Dagblaðið - 25.01.1978, Side 4
1 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1978.
Gunnar Hansen á gangi á Skólavörðustignum. Hann hefur ekki komið i heimsókn tii Islands í tíu ár þar til níi um áramötin.
DB-m.vnd Ragnar Th.
BAUÐST TÆKIFÆRITIL AÐ
VERÐA KVIKMYNDALEIKARI
— en vildi heldur sinna ritstörf um — lék áður eitt aðalhlutverkið í bandarískri
hrollvekju — rætt við Gunnar Hansen
MORÐINGI MEÐ GRÍMU
,,Ég hef ekki mikla reynslu í
kvikmyndaleik, hef aðeins
ieikið í tveimur myndum fyrir
utan Texas Chain Saw
Massacre. Þar af var önnur
sjónvarpskvikmynd sem datt
upp f.vrir og var aldrei sýnd,"
sagði Gunnar.
Hann sagði að kvikmyndin
The Texas Chain Saw Massacre
liefði mjög lauslega.verið býggð
á mynd Alfred Hitchcocks,
Psýcho. í myndinni segir frá
fimm ungmennum, sem öll eru
frekar ógeðfelid, — þó ekki svo
ógeðfelld að áhorfandinn vilji
láta br.vtja þau niðúr. Ung-
mennin fara í hélgarferð, en
myndin var tekin.á orkuskorts-
árunum. Grkuskorturinn
kemur við sögu. Bíllinn verðui
bensínlaus og beðið er eftir að
tankbill komi með bensín á
stöðina. Þau leita hælis í gömlu
húsi sem tilheyrði fjölskyldu
einhvers þeirra. Skammt frá er
annað hús sem tilheyrir mjög
undarlegri fjölskyldu. Og einn
úr því húsi er einmitt
morðingjnn sem Gunnar
Hansen lék. Andlit hans sást
aldrei. heldur var hann með
afskræmislega grimu og'myrti
fólk með stórri vélsög.
M.vndin hefur verið sýnd
víða í Bandaríkjunum og sagði
Gunnar að tekjur af henni
hefðu náð 15 milljón doll-
urum. Þrátt fyrir það hefðu
kvikmyndaleikararnir og aðrir
sem lögðu hönd á plóginn ekki
féngið nema lítinn hluta af
öllum þessum milljónum (hátt í
400 milljónir ísl. króna). Fékk
hann sjálfur 800 dollara í kaup
og átti síðan að fá prósentur af
sölunni. Hingað til hefur hann
aðeins fengið um 300 doílara
f.vrir vikið.
„Kvikm.vndin var tekin í
Texas á fjórum til fimm vikum.
Allt í kringum þessa kvik-
myndatöku er' frekar
óraunverulegt," sagði Gunníir.
„Unnið var sleitulaust þrátt
f.yrir gífurlegan hita. Suma
daga fór hitinn þó nokkuð yfir
40 stig. Suma sólarhringana
unnum viö alveg hvíldarlaust.
Það var alveg hræðilegt. Maður
drattaðist í rúmið á kvöldin
alveg steinuppgefinn til þess
rétt að sofa blánöttina og svo
var -haldið áfram næsta
morgun.
Sutn atriðin, sem áttu að
gerast um kvöld, voru tekin
innan d.vra um hábjartan
daginn þegar heitasi var Þá
þurfti að hafa þykk gluggatjöld
fyrir öiluin gluggum og alla
ljóskastarana á fullu. Og svo
þegar allt fðlkið bættist við var
þetta h'neðilegt.
Einn dagínn þegar smáhlé
varð á myndafökunni settist ég
,í stól utan dyra. Ég gáði ekki að
•jmér og var- v áó stikna í
brennandi sólinni fheð grímuna
fyrir andlitinu. Ég yar svo út-
keyrður að ég gætti þess ekki
að fæfa mig í skúggann!
Mér fannst eitt sérlega
lathyglisvert í sambandi við
þessa kvikm.vndatöku og það
var hve allir vissu nákvæitnega
hvað þeir áttu að gera og til
hvers var ætlazt af þeim. Það
var alltaf réttur maður á rétt-
um stað. Ég hafði aldrei áður
unnið ineð svona samstílltum
og hæfum hóp enda aðeins
verið í skóla áður. Auðvitað eru
til bæði góðir og slakir skóla-
nemendur en þar er ekki um að
ræða að einhver eigi að gera
eitthvað ákveðið frekar en
einhver annar.
RITSTÖRFIN
MEIRA ÁRÍDANDI
Jú, eg hefði alveg getað
hugsað mér að gera kvikmynda-
leik að aðalstarfi. Og bauðst
raunar tækilæri til þéss. En
mér fannst að ritstörfin væru
mikilvægari og þá meina ég
alvöru ritstörf og þvi sneri ég
ritéf'SÓ'þélm,""sagði Gúnnar'. ‘'
Tekur það ekki á taugarnar
að leika í svona hryllingsmynd?.
