Dagblaðið - 02.06.1978, Qupperneq 10
10
ÐAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978.
frfálsi, áháð dagblað
Útgefandi: Dagblaöið hf.
Framkvœmdastjórí: Sveinn R. EyjóHsson. Rrtatjóri: Jónas Krisljánsson. Fréttastjóri: Jón Birgir Póturs-
son. RitstjómarfuHtrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri rítstjómar Jóhannes ReykdaL íþróttir HaNur
Simonarson. Aðstoöarfróttastjórar Atfi Steinarsson og Ómar Valdimarsson. Handrit: Ásgrimur Péls-
son.
Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur Sigurðs-
son, Guðmundur Magnússon, HaHur HaNsson, Helgi PáturssOn, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson,
Ólafur Jónsson, Ragnar Lár., Ragnheiður Kristjánsdóttir. Hönnun: Guðjón H. Pálsson.
Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamlelfsson, Hörður VHhjálmsson, Ragnar Th. Sigurös-
son, Sveinn Þormóðsson.
Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Sökistjóri: Ingvar Sveinsson. Droifing-
arstjóri: Már E.M. HaNdórsson.
Rltstjóm Síðumúla 12. Afgreiðsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrif stofur Þ verhohi 11.
Aöalsimi blaösins er 27022 (10 línur). Áskrift 2000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakiö.
Setning og umbrot Dagblaðið hf. Síðumúla 12. Mynda- og plötugorð: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun:
Árvakur hf. Skeifunni 10.
Stjórnin er öll
Engar líkur eru til, að fylgistap
stjórnarflokkanna verði minna í þing -
kosningunum en það var í sveitar-
stjórnarkosningunum.
Óánægja með frammistöðu sveitar-
stjórnarmanna Sjálfstæðis- og Fram- _______________________
sóknarflokks er hverfandi lítil í samanburði viö
óánægjuna með ríkisstjórn þessara flokka. Á sunnu-
daginn voru kjósendur um allt land að mótmæla ríkis-
stjórninni fremur en stefnu ríkisstjórnarflokkanna í
sveitarstjórnarmálum. Alþýðubandalagið og Alþýðu-
flokkurinn hafa jafnan staðið tiltölulega betur að vígi í
þingkosningum en sveitarstjórnarkosningum.
Alþýðubandalagið er fyrst og fremst landsmálaflokk-
ur. Fylgisaukning þess á sunnudaginn var til komin
vegna stefnu ríkisstjórnarinnar í kjaramálum og öðrum
þjóðmálum. Slík óánægja ætti enn frekar að fá útrás í
þingkosningum, sem eru hinn eðlilegi vettvangur
hennar. Engar líkur eru því til þess, að Alþýðubanda-
lagið auki fylgi sitt minna 25. júní en það gerði 28. maí.
Staða Alþýðuflokksins hefur jafnan verið skárri í þing-
kosningum en sveitarstjórnarkosningum. Nú kemur til,
að frambjóðendur flokksins til þings eru tiltölulega lit-
ríkir, þótt umdeildir séu. Vilmundur Gylfason mun lík-
lega draga að flokknum talsvert fylgi í Reykjavík, svo
mjög sem hann hefur látið til sín taka í áhugaverðri um-
ræðu síðustu mánaða.
Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn fengu saman-
lagt yfir fjörutíu af hundraði atkvæða í kaupstöðum og
kauptúnum landsins. Stjórnarflokkarnir eru að vísu
sterkari í sveitum, en á móti kemur, að tap þeirra í þétt-
býli kann að verða enn rpeira í þingkosningum en í
sveitarstjórnarkosningum.
Stjórnarflokkarnir munu næstu vikur reyna gagn-
sókn, en skammur tími er til stefnu og engra varanlegra
aðgerða að vænta. Kjaramálin munu sem fyrr verða
einna efst á baugi í hugum launþega landsins. í þeim
hefur verkalýðsforystan haldið illa á spilum og gefið
stjórnarflokkunum hvert tækifærið af öðru tií að snúa
vörn í sókn, en stjórnarflokkarnir jafnan glatað tækifær-
unum og haldið enn verr á málum.
