Dagblaðið - 25.05.1977, Side 15
15
I)At'iBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAC.UR 25. MAl 1977.
Það er víðar dýrt
að lifa en á íslandi
Art Buchwald bendir
á ýmsan kostnað við
barnauppeldi
sem aldrei ertekinn
með íkostnaðar-
áætlunum
Sú frétt sem vakti einna
mesta athygli vestur í Banda-
ríkjunum síðustu vikurnar var
að reiknað hefur verið ná-
kvæmlega út hvað uppeldi
barna þar í landi kostar foreldr-
ana. Talið er að uppeldið kosti
bandaríska foreldra 64.000 doll-
ara sem lætur nærri að vera
12,8 milljónir ísl. kr. Er þá
reiknað með háskólamenntun í
ríkisstyrktum háskólum. Lág-
launafjölskyldur geta komið
börnum sínum til manns fyrir
44 þúsund dollara (um 8,8
milljónir ísl. kr.) en þá er ekki
reiknað með að viðkomandi
ungmenni gangi menntaveg-
inn.
Samkvæmt upplýsingum
prófessors Thomas Espenshade
frá háskólanum í Flórída er
þetta 60% aukning frá árinu
1969.
Dálkahöfundurinn og háð-
fuglinn Art Buchwald telur að
þessar tölur séu alltof Iágar:
Þótt tekið hafi verið tillit tií
fæðiskostnaðar, segir Buch-
wald, eru stórir kostnaðarliðir
sem alls ekki er reiknað með.
Meðal þeirra eru eftirfarandi
liðir:
★ Tryggingargjöld af bifreið
táningsins: 1.000 dollarar á ári.
★ Auka bílatryggingar fyrir
foreldrana vegna tjóns sem
börn þeirra valda: 3.000 dollar-
ar.
★ Viðgerðir á húsinu eftir
„partí" sem táningurinn hefur
haldið fyrir 50 ,,nánustu“ vini
sína: 2.000 dollarar.
★ Fast og fljótandi fæði handa
vandalausum sem einhverra
hluta vegna eru alltaf í heim-
sókn: 6.000 dollarar.
★ Viðgerð á húsgögnum og
gólfteppum vegna skaða sem
illa uppalinn hundur tánings-
ins hefur valdið: 2.500 dollarar.
★ Aðgöngumiðar að rokkhátíð-
um fyrir barnið frá ellefu ára
aldri þar til það er farið að
vinna fyrir sér, sem getur orðið
í kringum þrítugt: 3.800 dollar-
ar.
★ Kostnaður vegna tannrétu
inga með spöng: 2.000 dollarar. '
★ Kostnaður vegna nýrrar
tannspangar; sú gamla týndist í
helgarútilegu: 1.200 dollarar.
★ Kostnaður vegna ýmiss
konar fatnaðar, vettlinga,
trefla, yfirhafna o.fl. sem
barnið hefur gleymt hjá vinum
sínum sem það man ekki lengur
nöfnin á: 800 dollarar.
★ Stereo-hljómflutningstæki
sem eru bráðnauðsynleg til
þess að friða táninginn:
100—1.000 dollarar, allt eftir
því hvort barnið borgar út í
hönd eða notar viðskiptakort
foreldra sinna.
★ Afmælisgjafir til annarra
barna sem halda afmælis-
veizlur sem foreldrar þeirra
hafa ekki efni á: 1.200 dollarar.
★ Afmælisveizlur sem þú
heldur fyrir barnið þitt og
hefur engan veginn efni á:
2.000 dollarar.
★ Símakostnaður vegna barns-
ins, þegar það hringir heim og
lætur skrifa símtalið, frá
sumarbúðunum, heimavistar-
skólanum eða bensínstöðvum
úti á landi og þegar foreldr-
arnir hringja til barnsins í
sumarbúðirnar eða heima-
vistarskólann til þess að athuga
af hverju barnið hefur ekki
hringt heim í þrjár vikur: 5.600
dollarar.
★ Stöðumælasektir sem sendar
eru foreldrunum vegna þess að
bíllinn er skráður á þeirra
nafn: 780 dollarar.
★ Sektir vegna vanskila á
bókasafninu: 150 dollarar.
■k Kostnaður við að fá ein-
hvern til þess að slá grasflötina
vegna þess að börnin „hafa
ekki tíma“ til þess að gera það:
3.400 dollarar.
★ Kostnaður við kaup á
íþróttabúningum fyrir minnst
þrjár íþróttagreinar: 890 dollar-
ar.
★ Ný föt fyrir dúkkurnar
Barbie og Ken: 4.500 dollarar.
★ Plötur og segulbönd sem
börnin verða að eignast því
annars myndu þau deyja!:
4.700 dollarar.
