Dagblaðið - 25.05.1977, Side 3
I)ACíBLAÐIÐ. MIÐVIKUDACIUR25. MAl 1977.
3
Leigubílstjóri:
Brunagötin ekkert á
móti heilsutjóninu
Leigubílstjóri kom aó mál við
blaðið og Sýndi okkur bakið í
aftursæti bíls síns. Þa'r gat að
líta allmörg ljót brunagöt eftir
sígarettur þrátt fyrir að
skiltinu sem stillt var upp á
sætisbakið fyrir myndatökuna,
hefði greinilega verið komið
fyrir i bílnum.
En brátt fyrir þetta beina
fjárhagslega tjón bílstjórans
var hann ekki óhressastur yfir
því heldur sjálfum reykingun-
um. Sagði hann það tillitsleysi
farþega að brenna bíl sinn
ekkert á móti því að þeir
sköðuðu heilsu sína með þessu.
Raddir
lesenda
EYDANIR, EYVERJAR OG HALLDÓR E.
Haraldur Guðnason, Vest-
mannaeyjum skrifar:
íslensk stjórnvöld eru ,,flott
á þvi“ eins og fólk segir stund-
um, a.m.k. þegar útlendingar
eiga í hlut. Fyrir nokkru gaf á
að líta landsföður einn af átta á
skjánum, þar sem hann var að
skrifa undir samning við Mikla
norræna símafélagió um jarð-
stöð á íslandi. Sú stöð kostar
miljarð og sjónvarpssending úr
öðru landi hingað kostar miljón
kr. á klukkustund og betur þó.
„Dýrt er drottins orðið" sagði
kallinn. En hvort tveggja er að
álkrónan er vesöl og blað
ráðherrans flytur þann góða
boðskap, að vel megi svo fara að
stöðin verði sett upp í Borgar-
firði, kannski við sporð frægrar
brúar?
Nú er í tísku að þrengja uppá
okkur íslendinga, ýntiss konar
útlendu farga.ni, svo sem lita-
sjónvarpi, elkemspigerverki,
norskhydrói og hver veit hvað.
Við heimtum norskar mengun-
arfabrikkur. —
Utlenda auðfélagið
stórdanska, sem ekki hefur
staðið við skuldbindingar sínar
I seinni tið um viðundandi fjar-
skipti, skal hvorki borga skatt
né tolla. Þeim gaf sem þurfti.
Ennfremur skal tryggja þessu
stórgróðafélagi a.m.k. 70-80
milj. kr. hagnað árlega af
rekstri á íslandi til 1991.
Það er ekki sama hvort
maður er bara Jón eða séra Jón,
Eydani (stór-dani) eða eyverji.
Á árinu 1973 voru flutt inn
ibúðarhús fyrir rausnarlegt
framlag Norðurlandaþjóða
vegna jarðeldanna i Vest-
mannaeyjum.
Ekki var við það komandi að
gefa eftir aðflutningsgjöld og
söluskatt af þessum gjafa-
húsum. Fjórir þingmenn úr
þrem flokkum báru fram þings-
ályktunartillögu þess efnis að
tollum yrði varið til upp-
byggingar í Eyjum.
Nei, ónei, þessi gjöld, um 480
milj. kr, skyldu renna í ríkis-
sjóð og þaðan til hafnarfram-
kvæmda í Þorlákshöfn, því
bátafloti úr Eyjum ætti að fá
inni þar í höfninni ef á þyrfti
að halda.
Gallinn var bara sá að þessi
kenning Halldórs E. var alger
falskenning. Það var endanlega
samið við Alþjóðabankann um
lán til Þorlákshafnar um miðj-
an sept. 1973, tveim og hálfum
mánuði eftir að gosi lauk.
Hitt var svo annað, að Þor-
lákshöfn var alls ekki í stakk
búin til að taka á móti neinum
Eyjaflota til frambúðar — þó
framkvæmdum væri lokið eins
og þeim er háttað nú.
í nóv. sl. voru hafnar-
mannvirkin i Þorlákshöfn vígð
með viðhöfn, sem vera bar, því
betri höfn þar fagna allir, en
fyrst og fremst Sunnlendingar.
Hitt var leiðinlegt er blöð sögðu
frá, að nafn „föður Þorláks-
hafnar", Egils Thorarensen,
hefði gleymst í veisluglaumn-
um. En við þessa athöfn flutti
Svanur Kristjánsson sveitar-
stjóri i Þorlákshöfn athyglis-
verða ræðu, sagði sannleikann
um tildrög framkvæmda en fór
ekki kringum málið. Hann
sagði meðal annars:
„Róðurinn var þungur og
ekki hefði verið gott að segja til
um hvenær stækkun hefði
orðið að raunveruleika, ef ekki
hefðu orðið náttúruhamfarir í
Vestmannaeyjum. Það er kald-
hæðnislegt að setja þetta svona
fram, en ég leyfi mér að segja,
að eldgosið í Eyjum rak
smiðshöggið á verkið.
Þakkarvert er hversu fljótt
ástandið bantaði í Eyjum, en ef
gosið hefði hætt nokkrum
mánuðum fyrr, hvað hefði það
getað þýtt fyrir hafnarfram-
kvæmdirnar hér?
Náttúruhamfarir í Eyjum
voru ekki forsendur fyrir hafn-
arframkvæmdum hér.“
IZ
E R
KVIKMYNDASETT
Du
Comet P122
nýjo sýningarvélin
er mjög fullkomin og f stað þess að sýsla
með vandasamar stillingar getur þú reglu-
lega notið myndarinnar.
Það er sjálfvirk filmuþræðing og sterk
ZOOMLINSA (18/30 mm) gefur hárná-
kvæma mynd.
Þú getur sýnt á mismunandi hraða, (18—24
m/sek. og 6—8 m/sek.) og einnig sýnt eina
mynd í einu eins og ljósmynd, eða jafnvel
afturábak lil frekari skemmtunar.
Ovenju sterkur myndlampi (12V/100W
TUNGSTEN HALOGEN) gefur kost á
geysistórri mynd og hægt er að sýna alll að
120 mtr. (ea. 35 min.) samfellda filmu,
jafnt SUPER 8 og STANDARD 8.
Electric zoom 444 de luxe
nýja kvikmyndatökuvélin þín
er mjög vandaður gripur, alsjálfvirk og jafn
einföld í notkun og venjuleg ljósmyndavél.
T.T.L. rafeindaauga stillir ljósopið sjálf-
krafa og gefur merki ef birta er ónóg til
myndatöku.
Sterk rafstýrð ZOOMLINSA (f/1.8 —
1 l/38mm) gefur þér kost á að taka fjarlæg
imyndefni í smáatriðum.
Það eru 3 upptökuhraðar, „REFLEX" sjón-
auga í gegnum linsu með stiilanlegu sjón-
gleri ( + /+ dioptre) og innbyggður lampi
til að kanna ástand rafhlaðna. Auk þess
fylgir linsuhlif og lúxus taska með hálsól
Brriiitarliolli 20 - Simi I52S5
Stórt kvikmyndatjald
(125x125 sm) hvítt með svörtum kanti og
strekkjara upprúllað i málm-sívalning.
Kvikmyndalampi
fyrir innimyndatöku
með 1000W HALOGEN-peru, ljósmagn
33000 lux.
Nýja kvikmyndasettið þitt
á eftir að veita þér og fjölskyldunni
ómældar ánægjustundir með litlum
kostnaði, en 15 metra kvikmynd kostar ekki
meira en 12 litljósmyndir. Með settinu*
fylgir auk þess stutt kvikmynd svo þú getur
strax prófað nýju sýningarvélin.
— GÓÐA SKEMMTUN —
Við bjóðum þér þetta vandaða
kvikmyndasett ó sérlega iiagstœð-
um kjörum.
ÚTBORGUN KR. 55.000 + burðargjald OG
KR. 13.900 á mánuði í 4 mánuði.
Sendu okkur kr. 55.000 í ávísun, eða inn á
Gíróreikning 50505 og við sendum þér
settíð um hæl. Ef þú ert ekki fullkomlega
ánægður með viðskiptin getur þú skilað
settinu, gegn fullri endurgreiðslu. innan 10
daga frá móttöku.
ao auki ema bUPER 8 litfilmu. sem er þin eign,
jafnvel þótt þu akveAir aö skila settinu.
. =3
Spurning
dagsins
^ 1 —L
Ert þú fylgjandi eða and-
vígur dvöl hersins hér ó
landi.
Stefán Hermannsson nemi:
Andvígur. — Vegna þess að við
höfum ekkert með herinn að gera.
Hann er frekar fyrir okkur en
hitt.
Gústaf Jónasson jarðýtustjóri: Ég
held að hann hafi ekkert að gera
hér. Ég er heldur andvígur
honum en hitt. Það er ósómi að
hafa þetta hér á landi.
Ingvar Arnason dósent:
Algerlega andvígur henni. t
fyrsta lagi er herinn hér á röng-
um forsendum. Hann hefurekkert
varnargildi fyrir landið. Ef til
átaka kemur eykur hann heldur á
hættuna heldur en hitt.
Helga Sveinsdóttir húsmóðir:
Hvorugt. En ég er ekkert með
þessum göngum. Annars hef ég
ekki búið á Suðurnesjum og því
ekki haft kynni af þeim.
Sveinn Þór Guðmundsson strætis-
vagnsstjóri: Frekar á móti henni.
Ég tel þetta vera framvarðarstöð
fyrir Bandarikin til að taka skelli
af þeim ef eitthvað verður. En ef
þeir eru hér um kyrrt vil ég að
þeir borgi.
Sigurður Sigurðsson nemi:
Andvígur. Eg er i fyrsta lagi
friðarsinni. í öðru lagi er ég and-
heimsvaldasinni og i þriðja lagi
ýtum við undir heimsvaldastefnu
Bandaríkjanna með því að leyfa
dvöl hersins hér.