Dagblaðið - 02.06.1978, Qupperneq 12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1978.
12
Skotarí
erfiðleikum
Skotar eiga í vandræðum með HM-
leikmenn sína. Fjörir eru mciddir og þar
aíbáðir miðherjarnir, Joe Jordan, Man.
Utd., og Derek Johnstone, Rangers.
Jordan er þö stillt upp í leikinn gegn
Perö á morgun, en ef hann getur ekki
leikið kemur Lou Macari, Man. Utd. i
hans stað. Þá er talið víst að Gordon
McQueen, Man. Utd., geti ekki leikið I
riðlakeppninni og Clark, markvörður
Aberdeen, á við meiðsli að stríða. Þessir
fjörir leikmenn gátu ekki æft með
skozka liðinu i gær. Þá má Willie
Donachie, Man. City ekki leika gegn
Pcrú, er I leikbanni fyrsta leikinn.
„Ég vona þö að Jordan og Johnstone
geti tekið þátt I leiknum, vildi ekki hætta
á að láta þá æfa í gær,” sagði Ally
McLeod, þjálfari Skota. Hann hefur
valið lið sitt gegn Perú, og það verður
skipað þessum leikmönnum:
Aian Rough, Partick, Sandy Jardine
(2), Rangers, Tom Forsyth (14),
Rangers, Kenny Burns (22), Forest,
Martin Buchan (4), Man. Utd., Don
Masson (7), Derby, Asa Hartford (10)
Man. City, Bruce Rioch (6), Derby,
Kenny Dalgish (8), Liverpool, Joe
Jordan (9), Man. Utd., cða Lou Macari
(17), Man. Utd. og Willie Johnstone(ll)
WBA.
Sterkt lið
Hollands
Hollenzka HM-liðið vann störsigur á
úrvalsliði Mendoza i gær, 9-1 — en
fannst þö völlurinn erfiður vegna mikils
grass. „Það þarf að slá það,” sögðu hol-
lenzku leikmennirnir — og það verður
gert fyrir fyrsta leik Hollands á morgun.
Þá leikur Holland við tran i
Mendoza. Elzti maður liðsins, mark-
vörðurinn Jan Jongbloed, sneri sig á
ökkla og er í læknismeðferð — en
honum er þó stilit upp gegn Íran á
morgun. Ef hann lagast ekki l'yrir lcikinn
kemur Piet Schrijvers í hans stað. Ernst
Hnappel, þjálfari Hollands, hefur valið
hollenzka liðið að öðru leyti en því að
hann hefur ekki ákveðið hvort Willy van
der Kerkof eða Jan Poortvliet hefja leik-
inn. Liðið er þannig:
Jan Jongbloed (8), Wim Suurhier
(20), Wim Rijsbergen(17), Rudi Krol(5),
fyrirliði, Willy van der Kerkof (11) eða
Jan Poortvliet (2), Arie Haan (9), Wim
Janssen (6), Johan Neeskens (13), Rena
van der Kerkof (10), Johnny Pep (16), og
Rob Rensenbrink (12). Hollenzku leik-
mennirnir fengu sjálfir að ráða númerum
sínum — þeir, sem það vildu.
á Ítalíu valinn
Þjálfari ítaliu, Enzo Bearzot, hefur
valið lið sitt sem leikur gegn Frakklandi í
dag í Mar del Plata. Það verður þannig
skipað:
Dino Zoff (1), Claudio Gentile (5),
Antonio Cabrini (3), Romeo Benetti (10),
Mauro Bellugi (2), Gaetano Scirea (8),
Franco Causio (16), Marco Tardelli (14),
Paolo Rossi 21) Giancarlo Antognoni (9)
og Roberto Bcttega(18).
Varamenn eru Paolo Conti (12), Aido
Maldcra (6), Renato Zaccarelli (15),
Claudio Sala (17) og Francesco Grasiani
(19) og kom mjög á óvart að hann skyldi
ekki vera aðalmaður.
Hinn 21 árs Paulo Rossi, sem var
markahæsti leikmaðurinn i 1. dcildinni
itölsku á síðasta leiktfmahili, var valinn I
hans stað — og sóknarbakvörðurinn
Antonio Cabrini var valinn I stað Aldo
Maldera. Facchetti, sem átti að vera
fyrirliði ítalska liðsins á HM, varð eftir á
Italfu vegna meiðsla. Romeo Benctti fær
það hlutverk að vera héri bezta
leikmanns Frakklands, Michel Platini.
