Dagblaðið - 25.01.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 1978.
Alafoss og Gef jun gera það gott á alþjóðasýningu:
ISLENZK ÁKLÆÐI, VÆRÐARVODIR
OG SÆNGUR VÖKTU MIKLA ATHYGLI
—60-70 pantanir bárust og annað eins af f yrirspurnum
Álafoss og Gefjun náðu mjög
góðum árangri á vörusýningu sem
fyrirtækin tóku þátt í, á stærstu
og virtustu textilsýningu sem
fram fer í heiminum. Tóku fyrir-
tækin þátt í sýningunni
International Trade Fare for
House and Household Textiles í
Frankfurt 11.-15. janúar sl.
Sýninguna sóttu um 60 þúsund
manns. Fjölsi sýnenda var 1050
frá 32 löndum og sýningarsvæðið
var 75 þúsund fermetrar.
Frá þessu segir í tilkynn-
ingu frá Utflutningsmiðstöð
iðnaðarins en Utflutnings-
miðstöðin skipulagði íslenzka
sýningarsalinn, sem var 42 fer-
metrar og hafði hluta af honurrv
sjálf og rak auglýsingaþjónustu.
Álafoss og Gefjun sýndu þarna.
húsgagnaáklæði og værðarvoðir
auk þess sem Gefjun sýndi
sængur. bæði með æðardúns-
fyllingu og ullarfyllingu.
Arangur íslenzku fyrir-'
tækjanna er talinn mjög góður.
Hafa þau fengið milli 60 og 7C
prufupantanir og annað eins af
fyrirspurnum. Geysileg vinna
bíður nú fyrirtækjanna að vinna
sýningardeild Islands
textilsýningunni. Annars vegar eru húsgagnaáklæðin, en hins vegar værðarvoðirnar.
úr þeim pöntunum og fyrirspurn-
um sem bárust og vænta bæði
fyrirtækin sér mikils af árangri
sýningarinnar.
Langþýðingarmesti markaður-
inn fyrir húsgagnaáklæði og
værðarvoðir virðist vera í Skandi-
navíu. þó ágætir möguleikar
virðist fyrir þessar vörur í öðrum
Evrópulöndum. Mikilvægi
skandinavíska markaðarins bygg-
ist fyrst og fremst á því hvað
„Scandinavian design“ byggir
mikið á náttúrlegum efnum.
Athyglisvert þótti hve ríka
áherzlu bæði íslenzku sýningar-
firmun höfðu lagt á hönnun
framleiðslu sinnar frá því þau
tóku þátt í alþjóðlegri sýningu
síðast. Vorur íslenzku vörurnar
mjög rómaðar af mörgum sýning-
argesta vegna þessa.
Bæði Alafoss og Gefjun hafa
ákveðið þátttöku í fleiri erlendum
sýningum á þessu ári.
-ASt.
Þ0RRABL0TSNEFNDIN ER AGÆTIS
HJÚSKAPARMIÐLARI
— Regína segir f rá komu þorra á Eskif irði
Veglegt þorrablót var haldið í
samkomuhúsinu Valhöll á
Eskifirði á laugardaginn var.
Þrjú hundruð og sjötíu manns
sátu undir borðum þar til
klukkan 11 um kvöldið að Hólma-
tindur kom inn og komu þá
skipverjarnir fimmtán með konur
sínar. Á borðum var mikill og
góður þorramatur eins og
tilheyrir þeim degi, hákari,
hangikjöt og brennivín. Lunda-
baggar, svið og hrútspungar, en
það gleymdist að sýra allan
þennan gamla og góða mat.eins og
vanalega er gert. Harðfiskurinn,
hangikjötið og hákarlinn var
alveg fyrsta flokks matur. Þótti
mönnum sem inngangseyririnn
væri ekki jafn dýrseldur og búast
mætti við í verðbólgunni, en hann
var kr. 4 þúsund á manninn.
