Dagblaðið - 05.05.1979, Blaðsíða 2
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. MAÍ 1979.
2
f---'
Pöddur ígróðurmold
— eina ráðið að baka moldina áður en hún er notuð
Torfi Loftsson hafði samhand við
blaðið:
Fyrir skömmu keypti ég poka af
gróðurmold. Þegar heim kom setti
konan mín bióm í potta og notaði
þessa mold sem ég hafði keypt. Ekki
leið á löngu þar til hún tók eftir all-
ógeðslegum kvikindum skríðandi
utan á blómapottunum. Ég athugaði
því afganginn af moldinni sem ég
geymdi í kassa úti á svölum. Var hún
öll morandi i þessum kvikindum.
Sem betur fór tók ég eftir þessu áður
en þau náðu að breiða sig um alla
gluggakistu. Hvernig í ósköpunum
stendur á þvi að svona mold er seld?
Raddir
lesenda
Og hvað er hægt að gera í svona til-
vikum?
DB hafði samband við Erling
Ólafsson skordýrafræðing og sýndi
honum þessar pöddur sem Torfi kom
með i glasi. Kvað Erling pöddur þess-
ar vera annars vegar grápöddur og
hins vegar þúsundfætlur. Kvað hann
báðar þessar tegundir mjög algengar í
og við gróðurhús og litið við þessu að
gera. Þó vildi hann ráðleggja fólki,
sem kaupir gróðurmold, að baka
hana í bakarofni við góðan hita dá-
litla stund og myndi það nægja til
þess að drepa allar pöddur i mold-
inni.
»
I.anga paddan er þúsundfætla og
hinar eru af grápöddutegund.
Rússajeppi árg. 73
Skoðaður 79. Upphækkaður. Blár á lit. Góður
vagn. Verð 2,400 þús.
Uppl. í síma 13847 eftir kl. 19.
Til sölu
vörubílar og Massey Ferguson traktors-
grafa. Uppl. í síma 44174 eftir kl. 7 á
kvöldin.
ÖDÝRT
1 SíLFUR «
» Mikíð úri'ul gnflÉ j
1 RÖSIIM
GLÆSIBÆ |T ■«*
r
<- ... r
Allt í voða
— stjórnin sundurlaus
ritari.
mati er Gunnar vitur og mjög snjall stjórnmálamaður," segir bréf
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Þegar maður fyugsar út í þjóð-
félagsmál hlýtur margt að koma upp i
huga manns, ekki sízt hvernig að
þeim er staðið. Eins og stundum tel
ég að við séum á barmi glötunar, tiF
dæmis í efnahagsmálum, og kemur
þar margt til sem kannski væri of
langt mál upp að telja. En vist er að
núverandi stjórn er að minu viti ekki
fær um að leysa vanda okkar, þótt
forystumenn hennar væru háreistir
fyrir kosningar þegar þeir lofuðu
gulli og grænum skógum sem þeir
hafa engan veginn staðið við. Má þar
nefna verðbólguna sem þeir lofuðu
að koma niður i 30% og að lagfæra
hina ranglátu skatta sem þeir hafa
hækkaðenekki lækkað.
Eins og allir vita höfum við búið
við samsteypustjórnir í fjölda ára og
því miður höfum við ekki átt ýkja
færa liðsmenn til þess að stjórna
þessum hólma þannig að vel færi,
nema Gunnar Thoroddsen þegar
hann var í stjórn. Það var eina tima-
bilið sem islenzkur gjaldmiðill var
gjaldgengur á erlendum markaði.
Mér finnst sárt til þess að vita að við
skulum ekki eiga menn til þess að
stjórna þessu dásemdarlandi okkar.
Að minu mati er Gunnar vitur og
mjög snjall stjórnmálamaður og
mætti margur maður taka hann sér
til fyrirmyndar á sviði stjórnmála. Og
alltaf leyfir viðskiptaráðherra hækk-
un á öllum sviðum, bæði á vöruverði
og þjónustu og nú nýverið hækkun á
tryggingagjöldum yfir 40%.
Auðvitað er þetta ekki annað en
kaupskerðing og ég spyr: Hversu
lengi ætlar verkalýðsforystan að líða
þessa þróun mála? Mig langar einnig
að leggja þá spurningu fyrir vin
minn, Guðmund J, hvort honum
finnist ekki ástæða til að endurskoða
kaupgjaldsmálin. Ég vona að ég fái
eitthvað að heyra um það sem hér er
spurt um.
Ég sé ekki ástæðu til að hafa þcnn-
an pistil lengri en ég óska þjóðinni
allra heilla og að framtið hennar
megi vera björt.
Rikisstjórnin er sundurlaus
enda lika með tóman haus.
Að sitja ætti hún ekki lengur
þvi að henni er enginn fengur.
Þegja þunnu hljóði
Einar S. Jónsson, Veslurhólum I,
'skrifar:
Hvað er stjórnarandstaðan að
hugsa, eða hugsar hún ekki neitt?
Forráðamenn Sjálfstæðisflokksins
eru búnir að glopra niður tveimur
kosningum í röð. Nú þegja þeir
þunnu hljóði, bæði í borgarstjórn og
á þingi. Kannski er það út af ummæl-
um Alberts Guðmundssonar um
góða manninn Geir og þingmenn
flokksins vilji ekki spilla góðri sál.
Hver veit?
Hóp-
ferð
tann-
sjúkra
— óheyrílegur
kostnaðurvið
tannlækningar
hér
l.esandi hringdi:
Hvernig væri að einhver ferða-
skrifstofan hér tæki sig til og efndi til
hópferðar fyrir þá sem þurfa á tann-
læknum að halda tif þess að þeir
gætu fengið lækningu á viðráðanlegu
verði. Mér datt þetta i hug vegna þess
að ég er nýkominn frá tannlækni þar
sem ég greiddi litlar 9.920 krónur ein-
göngu fyrir hreinsun. Ég man ekki
betur en að ekki alls fyrir löngu hali
verið efnt til hópferðar til Filippseyja
til þess að láta einhverja andakuklara
lækna sig. Hvers vegna ætti þetta þá
ekki að vera hægt? Lækningin er
fyrirfram örugg og ég er sannfærður
um að hún gæti aldrei orðið jafndýr
og hér.
Heimilis-
læknir
Raddir lesenda taka við
skilaboðum til umsjónar-
manns þáttaríns „Heimil-
islœknir svarar" 1 sfma
27022, kl. 13-15 alla
virka daga.
Raddir
lesenda
Hringið
ísíma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið