Dagblaðið - 02.06.1978, Side 4

Dagblaðið - 02.06.1978, Side 4
4 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNl 1978. Námsstyrkir Sjóðurinn Gjöf Thorvaldsensfélagsins hefur það markmið að sérmennta starfs- lið stofnana fyrir vanheil börn, þ.e.a.s. dagvistarstofnana, vistheimila, sérskóla og sérdeilda, þar sem eru afbrigðileg börn og unglingar til dvalar, kennslu og þjálfunar. Úr sjóðnum er veitt fé til: A. náms innanlands, svo sem almennra námskeiða fyrir tiltekna starfshópa undir handleiðslu sérfróðra manna. B. náms erlendis í formi námsstyrkja til einstaklinga, er stunda framhaldsnám í skólum erlendis. Þeir, sem njóta styrks úr sjóðnum, skulu skuldbinda sig til að vinna a.m.k. tvö ár hérlendis. Styrkur til þeirra, sem ekki fullnægja téðri vinnukvöð, er endur- kræfur. Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar undirrituðum fyrir 25. júlí 1978, ásamt nauðsynlegum upplýsingum um fyrirhugað nám og þjálfun. Reykjavík, 31. maí 1978. Jón Sigurðsson, Háuhlíð 18, Reykjavík, formaður sjóðsstjórnar Gjafar Thorvald- sensfélagsins. c^\agerc/- Eyjargötu 7, Örfirisey Reykjavík ' símar 14093 — 13320 Hústjöld - tjöld tjaldhimnar — sóltjöld tjalddýnur Framleiðum allar gerðir af tjöldum á hag stæðu verði, m.a. 5—6 manna kr. 36.770.- 3 manna kr. 27.300.- Hústjöld kr. 68.820.- 5 gerðir af tjaldhimnum. — Seljum einnig ýmsan tjaldbúnað, t.d. sólstóla, kæli- box, svefnpoka og leiktjöld. Komið og sjáið tjöldin uppsett í hinum nýju glæsilegu húsakynnum að Eyjargötu 7 Örfíris- ey. Póstsendum um alltland. Brottrekstur dómorganistans: Organistar harma aö sóknamefndin vilji ekki ræöa sættir „Þar sem Ragnar Björnsson hefur á ný sótt um stöðu dómorganista og er reiðubúinn til samstarfs við presta og sóknarnefnd, þá skorum við enn á ný á forráðamenn Dómkirkjunnar. að þeir skoði hug sinn og endurráði Ragnar Björnsson sem organista við Dómkirkjuna í Reykjavik.” segir i niður- lagi yfirlýsingar frá Félagsheimili íslenzkra organleikara, sem samþykkt vará félagsfundi um helgina. Lýsti fundurinn undrun sinni og óánægju með brottrekstur Ragnars úr starfi dómorganista í Reykjavík. „Vill fundurinn mótmæla þessari uppsögn, þar sem að mati félagsmanna liggja ekki fyrir hendi þau rök, sem geta varðað slíkan brottrekstur,” segir i yfir- lýsingu organistafélagsins. „Félag islenzkra organista hefur mót- mælt uppsögninni i bréfi til sóknar- nefndar Dómkirkjunnar þ. 12. febrúar sl„ og jafnframt leitað eftir sáttum. Harmar félagið að sóknarnefnd Dóm- kirkjunnar hefur ekki verið til viðræðna um að ná sáttum i þessu máli,” segir einnig í yfirlýsingu organista. DB tókst ekki í gær að ná sambandi við talsmann sóknarnefndar Dóm- kirkjunnar til að spyrjast fyrir um þetta mál. ÓV. Félagsheimilið á Selfossi að koma upp úr jörðinni Nýr oddviti f Gerðahreppi Nýtt félagsheimili og hótel eru nú í byggingu á Selfossi og verða undir einu þaki. Þykir mörgum orðið brynt að tiýta þeim framkvæmdum enda er núverandi félagsheimili orðið mjög hrörlegt og býður upp á takmarkaða möguleika til félagsstarf- semi. DB-m.vnd R. Th. Ferðum íslendinga fjölgar miðað við komur útlendinga Ferðum Islendinga hefur fjölgað sinnum til útlanda — en I977 var þúsund úllendingar og árið 1977 voru mun örar en komum útlendinga það rúmlega 70 þúsund sinnum sem þeir rúmlega 72 þúsund. hingað síðustu árin. Árið I975ferðuð- Íslendingarfóru til útlanda. H. Halls. ust, íslendingar liðlega 5I þúsund Til íslands komu árið 1975 um 7I Eins og viða á landinu urðu miklar sveiflur á fylgi flokkanna á Suðumesjum í sveitarstjórnarkosningunum. Ýmsar breytingar á embættismannaskipan eru því á næsta leiti og sums staðar reyndar þegar orðnar. Má þar nefna Gerðahrepp. Nýr oddviti tók þar við störfum á miðvikudag, Jens Sævar Guðbergsson, sem skipaði baráttusæti I-listansog vann mjög óvæntan sigur í Garðinum. Bætti við sig tveimur fulltrúum, en hafði áður einn, af fimm, — og hnekkti þar með 40 ára valdaferli Sjálfstæðisflokksins í hreppnum. Jens Sævar er rúmlega þritugur verkstjóri við ísstöðina í Garðinum, sem hann er einnig eigandi að ásamt föður sinum og bræðrum. Frá- farandi oddviti var Finnbogi Björnsson. JBP Jens Sævar Guðbergsson, hinn nýi odd- viti I Gerðahreppi. Minnismerki hamfaranna Það var mikið áfall fyrir atvinnulíf á Stokkseyri þegar tveir bátanna ónýttust í flóðinu í desember er þeir þeyttust upp i fjörukambinn. Þar standa þeir enn sem ömurleg minnismerki um hamfarirnar. Það er að vonum mál málanna á Stokks- eyrk að byggja flotann sem fyrst upp i fyrra horf. DB-mynd R. Th.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.