Dagblaðið - 25.01.1978, Qupperneq 15
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1978.
LC íþróttir Íþróttir íþróttir íþróttir íþróttir
OLAFUR OG JON HJA LÆKNUM
Frá Halli Hallssyni,
blaðamanni DB ð HM Arósum i
morgun.
Ólafur Einarsson verður
rannsakaður vel af dönskum
iæknum vegna meiðslanna sem
hann hlaut á hendi í landsleikn-
um við Norðmenn á sunnudaginn
— og Jón II. Karlsson er einnig í
meðferð hjá læknum. Séu meiðsli
þeirra alvarieg kann svo að faraað
við bætum við nýjum leikmönn-
um í HM-hópinn, sagði Birgir
Björnsson, formaður landsiiðs-
nefndar í samtali vð DB í gær-
kvöld hér í Arósum.
Norskur læknir taldi að tvö
bein væru brotin í hönd Ólafs og
Jón er með brjósklos í baki. Eng-
ar líkur eru á, að þeir leiki við
Sovétríkin á morgun — en
einhvern veginn finnst mér liggja
í loftinu, að nýir leikmenn verði
ekki valdir í HM-liðið. Aðeins 11
útileikmenn eru heilir og það
getur verið hættulegt í jafn
strangri keppni og HM er. Jón,
sem meiddist í leiknum við Fram
á dögunurh, hefur þó möguleika
að leika síðar í keppninni. í
gærkvöld var verið „að vinna“ á
bakinu á honum af dönskum sér-
fræðingum. Menn hér eru ekki
alveg sáttir við úrskurð norska
læknisins í sambandi við Ólaf en
það kemur sennilega í ljós í dag
hve meiðsli hans eru alvarleg.
Þrír aðrir leikmenn íslenzka
liðsins eiga við smámeiðsli að
stríða, sem verður kippt í liðinn
fyrir leikinn við þá sovézku. Það
eru þeir Björgvin Björgvinsson,
Árni Indriðason og Einar
Magnússon.
Heimsmeistarakeppnin hefst á
morgun, fimmtudag, og verða þá
átta leikir í riðlunum fjórum.
Danmörk og Spánn leika í C-riðli i
Árósum og hefst leikurinn kl.
18.00 að íslenzkum tíma. Strax á
eftir, eða kl. 19.30, leika Island og
Sovétríkin. í Óðinsvéum leika
Júgóslavía-Kanada í A-riðli, og
Vestur-Þýzkaland-Tékkóslóvakía
strax á eftir. í B-riðlinum leika
Ungverjaland-Frakkland og
Rúmenía-Austur-Þýzkaland í
Hernig, og í D-riðli leika Svíþjóð-
Búlgaría og Pólland-Japan í
Bröndby. Fyrri leikirnir í riðlun-
um hefjast allir á sama tíma eða
kl. 18 að islenzkum tíma. Ekki
verður leikið á föstudag — en átta
leikir í riðlunum á laugardag. Þá
leikur Island við Danmörku í
Randers. Atta leikir verða einnig
á sunnudag. Þá lýkur riðla-
keppninni. Island leikur við Spán
í Thisted og hefst leikurinn kl.
13.00 að íslenzkum tíma.
Leikurinn við Dani á laugardag
hefst kl. 16.00.
Þriðjudaginn 31. janúar verða
sex leikir hjá þeim 12 liðum, sem
komast áfram í keppninni. Eftir
riðlakeppnina, sem lýkur á
sunnudag, falla fjórar þjóðir úr
keppninni. Fjórar neðstu
þjóðirnar í hverjum riðli.
Fimmtudaginn 2. febrúar verða
sex leikir og laugardaginn 4.
febrúar leikið um þriðja, fimmta,
níunda og ellefta sæti í
keppninni.
Urslit i vinsældavali
Hléypirímig
eldmóði að horfa í
fánann og hlusta I
áþjóðsönginn f
Rætt viö
Jón H. Karlsson fyríríiöa
Öm aftur með ÍBV
Örn Óskarsson, iandsliðsmaðurinn kunni í
knattspyrnunni, sem Iék með KR síðastliðið
sumar, hefur tilkynnt félagaskipti. Mun
leika með íþróttabandalagi Vestmannaeyja
eins og hann hefur gert alla tíð, nema í
fyrrasumar, þegar hann var í Reykjavík og
lék með KR'.
