Dagblaðið - 28.05.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 28. MAÍ 1979.
9
Ródesía:
Stjóm hinna
svörtu tekur
viðídag
Ríkisstjórn svartra í Ródesíu tekur
til starfa í dag og við formlegum
völdum í landinu. Hún á þó við ýmsa
erfiðleika að glíma strax frá byrjun,
einkum þó vegna þeirra deilna sem
orðið hafa á milli leiðtoga svartra í
landinu, sem þó tóku þátt í almenn-
um þingkosningum þar fyrir
skömmu.
í ríkisstjórninni verða aðeins full-
trúar úr flokki Muzorewa biskups og
einnig flokki lans Smiths fráfarandi
forsætisráðherra hins hvíta minni-
hluta. Bæði flokkar Sithole ættar-
höfðingja og Ndiweni höfðingja hafa
dregið sig til baka vegna ósamkomu-
lags við Muzorewa biskup. Sithole
sakaði hann um að hafa beitt rang-
indum í kosningunum, þar sem fylgi
Muzorewa reyndist langmest og fékk
hann meirihluta á þinginu.
Ekkert lát virðist vera á bardögum
við svarta skæruliða í Ródesiu, þó
svo að tilkynnt hafi verið um meiri-
hlutastjórn svartra. Tilkynnt hefur
verið um hundrað og þrjátíu fallna í
Ródesíu af völdum skæruliða siðustu
þrjá daga.
Erlendar
fréttir
Japan:
Mótmæla-
adgerðir
á afmæli
Andstæðingar Narita flugvallarins
við Tokíó beittu sér fyrir miklum
mótmælaaðgerðum fyrir helgina en
þá var ár liðið síðan hann var tekinn í
notkun. Ekki var tilkynnt um miklar
skemmdir eða manntjón en mikill
fjöldi tók þátt í aðgerðunum. Heldur
virðist þó vera að draga úr andstöð-
unni gegn Narita flugvelli þar sem
lögreglan í Tókíó tilkynnti að aldrei
hefðu færri tekið þátt i mótmælum
gegn honum en nú.
Helztu aðgerðirnar voru í því
fólgnar að loftbelgir fylltir gasi voru
látnir svífa inn yfir flugvöllum Voru
sumir þeirra nokkuð stórir og úr áli
en aðrir voru á stærð við venjulegar
leikfangablöðrur. Ekki múnu belg-
irnir hafa valdið neinum truflunum á
flugi um flugvöllinn.
Rúmlega sjö hundruð sérþjálfaðir
lögreglumenn voru við Narita flug-
völl til að taka á móti ef til óeirða
kæmi. í hópi mótmælenda bar mest á
stúdentum og bændum en þeir hafa
ávallt verið fjölmennastir í þeirra
hópi. Mikið landsvæði var tekið úr
ræktun, þegar Narita flugvöllur var
tekinn í notkun. Olli það mikilli reiði
bænda sem þar bjuggu og umhverfis-
verndunarmanna.
■liik::::::-:-:-?..:.;:::-:-
L
John Spenkelink var tekinn af Iffi i Florida fyrir helgina. Skömmu áður en það varð var móðir hans i heimsókn hjá hinum
dauðadæmda. Sést hún fara frá fangelsinu i bifreið. Þetta var fyrsta aftakan i Bandarikjunum siðan Gary Gilmore var tekinn
aflífií Utah árið 1977.
Spáð meirí verð-
bólguhraða í ár
Michael Blumenthal fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna segist búast við
aukinni verðbólgu i heiminum á þessu
ári miðað við liðið ár. Hann telur þó
ekki ástæðu til að grípa til sérstakrar
herferðar gegn henni i Bandaríkjunum
sjálfum.
Ráðherrann segir að búast megi við
um það bil 1,5% meiri hraða verðbólg-
unnar en í fyrra, þegar hún var talin
6,9% meðal stærstu iðnrikjanna.
Helztu ástæðurnar fyrir aukinni verð-
bólgu telur Blumenthal vera, að olíu-
verð hækkar og ríkisstjómir landanna
hafa oflítið taumhald í peningamálum.
Einnig segir ráðherrann að almenn
hækkun á hráefnisverði valdi nokkru
þar um, auk verulega aukinna krafna
um launahækkanir i helztu iðnríkjum.
Blumenthal hefur varað við þeirri
þróun að helztu iðnríkin eru flest með
óhagstæðan greiðslujöfnuð. Hvatti
hann alla aðila til að reyna að forðast
aukna verðbólgu og tók fram að
Bandaríkjastjórn hygðist bæði stemma
stigu við henni og sjá um að dollarinn
styrktist á alþjóða gjaldeyrismarkaði.
;
wmmz
IIÍÍ?:
Þeim þykir vissara aó vera viðbúnir öllu á bensinstöðvum 1 Kaliforniu þessa dagana. Sá sem við sjáum á myndinni er
vopnaður skammbyssu. Ætlar hann ekki að láta reiða bifreiðastjóra vaða neitt uppi en i Kaliforniu er bensinskömmtun þessa
dagana.
Máritanía:
Forsætisráðherrann
rórst í flugslysi
Björgunarsveitum hefur ekki tekizt
að finna neitt brak úr flugvél þeirri sem
fórst undan ströndum Afríkurikisins
Senegal í gær. Með henni var forsætis-
ráðherra Máritaníu og ellefu menn
aðrir.
Flugvélar og skip hafa leitað að flug-
vélinni sem var af gerðinni de Havi-
land, tveggja hreyfla. Er talið að hún
hafi hrapað i Atlantshafið í miklum
stormi sem barst frá Afríku.
Búið er að tilkynna lát forsætisráð-
herrans Ahmed Ould Bouceif opinber-
lega í Máritaníu. Hefur verið tilkynnt
fjörutíu daga þjóðarsorg í landinu.
Með í för með forsætisráðherranum
var nýskipaður sendiherra Máritaniu í
París, tveir meðlimir í þjóðlega bylt-
ingarráðinu, tveir blaðamenn og áhöfn
flugvélarinnar fimm manns.
Bouceif hafði verið forsætisráðherra
í aðeins tvo mánuði. Áður var hann
foringi i flugher landsins en tók við
völdum eftir byltingu hersins. Bouceif
var 45 ára að aldri og talinn tvimæla-
laust voldugastur í sinu heimalandi.
Ekki er Ijóst hver tekur við embætti
forsætisráðherra að honum látnum.