Dagblaðið - 25.01.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 1978. 5
Og ballið heldur áfrant: Þriðji hluf framleiðs :i dilkak lunnar f jöts- luttur út
[ — og verðið sem ytra fæst hækkar minna en framleiðsluverð hér heima ]
Búið er að senda úr landi 2020
lestir af haustframleiðslu síðasta
árs af lambakjöti að því er ,,Sam-
bandsfréttir", fréttabréf SÍS, frá
23. janúar herma. Er þar einnig
haft eftir Agnari Tryggvasyni
framkvæmdastjóra Búvöru-
deildar StS að ráðgert sé að flytja
út til viðbótar þessu um 2500
lestir svo að heildarútflutningur-
inn í ár verður 4520 lestir ef tölur
framkvæmdastjórans standast.
Heildarframleiðsla dilkakjöts hjá
öllum sláturleyfishöfum í landinu
var á sl. hausti 13.940 lestir. Ljóst
er því að út er flutt nálega þriðja
hvert kíló dilkakjöts sem
islenzkir bændur framleiða, eða
nákvæmlega 32,4%. framleiðsl-
unnar.
í fréttabréfi SÍS segir orðrétt:
„Verðið, sem fengizt hefur fyrir
þetta magn, er rúmlega 10%
hærra í erlendri mynt en það sem
fékkst fyrir rúmu ári.“
Þegar gengissigið bætist við
verður útkoman sú að verð-
hækkun á hvert kíló milli ára er
eitthvað yfir 20% í íslenzkri
mynt. Heildsöluverð innanlands
milli ára hækkaði um 32% svo að
útflutningur kjöts verður stöðugt
óhagstæðari.
Lög um útflutningsuppbætur á
landbúnaðarafurðir kveða svo á
um að úr ríkissjóði skuli greiða í
útflutningsuppbætur allt að 10%-
af heildarverðmæti landbúnaðar-
afurða. Þegar nú er séð að þriðj-
ungur dilkakjötsframleiðsl-
unnar kemur til útflutnings á
u.þ.b. hálfu heildsöluverði hvers
kílós má ljóst vera að enn stefnir í
hreinan voða með offramleiðslu á
dilkakjöti á fslandi.
Næsti kafli fréttabréfs SÍS
fjallar um sjávarútveginn og út-
flutningsverðmæti sjávarafurða-
deildar SÍS. Utflutningur frystra
sjávarafurða hjá SlS hafði aukizt
um 15,7% að magni til milli ára
en verðmæti hans hafði aukizt um
54.3%. Hvað snerti útflutning
mjöls og lýsis á vegum SÍS var um
rúmlega tvöföldun í magni að
ræða en þreföldun í verðmæti.
Það er töggur í krökkunum suður með sjó
— Söfnuðu nærri 400 þús. kr. til íþróttahússins
Fyrir helgina sögðum við frá
þvi hér í DB að sex röskir þrettán
ára krakkar í Sandgerði tóku sig
til og söfnuðu hvorki meira né
minna en nærri 400 þúsund
krönum til styrktar byggingu
íþróttahúss í Sandgerði. Þá
höfðum við ekki mynd af þessum
rösku og' fallegu krökkum en nú
hafa þau bætt úr því með því að
þau komu í heimsókn til okkar á
ritstjórnina.
Þau sögðust hafa gefið út aug-
lýsingablað þar sem meðal annars
var hvatt til þess að kaupa af
þeim sælgæti sem þau hygðust
ætla að selja. Þegar krakkarnir
komu svo með sælgætið til Sand-
gerðisbúa var því svo vel tekið að
allt sem þau höfðu á boðstólum
seldist, 400 pakkar. Þessi börn
söfnuðu einnig til íþróttahúss-
byggingarinnar í fyrra með sölu
sælgætis.
Formaður byggingarnefndar
íþróttahússins er Jón Norðfjörð.
Sagði hann að íþróttahúsið væri
nú langt til uppsteypt og væri
vonazt eftir að hægt yrði að taka
það í notkun seint á næsta ári.
Byggingarkostnaðurinn er nú
kominn upp í 27-28 milljónir.
Stefnt hefur verið að því að hafa
byggingarframkvæmdirnar á sem
allra hagkvæmastan hátt. Sagði nokkra fjárfestingu með því að sérstök steypumót, sem spara alla
Jón að þeir hefðu farið út I kaupa bæði bygggingarkrana og pússningu. A.Bj.
Þessir ungu Sandgérðingar hafa svo sannarlega sýnt að í þeim er mikill töggur. Krakkarnir söfnuðu
nærri 400 þúsund krónum til stvrktar bvggingu íþróttahúss í Sandgerði. Þau eru talið frá vinstri. Fremri
röð: Lilja Hafsteinsdóttir, Fanne.v Friðriksdóttir. Jóhanna Norðfjörð, Aftari röðin: Guðmundur Pálsson.
Jón Gunnarsson og Lúðvík Eggertsson. DB-mvnd Hörður Vilhjálmsson.
Það er því þreitt bil milli verð-
mætasköpunar Búvörudeildar
SÍS og Sjávarafurðadeildar SlS.
ASt.
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEC
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
L i MM UAÐIÐ
fijúlsl, áháð dagblstil
TÍZKUBLAÐIÐ IlT
Til tizkublaðsins Lif Armúla 18
Óska eftir áskrift
1 — 6 tbl. 1978 kr. 2970
2 — 6 tbl. 1978 kr. 2475
er nær uppselt hjá útgefanda
örfá eintök eftir sem aðeins verða send til nýrra áskrifenda.
Tízkublaðið Líf þakkar frábærar móttökur og minnir á að blaðið kemur út annan
hvern mánuð.
Auglýsendur: Tízkublaðið Lif er m.a. vettvangur vandaðra auglýsinga sem eru
áhrifamiklar og hafa langtímagildi. Vinsamlega staðfestið pantanir yðar
allra fyrst.
I
| Heimilisfang: -----------
I
J--------------------- simi:
TÍZKUBLAÐIÐ LÍF — SÍMI 82300