Örn lýkur námi í Iðnskóía Vestmannaeyja
í vor og mun starfa að iðn sinni i Vestmanna-
eyjum — pípulögnum. Hann var markhæstur
leikmanna ÍBV, þegar iiðið komst upp í 1.
deild á ný 1976 — sterkur og fijótur. Hann
hefur ieikið sex landsleiki fyrir Island ,
fyrst 1972, og skorað eitt mark í þeim.
- FÓV.
Sigurðurvann
Sigurður P. Sigmundsson, FH, sigraði í 3ja
Stjörnuhlaupi FH á sunnudag. Hljóp vega-
lengdina, 7.5 km, á 27:51.6 mín. Gunnar Páll
Jóakimsson, ÍR, varð annar á 28:26.4 mín. og
Agúst Ásgeirsson, ÍR, 3ji á 29:11.2 mín. í
kvennaflokki — hlaupnir 2 km — sigraði
Thelma Björnsdóttir, UBK, á 7:37,0 mín.
Ragnhildur Pálsdóttir, KR, varð önnur á
7:45.5 mín. og Guðrún Arnadóttir, FH, 3ja á
8:14.0 min.
Ennþá sigrar
Hanni Wenzel
Hanni Wenzel, Lichtenstein, sigraði í
fjórða sinn á einum mánuði í keppni heims-
bikarsins í Berchtesgaden í Vestur-
Þýzkaiandi í gær — og jók enn forustu sína í
stigakeppninni. Hún varð hálfri sekúndu á
undan Lisu-Maríu Morerod, Sviss, handhafa
heimsbikarsins, í svigkeppninni en i þriðja
sæti varð Perrine Pelen, Frakklandi. Eftir
fyrri umferðina hafði Wenzel aðeins örlítið
forskot — tvo hundruðust úr sekúndu, en
keyrði mjög vel í síðari umferðinni og
tryggði sér sigur í svigi annan daginn í röð. Í
4.-6. sæti voru bandarisku stúlkurnar
Christine Cooper, 18 ára, Abbi Fischer rétt á
eftir Becky Dorsey, sem var í öðru sæti eftir
fyrri umferðina. Henni mistókst rétt í lokin i
síðari umferðinni og féll niður i f jórða sæti.
Arsenalvann
Man. City á víti
Arsenai tryggði sér rétt í gærkvöld í
undanúrsiit enska deildabikarsins, þégar
liðið sigraði Man. City á Highbury 1-0. Eina
mark ieiksins skoraði Liam Brady úr víta-
spyrnu á 74 mín. Dave Watson, fyrirliði Man.
City felldi þá Malcoim MacDonald innan
vitateigs og dómarinn dæmdi á stundinni
víti. Mjög skiptar skoðanir voru um réttmæti
dómsins, því margir vildu meina, að leik-
mennirnir hefðu aðeins hlaupið á hvorn ann-
an.
Áhorfendur voru 57.748 og spenna var
mikil allan leikinn. Mikið jafnræði lengst-
um. Frank Stapleton og MacDonaid hættu-
legir i sókn Arsenai en tókst ekki að skora —
og Joe Corrigan varði mark City með tilþrif-
um. Þá gerðu þeir Peter Barnes og Dennis
Tueart mikinn usla i vörn Arsenal en án
árangurs. Í síðari hálfleikv-ar Alan Hudson
settur inn á í stað Matthewson og Arsenal
náði betri tökum á leiknum. Svo kom vítið og
lokakafla leiksins sótti Man. City mjög en
Arsenal hélt sinu. Mike Channon var þá
settur inn hjá City í stað Peter Barnes. Í
undanúrslitum leikur Arsenal við Liverpool
— fyrst í Liverpool síðan á Highbury. Það er
í þriðja sinn, sem Arsenal leikur í undanúr-
slitum deildabikarsins.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANUAR 1978.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Miklar öryggisráðstafanir
í Danmörku vegna mótsins
—Danskir lögreglumenn hafa sérstakar gætur með V-Þjóðverjum, Spánverjum
OgJÚgÓSlÖVUIVI --..................
