Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 3
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 3
Nóakonfektsórar við áramót
Spurning dagsins
Var árið gott?
„Jól og áramót eru tími afslöpp-
unar og upprifjunar,“ er ekki verri
setning en hver önnur til að byrja
kjallaragrein. Maður er orðinn eins
og kreist tannkremstúpa enda búinn
að liggja fyrir eins og skata, ýtandi
oní kokið á sér Nóakonfekti, Makk-
intossi og hangikjöti vættu í malti og
appelsíni. Með slökkt á tölvuhelvít-
inu gat maður einbeitt sér að lestri.
Da Vinci lykillinn er hörkuspenn-
andi fram á síðustu mínútu og svo
var mér gefin bókin um Dag Sigurð-
arson, sem snillingarnir Hjálmar
Sveinsson og Geir Svansson settu
saman.
Hugmynd að kvikmynd
Kvikmyndagerðarmenn athugið:
Hér er hugmynd. DAGUR OG FLOK3
- dramatísk saga vináttu og listar-
innar. Dagur Sigurðarson og Alfreð
Flóki eru í brennidepli. Reykvískt
listalff um miðja síðustu öld er kjör-
ið til nostalgískrar nálgunar. Spenn-
an á milli „listafólks" og „venjulegs
fólks“ var raunveruleg og blandaðist
í spennuna stóru milli komma og
kapítalista. Ekki komma og homma
eins og í dag.
Skofc Ungur hress Dagur og
kærasta á gangi í Reykjavík. Brodd-
borgari stoppar þau á götu og hræk-
ir framan í þau orðunum: „Fólk eins
og ykkur ætti að brenna!" Enginn
myndi bögga, segjum, Sverri Guð-
jónsson kontratenór á götu í dag, þó
mörgum flnnist hann eflaust asna-
legur í miðaldakuflinum.
Skot Dagur og Alfreð Flóki á
Laugavegi ellefu ásamt þessu liði
sem þeir héngu með; Ara Jósefssyni,
Þorsteini frá Hamri, Ástu Sigurðar
og öðrum áhugasömum listaspírum
- kannski hressum menntaskóla-
stelpum og strákum með óútgefið
handrit í vasanum. Heimsmálin
rædd, djúpspakar umræður, pólitísk
meðvitund, allt þetta bleytt upp í
búsi og tóbaki. Ellefan í dag: Um-
ræða um það hver vinnur Idol bleytt
upp í búsi og dufti.
Skofc Dagur að strita við hjól-
börukeyrslu, Dagur og Flóki að gera
Dr. Gunni
leggur drög að
kvikmynd um Dag Sigurðarson og Alfreð Jp. Flóka \
ICjallari
eitthvað skemmtilegt á fyOiríi, fynd-
in tilsvör og allur pakkinn. Svo haOar
undan fæti og í endann er ekkert eft-
ir nema eymd og dauði. Ég nenni
ekki sjálfur að skrifa handritið en
skora á aðra að gera það. Þetta væri
mynd sem íslendingar myndu
flykkjast á ef hún væri almennOega
gerð.
Mér datt þetta svona í hug yflr
konfektinu. Svo hringdi Egill Helga-
son í mig og bað mig um að fabúlera
um árið fyrir áramóta-SOfrið sitt. Þá
neyddist ég til að rifja upp það sem
maður vill helst gleyma...
Peysufataheimasætan Dagný
í liðinu sínu
Fólk er fífl öskrar maður eins og
sjúkur maður. Það sannaðist þegar
það kaus yfir sig óbreytt ástand.
Okkur var lofað skattalækkunum en
enginn hafði vit á því að spyrja
hvenær þær ættu.að byrja. Loforð
um jarðgöng og línuívilnun svikin
(hvað er línuflvilnum eiginlega?
Venjulegt fólk eins og ég þarf að fá
svona kreisí sjitt útskýrt á barnamáli
í fréttatímunum til að eiga séns) og
ha, ég?, spurðu rnenn ofsahissa að
þurfa að standa við eitthvað sem
þeir höfðu lofað.