★ Heimsóknir á slysavarðstof-
una: 2.000 dollarar.
★ Miðar á skólaböll og
kostnaður við fatnað og pen-
ingar til þess að „fara út eftir“
að skólaballið er búið: 600 doll-
arar.
★ Kostnaður vegna endur-
kaupa á áfengi sem horfið
hefur úr vinskápnum þínum á
óskiljanlegan hátt: Frá
1.500—5.000 dollurum, allt
eftir því hvaða tegundir af
áfengi þú drekkur og hve ,vei
þér hefur tekizt að fela lykilinn
að vínskápnum.
Auk þessa alls er ýmis annar
kostnaður sem prófessor
Espenshade tók heldur ekki
með í reikninginn: Sektir
vegna eiturlyfjaneyzlu, vegna
ósæmilegrar hegðunar á al-
mannafæri eða vegna mótmæla
gegn kjarnorkuverum, fjár-
kröfur sem bornar eru fram af
nágrönnunum vegna skemmda
sem eignir þeirra hafa orðið
fyrir vegna barnanna, —
kostnaður við fóstureyðingu, —
happdrættismiðar fyrir alls
kyns góðgerðarstarfsemi sem
börnin þin hafa ekki getað selt
og ýmis annar kostnaður sem
ekki er gott að henda reiður á.
Til þess að áætla hann ekki of
lágan leggur Buchwald til að
þessi liður verði 8.780 dollarar.
„Kostnaðaráætlun prófessors
Espenshades var ágæt svo langt
sem hún náði en hann hefur
ekki talað við rétta fólkið þegar
hann leitaði sér upplýsinga,“
segir Art Buchwald.
Eins og sjá má kemur þarna
fram ýmis kostnaður sem er
óhjákvæmilegur ef maður á
börn, hvort sem heldur er í
Bandaríkjunum eða hér á
íslandi. Það væri fróðlegt að
vita hvort eitthvað af þessum
kostnaði sé reiknað með I vísi-
tölunni okkar? Ekki er það
sennilegt.
Við gefum hér upp kostnað-
inn i dollurum en ef þið viljið
vita þessar upphæðir svona
nokkurn veginn í íslenzkum
krónum er ekki annað en að
margfalda þær með 200!
Þýtt og endursagt A.Bj.
Allt þetta og miklu fleira VERÐUK barnið þitt að eignast einhvern tíma á taningsaldrinum, annars er sálarheill þessí veði!
Bflnúmeradella er
víðar en á íslandi
Telly Savalas, sá margfrægi skallakall, ekur bíl með númerinu
TELLY.
Það er víðar en á íslandi sem
menn eru fullir sérvizku um
bílnúmerin sín. ímynd fyllibytt-
unnar I Hollywood, Dean Martin,
hefur til dæmis fengið sér númer
sem samanstendur af stöfunum
DRUNKY — sem þýðir auðvitað
fyllibytta.
Annar Hollywoodbúi, Telly
Savalas, hefur einnig krækt sér í
dágott númer. Stafirnir á því eru
TELLY. Bretar eru einnig
haldnir svipaðri sérvizku. Eitt
eftirsóttasta númersspjaldið var
eitt sinn ST-1, — númerið á bíl
dýrlingsins Simons Templar. Það
er í eigu ósköp venjulegs mið-
stéttarmanns sem leigir framleið-
endum Dýrlingsþáttanna núm-
erið. Nú eykst væntanlega ásókn-
in í það númer því að til .stendur
að gera nokkra dýrlingsþætti
Hann fékk rosakaup, jafn-
vel á Hollywoodmælikvarða
Sagt er að Marlon Brando
hafi fengið greiddar 4,2
milljónir dollara, sem er um
840 milljónir ísl. kr., fyrir tólf
daga kvikmyndavinnu í London
nú á dögunum.
Marlon gerir hvorki að játa
né neita þessari ágætis launa-
greiðslu, segir aðeins að hann
hafi fengið mjög vel greitt fyrir
vinnu slna og megi það teljast
vel greitt, einnig á Hollywood-
mælikvarða.
Hyggst hann nota fé það sem
hann fékk til þess að hleypa af
stokkunum myndaflokki um
sögu amerísku Indíánanna.
Vonast hann til þess að mynda-
flokkurinn megi verða til þess
að opna augu almennings fyrir
þörfum Indíánanna og líf
þeirra megi verða betra I fram-
tíðinni.
Hlutverkið sem Marlon
Brando tók að sér í London var
faðir Supermans í samnefndri
mynd um ofurmennið Super-
man. A.Bj.
Marlon ætlar að nota milljón-
irnar sinar frá London til þess
að búa til myndaflokk um
Indíána og reyna að bæta líf
þeirra.