Dagblaðið - 25.01.1978, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1978.
Ríkisrekið innflutningsfyrirtæki
Altt ad helmingur tekna Lands-
smidjunnar af innfhstningj
Á ríkið að reka heildsölu á
skilvindum, hillum ok húnaði
til vörumeðhöndlunar, loft-
verkfærum og öðrum slíkum
vörum? í skýrslu „nefndar um
minnkun ríkisumsvifa" um
Landssmiðjuna kemur fram, að
verzlunarrekstur og þá einkum
innflutningur véla og tækja og
tiiheyrandi viðgerðarþjónustu,
ræður að öllum líkindum úrslit-
um um hag þessa ríkisfyrir-
tækis.
„Arin 1974 og 1975, þegar
verzlunarrekstur var með
mesta móti, hefur tæplega
helmingur tekna Landssmiðj-
unnar verið fenginn með
endursölu innfluttra vara.
Lögin um Landssmiðju gera
hins vegar alls ekki ráð fyrir
slíkum verzlunarrekstri, „segir
í skýrslunni. Vitnað er í
skýrslur f.vrirtækisins fyrir
nokkrum árum, þar sem segir:
„Afkoma Landssmiðjunnar
byggist nú að mestu á afkomu
verzlunarrekstursins," og
„Afkoman byggist hins vegar
að mestu á afkomu verzlunar-
innar."
A síðustu 20 árum hefur
hluti vörusölu verið á bilinu
50—67 prósent. í reikningum
fyrirtækisins merkir vörusala
summu þriggja ólíkra stærða:
endurseldar innfluttar vörur,
sölu eigin framleiðsluvara og
loks efni i hvers konar út-
seldar vörur. En hluti hinna
innfluttu endurseldu vara í
veltu fyrirtækisins einna nam
34 af hundraði árið 1976, 48 af
hundraði 1975 og 47 af
hundraði 1974, samkvæmt
skýrslunni. Hlutur málmsmíða-
iðnaðarins sjálfs nam 66%
1976, 52%, 1975 og53% 1974.
í innflutningi vara til endur-
sölu hefur hin síðari ár mest
farið fyrir Alfa Laval skil-
vindum, Dexion hillum og
búnaði til vörumeðhöndlunar
og Atlas Copco loftverkfærum.
HH
Fegurðardrottning SVO ÚTLENDINGAR SJÁIAÐ Á
ÍSLANDIBÝR MENNINGARÞJÓÐ
Það er heldur ekkert hégóma-
mál f.vrir fámenna og afskekkta
þjóð eins og ísland að á hinum
alþjóðlegu fegurðarsamkeppnum
komi fram glæsilegir fulltrúar
íslands. En tugir og hundruð
milljóna sjónvarpsáhorfenda sjá
þá að á tslandi býr mvndarleg
menningarþjóð. En alkunna er
að jafnvel í nágrannalöndum
okkar, svo sem á Bretlands-
eyjum, heldur fjöldi fólks ennþá
að á Islandi búi eingöngu Eski-
móar í snjóhúsum. Þátttaká
tslands i alþjóðlegum fegurðar-
samkeppnum og nauðsyn þess að
velja'til þess verðuga fulllrúa
íslenzku þjóðarinnar er þvi
ekkert hégómamál fyrir okkar
fámennu, afskekktu og misskildu
þjóð úti í hinum fjarhega heimi."
Svo segir í fréttatilkvnningu sem
blaðinu hefur borizt vegna
fegurðarsamkeppni íslands 1978.
Það er Ferðaskrifstofan Sunna
sem gengst fyrir keppninni i
þetta sinn eins og áður. Nokkur
skiíyrði eru fvrir þátttöku. meðal
annars þau að hafa ekki verið
giftur eða alið barn.
ísienzku stúlkurnar sem valdar
verða fulltrúar Islands verða
siðan sendar á vit hins fjarlæga
heims í keppni um fegurð og
vndisþokka við fulltrúa annarra
þjóða. Þær sem hins vegar biða
lægri hlut fá sárabætur í formi
ferðaverðlauna og er því til ein-
bvers að vinna. Þær sem út fara
hafa að enn meiru að stefna því
f.vrir nú utan heimsfrægð sem
þeirra biður ef þær sigra í al-
þjóðlegri keppni þá eru verðlaun-
in há og mikil. Hægt er þegar að
láta Sunnu vita um væntanlega
keppen'dúr. sem til greina koma.
I)S.
