Dagblaðið - 30.05.1979, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979.
~^ ... | DB a ne ytendamarkaði JJóra Stefánsdóttir
Hvers virði er innbúið?:
MIKLU MQRA EN WJ HELDUR
„Fólk gerir sér almennt ekki grein
fyrir því hversu verðmætt innbú það
á fyrr en það er að einhverju leyti
skemmt,” sagði einn af tryggingar-
sérfræðingum Dagblaðsins. Til þess
að auðvelda mönnum nokkuð það
mat verður á Neytendasíðunni í dag
fjallað um hvað algengustu húsmunir
kosta nýir. Þegar tjón er metið er
miðað við munina nýja en siðan er
dregið frá verði það sem áætla má að
munirnir hafi fallið í verði með árun-
um. Það mat er misjafnt í hverju
tilliti en oftast komast þeir tryggðu
og tryggingafélögin að samkomulagi.
Sé ekki svo eru kvaddir til óvilhallir
matsmenn.
Annað en verð á hlutnum nýjum
þarf líka að hafa í huga þegar tryggt
er og það er minjagildi hans. Klukk-
an hans afa kostar ekki mikið keypt
út úr búð en hún getur verið fjöl-
skyldunni óendanlega mikils virði.
Fólk ætti að athuga áður en það
tryggir hvort tryggingin tekur til sér-
staks verðmætis af þessu tagi því ef
hún gerir það ekki gæti borgað sig að
tryggja hlutinn sérstaklega.
Flest tryggingafélög úthluta fólki
lista sem það á að fylla út sér til
hægðar þegar meta skal verðmæti
innbús. Listinn skiptir íbúðinni niður
í herbergi en síðan getur fólk fyllt út
verðmæti einstakra hluta í hverju
þeirra. Seint verður brýnt um of fyrir
fólki að tryggja sig nægilega því eins
og kom fram í fyrsta pistli þessarar
framhaldssögu fara bæturnar eftir
því hvort rétt er tryggt. En hvað
kosta þá hinir ýmsu munir sem við
eigum. DB bra sér í nokkrar verzlanir
og spurðist fyrir um verð á hlutum.
Stofan
í flestum stofum sem komið er i er
gólfteppi út í horn eða á miðju gólfi,
sófasett með sófaborði, jafnvel borð-
stofusett og veggskápar eru mjög vin-
sælir. Inni i þeim veggskápum er svo
geymt mávastell heimilisins, silfur-
borðbúnaðurinn og matarstellið sem
hjónin fengu í brúðargjöf.
Sófasett kosta i kringum hálfa
milljón í dag og upp undir heila. En
mjög skapleg sett kosta þetta í
kringum 600 þúsund og er gott að
miða við það. Sófaborð kosta í kring
um 80 þúsundir, borðstofusett, borð
með 6 stólum, kostar um 400 þúsund
og veggeiningar kosta um hálfa millj-
ón. Gólfteppi út í horn kostar varla
mikið undir hálfri milljón ef það er
til dæmis á stofu og gangi.
Verðið á silfurmunum og matar-
og kaffistellum er mjög misjafnt en
þó er ekki fjarri lagi að venjulegt
heimili eigi fínan borðbúnað fyrir
svona milljón. Þá er miðað við að
hjónin séu búin að búa lengi og eigi
orðið mávastell fyrir 12, fínt matar-
stell fyrir aðra 12 og silfurborðbúnað
í mat og kaffi fyrir annað eins. Auð-
vitað eiga ekki allir svona mikið en
þetta er sett hér fram til þess að fólk
geti gert sér grein fyrir hve þessir
hlutir eru miklu dýrari en menn halda
í fyrstu.
Málverk á veggjum og tjöld fyrir
gluggum eru nokkuð sem erfitt
reynist að slá á hvað kostar. Málverk
eru nú komin upp i milljón krónur
stykkið ef þau eru keypt hjá þeim
listamönnum sem dýrastir eru.
Gluggatjöld gætu kostað um 30 til 50
þúsund eftir stærð og gerð.
Einhvers konar hljómfiutnings-
tæki og útvarp og sjónvarp eru í vel-
flestum stofum. Það má fá ódýra
samstæðu útvarps, plötuspilara og
kassettubands fyrir rúmar 200 þús-
und krónrr. tn fiti merki, þar sem
magnari er keyptur sér, útvarp sér,
fónninn sér og svo framvegis, eru
mörgum sir.num dýrari. Litsjón-
varpstæki kosta orðið rúma hálfa
m’ ljón en svarthvít sjónvarpstæki er
v egt að fá fyrir lítið sem ekkert séu
jkeyptnotuð.
