Dagblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNl 1978.
9
Radíóþonið í
Keflavík:
Senduríháttinn
eftir 55 stundir
Þegar plötusnúðurinn Sam
Spears, hjá Keflavikurútvarpinu.
sem við greindum frá á miðviku-
daginn, hafði vakað samfellt í 55
klukkustundir við það að spila
plötur í beinni útsendingu, var
kallaður til læknir til þess að lita á
hann.
Kvað læknirinn upp þann úr-
skurð að Sam skyldi fara að sofa
og það hið snarasta og varð Sam
þar með af tækifæri sínu til þess að
slá met i hljómplötuleik, sem er
103 klukkustundir.
Út i þetta lagði Sam Spears til
ágóða fyrir hjálparstofnun banda-
riska flotans og höfðu safnazt um
3500 dollarar í þóknun fyrir að
leika óskalög, er hann varð að
hætta.
Félagar Sams í útvarpsstöðinni
tóku hins vegar við og var stefnt
að því að ná seltu marki, 5000
dollurum fyrir miðnætti i gær-
kvöldi, og mun það hafa tekizt.
—HP.
Mormónaráðstefna
á sunnudag:
40 í söf nuðinum
— trúboöarnir
erul4
Islenzka mormónatrúboðið —
Kirkja Jesú Krists af siðari daga
heilögum — gengst fyrir ráðstefnu
um kirkjuna i samkomusal mor-
móna. Austurstræli 12.4. hæð, á
sunnudaginn kl. 14.
Þar talar yfirmaður mormóna-
kirkjunnari Danmörku ogeru allir
velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Mormónar á íslandi eru nú urn
40. en söfnuðurinn hefur starfað i
þrjú ár. Trúboðar eru fjórtán,
flestir bandarískir. Mormónakirkj-
an rekur trúboð í öllum löndum
heims, þar sem slík starfsemi er
leyfð. og eru trúboðar hennar um
28 þúsund.
Trúboðarnir njóta engra
styrkja frá kirkju sinni. að sögn
tveggja trúboða sem litu inn á rit-
stjórn Dagblaðsins. þcirra Daviðs
Diðrikssonar (sem er af islenzkum
ættum) og Davids Knechtels.
Mormónar halda opnar sanv
komur alla daga.kl. 13 i Austur-
stræti l2ogkl. 14 alla sunnudaga
cr sakramentissamkoma á sama
stað.
Slökkviliðið
kallaðí
Mosfellssveit
Tilkynning barst um eld I
bragga við Helgaland i Mosfells-
sveit klukkan að verða ellefu i
fyrrakvöld. I bragganum er verk-
stæði■ og kaff-istofa. Ekki kom til
mikilla athafna hjá slökkviliðs
mönnum. sem voru fljótir á vett
vang. Skemmdir urðu litlaren fal-
ið er að kviknað hafi i út frá raf-
magnsofni.
—ASt.
-
DYRASÍMAR
spara sporin
RAI=VÖRUR 51=
LAUGARNESVEG 52 ■ SlMI 86411
„Flateyrardæmiö”
endanlega afgreitt
Reikningar Flateyrarhrepps fyrir árið
1977 voru endanlega afgreiddir á borg-
arafundi á Flateyri í vikunni fyrir kosn-
ingar. Bókhaldið er þvi frágengið „að
svo miklu leyti sem það kemur heim og
saman,” að því er Gunnlaugur Finns-
son, oddviti hreppsnefndarinnar, sagði i
samtali við fréttamann blaðsins.
Eins og frá var skýrt i DB á sinum
tima kom i Ijós að i seinni tíð tiltekins
sveitarstjóra á Flateyri hafði bókhald
hreppsins drabbazt niður og óreiðan orð-
in slik, að með ólikindum erfitt var að
koma öllu heim og saman.
„Meginuppistaðan í umræðunum á
borgarafundinum var náttúrlega reikn-
ingarnir og bókhaldið," sagði Gunnlaug-
ur Finnsson i samtali við DB. „Menn
voru vitaskuld ekki ánægðir með þetta,
en við erum þó endanlega búnir að
ganga frá þessu.”
Framsóknarmenn á Flateyri misstu
annan hreppsnefndarfulltrúa sinn i
kosningunum á sunnudag. Fréttamaður
blaðsins spurði Gunnlaug hvort hann
teldi að bókhaldsmálið — „Flateyrar-
dæmið" — hefði átt þátt i þvi tapi.
„Kannski aðeinhverju leyti." svaraði
Gunnlaugur. „en margt fleira hel'ur
áreiðanlega komið þar til."
—ÓV.
Hver síðast-
urað hreppa
gullið
Nú er hver að verða síðastur að
hreppa gullpening með heims
meistara unglinga i skák. Jóni L.
Árnasyni. Hlutfallslega gengur
mest á gullpeninginn sem Skák
sambandið lét gera til minja um
sigur Jóns L. Upplagið var aðeins
25 peningar. Talsvert fleiri pening
ar voru gerðir úr bronsi og silfri.
Hagnaði af sölu peninganna
verður m.a. varið til þess að
styrkja skákmeistarann unga til
þess að fara á skákskóla fyrrver-
andi heimsmeistara, Botvinniks, i
Moskvu. Þangað hyggst Jón L.
fara i haust. BS.
3 ára ábyrgð á myndlampa - Staðgreiðsluafsláttur
Tækin eru send heim án kostnaðar á Reykjavíkursvæðínu.
eeeoeeee
|;-r- )W|
I
: ,.í; ■ V-§ ' , V Í I
=«rr5==~
• t ■ ’
; v^:
In-Line myndlampi (RCA), Kalt Einingakerfi,
Snertirásaskipting, ^pennu^íc^njari, Viðarkassi,
Möguleikar fyrir Plötú og r^|^|lspgulbándstæki.
m
Sölustaður:
TH. GARÐARSSON HF.
Vatnagörðum 6. Sími: 86511 (2 línur)
Viðgerðaþjónusta:
Radio og Sjónvarpsverkstæðið
Laugavegi 147. Sími: 23311
ÚTVARPSVIRKJA
MEISTARI