Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 34
Ju rnf\c QQa^TOQn q\\Z'hr\\ u ruQM 34 ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 Fókus DV Tómas Lemarquis, leik- •sari og Ijón Hvernig var 2003? Mjög viðburðarikt. Ég útskrifaðist úr LHÍ og fyigdi Nóa Albinóa eftir um allan heim. Fór meðal annars á átta kvikmyndafestivöl. Skandall ársins? Kárahnjúkavirkjun. Hvað kom mest á óvart? Velgengni myndarinnar og tilnefn- ing til Evrópsku kvikmyndaverðlaun- anna. Svo kom lika á óvart að eftir- iaunafrumvarp stjórnmálamanna ^kuli ganga I gegn á einum degi, meðan flestir aðrir þurfa að berjast árum saman fyrir sliku. Hvað breytti lífi þínu? Það sama. Ég held að ég sé nokkuð sami maður fyrir og eftir útskrift. Hvað breytist 2004? Það væri óskandi að þaðyrði heims- friður. Það er ekki liklegt, en það er ágætt að vera bjartur á þvi. Maður ársins? Saddam Hussein, fyrir baráttuna gegn Bush, þó hann sé kannski ekki góður gaur. Skúrkur ársins? Bush. Fyrir yfirgang. Margrét Frímannsdóttir, þingmaður ogtvíburi Hvernig var 2003? Árið var mjög sérstakt fyrir mig. Ég veiktist f upphafi árs og mun ekki endilega minn- ast ársins með gleði, það verður gott þegar árið er liðið. Annars var þetta mjög skemmtilegt kosningaár. Skandall ársins? Þeir eru margir. Tvennt stendur upp úr að mínu mati, annars vegar nið- urskurður á Landspitalanum og að dráttarvextirnir sem á að greiða ör- yrkjum skuli metnirsem fjár- magnstekjur. Hvað kom mest á óvart? Að Framsóknarflokkurinn skyldi skríða aftur upp i hjá Sjálfstæðis- flokknum. Hvað breytti lífi þínu? Veikindi breyttu lifi minu töluvert og til hins betra á mörgum sviðum. Hvað breytist 2004? Fyrir utan ráðherraskiptin þá geri ég mér vonir um nýja stjórn. Maður ársins? Starfsfólk krabbameinsdeildar Land- spítalans Skúrkur ársins? Saddam Hussein. Árni Johnsen, tónlist- maður og fiskur __Hvernig var 2003? Það var mikil lifs- reynsla sem vonandi á eftirað nýtast mörgum sem minna mega sín. Skandall ársins? Mér finnst voðalega erfitt að gera upp á milli stórra og smárra hluta i þeim efnum. Oft á tíðum er ekki allt sem sýnist. Hvað kom mest á óvart? Það kom mér virkilega á óvart að eftir 20 ár sem blaðamaður og stjórnmálamaður að upplifa og komast að raun um hvað margir gallar eru i okkar innra kerfi samfé- lagsins. Aðalatriðið erþóað hafa gaman aflifinu, læra afreynslunni og takast á við vandamál sem verða iausnir. %Hvað breytti lífi þínu? Lífmitt hélt áfram á sama hraða og þessi jörð. Hvað breytist 2004? Allt breytist hægt en aðalatriðið er að halda sinu striki. Maður ársins? Börnin sem fæddust á árinu. Skúrkur ársins? Hann leynist alltafá bak við tjöldin. Pétur Blöndal, alþingis- maður og krabbi Hvernig var 2003? Mjög viðburðarrikt. Það sem stendur upp -'■Júr eru kosningarnar og ársfundur SPRON. Skandall ársins? Það er úr mörgu að moða - ég get ekki sagt einn frekar en annan. Hvað kom mest á óvart? Öryrkjadómurinn kom mér mest á óvart. Hvað breytti lífi þínu? Lifið erí stöðugri breytingu, en það eru engir sérstakir atburðir sem breyttu lífi mínu umtalsvert. Hvað breytist 2004? Atburðirsem breyta lifinu koma alltafóvænt. Maður ársins? Eftir sem áður er það Davið Oddsson sem er maður ársins. Hann hefur staðið óvenju lengi við stjórnvölinn og það hafa orðið gifurlegar breyt- ingar á samfélaginu í hans stjórnar- tið. Skúrkur