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
■
Y'.j
|
mm f||§
ÞEIR
HITTU í
MARK
Þeir hittu í mark, garparnir i Skot-
félagi Reykjavfkur á æfingasvæði félags-
ins í Lcirdal á þriðjudag. Þá var haldið
mót í Skeet-skotfimi en það er ólympiu-
iþrótt og stunduð í fiestum löndum
heims. Hér á íslandi hefur verið keppt
um árabil en ekki mikið kynnt. Skotið er
af haglabyssu á leirskifur sem kastað er
upp með vélum frá turni og marki.
Skotið er af palli 1 —8 — alls 25 skifur.
Það var skinandi veður keppnisdaginn
— sunnanátt, 3—4 vindstig og sólskin.
Keppendur voru 13 og mikil keppni
enda góð verðlaun i boði.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. Jóhann Halldórsson með 23 af 25
skífum mögulegum. Hann notaði byssu
af gerðinni Le Page Liege, cal. 12 tví-
hleypu.
2. Gísli Ófeigsson með 19 af 25. Hann
notaði byssu af gerðinni Remington
110Q, hálfsjálfvirka.
3. Hannes Haraldsson með 18 af 25.
Hann notaði byssu af gerðinni Win-
chester 101, tvíhleypu.
Verðlaun voru gefin af Ólafi H.
Jónssyni, umboðs- og heildv., og verzl-
uninni Vesturröst.
Haglabyssuæfingar- eru stundaðar á
þriðjudögum og fimmtudögum kl. 7 og á
sunnudögum kl. 13. Fimmtudagar eru
ætlaðir fyrir byrjendur og eru allir, sem
áhuga hafa á að kynnast iþróttinni vel-
komnir.
á
AÐALLEIKURINNIVESTMANN/
þegarfjórða umferðiní 1. deild íslandsmótsins verður leikin um li
Það fer ekki á milli mála að aðalleik-
urinn í fjórðu umferð íslandsmötsins í 1.
deild verður i Vestmannaeyjum á laugar-
dag. Þá fá Vestmannaeyingar Val I heim-
sókn. Valsmenn eru efstir i deildinni með
fullt hús stiga eftir þrjár umferðir — en
Vestmannaeyingar hafa aðeins leikið tvo
leiki. Þeir töpuðu á heimavelli I fyrstu
umferð fyrir Víkingi en unnu sigur i
Keflavik í 2. umferð. Ekki þarf að efa að
leikurinn I Eyjum veröur jafn og tvisýnn.
í meistarakeppni KSÍ sigraöi ÍBV Val i
Eyjum með 2-0 og áreiðanlega hyggja
Valsmenn á hefndir.
Annars hefst fjórða umferðin í kvöld
með leik Fram og KA, Akureyri, á
Laugardalsvellinum. Leikurinn byrjar
kl. 20. Fram hefur sigrað í tveimur síð-
ustu leikjum sinum en eftir tvö jafntefii
tapaði KA á Akranesi í 3. umferð.
Á laugardag verða þrír leikir: Kefla-
vik — Þróttur í Keflavík kl. 15, IBV —
Valur kl. 16 i Vestmannaeyjum og FH
— Akranes á Kaplakrikavelli. Sá leikur
átti að hefjast kl. 16 — en Akurnesingar
óskuðu eftir því að hann yrði færður
fram til kl. 14 vegna HM-leikja i sjón-
varpinu. FH-ingar féllust á það — og
þar má búast við skemmtilegum leik.
Akurnesingar eru með fimm stig en FH
gerði tvö jafntefii i tveimur fyrstu um-
ferðunum. Liðið hefur enn ekki komizt
til Vestmannaeyja til að leika þriðja leik-
inn.
Á sunnudag verður einn leikur á
Laugardalsvelli. Þá leika Víkingur og
Breiðablik og hefst leikurinn kl. 20.
Vikingur hefur tvö stig, Breiðablik eitt
Standa sig vel í Svíþjóð
íslenzka frjálsiþróttafólkið I Sviþjóð,
Lilja Guðmundsdóttir, Einar P. Guð-
mundsson og Guðmundur Rúnar Guð-
mundsson, FH, hefur keppt á nokkrum
frjálsíþróttamótum í Svíþjóð að undan-
förnu og náð allgóðum árangri.
