Dagblaðið - 25.01.1978, Síða 27
27
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1978.
<§
Útvarp
Sjónvarp
D
Enskukennslan:
On We Go
Svör við æfingunum í 12. kafla.
Exercise 1. Þarfnast ekki skýringa.
Exercise 2. Dæmi: Does he live near you? Yes, he does.
Exercise 3. Þarfnast ekki skýringa.
Exercise 4. 1. do. 2. are. 3. has. 4. is. 5. does. 6. has. 7. do. 8. are. 9.
have. 10. do. 11. does. 12. do. 13. is. 14. does. 15. has. 16. does.
Exercise 5. 1. what. 2. does he. 3. how-is. 4. does. 5. is he. 6. where. 7.
does he have. 8. does he. 9. is. 10. are.
Exercise 6. 1. false. 2. false. 3. true. 4. false. 5. false. 6. false. 7. true.
8. false. 9. false. 10. false.
Exercise 7. Þarfnast ekki skýringa.
Exercise 8. Þarfnast ekki skýringa.
Exercise 9. Þetta eru réttu orðin í svigunum: live — am sitting —
often sit — come — is coming — stop — are waiting — is stopping
— are getting on — is leaving — doesn’t — is waiting — is coming
— is walking — is using — often misses — never runs — is waiting.
Exercise 10. Þarfnast ekki skýringa.
Exercise 11. Dæmi: Kate’s going to read and write.
Exercise 12. Dæmi: On Tuesday I’m going to a concert with John.
Exercise 13.-14. Þarfnast ekki skýringa.
[llfo Útvarp '
MIÐVIKUDAGUR
25. JANÚAR
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Veöurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Á skönsunum"
eftir Pál Hallbjömsson Höfundur les
sögulok (19).
15.00 MiAdegistónleikar André Watts
leikur Píanósónötu í h-moll eftir
Franz Liszt. Juilliard kvartettinn
leikur „Úr lffi minu", strengja-
kvartett nr. 1 í e-moll eftir Bedrich
Smetana.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.20 Popphom. Halldór Gunnarsson
kynnir.
17.30 Útvarpssaga bamanna: „Upp á líf og
dauða" eftir Ragnar Þorsteinsson Björg
Árnadóttirles (2).
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fróttaauki. Tilkynningar.
19.35 Samleikur í útvarpsal: Elías Davfðs-
son og Ruth Kahn leika fjórhent á
pfanó Sex þætti úr ..Barnaleikjum"
eftir Bizet og „Litla svítu" eftir
Debussy.
20.00 Af ungu fólki Anders Hansen sér
um þátt fyrir unglinga.
20.40 Dómsmál Björn Helgason hæsta-
réttarritari segir frá.
21.00 Einsöngur: Tom Krause syngur lög
úr „Schwanengesang" (Svanasöng)
eftir Franz Schubert. Irwin Gage
leikur á píanó.
21.25 „Fiöriö úr s»ng Daladrottningar"
Þorsteinn frá Hamri les úr nýrri ljóða-
bók sinni.
21.35 Sellótónlist: Igor Gavrysh leikur
verk eftir Gabríel Fauré, Maurice
Ravel, Nadiu Boulanger og Francois
Francoeur; Tatiana Sadovskaya
leikur á píanó.
21.55 Kvöldsagan: „Sagan af Dibs litla"
eftir Virginíu M. Alexine Þórir
Guðbergsson les þýðingu sína (4).
22.20 Lestur Passíusálma (3). Dalla
Þórðardóttir stud. theol. les.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Djassþáttur i umsjá Jóns Múla
Arnasonar.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
26. JANÚAR
7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7,00,'
8.15 Og 10.10. Morgunleilffimi kl. 7.15
og 9.05. Fréttir kl. 7,30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00.
. Morgunbœn kl. 7.50. Morgunstund
bamanna kl. 9.15: Þórhallur Sigurðs-
son les „Max bragðaref” eftir Sven
Wernström (3). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfróttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða.
Tónleikar kl. 10.25. Morguntónleikar
kl. 11.00: Hege Waldeland og hljóm-
sveitin „Harmonien" í Björgvin leika
Sellókonsert f D-dúr op. 7 eftir Johan
Svendsen; Karsten Andersen stj. /
Alicja de Larrocha og Fílharmoníu-
sveit Lundúna leika Píanókonsert f
Des-dúr eftir Aram Katsjatúrjan;
Rafael Frtihbeck de Burgos stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynn-
ingar. Á frívaktinni Sigrún Sigurðar-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
É
Sjónvarp
MIDVIKUDAGUR
25. JANÚAR
18.00 Daglegt Irf í dýragarði. Tékkneskur
myndaflokkur. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir.