Ný ríkisstjórn mun eftir kosningar taka afstöðu til
þess, hvort gengið skuli að kröfum um mikla hækkun
verðbóta á laun. Stjórnarandstæðingar í verkalýðshreyf-
ingunni gera sér ljóst, að slík ráðstöfun bíður kosning-
anna. Atvinnurekendur eru ekki til viðtals fyrr en eftir
kosningar. Aðgerðir, svo sem yfirvinnubann, eru því í
reynd til lítils á þessu stigi nema til að auka efnahags-
vandann. Sama máli gegnir um áframhald útflutnings-
stöðvunar. Slíkar aðgerðir gera kökuna minni og
væntanlegri ríkisstjórn erfiðara fyrir að bæta kjörin.
Stjórnarandstæðingar í verkalýðshreyfingunni telja
hins vegar, að skammtíma áróðursgildi slíkra aðgerða
vegi þetta upp. Þær muni „halda launþegum við efnið”
fram að kosningum. Úrslit sveitarsíjórnarkosninganna
sýni, að ríkisstjórnin glopri niður þeim tækifærum, sem
slíkar aðgerðir færi henni.
Eftir ósigur í þingkosningum, slíkan sem tapið varð á
sunnudaginn, mun fáa í stjórnarflokkunum fýsa áð
halda leiknum áfram. Stjórnarflokkarhir, munu eftir
kosningarnar, hvor um sig, leitast við að standa að nýrri
stjórnarmyndun, með nánast hverjum sem er.
Zaire:
Lítil samstaða
meðal andstæð
inga Mobutos
V
Mobuto forseta Zaire hefur furðu
lengi tekizt að tolla við völd eða í
þrettán ár. Til þess eru taldar ýmsar
orsakir, meðal annars eru andstæðing-
ar hans klofnir í ótal fylkingar sem
bæði starfa i Zaire og erlendis. Einnig
þykir Mobuto hafa tekizt vel að halda
ættbálkum i Zaire í skefjum með lof-
orðum og gylliboðum auk þess sem
hann hefur notað hina gömlu brezku
nýlenduaðferð að deila og drottna, það
er halda ávallt vissri spennu milli ætt-
flokkanna sem hefur sundrað þeim en
komið honum til góða.
Andstæðingar forsetans eru af fjöl-
mörgum kynstofnum enda er stærð og
lögun Zaire byggð á hinni gömlu belg-
ísku nýelndu, Kongo, og eiga sumir
kynþættir sem þar búa fátt sameigin-
legt með öðrum. Telja sumir að heppi-
legast hefði verið að Zaire hefði skipzt
i nokkur ríki eins og horfur voru á
strax eftir að landið hlaut frelsi árið
1960. Núeru aftur á móti taldar minni
líkur fyrir því að svo verði þó lands-
menn hefðu áhuga. Koma þar bæði
til hagsmunir stórveldanna og ná-
grannaríkja Zaire.
Andstæðingar Mobutos eru marg
klofnir eins og áður sagði. Sumir
þeirra vilja berjast gegn honum með
vopnum og gera innrás í Zaire, aðrir
telja að bylting muni verða gerð og
þeir eru jafnvel til sem telja að velta
megi Mobuto úr sessi með einhvers
konar lýðræðislegum aðferðum.
Lýðræðislegir stjómarhættir eiga
sér skamma sögu i Zaire og raunar
tæplega hægt að segja að þar hafi rikt
lýðræði nema þá fyrstu vikurnar eftir
að landið hlaut sjálfstæði, árið 1960.
