Dagblaðið - 25.01.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1978.
........ —.11..—
13
Frjáls og óháður
— Um bók Ingimars Erlends Sigurðssonar
Göngustaf vindsins, 144 bls., Letur
Margir erlendir skáldjöfrar
voru á þeirri skoðun (og eru
það enn að því ég best veit) að
smásagan væri drottning skáld-
skaparins fyrir margra hluta
sakir, ekki síst vegna þess að í
henni mátti beita, að hæfilegu
marki, bæði ljóðrænni sam-
þjöppun og víðtækari lýsingar-
háttum skáldsögunnar. En
drottning sú virðist vera á
undanhaldi á bókamarkaðinum
eins og annað slekti, hér sem
annars staðar. Mætur bókaút-
gefandi hér á landi hefur t.d.
tjáð mér að vart þýði að gefa út
smásögur eftir innlenda höf-
unda sem erlenda því þær
seljist alls ekki. Þetta hiýtur
svo aftur að leiða til þess að
menn skrifi ekki smásögur því
einnig er hörgull á bókmennta-
ritum sem örvað gætu smá-
sagnaritun. Ástandið er sem
sagt ekki gott á þeim vígstöðv-
um. Þó eru sumir íslenskir
höfundar enn ófeimnir við að
senda frá sér smásögur og er
Jón Helgason t.d. afar snjall
penni'á því sviði.
HUGARBURÐUR
Ekki er Ingimar Erlendur
Sigurðsson heldur feiminn við
útgáfu, en hann hefur nýverið
sent frá sér smásagnasafn gegn-
um Letur og er það fimmta bók
hans á ekki fleiri árum. Ingi-
mar Erlendur er ekki allsendis
óvanur að skrifa smásögur. því
árið 1961 kom út býsna gott
smásagnasafn eftir hann undir
nafninu „Hveitibrauðsdagar"
og var ein sagan úr því safni
m.a. valin í úrvalsrit smásagna
á Norðurlöndum árið 1965. Hið
nýja safn Ingimars Erlends
nefnist „Göngustafur vindsins“
(sama hljóman og síðasta bók
hans sem hét „Veruleiki
draumsins") og eru í henní 17
sögur og sögubrot. Það þarf
ekki nema að renna augum yfir
þessi tvö smásagnasöfn Ingi-
mars Erlendar til að skilja að
miklar breytingar hafa átt sér
stað í hugsunarhætti hans sem
höfundar, — revndar má margt
V
ráða af heitpm þessara tveggja
bóka. Sú fyrri innihélt sögur
sem kalla mætti raunsæjar, all-
tént byggðar á nákvæmri
skoðun á veruleikanum, en
siðari bókin hefur að geyma
meiri fantasíu, meiri „hugar-
burð“, sem kannski er vegna
óbeinna áhrifa höfunda eins og
Borges.
ÆVINTÝRI
FYRIR FULLORÐNA
Þó er reynslan, gjarnan
bitur, ávallt undirstaða þessara
nýju ævintýra Ingimars
Erlends fyrir fullorðna og því
nálgast þær margar það sem
nefna mætti dæmisögur.
Grunntónn þessara tveggja
bóka er einnig óllkur. 1 „Hveiti-
brauðsdögum" er höfundur oft
bjartsýnn og glaðbeittur, gagn-
rýninn en þó viss um að hið
góða muni endanlega verða
ofan á. Ef nefna ætti eitt þema í
hinni nýju bók (og ekki þarf að
leita þess vandlega) þá er það
líklega „missir". 1 „Konungur
jarðar" missir mannkvnið bók-
staflega vitglóruna í kapp-
hlaupinu um lífsins gæði, i
„Öskrið“ skeður slíkt hið sama
en í öðru og raunsærra sam-
hengi, í „Bylting í ríkinu" e’
fjallað um það hvernig hug-
sjónir þróast og týnast, í „Hann
er enn á meðal vor" er eftirsjá
undirstaða sögunnar. i „Kerta-
ljós“ er missir og síðan manns-
lát viðfangsefníð og um svipað
efni er fjallað í „í hlaðvarp-
anurn". Ástleysi er efni „Af
holdi og blóði" og „Geymslurn:
ar“ segir frá missi sakleysis.
Höfundur gefur okkur síðan
eins konar lvkil í lokin sem
Ingimar Erlendur Sigurðsson
st.vður þessa túlkun. i sögur
sinni „í djúpið" sem segir frá
barni sem finnur perlu við
sjávarströnd. en síðan stevpir
hafið sér yfir það.