Undir borðum voru fjölbreytt
skemmtiatriði, öll heimatilbúin,
fjöldasöngur og smá leikrit og
mæltist það allt mjög vel fyrir.
Heiðursgestir voru þau Þórdís
Guðjónsdóttir og Magnús Jónsson
sem eru með elztu borgurum á
Eskif. Einnig var heiðurshjónun-
um Ellert Borgari Þorvaldssyni
og konu hans Ernu Björnsdóttur
boðið, en þau voru skólastjóra-
hjón á Eskifirði um árabil. Þau
fluttu að austan fyrir sex árum og
kenna nú við Öldutúnsskólann í
Hafnarfirði. Skemmti Ellert fólki
vei undir borðum með ýmsum
skemmtilegum bröndurum og
voru Eskfirðingar mjög ánægðir
með það að skólastjórahjónin
skyldu heiðra þá með því að koma
til þessa mikla mannfagnaðar.
Fastur liður er á Eskifirði að
átta hjón eru kosin i þorrablóts-
nefnd á hverju ári og auk þess
piltur og stúlka sem fólk er hrætt
um að muni pipra. Komíð hefur
fyrir að úr parinu hafa orðið hjón
og það hin mestu fvrirmyndar-
hjón Það má því með sanni segja
að þorrablótsnefndin sé eins
konar hjúskaparmiðlari. Vona
Eskfirðingar að svo verði einnig
að þessu sinni.
Borðin voru tekin upp kl.
hálftólf um kvöldið og var stiginn
dans til kl. hálffimm um
morguninn. Voru allir komnir
heim til sin kl. fimm, vel saddir af
góðum mat og því góða meðlæti
sem tilheyrir þorramatnum.
Hljómsveitin Panik frá Egils-
stöðum lck f.vrir dansi.
Formaður þorrablótsnefnd-
arinnar var Ragnar Hall
sýslufulltrúi. Eru Eskfirðingar
þorrablótsnefndinni þakklátir
fyrir góða skemmtun og stjórn-
semi í hvívetna. Næsta ár verður
Gunnar Finnsson kennari for-
maður þorrablótsnefndarinnar.
Regína Thor./abj.
„Með hjartfólgnum ástarkveðjum...”:
Til „skipstjórans” á Skaftfellingi VE!
í sjómannaþættinum Á frívakt-
inni eru oft sendar harðsnúnar og
hjartfólgnar kveðjur út og suður.
Ein kveðjanna í þætti nýlega
vakti talsverða athygli að sögn
Brautarinnar, fréttablaðsins í
Vestmannaeyjum. Það var
ástúðarkveðja til „skipstjórans á
Skaftfellingi VE“ frá yngismey
nokkurri.
Svo háttar til að Skaftfellingur
Eigendur
Óðals eru þrír
Þegar við sögðum frá gleð-
skapnum sem haldinn var á Öðali
fyrir vistmenn og starfsfólk Kópa-
vogshælis á dögunum var getið
um eigendur Öðals. Láðist þá að
geta um einn af þeim, Ölaf Lauf-
dal, og er hann beðinn velvirð-
ingar á því. Ólafur gekk um beina
ásamt starfsfólki sínu á skemmt-
uninni og var einn af hvatamönn-
um þess að þessi skemmtun væri
haldin.
má muna sinn fífil fegri. Skipið
var aflaskip og happaskip mikið,
en nú má telja í áratugum tímann
frá því báturinn var mannaður og
hélt út til fiskjar. Á skipinu er
þar af leiðandi enginn skipstjór-
inn.
„Yngismærin sú hefur því
fallið á fölskum forsendum fyrir
,,skipstjóranum“, —- eða hvað?“
segir í Brautinni.
Myndin er aftur á móti af
bátnum meðan hann var og hét og
hafði raunverulegan skipstjóra.
ÚTSALA
Mi í
mömmu-
SÓL
i kjállara
midbæjar
markaðarins
dðalstræti 9
- A.Bj.