Dagblaðið - 02.06.1978, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978.
Ct
27
Otvarp
Sjónvarp
i
Gantli og nvi tíminn, úlfaldinn og bif-
reiðin, i Saharaeyðimörkinni.
Ljósm. Lennart Carlén.
Sjónvarpíkvöld
kl. 21.00:
Stærsti sandur
* *■' ' ■' < % * ~
--
veraldar
Sahara
:
„Myndin segir frá brezkum leiðangri
sem fer þvert yfir Afríku, þar sem hún er
breiðust, frá vestri til austurs,” sagði
Gylfi Pálsson okkur en hann er þýðandi
og þulur myndarinnar Stærsti sandur
veraldar, sem er á dagskrá sjónvarpsins i
kvöldkl. 21.00.
Gylfi sagði einnig að leiðangursmenn,
sem eru 8 talsins, færu þes^p ferð á alveg
nýrri gerð Land Roverjeppa.
Margt getur hent á slikum ferðum og
mæta þeir félagar ýmsum erfiðleikum á
þessum auðnum Sahara. Þeir fara yfir
Auða hornið i Máritaníu sem ferðalang-
ar forðast að koma nálægt. Eyðimörkin
er viða vatnslaus og reynir þá á vatnsút-
búnað þann sem þeir hafa nteðferðist.
Einnig er þar viða laus sandur sem er
erfiður yfirferðar fyrir Land Roverinn.
Þarna er að finna ýmsar aðrar torfærur,
stórgrýti, fjöll og kletta. Einnig mæta
þeir á leiðinni úlfaldalest sem reyndar til-
heyrir gamla timanum núna.
Tilgangur með ferðinni var aðallega
að spreyta sig á eyðimörkinni og gera
ýmsar rannsóknir og kannanir. Söfnuðu
leiðangursmenn þvi ýmsum sýnum úr
jarðveginum sem þeim þóttu verðug
rannsóknarefni.
Myndin, sem er i litum, er 30 minútna
löng.
RK.
Útvarp
Föstudagur
2. júnf
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Við
vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Glerhásin” eftir Pinn
Söeborg. Halldór S. Stefánsson les þýðingu
sina(lO).
15.00 Miðdegistónleikar. Willy Hartmann og
kór og hljómsveit Konunglega leikhússins i
Kaupmannahöfn flytja tónlist úr leikritinu
„Einu sinni var", e. Lange-MQller; Johan Hay-
Knudsen stjórnar. Gávleborg sinfiniuhljóm-
sveitin leikur „Trúðana” svitu fyrir litla
hljómsveit op. 26 eftir Dmitrij Kabalevski^
Rainer Miedel stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu vlku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veður-
fregnir).
16.20 Popp.
17.20 Hvaö er að tama? Blandaður þáttur um
náttúruna og umhverfið, ætlaður átta til tiu
ára bömum. Fyrsti þáttur fjallar um
sauðburð. Umsjón:Guðrún Guðlaugsdóttir.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Eyjan fræga I Eyrarsundi. Gunnar M.
Magnúss rithöfundur flytur gamla ferða-
minningu og hugleiðingar.
20.00 Frá tónleikum Sinfóniuhljómsveitar
íslands 11. mai sl. Stjómandi: Páll P. Pálsson.
„Furutré Rómaborgar", — sinfóniskt Ijóðeftir
Ottorino Respighi — Jón Múli Ámason
kynnir.
20.30 Hákarlaútgerð Eyfirðinga á siðari hluta
19. aldar. Jón Þ. Þór sagnfræöingur flytur
fjórða og siðasta erindi sitt.
20.55 Konsert fyrir selló og hljómsveit nr. 2 op.
126 eftir Shostakovitsj. Mstislav Rostropovitsj
leikur með Sinfóniuhljómsveitinni i Boston;
Seiji Ozawa stjórnar.
21.30 Myllugarðurinn. Séra Árelius Nielsson
segir frá umsjónarmiðstöð fyrir öryrkja.
21.50 Skóiakór Garðarbæjar syngur nokkur
lög. Söngstjóri: Guðfinna Dóra Ólafsdóttir
22.05 Kvöldsagan:Ævisaga Sigurðar lngjalds-
sonar frá Balaskarði. Indriöi G. Þorsteinsson
lessiðari hluta (16).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Gleðistund. Guðni Einarsson og Sam
Daniel Glad sjá um þáttinn.
23.40 Fréttir. Dagskrárlok.
Sjónvarp í kvöld kl. 21.30:
Hörkutólið Kojak
— Myndaf lokkurinn hefst
þriðjudaginn6. júní
„Sjónvarpsmyndin sem sýnd verður
i sjónvarpinu í kvöld er
undanfari myndaflokks um ofan-
greindan lögregluforingja sem starfar i
lögregluliði New York borgar. Segja
má að harka hans sé aðallega í þvi
fólgin að krefjast þess af öllum sam-
starfsmönnum sinum, reyndar bæði
undirmönnum og yfirmönnum, að
þeir vinni starf sitt af alúð og kost-
gæfni og láti m.a. ekki annarleg sjón-
armið hafa áhrif á rannsókn og með-
ferð afbrotamála, hvorki yfirhylmingu
á afbrotum lögreglumanna í starfi, svo
sem grófar aðferðir við yfirheyrslur,
né pólitiskar framavonir embættis-
manna.”
Þetta sagði Bogi Arnar Finnboga-
son okkur m.a. en hann þýðir mynd-
ina um Kojak sem verður sýnd í sjón-
varpinu kl. 21.30 i kvöld.
Einnig sagði Bogi: „Brugðið er upp
takmarkaðri en þó mjög skýrri mynd
af dómsmálakerfi Bandarikjanna og
svnt hver meðferð litilmagnans er þeg-
ar fordómar hafa sterk áhrif á gang
mála.
Reyndar er myndin byggð á sann-
sögulegum atburðum og dómsmáli i
Bandaríkjunum, sem vakti gífurlega
athygli á sínum tima þar í landi og víð-
ar um heim. Hér er átt við Miranda-
málið, sem var prófmál fyrir hæsta-
rétti Bandaríkjanna og snerist aðallega
um rétt sakbornings til þess að neita
að bera vitni gegn sjálfum sér. Segir i
myndinni að það mál hafi orðið til
þess að breyta hugsunarhætti og af-
stöðu fólks um allt land til þessara
mála.
Af forsmekknum ræð ég að þetta
muni reynast hörkugóðar sakamála-
sögur.”
Myndin er í litum og er rúmlega
tveggja klukkustunda löng. rk
Telly Savalas fer með hlutverk Kojaks
í kvikmyndinni og myndaflokknum um
samnefndan lögreglumann
BAST
LJOS 1
VERDFRÁ KR. 6.965,
RIS-
KULUR
Ýmsar gerðir
Kr. 1870.-
Landsins
mesta
/ampaúrva/
LJOS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
sími 84488