ársins? Ég vil ekki nefna neinn, ég lit aldrei á menn sem algjöra skúrka. —borólfur Árnason borg- arstjóri og hrútur i a- O 9 Hvernig var 2003? Árið varmjög viðburða- rikt. Ég tók við nýju starfi sem er mjög skemmtilegt og tæki- færin eru mörg. Skandall ársins? Mannlifið er svo yndislegt. Mér er enginn skandall ofarlega i huga. Hvað kom mest á óvart? Ætliþað séu ekki helstjákvæð við- brögð borgarbúa við mér í starfi. Hvað breytti lífi þínu? Nýja starfið. Maður ársins? Hinn íslenski alþýðumaður. Skúrkur ársins? jjjgnn hefur ekki orðið á vegi minum. Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra og Ijón Hvernig var 2003? Þetta vargottár.Það gekk vel hjá Islend- ingum, Framsóknar- flokknum og fjöl- skyldunni. Þegar litið eryfir farinn veg þá var árið hið ánægjulegasta. Skandall ársins? Brotthlaup Ingibjargar Sólrúnar Gisladóttur úr borginni og atburða- rásin í kringum það. Hvað kom mest á óvart? Það var margt. Meðal annars ólýsan- leg náttúrufegurð á Svalbarða. Ég heimsótti þetta merkilega svæði á árinu. Mér kom lika á óvart að Rúss- ar skyldu ekki fullgilda Kyotobókun- ina. Hvað breytti lífi þínu? Það var ekkert stórt, kannski margt smátt. Margar bækur höfðu áhrifog mig svo ferð min til Afrlku á árinu. Bág staða kvenna og barna víða um heim hafði áhrifá mig. Hvað breytist 2004? Það verður uppstokkun i ríkisstjórn- inni og forystu Framsóknarftokksins. Talsverð breyting þar.Annars erallt útlit fyrir gott ár á Islandi, gott efna- hagsástand og stöðugleika iþjóðfé- laginu. Maður ársins? Áslaug Björg Viggósdóttir, formaður kvenfélags Hringsins. Áslaug hefur ásamt fyrri formönnum og Hrings- konum öllum gert kraftaverk með stuðningi við veik börn á Islandi. Hringskonur hafa unnið mikið óeig- ingjarnt sjálfboðastarfvið opnun nýs og glæsilegs barnaspitala. Ég tek hattinn ofan fyrirAslaugu og Hrings- konum. Skúrkur ársins? Saddam Hussein. Hann er skúrkur sem hefur farið illa með þjóð sína. Frosti Logason, gítar- leikari í Mínus og naut Hvernig var 2003? Það var alveg prýðilegt, stóráfallalaustog rosalega gjöfult. Skandall ársins? Að Birgitta og Hanni banni skyldu hafa hætt saman. Hvað kom mest á óvart? Það sem er efst Ihuga er að Saddam skyldi hafa látið ná sér ofan i rottu- holu eins og jólasveinn, það kom skemmtilega á óvart. Hvað breytti lífi þínu? Það hefur líklega verið samningur- inn sem við I Mínus náðum að gera við Sony með Smekkleysu. Hann verður til þess að Mlnus verður fullt starfá næstu misserum. Hvað breytist 2004? Davið Oddsson verður ekki lengur forsætisráðherra, sem ergreinilega orðið timabært. Mér sýnist kallinn al- veg vera að tapa sér. Svo munu bassafanturinn og Birgitta Haukdal opinbera trúlofun sina. Maður ársins? Það er drengurinn sem náði að ræna tvo banka á árinu og borga allar eit- urlyfjaskuldirnar sinar. Skúrkur ársins? Er það ekki Jón Ólafsson? Alla vega segir Davið það. Guðmundur Halldórs- son, formaður Smábáta- félagsins Elding- arog vatnsberi. Hvernig var 2003? Áriðvargott og um- hleypingasamt. En það eru blikur á lofti með fiskverðið. Skandall ársins? Hvernig þeir klúðruðu góðu máli eins og línuivilnuninni, sem hefði getað skapað góða sátt um kvóta- kerfið. Hvað kom mest á óvart? Að stjórnin skyldi halda velli. Hvað breytti lífi þínu? Það var ákaflega hörð og óvægin barátta i sambandi við línuívilnun og ég er með harðari skráp núna. Hvað breytist 2004? Ég held að við munum mæta erfið- leikum i fiskveiðum og vinnslu, meira en undanfarin dr. Maður ársins? Davið Oddsson, fyrir að snúa við glataðri kosningabaráttu með þvi að koma með tromp eins og 30 þús- und tonna aukningu i þorskkvóta og línuivilnun. Skúrkur ársins? Magnús Kristinsson, útgerðarmaður i Vestmannaeyjum, fyrir óvandaðan málflutning i linuivilnunarmálinu og fyrir að segja að beitningarskúrar væru fulliraföryrkjum og Pólverjum. Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbank- ans og Steingeit Hvernig var 2003? Það var viðburðaríkt og árangursrikt fyrir islenskt samfélag og atvinnulífmeð áfram- haldandi uppbygg- ingu og umbreytingum atvinnulifsins. Skandall ársins? Það er erfitt að gefa neikvæðum at- burðum einkunn með þessum hætti en þvi miður koma ofmargir til greina. Hvað kom mest á óvart? Hraðinn i breytingum á fjármála- markaði i kjölfar loka á einkavæð- ingu Landsbanka og Búnaðarbanka og hreyfing í málefnum sparisjóða nú undir lok árs. Gott ár á fjármála- mörkuðum og afar góður aðgangur að erlendum mörkuðum fyrir Lands- bankasamsteypuna hefur lagt grunn að vexti. Hvað breytti lífi þínu? Kaup á nýjum banka i Luxemborg i vor og mikill og alhliða vöxtur Landsbankans á öllum sviðum ein- kenndi árið. Persónulega fannst mér árið skemmtilegt og ég minnist sér I lagi ferðalaga hér innanlands. Ein- staklega fróðleg ferð um virkjunar- svæðin fyrir austan er mér eftir- minnileg. Hvað breytist 2004? Ég bind helst vonir við áframhald- andi alþjóðavæðingu islensks at- vinnulifs. Maður ársins? Mér fannst val Frjálsrar verslunar á Jóni Helga Guðmundssyni, forstjóra BYKO, afar verðskuldað. Skúrkur ársins? Þvi miður koma ofmargir til greina. Ég vil ekki nefna neinn til. Handtaka Saddams Husseins var þó brýnn þáttur i að áminna spilta einræðis- herra sem viða drottna, ekki síst I þriðja heiminum en timi dóms kem- ur aðlokum. Björgólfur Takefusa, knattspyrnumaður og naut Hvernig var 2003? Áriðvaríallastaði eftirminnilegt, margt markvertsem gerðist og i heild varþað mjög jákvætt og skemmtilegt. Skandall ársins? Iraksstrlðið. Hvað kom mest á óvart? Að Þróttur skildi falla niður i 1. deild. Hvað breytti lífi þínu? Það var margt sem breyttist og þvi úr mörgu að velja en ég get ekki nefnt neitt eitt atriði fram yfir annaö. Hvað breytist 2004? Fylkir verður íslandsmeistari. Maður ársins? Á bak við sérhvern góðan mann er enn betri kona þannig að ég segi að móðir min Bentina Björgólfsdóttir og amma min Þóra Hallgrimsson séu þær mannsekjur sem hafí skarað fram úr á síðasta ári. Skúrkur ársins? George Bush. Gunnar Örlygsson, alþingis- maður og Ijón Hvernig var 2003? Það var mjög viðburðarrikt og skammt stórra högga á milli til dæmis í alþingiskosn- ingunum.Árið hjá mér persónulega var nokkuð kaflaskipt. Skandall ársins? Það hlýtur að vera eftirlaunafrumvapið sem lagt var fram i desember. Mér finnst rangt að gera ráðamenn þjóðarinnar að forréttinda- stétt eins og stefnt var að iþessu frumvarpi. Hvað kom mest á óvart? Að Framsóknarflokkurinn skyldi ná þessum árangri íkosningum og að rikisstjórnin hélt velli. Hvað breytti lífi þínu? Ég hugsa að það að ég náði kjöri i alþingis- kosningunum hafi breytt lifí mlnu. Hvað breytist 2004? Harðlinustefna hægrimanna mun ekki verða ofaná eftir að Davíð Oddson stigur afstóli