Eru leikararnir ekki hræddir
hver við annan?
„Leikararnir sjálfir verðr
ekki svo mikið varir við
hrvllinginn. Eg minnist þess
aðeins einu sinni meðan á
myndatökunni stóð að ein leik
konan varð yfir sig hrædd við
mig. Atriðið sem verið var aé
taka var á þann veg að
leikkonan var frammi í eldhúsi
og var eitthvað að bauka. Svc
átti ég að koma askvaðandi með
grímuna á andlitinu og stóreflis
hamar reiddan til höggs.
Stúlkan átti að snúa sér við og
falla síðan í gólfið um leið og ég
léti hamarinn dynja á höfði
hennar. Auðvitað varð ég að
gæta þess vel að missa ekki
harharinn í höfuð stúlkunnar.
Þegar til átti að taká þrá
stúlkunni svo mikið þegar hún
áá mig að hún'öskraði upp yfir
sig með hryllingi óg hljóp sem
fætur toguðu i burtu.
Annars kemur oft fyrir við
svona myndatökur að
leikararnir fá allskynsskrámur
og högg Þó er auðvitdð reynt að
láta slík.slys ekki koma fyrir."
HINUM MEGIN
VIÐ KVIKMYNDAVÉLINA
Síðan útlistaði Gunnar fyrir
okkur hvernig hin ýmsu
hryllingsatriði myndarinnar
voru útbúin. En ef þessi mynd
verður sýnd hér á landi, sem
raunar er verið að vinna að, er
ekki vert að eyðileggja ,,á-
nægjuna“ fyrir þeim sem eiga
eftir að sjá hana með því að.
skýra frá því í smáatriðum.
„Nú sem stendur er ég að
vinna við kvikmyndir en ég er
bara ekki f.vrir framan kvik-
myndavélina. Ég tek þátt í gerð
handrita fyrir heimildarkvik-
myndir. Hefur efni tveggja
mynda þegar verið ákveðið.
Fjallar önnur um bátasmið sem
ætlar að byggja seglbát og'hin
um granítvinnslu í Mainefylki.
Þar er granítvinnsla stór at-
vinnuvegur og mörg stórhýsi
víðs vegar um Bandaríkin eru
byggð úr graníti frá Maine. Fót-
stallurinn á stvttu Leifs Eiríks-
sonar er einmitt úr graníti
þaðan,“ sagði Gunnar.
Gunnar Hansen fæst ekki
eingöngu við að skrifa kvik-
myndahandrit. Ljóðabók eftir
hann er væntanleg á
markaðinn í marz og nefnist
hún „Bear dancing on the
Hill.s". Þá er hann einnig um
það bil að ljúka við skáldsögu
sem hann telur sig vera búinn
að fá útgefanda að. Kemur sag-
an væntanlega út að ári.
Sagan fjallar um morð og er
lauslega byggð á sann-
sögulegum atburðum. Gunnar
býr í litlum bæ í Maine, sem
heitir North East Harbour. Þar
var framið morð í fyrra og er
það eina morðið sem þar hefur
verið framið í tvö hundruð ár.
„Morðið var raunar- framið
skammt frá þar setn ég bý.
Lögregluþjónn í bænum, sem
er góður kunningi minn, sagði
mér undan og ofan af þessu
máli og byggi ég sögu mína að
nokkru leyti á þessum
atburðum," sagði Gunnar.
Gunnar er einnig meðritstjóri
að'blaði er nefnist Regional, en
þar er að finna upplýsingar um
hvaðeina sem er á döfinni í
Maine-fvlki hverju sinni bæði á
sviði skemmtana og list-
viðburða. Þar að auki skrifar
hann greinar sem hann selur
ýmsum blöðum, er ,,free-lance“
eins og það er kallað.
Gunnar hefur lagt stund á
málvísindi við háskóla í Texas
og er raunar fyrsti og eini
tslendingurinn sem lokið hefur
háskölaprófi í íslenzku frá
norrænu deildinni þar.
Háskólinn í Texas er talinn
hafa þriðju beztu málvísinda-
deildina í Bandaríkjunum.
Eftir að Gunnar lauk þaðan
prófi kenndi hann ensku við
háskölann úm'ske'ið. A.Bj.
Það er ekki furða þótt bíógestir
verði skelkaðir þegar Gunnar
Hansen birtist á hvíta tjaldinu i
gervi sínu i kvikmyndinni The
Texas Chain Saw Massacre. Hánn
var með hræðilega grímu á and-
litinu og véisög að vopni.
Andlit Gunnars sást aldrei í
kvikmyndinni. Þarna er hann að
ráðast á stúlkuna Sallv sem
leikin er af Teri MeMinn. —
Verið er að reyna að fá myndina
til sýningár hér á landi.