Þann 20. maí keppti Lilja i 1500 m
hlaupi í Enköping í miklu roki. Kepp-
endur voru sjö og hafði Lilja forustu frá
byrjun til loka. Sigraði hún á 4:34.2
min., sem er svipað hjá henni og á sama
tíma í fyrra. Næsta stúlka hljóp á 4:49.6
mín.
Einar og Guðmundur Rúnar tóku
þátt í félagakeppni í Linköping 27. mai.
Einar varð annar i 400 m á 51.0 sek. og
Guðmundur Rúnar stökk 1.98 m i há-
stökki. Daginn eftir kepptu þau öll á Kil-
spelan í Kil. Hiti var 25 stig, sem gerði
ýmsum erfitt fyrir. Einar hljóp 800 m á
1:59.3 min. og Guðmundi gekk vel í há-
stökkinu, stökk 2.01 m og varð annar.
Hann átti góðar tilraunir við 2.04 m.
Lilja hljóp 800 m og luku sex hlaupinu.
Lilja sigraði á 2:12.3 min. en næsta hljóp
á 2:19.6 min.
Þann 29. mai kepptu þau í Lidingö —
og þar kepptu margir útlendingar auk
þeirra. Linda Haglund, Svíþjóð, hljóp
100 m á 11.3 sek. Einar hljóp 400 m á
50.9 sek., sem er hans bezti timi. Sigraði
Einar i B-riðli en í A-riðli sigraði Norð-
maðurinn Agledal á 49.1 sek. Guð-
mundur stökk 1.95 m í hástökki og varð
sjötti. Þar voru ýmsir frægir kappar.
Lilja hljóp 800 m og varðönnur á 2:11.8
min. en keppendur voru niu. Maria
Simonsen, sem hlaupið hefur á 2:05.0
min., sigraði á 2:10.4 min. Lilja hafði
forustu nærallt hlaupið.
Þrir leikir verða á dagskrá heims-
meistarakeppninnar i dag.
í I. riðli leika Argentína og Ungverja-
land í Buenos Aires. Dómari í leiknum
verður Da Silva Garrido frá Portúgal.
Þettaerkvöldleikur.
í I. riðli leika einnig Ítalía og
Frakkalnd i Mar del Plata. Dómari
Nicolas Reinera frá Rúmeníu.
I 2. riðli leika Túnis og Mexikó í
Rosario. Dómari JohnGordon
Lakkrísgeröin Krummi sigraði Panelofna hf. í úrslitaleik í firmakeppni Tennis- og badmintonfélags Rcykjavíkur á dögunum.
Fyrir Lakkrisgerðina Krumma léku Jóhann Kjartansson og Einar Svcrrisson en fyrir Panelofna Sigfús Ægir Árnason og
Kári Kárason. Um 200 fyrirtæki tóku þátt í kcppninni. Á myndinni að ofan eru frá vinstri Ríkarður Pálsson, formaður TBR,
Eiríkur Guðmundsson, forstjóri Krumma, og Sigurður Þorkelsson, forstjóri Panelofna. — DB-mynd Bjarnlcifur.
LEIKR
Heimavöllurinn hefur reynzt vel í
heimsmeistarakeppninni i knattspyrnu.
Frá því HM hófst 1930 hafa gestgjafarn-
ir sigrað eða næstu nágrannar þeirra,
nema þegar Brasilia sigraði í Svi-
þjóðl958 og í Mesikó 1970. Uruguay
sigraði á heimavelli 1930 og i næsta ná-
grannalandi sinu, Brasilíu, 1950. ítalia
| sigraði á heimavelli 1934 og í Frakklandi
1938. Vestur-Þýzkaland sigraði á heima-
velli 1974 og i Sviss 1954 — og England
sigraði á heimavelli 1966. Þá komst
Brasilia í úrslit 1950 og Svíþjóð i úrslit
1958.
Það er þvi ekki furða þó margir telji
Argentinumenn mjög sigurstranglega í
HM sem hófst í gær. Áhorfendur verða
j skiljanlega mjög á þeirra bandi — munu
veita liðinu ómetanlegan stuðning. En
Argentina á einnig mjög gott landslið.
Það er þó í erfiðasta riðli keppninnar og
ekkert má bregða út af i keppni við
Frakka, Ítali og Ungverja. Þessi liðeru i
I. riðli og leikirnir eru: 2. júní:
Argentina-Ungverjaland í Buenos Aires,
Frakkland-ltalia í Mardel Plata.
6. júni:
Argentína-Frakkland í Buenos Aires,
italía-Ungverjaland i Mardel Plata.
Aftur og aftur skora leikmi