Dagblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978. 7 Bandaríkin von- góð um árang- ur hafréttar- ráóstefnumar Bandarikjastjórn er vongóð um að enn þokist i samkomulagsátt á hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem fram verður haldið 21. ágúst næst- komandi. Fulltrúi Bandarikjanna, Elliot Richardson, sagði í skýrslu, sem hann gaf þingnefnd í Washington um ráðstefnuna að nokkur árangur hefði náðst á síðasta hluta hennar sem lauk í Genf 19. fyrra mánaðar. Störf ráðstefnunnar gefa okkur tilefni til að vera bjartsýnir á að með sömu þolin- mæðinni og þolgæðinu og fram kom í Genf þá muni frekari árangur nást, sagði Richardson. Hann sagði að þegar ráðstefnan kæmi aftur saman í New York mundu Banda- ríkin gera sitt til að aðstoða við gerð sátt- mála um hafréttarmál. Nefndi hann þá meðal annars mengun hafanna, náma- réttindi á botni úthafanna, vísinda- rannsóknir og réttindi landluktra ríkja sem atriði sem þokuðust í samkomulags- átt, þó ekki væri enn komið að loka- samningum. Astinþekkir engin landamæri Ástin þekkir engin landamæri segir einhvers staðar og þess vegna létu þau ekki á sig fá þó Mekongfljótið og landamæraverðir Laosstjórnar, gráir fyrir járnum, aðskildu þau tvö hér á myndinni. John Everingham, 28 ára gamall ástralskur blaðamaður, synti um síðustu helgi yfir fljótið frá Thailandi og náði i sína heittelskuðu. Var hann klæddur froskmanna- búningi en kærastan, Keo Sirisomph- one, sem ekki er synd, klæddist sund- vesti á bakaleiðinni. Upphaflega kynntust þau fyrir tæpu ári þegar John var einn síðasti vestræni blaða- maðurinn sem vísað var frá Laos. John hafði tvisvar áður reynt að synda yfir Mekongfljótið en orðið frá að hverfa vegna þess að hermenn Laos- stjórnar komu of nærri þeim stað þar sem Keo hans leyndist. Verð ótrúlega hagstætt Jón Loftsson hf., Hringbraut 121 Sími 28601. NVJIING Á ISLANDI Hreinsum ieppi og húsgögn meS nýrri tœkni sem fer sigurtör um aílart heim Nýjo vélín þrýstir losandi hreinsiefní djúpt niður í teppiS. Við það losnar um óhreinindi og sápu- leifar i botninum og þau koma upp á yfirborðið. Nuddar variega hvern þrá'S í teppinu og losar um föst óhreinindi og bletti. Sogar um leið öll blaut áhreinindi burt. Skilar teppunum eins og nýjum. Upplýsingar og pantanir I síma 26924 Teppa- og húsgagnahreinsunin Reykjavík

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.