Mörgum þótti það voða gott þeg-
ar þingsalurinn fylltist af ungu fólki,
en svo er þetta lið ekkert nema klón-
aðar útgáfur af gamla draslinu.
Peysufataheimasætan Dagný sveik
kjósendur sína og eigin hugsjónir af
því að hún vill „spila í liðinu sínu" og
manni flökrar nú bara yfir svona
aumingjaskap. Smjörgreiddu
ungsjallarnir sitja sveittir við að
gleyma því sem þeir voru að tuða
um í Heimdalli og Árni Magnússon,
sem maður hélt að væri svo kúl, er
löngu hættur að hlusta á pönk og al-
Mæðrastyrksnefnd Merm sefa sína svörtu
samvisku.
Eru pabbar
plebbar?
Páll Krístjánsson skrífar. Fyrir jól-
in heyrast hærra en í annan ú'ma
raddir um hve bágur sé hagur ein-
stæðra foreldra á Islandi. Víst er það
hárrétt og ekki hefur verið að
vænkast í þeirra ranni að undan-
fömu, því almennt er bOið milli rflcra
og fátækra í þjóðfélaginu að breikka
Lesendur
stórlega. Um þessa misskiptingu tala
margir í dsember, og stórforstjórarn-
ir sefa sína svörtu samvisku með því
að gefa kjötlæri eða peninga tfl
Mæðrastyrksnefhdar. Sem auðvitað
er mjög svo virðingarvert.
Hvað varðar einstæða foreldra
snúa kröfugerðir um bættan hag
þeirra einkum að hinu opinbera, svo
sem með aðgerðum í skattamálum,
fleiri leiguíbúðum, ódýrari heflbrigð-
isþjónustu og svo framvegis. Allt er
þetta ómur af því almenna viðhorfi í
nútímanum, að telja sameiginlega
sjóði landsmanna guðlegt veldi.
En eiga einstæðar mæður ekki
barnsfeður? Menn sem eru síst of
góðir til að hlaupa undir bagga með
þeim og barninu sínu. Býr ekki snefill
af sómatilfinningu í þessum mönn-
um? Geta þeir ekki lagt meira af
mörkum en þessar 15.500 kr. sem
þeim ber að greiða í hverjum mán-
uði? Víst gera sumir gott betur, en eru
hinir bara plebbar sem skeyta hvorki
um skömm né heiður.
Þriðja tilraun
Kristján Sig. Krístjánsson skrífar:
Þegar Össur Skarphéðinsson var rit-
stjóri DV sendi ég fyrirspurn til hans
um meðferðina á Sævari Ciesielski,
meðan sá síðarnefndi sat í gæsluvar-
haldi. Össur hafði þá nýlega skrifað í
forystugrein um að meðferðin á Sæv-
ari hefði stappað nærri því að vera
pyntingar. Hann endurtók síðar um-
mælin í þingræðu. Mér var sagt að
fyrirspurnin væri ekki birtingarhæf
vegna „rangfærslna" Þegar Össur
hætti á DV reyndi ég aftur, en fékk
ekki birtingu í það skiptið. Nú fer ég
af stað í þriðja sinn.
Þar sem ég er mjög ósammála
Össuri, og vfl meina að öO meðferðin
á Sævari hafi ótvírætt verið pynúngar
í skilningi sáttmála Evrópuráðsins og
Sameinuðu þjóðanna gegn pynting-
um og vanvirðandi meðferð, þá
spurði ég Össur - og spyr enn - eftir-
talinna spurninga.
a) Er háttvirtur þingmaður enn
þessarar skoðunar? b) Sé svo, mun
þingmaðurinn beita sér fyrir því að
slakað verði á nefndum sáttmálum til
dæmis að þak sáttmálana verði látið
síga niður í Síðumúlafangelsið? c)
Getur þingmaðurinn skOgreint hvað
vantaði uppá, hvað þurfi að fara flla
með mann til þess að kvalarar hans
fari að pynta hann, úr því meðferðin
á Sævari náði ekki að verða pyntingar
að mati Össurar en þó „stappar mjög
nærri því að vera pyntingar, ekkert
annað," sbr. þingræða Össurar þann
14. aprfl. 1998.