í nóvember. Ég held að svo stórar breytingar boða tækifæri. Ég hræðist samþjöppun á bankamarkaði og óskhggja mín ersú að lif- eyrissjóðirnir taki sig saman og stofni banka allra landsmanna eða endurreistan alþýðu- banka. Maður ársins? Jón Arnór Stefánsson körfuknattleiksmaður er maður ársins að mínu mati. Skúrkur ársins? Morðingi Önnu Lindh. Linda Pétursdóttir, fyrrum alheims- fegurðardrottning og steingeit Hvernig var 2003? Frábært. Ár mikillar vinnu og góðs sam- starfvið Reyni Traustason höfund bókarinnar Linda, Ijós & skuggar. Hófnám i grafiskri hönnun I Kanada og keypti mér draumahús. Skandall ársins? Upplýst var í Fréttablaðinu um við- tækt samráð Oliufélaganna um ára- bil um að niðast á neytendum. Leyniskýrsla samkeppnisstofnunnar var opinberuð. Hvað kom mest á óvart? Hvað lifið getur verið gott. Hvað breytti lífi þínu? Endurnýjuð von og fyrir skömmu var ég gerð, fyrst kvenna, að meðlimi i hinu virta Hrútavinafélag við virðu- lega athöfn í Draugasafninu á Stokkseyri. Hvað breytist 2004? Vonandi meira jafnvægi i heimsmál- um og minna verði um stríðsátök sem kosta fólk ómældar þjáningar og þá ekki sist saklaus börn. Maður ársins? StarfskonurStigamóta og Kvennaat- hvarfsins sem hjálpa i kyrrþey, þeim sem þjást á bakvið byrgða glugga. Skúrkur ársins? Saddam. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Ung- frú ísland 2003 og naut. Hvernig var 2003? Hjá mér var árið alla vega einum ofanna- samt. Rosalega mikið að gera og árið leið þess vegna rosatega hratt. Það var samt mjög fjölbreytt og skemmtilegt þótt það hafí oft verið erfitt. Skandall ársins? Ég held það verði bara að vera kaup- réttarsamningar Kaupþingsmanna. Hvað kom mest á óvart? Árið sjálft og allt sem gerðist hjá mér hefur komið mér einna mest á óvart. Hvað breytti lífi þínu? Að verða kjörin ungfrú Islands og allt sem því fylgdi. Það hefur gefið mér margt, ég hefkynnst mikið afnýju fólki og fengið að gera alls konar skemmtilega hluti. Hvað breytist 2004? Ég held bara að þegar klukkan slái tólfþá mJni fátt breytast en ég vona að eitthvcM verði búið að breytast til batnaðar fyrir árið 2030. Maðurársins? Það er Eiður Smári, hann hefur stað- ið sig alveg frábærlega með Chelsea. Skúrkur ársins? Það hlýtur að vera Saddam Hussein. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, varafor- maður Sam- fylkingarinnar og steingeit Hvernig var 2003? Arið vargott,eins og flest önnurár. Það var viðburðarríkt og hafði I för með sér meiri breyting- ar I lifí mínu en undanfarin ár. Skandall ársins? Að rikisstjórnin sé staðin að þvi i annað sinn að brjóta stjórnarskrána gagnvart öryrkjum. Hvað kom mest á óvart? Að framsóknarflokkurinn skyldi halda fylgi sínu í síðustu kosningum. Hvað breytti lífi þínu? I fyrsta lagi skipti ég um starfsvett- vang, og svo tók ég lifmitt og sjálfa mig svolítið til endurmats. Hvað breytist 2004? Hjá mér persónutega verða þær breytingarað ég get um frjálsara höfið strokið en áður. Ég ætla að setj- ast að I London um tima. Þann 11. janúar hefég nám við London schooi ofEconomics, ég verð gesta- nemandi við Evrópustofnunina þar. Maður ársins? Ómar Ragnarsson fyrir að standa i lappirnar i afstöðu sinni til náttúru- verndar þrátt fyrirýmsar hremming- ar. Skúrkur ársins? Ég treysti mér ekki til að skera úr um það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.