18.10 Bjöminn Jóki. Bandarfsk teikni-
myndasyrpa. Þýðandi Guðbrandur
Gislason.
18.35 Cook skipstjóri. Bresk mýndasaga.
Þýðandi og þulur Óskar Ingimarsson.
19.00 On Wo Go. Enskukennsla. 13.
þáttur frumsýndur.
19.15 Hló.
20.00 Fróttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Nýjasta tækni og vísindi. Umsjónar-
maður Sigurður H. Richter.
20.55 Til mikils að vinna (L). Breskur
myndaflokkur i sex þáttum. 2. þáttur.
Tilhugaiífiö. Efni fyrsta þáttar:
Gyðingurinn Adam Morris hefur
hlotið styrk til náms i Cambridge.
Herbergisfélagi hans er af tignum
ættum og rómversk-kaþölskrar trúar,
og oft kastast í kekki með þeim vegna
trúarskoðana. Herbergisfélaginn,
Davidson. býður Adam heim til sín f
páskafríinu. og þar reynir i fyrsta sinn
alvarlega á siðferðisþrek hans.
Þýðandi Jón O. Edwald.
22.10 Kvikmyndaþáttur. Umsjónarmenn
Erlendur Sveinsson og Sigurður
Sverrir Pálsson. Rifjuð eru upp
grundvallaratriði kvikmyndagerðar
úr kvikmyndaþáttum á síðastliðnum
vetri.
22.45 Dagskrárlok.
í framhaldi...
Sunnudaginn 15. janúar hófst
einn framhaldsþátturinn enn,
„Röskir sveinar“, sem gerður er
eftir sögu Vilhelms Moberg og
lofaði byrjunin a.m.k. ekki illu.
Sven Wollter nær að túlka þann
guðsblessaða fáráðling sem
Gústaf vinnumaður er. Vér bíðum
og sjáum hvað setur. Á mánudag
var sýnt enskt leikrit en þau hafa
verið í færra lagi á skerminum
síðustu vikur, enda varla pláss
vegna framhaldsþáttanna. „Nýi
sölumaðurinn" var ásjálegt
stykki, alla vega leið manni ekki
eins og tímanum hefði verið eytt
til einskis að því loknu.
„Umræður um islenska kvik-
myndagerð" fóru því miður fram
hjá mér og þykir mér það miður,
— en fyrirfram var ég á þeirri
skoðun að umræður um það fyrir-
bæri hlyti að verða það sem marg-
^ir unglingar kalla „bömmer”. En
eftir þeim umræðum sem orðið
hafa í fjölmiðlum eftir á, virðist
þátturinn hafa haft einhvern til-
gang. Ég skil ekki hvers vegna
Alþingi getur ekki samþykkt
frumvarp það um íslenska kvik-
myndagerð sem þar hefur legið í
óratíma. Eg held að fáir mundu
telja það eftir sér að borga ögn
meira í bíó ef þeir vissu að nokkr-
ar krónur af hverjum miða rynnu
til íslensks kvikmyndaiðnaðar.
Bíómiðar hér eru enn tiltölulega
ódýrir, ef miðað er við önnur
lönd. í Bretlandi greiða menn 800
krónur i bíó og nálægt 1000
krónum í Bandaríkjunum.
Þriðjudagur er orðinn einn alls-
herjar „bömmer” hvað sjónvarp
snertir, en önnur kvöld voru þeim
mun betri þessa vikuna. Á mið-
vikudagskvöldið hófst annar
framhaldsþáttur, „Til mikils að
vinna“, eftir Frederic Raphael, en
hann gekk við góðan orðstír í
Bretlandi á síðasta ári. Raphael er
vel þekktur höfundur þar í landi
og hefur einnig komið nálægt
kvjkmyndum. Hann skrifaði m.a.
