Dagblaðið - 25.01.1978, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1978.,
Kanada:
Mikil leit að
braki sovézks
gervihnattar
— Mestar líkur á að hann haf i
brunnið í guf uhvolf inu
Bandarisk og kanadísk yfir-
völd haf skipulagt mikla leit að
hugsanlegu braki úr sovézkum
kjarnaknúnum gervihnetti,
sem fór út af braut sinni í gær-
morgun og kom inn í gufuhvolf
jafðar yfir norðurhéruðum
Kanada, á mjög strjálbýlu
svæði.
Talsmenn yfirvalda sögðu |>ó
að litlar likur væru á því að
nokkuð fyndist af gervihnettin-
um, sem var á stærð við sjón-
varpstæki og yfirmaður varnar-
málanefndar Kanada, Robert
Falls, sa_gði aö hnötturinn hefði
nær örugglega brunnið upp á
þremur mínútum eftir að hann
kom inn í gufuhvolf jarðar. Er
hann var spurður að því hvers
vegna svo viðamikil leit færi þá
fram sagði hann að yfirvöld
tækju enga áhættu og vildu
fullvissa sig um að ekki væri
um að ræða hættuleg geislavirk
efni, sem náð hefðu til jarðar.
Möguleiki væri á því að úraní-
um úr gervihnettinum hefði
staðizt hitann og fallið til
jarðar.
Sovétmenn skutu gervihnetti
þessum á loft í september sl. og
aðaltilgangur hnatta sem bessa
er að fylgjast með ferðum
bandarískra herskipa. Tass
fréttastofan sovézka sagði i gær
að af ókunnum ástæðum hefði
þrýstingurinn farið af gervi-
hnettinum 6. janúar sl. og fór
hann síðan út af réttri braut
sinni. Tass sagði einnig að
knötturinn hefði verið hann-
aður til þess að eyðast upp er
hann kæmi í yztu lög gufu-
hvolfsins og hann væri því ekki
lengur til.
Kanadísk yfirvöld hafa
kvartað munnlega við sovézka
sendiherrann í Moskvu vegna
þess að kanadísk yfirvöld hafi
ekki haft nægar upplýsingar
um ferðir þessa skemmda
gervihnattar. Þá hefur einnig
verið ræddur sá möguleiki að
Sovétmönnum verði sendur
reikningurinn vegna hinnar
miklu leitar í Kanada.
Harðar deilur urðu í gær á
kanadíska þinginu er leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, Joe
Clark, sagði að bandarísk yfir-
völd hefðu haldið upplýsingum
um síðustu ferðir hnattarins
leyndum fyrir Kanadamönn-
um, en Bandaríkjamenn höfðu
fylgzt náið með hnettinum.
Vopnaður með þrjá gísla
Vopnaður maður hefur haldið
þremur mönnum í gíslingu í húsi
íæknis nokkurs í Oak Lake í
Manitoba síðan á mánudagsmorg-
un.
Byssumaðurinn, sem er 42 ára
gamall, lenti i skotbardaga við
lögreglu á hóteli þar sem hann
skaut einn lögreglumann til bana
og særði tvo. Eftir bardagann tók
hann gíslana, lækni, konu hans og
bónda, og settist að í húsi læknis-
ins. Vopnaðir lögreglumenn hafa
umkringt húsið siðan á mánudag.
Maðurinn krefst hundrað þús-
und Bandaríkjadollara og flug-
vélar fyrir sig og konu sína, sem
einnig særðist i skotbardaganum
við lögregluna. Hann vill síðan
láta flytja sig til einhvers hlut-
lauss ríkis og taka með sér einn
gísla sinna.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 - Simi 15105
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkurhf.
Brautírtiolti 2 — Símar 11941
Hafnarfjörður!
Blaðburðarbörn óskast í
suöurbæ
Upplýsingar í síma 52354
kl. 5 til 7.
mmuunÐ
Terr.v Kath var einn af stofnendum hljómsveitarinnar Chicago árið 1968. Þá nefndist hljómsveitin
Chicago Transit Authority. DB-mynd: Ragnar Th. Sigurðsson.
