Dagblaðið - 02.06.1978, Síða 24
Steypuskemmdir víða í Reykjavík:
KOSTA YFIR 20 MILU.
4 SLÖKKVISTÖBINNI
Kostnaður vegna þeirra skemmda
sem fram komu í Slökkvistöðinni við
Öskjuhlið nálgast nú 20 milljónir
króna og eru þá ekki öll kurl komin til
grafar.
Enn er unnið að viðgerðum á
Slökkvistöðinni. „Það hefur mikið
vcrið brotið niður og endursteypt.
Þetta er mjög dýr viðgerð og vanda-
söm,” sagði Bergsteinn Sigurðsson hjá
byggingadeild Reykjavikurborgar i
samtali við DB um málið.
Bergsteinn sagði að um sl. áramót
hefðu um 10 milljónir verið komnar í
verkið og sé nú verið að vinna fyrir
tæplega 10 milljón kr. fjárveitingu til
viðbótar. „Spurningin er hvað okkur
tekst að gera mikið fyrir þessa
peninga ” sagði Bcrgsteinn.
Hann kvað enn ekki vera Ijóst um
ástæðuna fyrir þessum skemmdum,
Rannsóknasiofnun byggingar-
iðnaðarins hefði talið að um frost-
skemmdir væri að ræða, en þar færu
nú fram frekari rannsóknir á
.steypunni úr slökkvistöðinni. „Annars
er þetta víðar I bænum, bæði í sund-
laugunum og víðar,” sagði Bergsteinn
Sigurðsson.
Hákon Ólafsson yftrverkfræðingur
Rannsóknastofnunar byggingar-
iðnaðarins sagði í samtali við DB að
rannsókn stofnunarinnar hefði leitt í
Ijós að um frostskemmdir væri að
ræða. „Þeir vilja fá nánari skýringar,”
sagði Hákon, „og þvi erum við nú með
borkjarna i frekari rannsókn, sem á að
leiða í ljós m.a. hvort um efna-
breytingar er að ræða. Steypan er
sterk og ekki er útilokað að fleira geti
komið til en frostið eitt.”
Steypan I þessi skemmdu hús hefur
komið frá fleiri en einni steypustöð.
Bergsteinn Sigurðsson efaðist um að
hægt væri að gera steypustöðina eða
verktakann ábyrgan fyrir skemmd-
unum, um það hefði engin ákvörðun
verið tekin enn. -ÓV.
JVJ gegn lögmanni
sínum:
Málinu f restað
umviku
„Munnlegui málflutningi i máli
þeirra Jóns og Þorvalds var frestað um
eina viku þar eð ýmis gögn vantaði
varðandi ákvarðanatöku,” sagði
Stefán Pálsson ritari Lögmannafélags
íslands, i viðtali við Dagblaðið. Á
miðvikudag var tekið til endur-
tekinnar meðferðar hjá Lögmanna-
félaginu kærumál Jóns V. Jónssonar
verktaka á hendur Þorvaldi Lúðviks-
syni. fyrrum lögmanni Jóns, en Jón
hefur kært réttmæti reikninga Þor-
valds fyrir málflutningsstörf.
Þá hefur Þorvaldur kært Guðmund
Þórðarson. lögmann Jóns, fyrir brot á
siðareglum Lögmannafélagsins.
-HP.
Arnarhóls-
skemmtanir
17. júní
Dansað verður á þremur stöðum i
Reykjavik að kvöldi 17. júní — i
Breiðholti. Árbæjarhverfi og við Austur-
bæjarskólann. Hljómsveitirnar Tivoli,
Brunaliðið og Póker leika fyrir dansi.
Á Arnarhóli verða tvær skemmtanir
17. júni — Barnaskemmtun aðdeginum
og kvöldskemmtun fyrir alla
fjölskylduna. Þar koma fram flestir
hclztu skemmtikraftar þjóðarinnar með
nýjardagskrár.
Dagskráin mun liggja fyrir í heild um
helgina.
ÓV.
Krafa Alþýðubanda-
lagsins í viðræðum
um nýja borgarstjórn:
Fullarvís'h
tölubætur
álaun
Alþýðubandalagið gerir það að
skilyrði fyrir myndun nýs meirihluta i
borgarstjórn Reykjavikur að fullar
visitölubætur verði greiddar á laun borg-
arstarfsmanna frá og með 1. júni.
Þetta kom fram i ræðu sem Sigurjón
Pétursson, borgarráðsmaður, hélt á
félagsfundi í Alþýðubandalaginu í
Reykjavik í fyrrakvöld.
Blaðið hefur það eftir áreiðanlegum
heimildum að fulltrúar Alþýðuflokksins
hafi fallizt á þessa kröfu en Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins. sé enn að ihuga hana.
Fullvist er talið að hann muni að lokum
fallast á greiðslu vísitölubóta.
Á fundi Alþýðubandalagsins voru úr-
slit borgarstjórnarkosninga rædd fram
og aftur og möguleikar á nýsköpun i at-
vinnu- og félagsmálum i Reykjavik reif-
aðir.
-GM.
Birgir ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi borgarstjóri, og Guðrún Helgadóttir, borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, heilsast á
fyrsta fundi hinnar nýju stjórnar borgarinnar. — DB-mynd Hörður.