TAKA VIÐ STJÓRN
TRÚBOÐS í NÍGERÍU
„I hádegisstað mun sólin verða
svo til beint yfir höfðum okkar
þar sem ég og fjölskylda mín
verðum við störf á vegum aðvent-
ista næstu fjögur árin," sagði
Steinþór Þórðarson, Njarðvik-
ingur, sem þegar er lagður af stað
til Nígeríu ásamt eiginkonu og
tveimur börnum til að veita for-
stöðu starfssveitum aðventista
þar syðra, „en við kvíðum samt
ekki. Norðurlandabúar þola hit-
ann engu síður en innfæddir. Við
qjunum búa í Port Harcourt sem
er nokkrum gráðum fyrir norðan
miðbaug og tilheyrði á sínum
tíma Biafra."
Aðventistar eru um fimm þús-
und í Port Harcourt og nágrenni.
Skiptast þeir í 20 söfnuði með
einn starfsmann hver. Auk trú-
boðsins annast aðventistar sjúkra-
hjálp. Aður ráku þeir skóla í hér-
aðinu, en rikið tók við þeirri
starfsemi þegar skólask.vlda var
innleidd. „Sem forstöðumaður
safnaðanná verð ég að ferðast
mikið um. Samgönguæðarnar eru
fljótin, engu siður en vegirnir.
Hagur fólks fer batnandi, að því
er ég hef fregnað," sagði Stein-
þór, „það gerir vaxandi olíu-
vinnsla, sem gefur af sér drjúgar
tekjur,"
Steinþór hefur starfað mikið á
vegum aðventista bæði á Akur-
eyri og á Suðurnesjum sem
prestur við söfnuðina þar, fjögur
ár á hvorum stað. Einnig starfaði
hann i Kópavogi og var skóla-
stjóri Hlíðardalsskóla í Ölfusi.
Eiginkona hanS er Lilja Guð-
steinsdóttir frá Vestmannaeyjum
og eiga þau fjögur börn, Þröst
Birki, Hauk Smára, Guðstein Þór
og Margréti Hörpu. Tvö fyrst-
töldu eru við háskölanám í USA
en tvö síðarnefndu fara með þeim
til Nígeríu.
- emm
Þetta eru fallegustu stíilkurnar á Íslandi 1977 — nú er spurningin hvernig til tekst 1978.
Iðnaðurinn fær griðland íBorgarmýrinni
— Þar rísa stórhýsi iðnaðarins í framtfðinni
Vegfarendur um Vesturlands-
veg hafa undanfarna mánuði
veitt athygli miklum lóðafram-
kvæmdum í krikanum milli
Vesturlandsvegar og Bæjar-
hálsins í svokallaðri Borgar-
mýri. Þarna voru í eina tíð
kartöflugarðlönd Re.vkvíkinga.
Tuttugu fyrirtækjum innan
Félags íslenzkra iðnrekenda og
Landssambands iðnaðarmanna
var úthlutað þarna sameiginlegri
lóð undir iðnaðarhús. Fyrirtæki
þessu mynduðu með sér samtök
sem þeir nefna hlutafélagið Iðn-
borg. Ætlunin er að fy
standi þannig sameiginlega að
byggingaframkvæmdum.
Stærð lóðarinnar er 37.379
metrar og verða byggð fjögur
iðnaðarhús, samtals 14.700 fer-
metrar að stærð. Tekið er mið af
landslagi við hönnun húsanna og
þau felld inn í landslagið • og
nánasta umhverfi sitt.
Götur i Borgarmýri hafa nú
verið malbikaðar og komið fyrir
götulýsingu.
Eftirtalin fyrirtæki eru hlut-
hafar Iðnborgar hf. og aðilar að
byggingaframkvæmdum á vegum
hennar: Bifreiðaverkstæði
Gunnars Sigurgíslasonar, Bikar-
box hf. Freyja sf. Gráfeldur hf„
Henson sportfatnaður hf„ Hilda
hf„ Isspor hf„ Karnabær hf„
Kjörsmiði hf„ Mjöll hf„ Plast-
tækni hf. Stálhúsgagnagerð
Steinars hf„ Sæplast hf„
Vélaverkstæði Bernharðs
Hannessonar hf. og Vörumerking
hf.
Stjórnarformaður Iðnborgar
hf„ er Haukur Björnsson hjá
Félagi islenzkra iðnrekenda.
A.Bj.
IÐNBORG HF
IÐNAÐARHÚS í BORGARMÝRI
Tekið var mið af landinu viö htinnun hins nýja iðnaðarhúsnæðis og á
það að falla inn i landslagiö og nánasta umhverfið.