Dagblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 22
26 ■
Eyja víkinganna
Eyja víkinganna
Spennandi og skemmtileg ný ævintýra-
mynd frá Disney-félaginu.
íslenzkur texti
David Hartman
Agneta Eckemyr
Sýnd kl. 5,7 og9.
r . .. • ; •... T ^
Kvikmyndlr
L..........<....
Austurbæjarbíó: Ást i synd (Mio dio como). Aðalhlut
verk: Laura Antonelli. Sýnd kl. 5,7.10og 9.15.
Bæjarbíó: Baráttan mikla. Sýnd kl. 9.
Hafnarbíó: Junior Bonner. Aðalhlutverk Steve
McQueen. Kobert Prcston og Ida Lupino. Sýnd kl. 3,
5. 7.9og 11.
Gamla bló: Eyja víkinga (The Island at the Top of the
World) • leikstjóri: Robert Stevenson, aðlhlutverk
David Hartman og Agneta Eckmann, kl. 5,7 og 9.
Hafnarfjarðarbfó: Hundurinn sem bjargaði
Hollywood. Sýnd kl. 9.
Háskólabió: Að duga eða drepast (March or die), leik-
stjóri: Dick Richards, aðalhlutverk: Gene Hackmann,
Ternece Hill og Max von Sydow, kl. 5,7 og 9. Bönnuð
innan I4ára.
Laugarásbíó: Bílaþvottur. (Car Wash) kL 5, 7, 9 og
11.
Nýja blór Þegar þolinmæðina þrýtur (Breaking
Point). Aðalhlutverk Bo Svenso og Robert Culp. Sýnd
kl. 5,7 og 9. Bönnuð bömum innan 16 ára.
Regnboginn: A: Geivibærinn. Aðalhlutverk: Jack
Palance, Keir Dullea og Samantha Eggar. Leikstjóri:
Peter Sasdy. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11. B: Vökunætur
(Night Watch). Aðalhlutverk Elizabeth Taylor og
Laurence Harvey. Sýnd kl. 3.05, 5.05, 7.05, 9.05, og
11.05. C. Þokkahjúkin (A Fine Pair). Aðalhlutverk
Rock Hudson og Claudia Cardinale. Sýnd kl. 3.10,
5.10, 7.10, 9.10 og 11.10. D: STyttan. Aðalhlutverk
David Niven og Virna Lisi. Sýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15,
9.15og 11.15.
Stjörnubíó: Við erum ósigrandi kl. 5,7 og 9.
Tónabíó: Maðurinn með gylltu byssuna (The Man
with the Golden Gun), leikstjóri: Guy Hamilton.
Aðalhlutverk: Roger Moore, Christopher Lee og Britt
Ekland. Kl. 5, 7.30 og 10. Bönnuð innan 14 ára.
Hækkað verð.
mörk vestan frá Atlantshafsströnd austur til
Rauðahafs. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson.
21.30 Kojak (L). Þessi bandariska sjónvarps-
kvikmynd er undanfari sakamálamynda-
flokks, sem notið hefur mikillar hylli viða um
heim að undanfömu. Myndaflokkurinn hefur
göngu sínaíislenska sjónvarpinu þriðjudaginn
6. júní og verður á dagskrá á þriðjudags-
kvöldum. Aðalhlutverk Telly Savalas. Theo
Kojak er lögregluforingi í New York. Honum-
og hópi lögreglumanna er falið að hafa upp á
kynferðisglæpamanni, sem myrt hefur þrjú
fórnarlamba sinna á óhugnanlegan hátt. Bent
skal á, að snemma i myndinni sést blóði
drifinn morðstaður. Þýðandi Bogi Arnar
Finnbogason.
23,50 Dagskrárlok. '
Hjallafiskur
Merkið sem vann harðfisknunf nafn
Farst hjð: KRON Stakkahlíð 17
Hjallur hf. - Sölusími 23472
Sjávarútvegsbraut
á framhaldsstigi verður í Hagaskóla næsta
skólaár 1978—1979.
Námstími er einn vetur. Brautin skiptist í tvær
deildir með sameiginlegum kjarna skip-
stjórnardeild og fiskvinnsludeild. Námið er
bæði bóklegt og verklegt og fer hluti af verk-
lega náminu fram á vinnustöðum.
A. Skipstjórnardeild:
1. Er undirbúningur fyrir nám í Stýrimanna-
skóla íslands.
2. Veitir skipstjórnarréttindi á skip allt að 30
tonnum, þegar nemandi hefur lokið sigl-
ingartíma.