STJÓRN LÁNASJÓÐS
VERÐILÁTIN VÍKJA
— erkrafa stúdenta
Stjórn Stúdentaráðs Háskóla
islands hefur krafizt þess að fulltrúar
rikisvaldsins víki úr stjórn Lánasjóðs
islenzkra námsmanna. Tilefnið er
nýlegur úrskurður borgardóms
Reykjavíkur þar sem segir að út-
hlutunarreglur lánasjóðsins séu brot á
lögum frá Alþingi og reglugerð frá
menntamálaráðuneyti.
Fulltrúar rikisvaldsins í stjórn LÍN
eru Jón Sigurðsson, ritstjórnarfulltrúi
á Tímanum, Árni Ólafur Lárusson
viðskiptafræðingur og Stefán Pálsson
deildarstjóri.
Jafnframt hafa stjórnir SHÍ og
SÍNE sent frá sér yfirlýsingu þar sem
túlkunum Jóns Sigurðssonar. for-
manns sjóðsstjórnar, á niðurstöðu
borgardómser harðlega mótmælt.
Jón Sigurðsson hefur haldið þvi
fram að dómurinn staðfesti að eðlilegt
tillit sé tekið til barna i úthlutunar-
reglum lánasjóðsins. Stjórnir SHl og
SÍNE telja þessa túlkun hafa við engin
rök að styðjast.
1 fréttatilkynningu frá samtökunum
segir að i dómnum sé margítrekað að
lög og reglugerð kveði skýrt á um að
veita beri lán með tilliti til fjölda þeirra
er lánþegi hefur á framfæri sínu.
Dómarinn haft jafnvel séð ástæðu til
að taka það sérstaklega fram að bæði
sé átt við maka og börn.
-GM.
Borgarstjórn Reykjavíkun
NYIR VALDHAFAR TAKA VIÐ
Sigurjón Pétursson (Abl.) var kjörinn
irseti borgarstjórnar á fyrsta fundi
ennar i gær. Fyrsti varaforseti var kjör-
in Björgvin Guðmundsson (Afl.) og
nnar varaforseti Kristján Benediktsson
:ramsfl.).
I borgarráð voru kosnir: Sigurjón
Pétursson, Björgvin Guðmundsson,
Kristján Benediktsson, Albert Guð-
mundsson og Birgir ísleifur Gunnars-
son.
Kristján Benediktsson stjórnaði fyrsta
fundi borgarstjórnar. Kjöri borgarstjóra
var frestað.
Sigurjón Pétursson las i upphafi
fundarins yfirlýsingu frá flokkunum,
sem nú mynda meirihluta borgar-
stjórnar. Sagði i henni að viðræður milli-
þeirra um málefnasamning væru nú að
hefjast og að niðurstöður þeirra yrðu
bráðlega birtar. . bs
fsfálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR2. JÚNÍ 1978,
Ráðningar-
málinkæmust
í höf n
— verði tillögurnar
samþykktar, segir
orkumálastjóri
„Það er fljótsagt. Okkur lizt ekki vel á
það,” sagði Jakob Björnsson orkumála-
stjóri þegar fréttamaður DB spurði hann
hverjum augum Orkustofnun liti þá
fyrirætlan að skera fjárveitingu til stofn-
unarinnar niður um 50 milljónir í ár.
Jakob sagði að ef tillögur stjóm-
skipuðu nefndarinnar, sem átti að gera
tillögur um lausn fjárhagsvanda stofn-
unarinnar, yrðu samþykktar þá væru
„ráðningarmálin komin i höfn” fyrir þá
liðlega 30 starfsmenn sem ekki höfðu
fengið fasta ráðningu hjá Orkustofnun.
„Þeir yrðu áfram og ráðnireinsog um
var talað i upphafi," sagði orkumála-
stjóri.
Hann vísaði alveg frá sér að ræða til-
lögurnar nánar, þær hefðu enn ekki
verið afgreiddar frá ríkisstjórninni.
-ÓV.
Marx-
lenínistar
stefna
útvarpsráði
Kommúnistaflokkurinn (marx-
leninistar), sem býður fram lista við al-
þingiskosningarnar í Reykjavik, hefur
ákveðið að höfð mál gegn útvarpsráði.
Telur flokkurinn það lögbrot að hann fái
minni tima til framboðskynningar í rikis-
fjölmiðlum en stóru flokkarnir sem
bjóða fram i öllum kjördæmum.
Þetta var upplýst á fundi sem
Verðandi, félag róttækra stúdenta, hélt i
gærkvöldi með fulltrúum frá Alþýðu-
bandalaginu, Fylkingunni og Kommún-
istaflokknum.
Fulltrúar Fylkingarinnar og
Kommúnistaflokksins. Ragnar Stefáns-
son og Gunnar Andrésson, veittust
mjög harkalega að Alþýðubandalaginu
og sökuðu flokkinn um að nota kjara-
baráttuna í eiginhagsmunaskyni til að
komast að kjötkötlum auðvaldsins. Þeir
töldu að i stað einberrar þingræðis- og
kosningabaráttu yrði að koma virkt starf
meðal alþýðunnarsjálfrar.
Þröstur Ólafsson, fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins, vísaði þessum ásökunum á
jbug. Hann sagði að framboð smá-
flokkanna væri sundrungariðja sem
kæmi íhaldinu vel. Benti hann á að ef
Fylkingin og Kommúnistaflokkurinn
.hefðu boðið fram við síðustu borgar-
stjórnarkosningar i Reykjavik hefði
Sjálfstæðisflokkurinn haldið meirihluta
sinum.
-GM.