Frá Halli Hallssyni, Arósum.
Mikiar öryggisráðstafanir eru
nú í Danmörku vegna heims-
meistarakeppninnar — og verða
meðan keppnin stendur yfir.
Danir telja keppnina mesta
íþróttaviðburð, sem háður hefur
verið í Danmörku — fyrr eða
síðar — og stefna að því, að allt
fari sem bezt fram.
En Danir óttast hryðjuverk og
hafa undirbúið sig mjög vel ef til
þeirra kæmi. Þeir hafa sérstakar
vopnaðar sveitir, sem hafa gætur
á vestur-þýzka liðinu og farar-
stjórum þess — og einnig vegna
Spánverja og Júgóslava.
Þjóðernissinnar frá Króatíu í
Júgóslaviu hafa haft sig mikið í
frammi á Norðurlöndunum
síðustu mánuði og ár, svo og
Danir mjög
bjartsýnir
Frá Halli Ilallssyni, Árósum.
Danir eru bjartsýnir á góðan
árangur sinna manna í heims-
meistarakeppninni — og binda
miklar vonir við fyrirliða sinn
Anders-Dahl Nielsen. Hann var
valinn „iþróttamaður vikunnar“ í
Alt om Sport i fyrri viku — hinu
víðlesna iþróttablaði Dana. Þá
sagði Anders:
„Ég geri mér miklar vonir um
að Danmörk verði i einu af
þremur efstu sætunum í heims-
meistarakeppninni. Við verðum
kannski ekki heimsmeistarar —
en mjög framarlega.“
borgaraskæruliðar frá Vestur-
Þýzkalandi. Danir vilja ekki
hætta á neitt og vopnaðir lög-
relgumenn gæta leikmanna og
fararstjóra þessara landa — að
vísu ekki gráir fyrir járnum,
heldur með vopn innan klæða.
Lögreglumennirnir láta sem
minnst á sér bera til að vekja ekki
óþarfa ótta — en þeir munu hafa
góðar gætur á öllum grunsamleg-
um.
Gífurlega mikið hefur verið
skrifað um keppnina í dönsk blöð
— én hins vegar frekar Iítið um
þátttöku Islands. Danir líta
greinilega á Sovétríkin sem sinn
hættulegasta mótherja í C-
riðlinum og hafa lítið skrifað um
okkur og ennþá minna um Spán-
verja. Hins vegar eru Sovétríkin í
fyrsta sæti — þegar Danir eru
sjálfir undanskildir — og einnig
er mikið skrifað um þýzku liðin
frá Vestur- og Austur-Þýzkalandi.
Island og Danmörk mættust
fyrst í heimsmeistarakeppni í
Vestur-Þýzkalandi 1961. Danir
sigruðu Island þa 14-13 i ákaflega
tvísýnum leik og tryggðu sér méð
því fimmta sæti í keppninni en
ísland varð í sjötta sæti. I Frakk-
landi 1970 léku Danir og Islend-
ingar einnig saman. Danir unnu
aftur — nú 19-13. Þeir urðu í
fjórða sæti í. keppninni í Frakk-
landi — tsland í ellefta sæti.
Þriðji HM-leikur Iandanna var í
Austur-Þýzkalandi 1974 og enn
danskur sigur 19-17. Og fjórði
HM-leikurinn verður svo á laugar-
dag.
