Dagblaðið - 02.06.1978, Side 3

Dagblaðið - 02.06.1978, Side 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978. 3 Sérstakan þátt í DB fyrir fólk með hjónabands- og kynlífsvandamál! — Gæti komið í vegfyrir hjónaskilnaði, segir bréfritari K. Jónsd. skrifar: í vor las ég í sænsku blaði þar sem haft var eftir einhverjum þekktum manni í samfélagsvísindum (aðal- áhugamál Svía) að til stæði að efna til einhvers konar skoðanakönnunar eða rannsóknar á hjónabandsmálum og kynlífsvandamálum á Norðurlöndun- um. Það vakti athygli mína að látinn var í Ijós áhugi á að hafa ísland með. Þetta þótti mér forvitnilegt því skömmu áður höfðum við hjónin var- ið heilu kvöldi i kunningjahópi til að ræða hjónabönd ýmissa vina og vandamanna. Það er efni sem alltaf er áhugavert fyrir aðra en þá sem í hlut eiga en svo sannarlega finnst mér að við ættum að gera það meira að um- Jnn Múli. Fru vikivakalögin sem hann spilarí útvarpið knnimúnistaárnöur? ræðuefni, svona almennt, því það er að minnsta kosti hálft lífið. Margir myndu líklega telja hjónabandið og kynlifið vera sjálft lífið því í flestum tilfellum veltur lífshamingja okkar al- gjörlega á þ.ví. Það finnst okkur kon- um að minnsta kosti og flestum karl- mönnum líka. Ekki veit ég hvað liður tölfræðileg- um staðreyndum (líklega skortir upp- lýsingar) en okkur finnst stefna i hreinasta óefni og upplausn í þessu þjóðfélagi þegar 7 hjón í okkar nán- asta kunningjahópi eru þegar skilin og tvö hjónabönd til viðbótar virðast vera að leysast upp. I flestum tilfellum fylgja þessum vinslitum mikil sárindi og taugaveiklum, svo ég nefni nú ekki börnin, jafnvel þótt þau séu eitthvað stálpuð. Ég ætla ekki að gerast neinn siða- postuli. Ég hef átt mín hjónabands- vandamál sem sett hafa spor i sálina hjá mér og mínum maka. Um fram- hjáhald hefur þó ekki verið að ræða, guði sé lof, því það virðist mér af reynslu annarra vera öruggasta leiðin til að eyðileggja samlífið og sjálfan sig. Við hjónin höfum komist yfir ýmis vandamál i 15 ára hjónabandi og njót- um þess nú næstum eins og fyrstu ár okkar saman. Þessi mál virðast þó vera vérðugt rannsóknarefni hérlendis en satt að segja hef ég myndað mér skoðun fyrir mig, sumpart af eigin reynslu, einnig af góðum samanburði erlendis. öll fyrirbrigði og skoðanir virðast ýkt hérlendis. Engin bók eða kvik- mynd er góð nema hún sýni eða gefi i skyn einhverja vonsku, eða sterkt kyn- líf, helst fýsnir og framhjáhald. Það er svo nýtískulegt. Margir karlmenn telja sig eiga greiðan aðgang að flestum konum og hegða sér samkvæmt þvi fram eftir öllum aldri, aðrir aðeins eitt- hvert timabil. 1 þeim dæmum sem ég þekki til kastar þó tólfunum þegar konur, oft á fertugsaldrinum, fá svo miklar sjálfstæðishugmyndir að þær telja það jafnvel geta átt við kynlífið. Þær uppgötva, stundum of seint. að enginn er svo sjálfstæður, hvorki karl- ar né konur. Hjón eru og eiga að vera háð hvort öðru. Það þarf bara að upp- götvast nógu fljótt. Rannsóknir hérlendis myndu lík- lega leiða i Ijós að skemmtanalif ís- lendinga er stórfurðulegt. Ekkert er skemmtun nema danshús og drykkja og þegar hjón fara út sitt i hvoru lagi. sem hérlendis virðist algengt, — verð- ur daður að sjálfsögðum hlut með tim- anum. Þannig dæmi þekkjum við. Mér hefur stundum verið hugað til* þessara hluta, og einkum upp á sið- kastið. við að horfa upp á vini mina sundrast. Það getur verið erfitt að vera kunningi skilinna hjóna sem bæði elskast og hatast. Væri það ekki góö hugmynd að þjóðfélagið kæmi á fót stofnun eða flokki góðra manna sent aðstoðaði fólk i þessari aðstöðu? Þetta er fyrir hendi viðast erlendis. Ég er viss um að það getur gert niikið gagn, eink- um