Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 27.01.1979, Qupperneq 15

Dagblaðið - 27.01.1979, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1979. 15 Don Vesco viö Kawasaki, straumUnulagaða mótorhjóUð sitt. Don Vesco náði mestum hraða allra kepp enda á Bonneville saltsléttunni að þessu sinni eða 556 km/klst. hraðaTl hjóUnu” eru tvær 1000 cc vélar með afgasforþjöppum og ganga þær fyrír bensini. ’ ” „Og hraðinn var hrein fegurð” Við stöndum í miðri auðninni og hvert sem við lítum sjáum rennislétt hvítt yfirborð jarðarinnar Víðáttan er slík að kúlulagað jarðarinnar sést greinilega en purpura- rauð fjöllin teygja sig upp yfir sjón- deildarhringinn og hina gömlu strönd úthafsins sem var hér fyrir 1 árum. Ekki sést nein lífvera og þögnin er slik að við heyrum greinilega tifið í armbandsúrinu okkar. Það marrar i yfirborði jarðarinnar er við færum okkur um set. Við teygjum okkur niður, snertum jörðina, brögðum á henni og komumst að raun um undir fótum okkar eru milljónir tonna af hreinu borðsalti. Skammt frá okkur stendur staur upp úr jörðinni og á honum stendur „4 mílur”. En skyndilega er þögnin rofin af skerandi hvin sem hækkar stöðugt. Við litum i vestur en sjáum einungis hvítt saltský. Dökkur díll fyrir framan skýið virðist vera orsök þess og þegar hann kemur nær sjáum við að díllinn er sivalur og minnir einna mest á flug- skeyti. Vélar farartækisins veina und- an átökunum, enda er þeim nú snúið langt yfir þau mörk sem þeim eru ætl- uð. Heil eilífð virðist liða þar til farar- tækið þeytist framhjá okkur á svo miklum hraða að við getum vart fest auga á þvi. Vélarhljóðið breytist er inn, en það er klúbbur þeirra er hafa ekið á yfir 200 mílna hraða (334 km/klst.), Meðal þeirra sem komust í 200 mílna klúbbinn að þessu sinni var Marcia Holley en hún er fyrsta konan sem nær þeim árangri. Johann A Knstjánsson Denny Golden hlaut að þessu sinni viðurnefnið „Hamingjusamasti maðurinn á saltinu” og verðlaunin sem því fylgir. Golden tókst að ná 206 mílna hraða en Street Roadsterinn hans má keyra á gtítum i Bandaríkjunum. farartækið fer framhjá okkur og vél- arnar fá langþráða hvild. Fallhlífar springa út eins og rósir þegar ökumaðurinn byrjar að hægja á farartækinu og stuttu siðar hverfur farartækið niður fyrir sjóndeildar- hringinn. Við stöndum aftur 'einir og yfirgefnir á Bonneville saltsléttunum I Utah í Bandaríkjunum. Það fer hroll- ur um okkur í heitri eyðimerkursólinni og þrúgandi þögninni sem umlykur Bert Peterson og John Sprenger ætluðu að sanna að Camaroinn værí jafn straumlinulagaður og ’ 53 Studebaker. Settu þeir 426 kúbika Hemi Chrysler vél i kamaróinn og þungt farg á bensínfót John Sprengers. Með þessum útbúnaði náðu þeir 245 milna hraða. okkur aftur, er við hugsum til þess er við höfum orðið vitni að. „Farar- tækið” sem við sáum var straumlínu- lagað mótorhjól með tveimur for- þjöppuðum 1000 cc vélum og var það á 333 mílna hraða. (556 km/klst) er það fór fram hjá okkur. „En hraðinn var afl og hraðinn var gleði og hraðinn var hrein fegurð.” Þetta uppgötvaði Jónatan Livingston Mávur er hann var að æfa sig í hrað- flugi. En það eru fleiri en Jónatan sem hafa uppgötvað þennan sannleika. Á hverju ári þyrpast hundruð ökumanna út á Bonneville saltslétturnar með það eitt í huga að aka hratt. í október sl. var haldin þritugasta árið í röð svokölluð „Hraða vika" á saltsléttunni. Að þessu sinni voru keppendur 270 og dunduðu þeir sér ,við það alla vikuna að ná sem mestum hraða. Ökutækin eru flokkuð niður eftir gerð þeirra, vélarstærð og elds- neytinu sem þau nota. Að þessu sinni voru sett þrjátíu og tvö ný hraðamet i fólksbilaflokkum og 41 met I mótor- hjólaflokkum. Auk þess tókst 15 manns að komast í 200 mílna klúbb- Arið 1958 setti Phil Freudinger nýtt heimsmet í D/Modified flokki. Náði hann 214 milna hraða I Roadster með forþjappaðri 258 kúbika Chevrolet vél. Willie Freudinger, sonur Phils var þá þriggja ára. Siðastliðin tuttugu ár hafa margir gert tilraun til að slá met Freudingers og hafa margar vélarnar gefið upp tíndina við það. í tuttugu ár stóð metið óhaggað eða þar til þeir feðgar birtust aftur á salt- sléttunni, aö þessu sinni á ’27 Roadster með beininnspýtta 302 kúbika Fordvél. Að þessu sinni ók sonurinn Willie og náði hann 219,5 milna hraða. Ekki áttu allir keppendur láni að fagna í keppninni. Jack Choate og Bruce Geisler mættu á ’53 Studebaker með 305 kúbika Chevroletvél, en á henni voru tvær afgasforþjtíppur. Ætluðu þeir sér að slá nokkur met að þessu sinni. Jack Choate var búinn að ná 220 milna hraða (368 km/klst.) þegar óhappið skeði. Vinstra afturdekkið sprakk og i stímu andrá tættist magnesíum felgan. Billinn kastaðist til og lyftist allur frá jörðu. Choate sleppti fallhlifunum lausum og tókst honum að stöðva bilinn án þess að meiri skemmdir yrðu á honum. „Hraða vikan” á Bonneville saltsléttunni

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.