Það er brýnt að að minnsta kosti
lögreglan og grunaðir fái úr þessu
skorið uppá væntanlegan ráðherra-
dóm margnefnds Össurar, sem skollið
getur á eins og hendi sé veifað.
veg sama þótt einhverjir Portúgalir
krókni uppi á Kárahnjúkum.
Sprengjan í desember
Svo var það sprengjan í desern-
ber þegar liðið ákvað að hækka al-
mennilega við sig kaupið til að ein-
hver myndi nú nenna að standa í
þessu - og ég sem hélt að kaupið
hefði hækkað um 20% daginn eftir
kosningar. Núna voru allir snögg-
lega á einu máli niðrá Alþingi (alla-
vega þangað til almenningur fór að
væla - þá kom flótti í vinstraliðið
enda atkvæði í húfi). Jafnvel aldraðir
foreldrar mínir urðu vitlausir úr
bræði og ætla aldrei að kjósa aftur.
Og auðvitað á maður ekki að kjósa
aftur. Þetta vita snillingar eins og
Helgi Hós og Dagur og Flóki. Þeir
hefðu örugglega ekki lagst svo lágt
heldur. Það er algjör tfmaeyðsla að
kjósa og eiginlega niðurlægjandi fyr-
ir mig sem manneskju að vita að
ferð mín í rúnkklefa lýðræðisins eigi
sinn þátt í að þetta gagnslausa og
gelda lið sitji við stjórnvölinn (að
nafninu til allavega, ráða Björgólfur
og Jón Ásgeir þessu ekki öllu?).
Gleðilegtár!
Gunnar Hjálmarsson
Dagný Jonsdóttir
DV tekur við lesendabréfum og
ábendingum á tölvupóstfanginu
lesendur@dv.is. DV áskiiur sér rétt til að
stytta allt það efni sem berst til blaðsins
og birta það í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds.
Aukin spenna
og aðgát
„Árið sem er að kveðja hefur verið
gott. Flest hefur gengið vel í þjóð-
arbúskapnum, enda þótt vart hafi
orðið við aukna spennu í efna-
hagsmáium undir lok ársins. Mikið
framkvæmdaskeið er fram undan
og þjóðin hefur góða burði til aiira
hluta, en við verðum auðvitað líka
að hafa fulla gát."
Jón Sigurðsson, seðlabanka-
stjóri.
„Árið var mylj-
andi fínt, enda
þótt græðgi sé
það orð sem
öðrum betur
lýsir hugarfari
þjóðarinnará
þesu ári. Hjá
sjálfum mér
var í mörg
horn að líta, svo sem við útgáfu á bók
ogýmsum sjónvarpsþáttum."
Dúi Landmark, kvikmyndagerðar-
maður.
„Árið var að
flestu leyti
mjög gott og
að sama skapi
lærdómsríkt.
Ég var kjörinn
á Alþingi og
eignaðist mitt
fimmta barn.
Er hægt að biðja forsjónina um öllu
meira en þetta?"
Magnús Þór Hafsteinsson alþingis-
maður.
„Nei, ekki að
mínu mati. Þar
kenni ég um
skertri framtíð-
arsýn stjórn-
valda í
menntamálum
og afskaplega
óábyrgri pen-
ingastefnu þeirra.
breytast."
Ingibjörg Björgvinsdóttir háskóla-
nemi.
„Þetta ár var
gott og við eig-
um að vera
þakklát fyrir
það sem við
höfum. Svo
sem að ríkis-
stjórnin hélt
velli og áfram ríkir stöðugleiki í landinu.
Framfara sér víða stað, enda þó lands-
byggðin sé um margt afskipt íþeim
efnum."
Ingunn Guðmundsdóttir, sveitar-
stjóri Skeiða- og Gnúpverjar-
hrepps.
Þetta verður að
Nú árið er liðið, en hvað rís hæst í minningunni?
afsláttur
afsláttur v
Glæsilegar skotkokur, flugeidar
og fjölskyldupakkar
risa skotkökur -100 skota, 11/2" og 13/4" hólkar
a frabæru verði
jyytu^'uj
SOLUSTflÐUR:
Armuli 20