ef fólk ber traust til þess og leitar þangað áður en i algjört óefni er kom- ið. Jafnvel dagblöð erlendis hafa tekið upp sérStaka iesendadálka fyrir fólk með hjónabands- og kynlífsvandamál. Þar fær fólk ákveðna útrás og lærdóni af öðrum. Þetta ætti að vera kjörið verkefni fyrir Dagblaðið. Eru þjóðleg lög kommúnistaáróður? — Jón Múli gerir athugasemd við skrif á lesendasíðu DB að ásakanir Ólafs væru tilhæfulausar. Jón Múli sagðist hafa leikið bæði er lend og innlend lög sl. mánudagsmorg- un. Hann lék nt.a. Minni Ingúlfs (Lýsli sól. stjörnu stól) og lil að vcra þjóðleg- ur nokkur vikivakalög. Það eru nýjar l'réttir að þcssi lög séu kontmúnistaá- róður og brot á reglum útvarpsins um óhlutdrægni. Eru cngin lakmörk lyrir þ\i hvers konar cndaleysu l'ólk getui lálið út úr sér? Þvi er við að bæta. að nokkrir les cndur hafa liaft samband \ið DB og mótmælt ..rakalausum dylgjum i garð liins ágæta útvarpsþular Jons Múla Arnasonar" eins og einn lesandi orð aði það. Jón Múli Árnason útvarpsþulur hafði samband við DB vegna skrifa Ól- afs Þórs Friðrikssonar á lesendasíðu blaðsins sl. fimmtudag. Ólafur lullyrti þar að Jón Múli hefði verið óvenju- Sveitarstjór- inná Stokkseyri stendur sig vel — Enmun hann starfa hlutdrægur i lagavali i morgunútvarpi þegar úrslit byggðakosninga voru til- kynnt. Jón Múli sagði að ummæli OJafs Þórs væru alveg úl í liött. Þau væru atvitinurógur af verstu tegund og upp- spuni l'rá rótunt. Dagskrá útvarpsins þcnnan morgun væri til á segulbandi og þvi liægt að ganga úr skugga unt. Kr. 9.490. áfram? Stokkseyringur hringdi: Þegar ungur maður bauð sig fram sem sveitarstjóra hér i Stokkseyrar- hreppi fyrir þremur árum höfðu ekki margir trú á þessum strák. Eða eins og margur sagði' „24 ára strákur! Hvað ætli hann geti?" Og þó, verra gat það ekki orðið. Framtaksleysið áberandi og flest á nið- urleið. Raunin varðlikaönnur. Hér var kominn dugnaðarmaður sem lét hugsjóna- og framtakssemi ráða (ekkert afturhald). Nú hefur þorptð tekið á sig svip sem þessum duglega unga manni, Jóhannesi Reyn- issyni, verður einum þakkað fyrir. Það þarf kjark og þor i þær fram- kvæmdir sem hafa verið gerðar á þess- um stutta tima sem Jóhannes hefur verið hér í byggðarlaginu. Og vist er að hann á miklu ólokið sem ungur maður einn getur leyst af hendi. Hreppsnefndarmenn, hverjir sem þið verðið, hafið þið efni á að missa svona stórhuga mann, mann sem er búinn að ganga með oddi og egg til margvislegra starfa byggðarlagi okkar til góðs? Verður það þakklætið? Afturhald og pólitík eiga ekki og mega ekki ráða i svona málum. V .......................... / Sumar- tízkan 78 Laugavegi 69 — simi 16850. Miðbœjarmarkaði — simi 19494. Kr. 10.990.- Hver er borgarstjóri Reykjavíkur? Kristinn Atlason verzlunarmaður: Er það ekki Birgir ísleifur? Ég veit ekki til þess að það sé búið að kjósa neinn ennþá. Oddur Helgason, vinnur i Mjúlkur- stúðinni í Reykjavik: Nei. ég veit ekki til þess að þaðsé búið að ráða neinn. Aðalsteinn Ingólfsson, vinnur hjá Mjólkursamsölunni: Birgir Ísleifur Gunnarsson. Hvað. er kominn annar í dag? Ég veit ekki hver þaðer. Bragi Gislason: Það er engu.n borgar stjóri eftir þeim fréttunt sent ég hef fengið. Ætli okkur finnist ekki Birgir Ísleifur vera borgarstjóri ennþá. Laufey Júnsdúttir skrifstofumaður: Æ. ég man ekki hvað hann heitir. Heitir hannekkiSigurjón? Guðrún Ásgrímsdúttir skrifstofumaður: Hver er borgarstjóri: Nei, er búið að ákveða það? Jú, jú, það er borgarritari. Gunnlaugur Pétursson. SVAR: Borgarstjóri í dag er skrifstofu- stjóri borgarstjóra, Jón G. Túmasson, í fjarveru Gunnlaugs Péturssonar borgar- ritara.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.