Ekki skorti þó á fjölda stjórnmála-
flokkanna. Þeir spruttu upp eins og
gorkúlur og enginn stjórnmálamaður
taldist gjaldgengur nema hann
stofnaði sinn stjórnmálaflokk.
Enginn þessara flokka varð þó nein
veruleg hindrun þegar Mobuto forseti
bannaði alla stjórnmálastarfsemi í
Zaire og stofnaði síðan eigin stjórn-
málahreyfingu.
Eina hreyfingin sem þykir hafa náð
nokkrum árangri er sú sem aðal-
stöðvar hefur í Angola og stóð að inn-
rásinni í Shaba-hérað nýlega. Þá slapp
Mobuto naumlega með aðstoð Frakka
en vegna verðlækkunar á kopar og
efnum unnum úr honum á undanförn-
um mánuðum er talið að veldi hans
hafi aldrei verið jafn hætt komið og
nú. Efnahagslíf landsins, sem aldrei
hefur verið beysið, er nú nánast í rúst-
um og ekki bæta þau skemmdarverk
sem unnin voru á koparnámunum I
Shaba þar úr.
Samkvæmt skjölum sem nýlega
voru birt í Brussel kemur fram að allar
Llkin lágu eins og hráviði um göturnar i Kolwezi i Shaba-héraði þegar frönsku og
belgisku fallhlifaliðarnir komu þar hrítum íbúum til bjargar.
stöðvar í Brussel hafa reynzt
ÆT\ liV árangurslausar. Foringjar Brussel-
^ hreyfmgarinnar voru dæmdir til
fywfaatÍHl dauða í marz síðastliðnum af dómstóli
V M ' Zaire fVrir að hafa undirbúið
byltingu gegn Mobuto forseta.
Foringi frelsishreyfingarinnar í
Angola, Nathanael Mbumba, en hann
stjórnaði innrásinni í Shaba-hérað,
sagði í bréfi að byltingunni í Zaire yrði
að koma á i sósíalískum anda og berja
niður bæði gamla og nýja nýlendukúg-
ara. I lok bréfsins kallaði hann for-
ingja Brusselhreyfingarinnar leynileg-
Ivlobuto torseti a við ýmsan randa að stríða þessa dagana. Meðal annars hefur
koparverð lækkað mjög á heimsmarkaði. Efnahagslif landsins byggist mjög á
koparnum sem mun vera rúmur helmingur af útflutningi Zaire að verðmæti.
samkomulagsumleitanir á milli frelsis-
hreyfingarinnar, sem aðsetur hefur í
Angola og hreyfingar sem hefur aðal-
an flugumann nýlenduveldanna. Ráð-
lagði hann honum að senda bréf sin og
tillögur beint til Carters Bandaríkja-
forseta eða æðstu manna Frakklands
eða Vestur-Þýzkalands.
Foringjar frelsishreyfingarinnar,
sem aðsetur hefur í Brussel halda þvi
aftur á móti fram að hreyfing þeirra
njóti verulegs fylgis innan Zairehers
og hjá almenningi víðs vegar um
Zaire.
Angolahreyfingin sé aftur á móti
byggð upp á hersveitum, sem stjórnað
sé af erlendum mönnum. Áhrif þeirra í
Zaire sjálfu séu lítil og engin nema
meðal Lunda kynstofnsins, sem byggir
Shaba-hérað. Þar eru áhrif þeirra líka
veruleg. Samkvæmt athugun fulltrúa
Sameinuðu þjóðanna flúðu um það bil
200.000 manns til Shaba þegar
Marocco hermenn hröktu. innrásar-
á§i:'Z V, ' • § nienn á brott i fyrra. Ættu Lunda-
• * '«&. NE^JlwHNftwET* menn því ekki að vera í vandræðum
Gleðilegir og övæntir endurfundir urðu oft á tiðum þegar flóttafólkið frá Zaire með að manna hersveitir sínar i fram-
kont til Briissel fyrir nokkru. tíðinni.
/