Dagblaðið - 25.01.1978, Qupperneq 16
16
I DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANIJAR 1978.
Kynning á f ramb jóðendum til bæjarst jórnarkosninga í Kef lavík: N
„KEFLAVÍK HEFUR VERIÐ FÉFLETT...”
— Dagblaðið heimsótti Kef lavík og ræddi við f rambjóðendur
—síðari hluti viðtala birtist á morgun, en ellef u manns eru í f ramboði
Keflavíkurkaupstaður. þar sem
prófkjör eru nú að hefjast með
Alþýðuflokkinn i broddi fylk-
ingar um næstu helgi, á eins og
aðrir byggðakjarnar á Suðurnesj-
um við mikil vandamál á sviði
atvinnulífsins að stríða. Fréttir af
greiðsluerfiðleikum fr.vsti-
iðnaðarins á Suðurnesjum og
jafnvel sérstaklega í Keflavik
hafa verið tíðar, samfara fréttum
af minnkandi afla yfirleitt.
Er hann jafnvel talinn vera
helmingi minni en hann var árið
1970 og má nærri geta að frysti-
hús, sem byggð eru og miðuð við
fulla nýtingu, munu eiga í erfið-
leikum. Á það hefur hins vegar
verið bent að Keflvikingar hafi
ekki sem skyldi búið sig undir
versnandi árferði að þessu leyti,
t.d. sé annar iðnaður en fisk-
iðnaður í lágmarki.
Yfir Keflavík gín svo Kefla-
víkurflugvöllur og herstöðin þar.
Hún er vissulega „haltu mér,
slepptu mér“ fyrirbæri í lífi Kefl-
víkinga. Fjöldi þeirra vinnur þar
en sumir hverjir telja sig ekki
hafa mikinn hagnað af því, sér-
staklega með tilliti til búsetu er-
lendra fjölskyldna innan kaup-
staðarins. Þá er flugvöllurinn og
herstöðin ekki botnlaus gnægta-
brunnur varðandi atvinnu enda
eru á lofti ýmsar blikur og telja
sumir varhugavert að setja allt
sitt á erlenda hersetu hér á landi.
„Vegna þess að kanarnir leigðu
hér allar íbúðir og það 'fyrir háa
leigu, urðu þeir sem ætluðu að
fara að búa annaðhvort að byggja
eða kaupa," sagði einn Keflvík-
ingur við mig suðurfrá. Afleið-
ingar þess er að sjá í gíturiegum
fjölda nýbygginga í kaupstaðnum
sem vaxið hefur hratt og án efa
dregið mjög úr greiðslugetu al-
mennings til bæjarsjóðs. Helzt
það líka i hendur að fram-
kvæmdir á vegum bæjarins hafa
dregizt verulega saman, sérstak-
lega með tilliti til gatnagerðar í
nýju hverfunum og minnir
ástandið þar á Kópavog fyrir
fimmtán árum.
Hitaveitan er í smíðum og
sjúkrahús og íþróttahús eru fok-
held. Komið hefur fram að byggja
þarf nýjan barnaskóla í norður-
hluta bæjarins og eins er talin
hætta á að hin ágæta byrjun Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja renni út i
sandinn ef ekki verður byggt
sómasamlega yfir hann. HP
Gottskálk Ólafsson
Gunnólfur Árnason, 27 ára:
„Félagsmálahliðin er
algjörlega vanrækt...”
„Hvernig staðið er að félags-
málahliðinni hér í bænum er fyrir
neðan allar hellur," sagði Gunn-
ólfur Árnason pípulagninga-
maður. „Síðast þegar ég vissi voru
160 börn á biðlista fyrir dagvist.
þannig, að þau mál eru í veru-
legum lamasessi."
Gunnólfur sagði allt skipulag á
iðnaðarmálum þarfnast endur-
skoðunar. „Ég tel nauðsynlegt að
gerð verði fimm ára áætlun varð-
andi iðnaðinn því hér hefur allt
verið sett á fullt í kannski tvö ár,
en næsta ár á eftir lognast allt út
af.“
„Hér var stofnað félag foreldra
þroskaheftra barna fyrir tveim
mánuðum en málefni þeirra hafa
verið algjörlega vanrækt. Hér eru
um 100 þroskaheft börn og þeim
er ekið til Reykjavíkur á hverjum
morgni,“ sagði Gunnólfur enn-
fremur. „í heild séð er félags-
málahliðin mjög aðkallandi
vandamál sem verður að leysa."
HELGI
PETURSSON
„KAUPA GAMALT 0G
BREYTA MEÐ ÞÁTT-
TÖKU UNGLINGANNA”
„Það eru skipulags og
byggingarmál sem ég hef áhuga á
að gera bre.vtingar á,“ sagði
Gottskálk Ölafsson tollvörður i
viðtali við DB. „Þá hef ég mikinn
áhuga á æskulýðsmálum og mál
efnum aldraðra, fyrir utan þessi
sígildu venjulegu bæjarmál."
,.Það er enginn vafi á því að
unglingar í Keflavík eru veri
settir en unglingar víða annars
staðar," sagði Gottskálk enn
fremur. „Sérstaklega á þetta við
veturinn í vetur því þá var tekið
af þeim þetta svokallaða æsku-
lýðsheimili sem þeir höfðu haft til
umráða. Æskulýðsstarfi hefur því
verið komið fyrir í skólunum, en
það er alls ekki nægilegt,"
„Ég tel bráðnauðsynlegt að
sköpuð verði aðstaða f.vrir
unglingana," sagði Gottskálk enn-
fremur. „Ég hef gert það að
tillögu minni að keypt verði
gamalt hús sem siðan verði breytt
með þátttöku unglinganna. Þeir
hafa áhuga á því og ég álit aö í því
tilfelli þurfi ekki að setjá fyrirsig
fjárhagsmálin."