ÞÁ MÓTI BARLÓMI
Það er því lífsreyndari höf-
undur sem þetta skrifar en sá
sem samdi „Hveitibrauðs-
daga". en þó er allur barlómur
Ingimar Erlendi á móti skapi.
„Fjallið og flugan" er undan-
tekning, en þar beinir hann
spjótum sínum að fyrirbærinu
„gagnrýnanda" og er sú saga
misheppnuð sem skáldverk,
bæði fyrir það að illa fer á þvi
að krulla saman fyrirbærum af
svo þjóðfélagslegum toga og
ævintýrastíl, auk þess sem
glöggur lesandi fær það á til-
finninguna við lestur hennar að
viðfangsefnið eigi uppruna
sinn í illdeilum höfundar og
ákveðins gagnrýnanda hér í
bæ. Skeyti af þessu tagi. jafn-
vel í svo elskulegu fornii sem
Ingimar Erlendur klæðir þau í.
verða aldrei bókmenntir og
eiga frekar heima í ritgerðum.
Nóg um það. Hvað er það svo
sem Ingimar Erlendur heitir á
á þessari skálmöld? Eins og i
siðustu Ijóðabók hans er svarið
afdráttarlaust: hugarflugið.
skiipunargleðina og listina.
Aðeins með því að uppgötva í
sjálfum sér sköpunarorkuna og
finna henni farveg sem er í
samræmi við tilfinningai' hans.
verður maðurinn frjáls i heimi
„kerfisins". flokkunar og lífs-
gæðakapphlaups.
LOKAÐAR SALIR
„Konungur jarðar segir frá
þjóðfélagi sem glatað hefur
allri trú á andleg gæði og fvrir-
fer sér í peningaæði. ein áhrifa-
mesta saga bókarinnar
„Öskrið" segir frá fólki sem
bælt hefur niður tiifinningar
sinar svo lengi að loks brestur
sálin. „ Bvlting i ríkinu" segir
m.a. frá landi þar sem allir gera
sér far um að vera eins og
„Búðardrengurinn“ fjallar um
samleiðingu skapandi einstakl-
ings og fólks sem lætur sig
berast með straumnum
hugsunarlaust. Fleiri sögur
mætti nefna sem beint eða
óbeint stvðja þessa lífsskoðun
Ingimars Erlendar. Smásagan
virðist henta honum afar vel.
still hans er látlaus og laus við
allan belging — setningar eru
stuttar og hnitmiðaðar og
tevma lesandann á eftir sér
átakalaust, hvort sem hann
kann að meta efnið eða ekki.
Ilann verður alltént að gera
upp hug sinn gagnvart sögum
Ingimars Erlendar.
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Bók
menntir
STJORNMÁLA-
FLOKKURINN
Skrifstofur Stjorniuálaflokksins eru að Laugavogi 84 II.
hæð. sími 13051 og eru opnar alla virka daga frá kl. 5 til 7
e.h.
STUÐNINGS.MEW. Komið á skrifstofurnar eða hringið
og lálið skrá yður.
STJÓRNMÁLAFLOKKURINN
• 7 •
X
SKAKSTYRKIR ERU SKATTFRJÁLSIR
SKÁKSAM BAINID
GIRO 625000 ÍSLAN DS
kemurá
götuna í dag
Kl. 18,oo verður það borið í hús á fsafirði,
f Bolungarvík og f Hnífsdal.
Á morgun á öðrum þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum.
Næstu daga sér póstþjónustan um aö koma því
til hundraða áskrifenda um allt land.
(jT iM/t'iJn
Var stofnað í nóvember 1975
Er óháð stjórnmálaflokkum
Gefur innsýn í lífsbaráttu fólks, sem
býr strjált í harðbýlum landshluta
Kemur út annan hvern miðvikudag
Er stærra og fjölbreyttara
en önnur blöð á Vestfjörðum
Hefur sama dreifingarhlutfall á
Vestfjörðum og Morgunblaðið á
Islandi: Eitt eintak á hverja 6 - 7 íbúa
Þú getur orðið áskrifandi
með því að:
Lyfta símanum og velja 94-3223 eða á kvöldin 94-3100
Fylla út meðfyigjandi seðil og póstleggja hann
SENDUM ÓKEYPIS KYNNINGAREINTÖK EF ÓSKAÐ ER
(j7~ fi-d/it.J/i
pósthólf 33 - 400 ísafjörður
Ég óska að gerast áskrifandi að
Vestfirska fréttablaðinu
ins stórir í
&
l‘l.OT
mBERT
tirii* LUDLutvi
imwf
njiiuv.
JAWS
Lmand
Ordi*r