Söngvari hljómsveit-
arinnar Chicaco lézt
af voðaskoti í gær
Terry Kath gítarleikari og
söngvari hljómsveitarinnar
Chicago lézt í fyrrinótt, að því
er virðist af voðaskoti. Hann
var í heimsókn hjá tæknistjóra
hljómsveitarinnar, er atvikið
átti sér stað.
Að sögn tæknistjórans, Don
Johnson, beindi Kath sjálf-
virkri skammbyssu að höfði sér
og hleypti af. Áður hafði hann
fullvissað alla, sem á horfðu,
að byssan væri óhlaðin. Sjálfur
kvaðst Johnson hafa horft á
Kath hlaða skammbyssuna
nokkru áður. — Síðustu orð
gítarleikarans og söngvarans
voru: „Hafið engar áhyggjur,
hún er óhlaðin."
Lögreglan í Los Angeles
rannsakar málið af fullum
krafti. Það er enn skráð hjá
henni sem slys. Að sögn lögregl-
unnar kom Kath, sem var 33ja
ára gamall, til heimilis tækni-
stjórans með tvær skammbyss-
ur, — þá sjálfvirku og aðra 38
kalibera. Hann hafði áður
hleypt af hinni byssunni við
höfuð sér. — Kath átti gott
byssusafn.
Terry Kath var einn af stofn-
endum bandarísku jazzrokk-
hljómsveitarinnar Chicago árið
1968. Hljómsveitin hefur leikið
inn á ellefu hljómplötur.
Síðasta lagið, sem vinsælt varð
með henni, var Baby, What A
Big Surprise.
Skákmótið í Hollandi:
Kortsnoj í forystu
Victor Kortsnoj heldur enn
forystu á skákmótinu í Wijk Aan
Zee í Hollandi eftir jafntefli við
Ree frá Hollandi í fjórðu umferð
mótsins sem tefld var í gær.
Aðeins ein skák vannst í gær,
en Mecking frá Brasilíu sigraði
brezka meistarann Miles. Skák
ENDURSKINS-
MERKI ERU
NAUÐSYNLEG
FYRIR ALLA
UMFERÐARRÁÐ
Andersons frá Svíþjóð og Van der
Sterren Hollandi fór í bið en
aðrar skákir urðu jafntefli.
Staðan eftir fjórar umferðir er
nú þessi:
1. Kortsnoj 3 vinningar.
2. Portisch, Mecking, Timman 2‘A
vinning.
5. Anderson 2 vinningar og bið-
skák.
6. Sosonko 3 vinningar.
7. Ree 1 'Jí og biðskák.
8. kavalek, Njadorf, Miles Panno
1‘A vinningur.
12 Van der Sterren enginn vinn-
ingur og biðskák.
MannrániðíParís:
Kannað hvort Baader-
Meinhof hópurinn sé
viðriðinn mannránið
Möguleikar kunna að vera á
því að meðlimir Baader-
Meinhof hópsins séu viðriðnir
rán . belgíska auðmannsins
Edouard-Jean Empains baróns
í París í fyrradag.
Bílstjóri barónsins sem var
illa leikinn eftir barsmíðar
ræningjanna, sagði í gær að
hann hefði heyrt samræður á
þýzku er baróninum var rænt.
Þetta leiðir líkur að tengslum
á milli þessa ráns og ránsins á
Hanns Martin Schleyer, sem
var drepinn af mannræningj-
um í október sl.
En ýmsir hafa lýst sig ábyrga
á mannráninu. Öfgahópur sem
nefnir sig NAPAP hafði sam-
band við útvarpsstöð í Paris og
lýsti sig ábyrgan á ráninu og
hefur krafizt lausnargjalds sem
væri á bilinu frá 8 milljónir
dollara og til tveggja milljarða
dala.
Lögreglan kannar allt sem
fram kemur í málinu en enginn
hefur enn haft samband við
fjölskyldu barónsins, en hann á
konu og þrjú börn.
Sá sem hringdi frá NAPAP
vildi fá lausa tvo Baader Mein-
hof skæruliða, þau Irmgard
Möller og Rolf Pohle, ella yrði
baróninn drepinn.
Vinstri sinnaða blaðið
Liberation í Frakklandi skýrði
síðar frá því að blaðinu hefði
borizt bréf frá NAPAP, þar
sem aðild að ráninu var alger-
lega vísað á bug.