• „Nýstofnaður Fjölbrautaskól-
inn hér býr við mjög slæm skil-
.vrði sem finna verður einhverja
lausn á," sagði Þórhallur enn-
fremur. „Varðandi skölamál yfir-
leitt er það mjög bagalegt að ekki
hefur verið hægt að sinna eins og
vera á bæðí íþrótta- og sund-
kennslu."
Þörhallur sagði að honum þætti
bvggingu sjúkrahúss og íþrótta-
húss hafa þokað heldur stutt á
síðustu fjórum.árum.
„Ég vil að lokum segja það
ntina skoðun sem einn frambjóð-
andi framsóknarmanna hér við-
hafði f.vrir skömmu. Þar sagði
hann: „I.átið ekki bæinn okkar
drabbast níður." Ég held að þetta
sé einkunnargjöf sem hann er að
gefa átta ára samstarfi Fram-
Ólafur Bjömsson 54 ára:
„KEFLAVÍK HEFUR
VERID FÉFLETT...”
Karl Steinar Gudnason, 38 ára:
„Sofandaháttur núverandi meirihluta...”
„Ég tel, að bæjarstjórn verði
að taka vandamál atvinnulifsins
mjög fiistum tökum og hefja
framkvæmdir. t.d. í gatnagerð,"
sagði Kaii Steinar Guðnason, for-
maður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Suðurnesja og nágrennis í
viðtali við Ilagblaðið. „Þá tel ég
að skólamálin verði mjög ofarlega
á baugi á næsta kjörtímabili."
Karl sagði að atvinnulífið i
Keflavík hefði mjög goldið þess
að vera í næsta nágrenni við flug-
völlinn og benti á að síðustu ára-
tugi hefur um 10—15% íbúanna
verið erlendir og sem slíkir ekki
greitt nein gjöld.
„Eg tel að bæjarstjórn þurfi að
koma því til leiðar, að við fáum
gjöld af þessum útlendingum,"
sagði Karl ennfremur. „Reyndar.
þykir mér gæta nokkurs sofanda-
háttar hjá núverandi mei.rihluta
(framsókn-sjálfstæði) um tillögu
sem við fluttum alþýðuflokks-
menn, þess efnis að þessara fjár-
muna verði krafizt".
Sagði Karl þessa skattlausu
íbúa vera einn þáttinn í því,
hversu framkvæntdir hefðu
tafizt."
„Samvinna í bæjarstjórn og
bæjarráði hefur verið ágæt en
mér sýnist nauðsynlegt að til
komi meira aðhald í rékstri
bæjarins og ekki síður stofnunum
hans," sagði Ölafur Björnsson út-
gerðarmaður og bæjarráðsmaður
í viðtali við DB. „Ég vil leggja
mikla áherzlu á aukna samvinnu
milli sveitarfélaga á Suður-
nesjum. Hún hefur gengið vel og
hana ber að auka og ég vil einnig
meina að kjörnir fulltrúar eigi að
taka við stjórninni á sameigin-
legum fyrirtækjum".
Sagði Ölafur að sveitarstjór-
arnir hefðu gegnt þeim störfum
fram til þessa en áleit, að þau
væru orðin það yfirgripsmikil að
þeir gætu varla sinnt þeim án
þess að vanrækja sín aðalstörf.
„Sameiginleg sorpeyðing er
væntanlega á næstu grösum,
sameiginleg gjaldheimta og von-
andi sameiginleg orkustofnun."
sagði Ölafur ennfremur. „Þar
væri hægt að sameina rafveiturn-
ar í eitt og síðan hitaveituna."
„Samskipti við herstöðina á
Keflayíkurflugvelli vil ég að verði
endurskoðuð rækilega," sagði
Ölafur einnig. „I þeim málum tel
ég að a.m.k. Keflavík hafi verið
hreinlega féflett á undanförnum
árum"
Aldraðir eru búnir að bíða
lengst hér í Keflavík og ég vildi
því revna að bæta þeirra aðstöðu
mjög," sagði Ölafur. „Fjölbrauta-
skólinn er nánast á götunni og því
iiggur fvrir að við verðum að
byggja yfir hann. Hins vegar
kostar það sennilega með, öðrum
skólaframkvæmdum hér eina tvo
milljarða og eins og menn vita er
lítið samræmi milli fræðslulög-
gjafar og fjárveitingarvaldsins."
Þórhallur Guðjónsson 46 ára:
„Látið ekki bæinn okkar
drabbast niður...”
„Eitt af höfyðmálunum eru
betri götur með gangstéttum
sagði Þórhallur Guðjónsson húsa-
smíðameistari. „Þetta er í mjög
miklu ólagi hér og það i svona
stórum bæ."
Sagði Þórhallur að það hefði að
vísu verið lagt slitlag á nokkrar
götur í bænum, en ekki hefði
verið gengið frá þeirn sem skvldi
þvi flestar göturnar væru' gang-
stéttarlausar. auk þess sem slit-
lagið væri meira og minna ónýtt.
sóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins i Keflavik." sagði Þór-
hallur.