3. Veitir allt að 6 mánaðar styttingu á sigi-
ingartíma þeim (24 mán.) sem krafist er til
inngöngu í Stýrimannaskólann.
4. Auðveldar allverulega nám í 1. bekk og allt
framhaldsnám í Stýrimannaskólanum.
B. Fiskvinnsludeild:
1. Er undirbúningur fyrir- nám í Fiskvinnslu-
skóla íslands.
2. Er undirbúningur fyrir störf í fiskvinnslu
án frekara náms.
3. Styttir nám í Fiskvinnsluskólanum um eina
önn.
Tekið verður við umsóknum og nánari upp-
lýsingar veittar í Miðbæjarskölanum, sími
12992, dagana 1. og 2. júní kl. 13— 18 og enn-
fremur í Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur til 10.
júní nk.
Fræðslustjóri.
I
Sjónvarp
Föstudagur
2U W *
. juni
20.00 Fréttir or veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Prúðu lcikararnir (L). Gestur þáttarins er
Jay P. Morgan. Þýðandi Þrándur Thoroddsen.
21.00 Stærsti sandur veraldar (L). Bresk
heimildamynd um næstum 10.000 km
ferðalag átta manna í jcppum yfir Sahara-eyði-
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978.
Sjónvarp
i
Ci
Útvarp
Útvarpið ídagkl. 17.20: Hvað erað tarna?
Nýr útvarpsþáttur
fyrir börnin
í dag kl. 17.20 hefur göngu sína nýr
þáttur í útvarpinu fyrir börn á aldrinum
8 til 10 ára og hefur Guðrún Guðlaugs-
dóttir umsjón með honum.
Sagðist Guðrún ætla að taka sauð-
kindina fyrir í þessum fyrsta þætti. Ætl-
ar hún að ségja krökkunum frá henni og
sauðburði. Einnig mun hún lesa nokkrar
frásagnir en það eru einmitt gífurlega
margar frásagnir til af sauðkindinni. Þá
mun hún leika lög inn á milli lestra sem
fjalla um kindina. Ekki sagði Guðrún að
þáttunum væri ætlað að vera eingöngu
fræðsluþættir heldur einnig til skemmt-
unar.
Þar sem þættirnir munu fjalla um
náttúruna og umhverfið mun hún í
seinni þáttum sínum fjalla m.a. um veðr-
ið, dýrin, steinana og blómin.
Þættirnir verða um 20 mínútna langir
og er ætlunin að þeir verði á dagskrá út-
‘varpsins á sama tíma hvern föstudag í
sumar.
RK.
I þessum fvrsta þætti sínum í dag ætlar Guðrún að fjalla um sauðburðinn.
Útvarpið í fyrramálið kl. 11.20: Ég veit um bók
Lesið úr bókinni Dýrheimar
Barnatími Sigrúnar Björnsdóttur, Eg
veit um bók, er á dagskrá útvarpsins í
fyrramálið kl. 11.20. Sagðist Sigrún ætla
að lesa kafla úr bókinni Dýrheimar
(Junglebook) og segja frá henni og höf-
undi hennar, Kipling.
Kipling er af ensku bergi brotinn en
fæddur á 19. öld í Indlandi. Hann hefur
hlotið Nóbelsverðlaunin fyrir verk sín
og eftir að bókin Dýrheimar kom út árið
1890 varð hann kunnur rithöfundur í
Bretlandi og víðar.
Þar sem Kipling var alinn upp á Ind-
landi var hann vel kunnugur indversk-
um þjóðsögum, menningu og frumskóg-
um landsins. Sagði Sigrún þessa bók
hans vera bók fyrir alla en ekki bara
börn. Segir hún frá mannsbarninu
Mowgli sem elst upp meðal dýra frum-
skógarins í Indlandi. Þessi bók er löngu
orðin heimsþekkt og fyrir nokkrum ár-
um sýndi eitt kvikmyndahúsanna hér
teiknimynd sem gerð hafði verið eftir
henni.
En Kipling er ekki eingöngu þe'kktur
fyrir barnabækur. Hann var einnig ljóð-
skáld óg skrifaði fjöldann allan af smá-
sögum og má af þeim nefna söguna um
köttinn sem fór sínar eigin leiðir. Er
þessi barnatimi einkum ætlaður börnum
og unglingum á aldrinum tíu til fjórtán
ára. Mun Sigrún sjá um barnatíma út-
varpsins einu sinni í mánuði í súmar og
fjalla um bækur í þeim öllum.
RK.
Sigrún Björnsdóttir les úr bókinni Dýrheimar í barnatima útvarpsins i fvrramálið kl.
11.20.