Dagblaðið - 03.02.1977, Side 1
frfálst,
úháð
daauað
3. ÁRG. — FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1977 — 28. TBL. RlTSTJOlJN SÍÐUMUlA 12, SÍMI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, &VERHOLTI 2, SÍMI 27022.
Leirmyndin
Kristján Viðar
LEIRMYNDIN 0G
FYRIRMYNDIN
Þegar Geirfinnsmálið kom
upp í árslok 1974, greip rann-
sóknaraðili málsins, Haukur
Guðmundsson í Keflavík, til
þess ráðs að láta útbúa leir-
mynd af manni þeim sem talið
var að hefði hringt í Geirfinn
frá Hafnarbúðinni í Keflavík
örlagakvöldið 19. nóvember
1974.
Myndin var byggð á lýsing-
um starfsstúlkna, og voru
myndir teiknaðar af mannin-
um, en leirmyndin síðan
mótuð eftir þeim. Nú hefur
komið í ljós að það var
Kristján Viðar Viðarsson sem
hringdi þetta kvöld úr Hafnar-
búðinni.
Nú geta menn sjálfir gert
samanburð á leirmyndinni,
eins og hún var kynnt almenn-
ingi og svo fyrirmyndinni,
Kristjáni Viðari.
-JBP-
r
Hulunni svipt af mesta sakamáli okkar tíma:
Geirfinnur var fómar-
lamb misskilnings
— þegar hann var myrtur í Dráttarbrautinni í Keflavík
— Nánor um lok
Geirfinnsmáls
bls. 8 og 9.
Blaðamannafundur ársins í Sakadómi. Halldór Þorbjörnsson, yfirsakadómari, Kari Schiitz, maðurinn sem sneri Geirfinnsrann-
sókninni inn á rétta braut, Renata Einarsson, dómtúlkur, og Pétur Eggerz, sendiherra, aðstoðarmaður Schútz. Bak við fólkið
eru ýmis gögn varðandi málið. (DB-mynd Arni Páll).
Einhver merkilegasti blaða-
mannafundur sem lengi hefur
verið haldinn hér á landi, var í
gærdag í húsakynnum Saka-
dóms Reykjavíkur við Borgar-
tún. Þar var loks hulunni svipt
af hinu leyndardómsfulla
sakamáli sem nefnt hefur
verið Geirfinnsmál.
Dagbiaðið hefur undanfarin
misseri flutt lesendum allítar-
legar fréttir af gangi þessa
máls enda þótt rannsóknar-
aðilar hafi varizt blaða-
mönnum hetjulega allan þann
langa tima sem málsrannsókn
hefur staðið yfir. Í ljós kom að
upplýsingar blaðsins hafa í öll-
um meginatriðum verið réttar.
Örn Höskuldsson, - fulltrúi
Sakadóms, ávítaði blaðamenn
fyrir fréttaflutning af málinu.
Taldi hann t.d. að frétt í Vísi
sl. sumar hefði getað skipt
sköpum I Geirfinnsmálinu ef
einn hinna seku, sem þá var
frjáls maður, hefði lesið þá
frétt.
Kom fram á blaðamanna-
fundinum í gær að Geirfinnur
Einarsson lét lífið fyrir einber-
an misskilning. Hann var fórn-
arlamb tilviljana. Þrír ungir
menn lentu í áflögum við Geir-
finn og réðust svo að honum
með hnúum og hnefum og bar-
efli að hann lét lífið. Það
gerðist fyrir rúmum 26
'mánuðum.
Síðan hefur staðið yfir sú
umfangsmesta rannsókn á
sakamáli, sem fram hefur farið
á Islandi, dýr rannsókn og
mikil. Upp á yfirborðið hafa
komið saknæm önnur mál við
rannsókn þessa og saklausir
menn hafa orðið að sitja í
löngu gæzluvarðháldi vegna
meinsæris þess fólks sem
reyndist vera sekt um dráp
Geirfinns.
Geirfinnsmálið hefur jafn-
vel rekið inn í sali Alþingis og
stjórnmálamönnum og flokkum
jafnvel verið núið því um nasir
að eiga hlutdeild að.
Seldi íbúð án
þess að vera
löglegur
eigandi
— baksíða
Korkurinn
var orðinn
„íslenzkur”
íútliti
— baksíða
Álverksmiðjan
nýturniður-
greiðslna —
almenningur
borgar meira
Sjá kjallaragrein Gísla
Jónssonar prófessors
ábls. 10-11
Hættulegur
leikur
við Elliða-
árnar
— sjá baksíðu