Dagblaðið Vísir - DV - 30.12.2003, Blaðsíða 47
DV Síðast en ekki síst
ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 2003 4f*
Nýju ári fagnað með freyðivíni
„Hvaða vín hæfir best til að fagna
áramótunum er ekki algilt. Allt er
þetta smekksatriði, fer eftir stað og
stund og til dæmis því hvaða matur
er á boðstólum og hverjir eru gest-
irnir," segir Þorri Hringsson mynd-
listarmaður og vmspekúlant. Hann
er manna fróðastur um vfnin sem
okkur bjóðast og fyrir nokkrum vik-
um kom út bók sem hann skrifaði
um þetta efni. Ófáir halda matarboð
um áramótin, ekki síst að kvöldi ný-
ársdags. En áður en til þess kemur
eru margir sjálfsagt búnir að fagna
nýju ári með freyðivíni „... þó ekki sé
nema til þess að heyra þegar tapp-
inn skýst upp úr stútnum," einsog
Þorri kemst að orði.
I ráðgjöf Þorra um áramótavínin
lögðum við út frá fordrykk, hvítvíni
með forréttinum og rauðvíni með
aðalréttinum. „Hinn fullkomni for-
drykkur á nýjarsdag er auðvitað
kampavín. Ég mæli t.d. með
Jacquesson sem án alls vafa er eitt af
10 bestu kampavínum þessa heims.
Ef forrétturinn í nýársboðinu væri
sjávarfang; til dæmis hörpudiskur
eða humar er gott að velja hvítvín úr
Chardonnay-þrúgunni. Þau bestu
korna frá Frakklandi og Þorri mælir
með Premier Cru Chablis eða öðru
hvítu Búrgúndarvíni. „Þau frönsku
eru margslungnari, fínlegri og sýru-
meiri," segir Þorri.
Síðan skulum við gefa okkur að
hreindýrakjöt sé aðalrétturinn í
boðinu góða á fyrsta kvöldi ársins.
„Með hreindýrinu þarf að velja vín
af mikilli kostgæfni, kjötið er bragð-
mikið en kannski ekki mjög bragð-
sterkt. Við getum kannski sagt að
bragðið sé flókið," segir Þorri. Hann
rnælir með stóru rauðvíni frá Bor-
deaux t.d. frá árganginum 1997 sem
er góður um þessar mundir og gott
að njóta meðan beðið er eftir því að
árgangarnir á undan og á eftir nái
réttum þroska. Hafi fólk villigæs á
nýársborðinu segir hann rauðvín úr
Rónardalnum í Frakklandi t.d.
Chateaunef-du-Pape koma vel til
greina eða þá frá Toskana-héraðinu
á Italíu t.d. Chianti Classico.
Október 2003
„Ég held að
völd i atvinnu-
lífinu séu
nokkuð ofrnet-
in. Égheft.d.
aldrei skipt mér
afráðningum
starfsmanna í þeim fyrir-
tækjum þar sem ég hef setið
í stjórn, nemaforstjóra og
hef stundum gantast með
að ég hafi átt i vandrceðum
með aðjá sumarvinnu fyrir
börnin mín. Það eru nú öll
völdin. “
Benediktjóhannesson
talar um völdin, eftir um-
skiptin ÍEimskip.
„Hann var mjög orðskár
og kastaði sér
affullum
krafti inn í
baráttu og
hringiðu
aldarinnar
og aðrir svör-
fullum hálsi.
Það hefur alltafgustab um
hann."
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson lýsir Hálldóri
Laxness, en ekki
sjálfum sér!!!
Hóvember 2003
„Ég skil ekki
hvers vegna við
frændurnir
erum eitthvað
sérstakiega til
umfjöllunar
umfram aðra í
sömu sporum. “
Bjami Benediktsson i
viðtáli við DV. Engeyjarcett-
in rífur niður eiribýlishús og
reisir aftur í Garðabæ.
„Það var hrœðilegt að
sitja úti í bíl á bílastœði til
þess að safna kjarki til að
fara heim til sín. “
Agnes Sigurþórs í Kópa-
vogi var orðin brjáluð af
rafmengun í íbúð hennar.
Desember 2003
„Reykjavík er orðin borg
eymdarinnar
hjá œrið
mörgum.
I Ekki vegna
' þess að þeir
íiafi brotið af
sér, gerstsekir
um gicépi, heldurbara vegna
atvinnuleysis, veikinda, and-
legs álags, barnafjölda, ör-
orku eða lágra launa sem
duga ekki JJ’rir framfœrslu
fjölskyldunnar þótt enginn
munaðursé þar á borðum.
Viljum við að íslands sé
svona á okkar tímum? Auð-
vitað ekki. Samt er þetta
veruleikinn."
Ólafur Ragnar Grímsson
í aðventuræðu.
Útsalan er hafin!
&
afsláttur af öllum vörum
UNITED COLORS
OF BENETTON.
Smáralind
Kópavogi