAÐEFPETTA VÆRI ALVÖRU BVSSA OG SKOT HEFþl OVARTHLAUPID AF IHAMAGANGINUM? Jólasveinar einn og átta Þekktust vanla Ira pukum liur Sá Stekkjastaur sem kemur til byggða í kvöld er eins og allir vita vænsti karl og hefur meðferðis ein- hver ókjör af góðgæti handa þæg- um börnum, og svo kannski fáeinar kartöflur ef einhverjir krakkar haga sér ekki sem skyldi í dag. En sú var tíðin að jólasveinar voru hreint ekki þau gæðablóð sem menn þekkja nú og troða upp á jólaböllum með söng og dansi kringum jólatréð. Jólasveinar hafa breyst feikilega mikið á síðustu öldum, bæði að hátterni, innræti og jafnvel útliti. í bókinni íslenskar þjóðsögur og sagnir, sem Sigfús Sigfússon skráði, birtist hráslagaleg lýsing á þeim jólasveinum sem hér riðu húsum á fyrri öldum. Svo segir Sigfús: „Jólasveinar verða að tilheyra jarðbúunum, þar sem svo virðist sem þeir séu kynblendingar af álf- um og tröllum, álfum í föðurætt en tröllum í móðurætt, og er sagt frá því víða í sögum og eru þeir þá tald- ir synir Leppalúða og Grýlu tröll- konu. Sumir segja raunar að þeir séu þjónar en eigi synir Grýlu. Þeir eru í mannsmynd að mestu leyti nema þeir eru klofnir upp að herð- um með klær fyrir fingur og tær og fætur kringlótta. Þeir eru jafnan taldir hafa mannlega stærð þótt skáldið segi svo: „Með þeim voru Sutnir segja raunar að þeir séu þjönar en eigi synir Grýiu. Þeir eru i mannsmynd að mestu ieyti nema þeir eru kiofnir upp að herðum með klær fyrir fingur og tær og fætur kringlótta. jólasveinar, jötnar að hæð.“ En það er líka stundum sagt um hávaxna menn. Jólasveinar þykja oft sldpa rúm sem er hæfilegt mönnum. Þeir eru illir að eðlisfari og líkastir púk- um og lifa mest á blótsyrðum manna og óvönduðum munnsöfn- uði og eru rógsamir og rángjarnir, einkum á börn. Stundum hjálpa þeir þó þeim sem að fæða þá vel. Þeir koma hingað með byrjun jólaföstu á selsldnnsbátum sínum vestan frá Grænlandsóbyggðum eða, að sumra sögn, austan frá Finnmörk og kalla sumir byggðar- lag þeirra þar Fimnam. Þeir leggja að landi í leynivogum undir ófær- Krossgátan Lárétt. l band,4 ólærð,7 veikt, 8 káf, 10 stafn, 12 vökva, 13 venda, 14 plan- ta, 15 fugl, 16 baksa, 18 tæp, 21 minntust, 22 at- laga, 23 eljusamt. Lóðrétt: 1 blunda, 2 söngrödd, fullkominn, 4 fallaskipti, 5 ellegar, 6 eldsneyti, 9 spurði, 11 fjarstæðu, 16 augnhár, 17 óvirða, 19 fjármuni, 20 tísku. Lausn á krossgátu •goiu oz 'gne 6 L '?ws 11 'etq 91 'njjy l L 'liuuj 6 '|o>( 9 'egs s'!puef66|| t7'sne|e||e6 £'j|e j'ps 1 :}}ajQpn -gigi g^'seje j^'npunuj t7'ujneu 8L 'ES|q 9t 'eo| sl 'unf Þl 'enus £i '6o| u 'ge6 oi '|l!4 8 'Q!SB| l '>|!S| V '6ejs l :»ajeq um og geyma báta sína í hellum og halda huldu yflr þeim uns þeir fara aftur nærri þrettánda. Þeir hafa nöfn sem skráð em víða. Þeir hafa ávallt byr hvert sem halda skal. Þeir skipta sér er á land kemur og fer einn á hvert bú. Sumir menn kalla þá einungis illa anda. Þeir em því mildu verri heldur en jólasveinar ýmsra annarra Norðurálfuland- anna sem virðast vera meinlausir og enda góðviknir. En þeir fylgja nú ef til vill menntuninni þar og fram- fömnum. Hér þekkjast þeir varla frá púkum og ámm af verknaði sínum og eru ill-kaldir sem hafís og heljur. Sumir menn segja jólasveina koma frá Hellulandsóbyggðum (í Amer- íku). Jólasveinar eiga kistu sem þeir bera menn brott í. Þeir eru mjög hafðir til að hræða börn með sem Grýla, og hefir margt verið ort um þá.“ Sem betur fer em þessir jóla- sveinar nú allir úr sögunni og aðrir geðþekkari teknir við. Veðrið * * * Q'°+ — r ö'ít. * * Nokkur .6 vindur * * -*Cþ * * * "1 Gola 1' £3 -3* * A Gola Gola £3-*. * *Nokkur ^g vindur £3. Gola _2* * Gola ♦o£3 +0 •£3 Gola Nokkur vindur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.