ísland og Danmörk hafa leikið
átta landsleiki í handknattleik í
Danmörku. Danir hafa sigrað í sjö
leikjum en einu sinni var jafn-
tefli, Það var í Randers 1973, 18-
18, einmitt þar, sem Island og
Danmörk leika á laugardag. Lönd-
in léku þar einnig landsleik 1975
og þá sigruðu Danir með eins
marks mun, 17-16. Síðasti leikur-
■nn var í Bröndby-höllinni í Kaup-
mannahöfn 1976 og danskur sigur
19-16. Hinir fimm leikirnir fóru
þannigj að Danir sigrðu í Kaup-
mannahöfn 1950 20-6, í Slagelse
1959 með 23-16, í Nyborg 1966
með 17-12, í Helsingör 1969 með
17-13 og í Bröndby 1975 með 17-
15.
r r
HallurHallsson
skrifarfrá
Árósum
HEF MIKLA TRU A AÐISLAND
K0MIST í 8-LANDAIÍRSUTIN
— sagði Janusz Czerwinski, sem kom til Danmerkur í gær
Frá Halli Hallssvni, Arósum
„Ég geri mér góðar vonir um að
ísiand komist í átta landa úrslit í
heimsmeistrakeppninni,“ sagði
Janusz Czerwinski, pólski iands-
liðsþjálfarinn, sem kom tii
Kaupmannahafnar frá Póllandi
klukkustund áður en islenzku
landsliðsmennirnir komu frá
Osló, og hann bætti við. „’Já, ég
geri mér góðar vonir um það og
að við náum að sigra Sovétríkin á
fimmtudag. Þó ég hafi ekki verið
á íslandi og stjórnað æfingum
iiðsins er ég ekki smeykur um, að
Ieikmenn komi ekki vel undir-
búnir í HM-keppnina. Ég þekki
leikmennina vel og ber fyllsta
traust til þeirra“.
„Ég mun skoða filmur frá
landsleik Islands og Noregs á
sunnudaginn svo og frá æfinga-
leiknum við Refstad á mánudag.
Þessir leikir voru teknir upp og
ég mun fara yfir þá með landsliðs-
mönnunum og landsliðsnefndar-
mönnunum. Það ætti að geta lag-
fært eitthvað í sambandi við leik
liðsins — og allir munu leggjast
þar á eitt“, sagði Janusz .
Hann hafði meðferðis filmur
frá leikjum sovézka landsliðsins
og þar eru gamlar kempur í aðal-
hlutverkum. Hinn 37 ára Klimov,
stjórnar öllum leik sovézka liðsins
á leikvelli og Maximov er alltaf
hættulegur. En sovézkir hafa
fleiri stjörnum á að skipa eins og
Iljin, þeim skotharða leikmanni,
auk leikmanna af yngri
kynslóðinni, sem vöktu mikla
athygli, þegar Sovétríkin urðu
ólympíumeistarar í handknattleik
leikjanna í Montreal 1976.
íslenzku landsliðsmennirnir
komu til Árósa um sex-leytið í
gær eftir flug frá Osló til Kaup-
mannah. og síðan til Árósa.
Strákarnir eru bjartsýnir eftir
sigurinn gegn Noregi, en því er
ekki að neita að þreytu gætir hjá
þeim. Æft stíft — tvisvar á dag að
undanförnu, auk leikjanna við
Norðmenn. I gærkvöld var fyrir-
hugaður leikur við Kirkeborg,
sem leikur í 2. deild í Danmörku
og hafði leikurinn verið aug-
lýstur. Ekkert varð þó af honum
— var frestað vegna þreytu
íslenzku leikmannanna. I staðinn
fóru þeir í nudd og gufubað.
Island leikur við Sovétríkin á
morgun og í dag verður farið vel
yfir þær filmur, sem Janusz kom
með frá leikjum sovézkra, auk
leikjanna við norska landsliðið og
Refstad. Mikil leynd hefur verið í
sambandi við undirbúning
sovézkra fyrir heimsmeistara-
keppnina og helztu leikmenn
liðsins hafa sjaldan verið í sviðs-
ljósinu þó sovézka liðið hafi leikið
á mótum að undanförnu.
Þó Janusz Czerwinski vonist
eftir íslenzkum sigri gegn sovézka
birninum taldi hann þó allar líkur
á því, að Sovétríkin myndu leik'a
úrslitaleik keppninnar.
Þinn b ?
■ -
15.apríl getur hann oröiö þaö-sártu áskrifandi aö Dagblaöinu. Áskriftarsíminn er 270 22