handritið að myndinni „Darling"
sem John Schlesinger stjórnaði
og hlaut fyrir það Óskar og hann
er ötull við skrif um alls konar
menningarmál. „Til mikils að
vinna” hefur verið lýst af ein-
hverjum sem eins konar svar við
„Gæfa eða gjörvileiki“.En það er
næsta lítið skylt með þessum
tveimur þáttum. í þeim síðar-
nefnda er lítið um persónuþróun
og þroska, heldur er litið á spurn-
inguna um frama og gæfu sem
peningaspursmál.Þúgerir það gott
ef þú eignast mikia peninga og
sömuleiðis ertu „nógúdd” uf þig
vantar hæfileika tíl þess arna. „Til
mikils að vinna " er regluleg
þroskasaga. en í Ijósi ákveðíns
tímaskeiðs og þjóðfélagsmyndar,
þ.e. meðal háskólamenntaðra ein-
staklinga í Bretlandi á árunum
1952 til 1970, en sú kynslóð hefur
af mörgum verið talin afar efni-
leg. Menn eins og Raphael sjálfur,
margir leikritahöfundar og fjöl-
miðlapersónur sem nú eru vel
þekktar i Bretlandi voru af þess-
ari kynslóð. Raphael dregur fram
margs konar spennu — stéttar-
lega, tilfinningalega og einnig
kynþáttalega, en söguhetjan,
Morris, er Gyðingur eins og
Raphael og verður að berjast við
alls kyns fordóma. Og það er ekki
að sökum að spyrja, hér er eitt
breskt efnið enn með úrvalsleik-
urum og ágætu handriti. Á mínu
'heimili verður miðvikudags-
kvöldið haldið hátíðlegt næstu
vikurnar. Það er ekki amalegt að
fá að sjá „Til mikils að vinna” og
„High Noon“ í sömu vikunni, en
sú ágæta kvikmynd var sýnd á
föstudagskvöldið. í hverju liggja
gæði þeirrar myndar? Hún er
fyrst og fremst afar heilleg frá
upphafi til enda og næstum eins
og klassískt Ieikrit í rökréttri
byrjun, stígandi og málalyktum.
Efnið er sömuleiðis aldagamalt og
fjallár m.a. um siðferðilega
ábyrgð einstaklingsins innan
þjóðfélagsins og múgmennsku.
Sjálf skothríðin í lokin er næstum
því eins og antiklímax eftir allt
sem á undan er gengið og leik-
stjórinn Zinnemann sér réttilega
enga ástæðu til að útmála ill-
mennsku þorparanna með því að
láta þá ganga berserksgang frá
upphafi. Þeir sitja einfaldlega á
Úr sjónvarpsþættinum Til mikils að vinna. Clive Merrison og Suzanne
Stone leika hjón í þættinum.
járnbrautarstöðinni, sem eins
konar tákn grimmdar og þegar
erkiþrjóturinn kemur, sjáum við
hann ekki nema einu sinni í nær-
mynd. Það er t.d. auðvelt að sjá
„High Noon’’ sem eins konar
dæmisögu um fasisma sem menn
ekki þora að rísa gegn, þ.e. nema
þeir sem þroskað hafa með sér
einhverja siðferðiskennd.
Nýtt skeið hefur nú runnið upp
í „Húsbændum og hjúurn” og
virðist ætlunin að sýna hvernig
liðinu í Eaton Place vegnar að
styrjöldinni lokinni. Og það eru
engin veikleikamerki á þessum
r
I kringum
skjáinn
ágæta þætti, persónusköpun er
sem áður afbragð og efnismeð-
ferðin trúleg. James hinn ungi er
orðinn lífsreyndari og jafnframt
ögn geðþekkari og allt útlit er
fyrir að við fáum að sjá hann í
róti breskra stjórnmáia á árunum
kringum 1920, en þau ollu
straumhvörfum í sögu landsins.
Að lokum — hefur nokkur
tekið eftir því að þeir hafa ótrú-
lega lika rödd Menachem Begin
ísraelsjarl og Ólafur Jóhannesson
ráðherra? Eða er þetta bara vit-
leysa í mér?
Nú eru síðustu forvöð að láta
innrita sig. Skemmtilegt nám
fyrir alla aldursflokka. Kvöld-
tímar fyrir fullorðna. Innritun
í dag, miðvikudag, einnig
fimmtudag og föstudag kl. 5-7 i
skólanum að Háteigsvegi 6
(skammt frá Hlemmtorgi), og í
símum 27015 kl. 5-7 en 85752 á
öðirum tímum.
KENNSLA HEFST 30.
JANÚAR OG STENDUR
FRAMÍMAÍ.
VINSAMLEGA ATHUGID
BREYTT SÍMANÚMER.
LORENZO gitarar fyrirliggjandi.
Mjog hagstætt verð. Kr. 17.800
— og 19 800 —