Hjónaherbergi
í hjónaherberginu er vanalega ekki
mikið nema rúmið. Eða er það?
Hvað meö náttborðin og öll fötin
sem eru í klæðaskápnum. Föt eru
glettilega dýr ef fjölskyldan sleppur
út á náttfötunum einum og þarf að
fata sig upp algjörlega.
Hjónarúm kostar orðið á milli 2 og
3 hundruð þúsund krónur. Ef nátt-
borð fylgja fer verðið um og yfir 400
þúsund. Föt á hjónin eru náttúrlega
eins misjafnlega dýr og hjónaböndin
eru í landinu. Þó er ekki fjarri lagi að
ætla að ef hjónin ætluðu að kaupa al-
gjörlega ný föt þyrftu þau til þess á
milli hálfa og heila milljón. Ný
Gólfteppið er liður sem ekki mó gleymast. Fermetri af stofuteppi líku þessu
kostar um 8 þúsund krónur en verð á fermetra stofuteppa er á milli 6 og 20 þús-
und kr. Teppi sem ekki eru eins þétt ofin en ætluð til herbergisnota kosta um 5
þúsund krónur fermetrinn. Laus teppi á stofuna eru enn dýrari, kosta um 20—
50 þúsund krónur fermetrinn, enda teppin yfirleitt handofin. Teppi á heila 4
herbergja fbúð gætu þá kostað f kringum hálfa milljón.
Hjónarúmið á myndinni er i dýrari flokki rúma, þar sem það er með inn-
byggðri klukku og útvarpi. Það kostar 380 þúsund og 487 þúsund ef nátt-
borðið á veggnum fylgir.
Svona veggeiningar eru mjög vinsælar i seinni tið. Þessi gerð kostar 450 þús-
und og er frekar i ódýrari verðflokki.
Sófasettið á myndinni kostar 550 þúsund og sófaborðið 80 þúsund,
Borðstofusett eins og þetta kostar 420 þúsund miðað við að 6 stólar fylgi borð-
inu. Hægt er að fá mun ódýrari húsgögn af þessu tagi, allt niður i 200 þúsund
kr.
DB-myndir Hörður
sængurföt myndu kosta 1—2
hundruð þúsund.
Barnaherbergi
í herbergjum barnanna eru oftast
svefnbekkir, borð til að læra við og
leikföng. Barnasvefnbekkir kosta
orðið á milli 80 og 90 þúsund krónur.
Leikföng bamanna og föt má meta á
ein 300 þúsund og borð og stól á um
100 þúsund.
Aðrir hlutir
Enn er ekki allt upp talið. Eftir á
að meta ýmsa lausamuni sem eru í
herbergjum og á göngum. Hvað
kosta til dæmis ný ljós? Hvað kosta
ný eldhúsáhöld, diskar, boilar, glös,
pottar og svo framvegis. Þetta reynist
ómögulegt að slá á því þessir hlutir
eru misjafnlega dýrir. Þó má áætla
að ekki sé fjarri lagi að bæta við
hálfri milljón eða heilli vegna slíkra
hluta.
Leðurstólar af þessu tagi kosta um
200 þúsund krónur.
skrö yfir innbú. gerð_______________________19______
/skrAyfir HEIMILIS- VEROMÆTI 1 HINUM ÝMSU HERBERGJUM
Stoto BorBotolo Foro.olo Svotnhorb Bornohorb Eldhúo Goymolo BDokúr
Hútgogn
Toppi
Gluggatjold
MAIvdrk
Ldmpar
Bakur
Lairmunic
BorBbúnoBur
SiHur o.B.
Otvsrp—kjónv
Hl|6mll ..ki
Skkr.gripir
Ytri totn.
N.rlot. Iln
EldhútAkold
ÍukApur
ForBobúnoBur
SAMTALS KR. ^ J
yfirlit
STOFA-------------KR_________
BOROSTOFA_________v»
FORSTOFA__________KR_________
SVf FNHERBERGI----KR---------
BARNAHERBIRGI-----KR ______
ELOHUS------------KR_________
GEYMSLA-----------KR _______
SAMTALS KB
Lista líkan þessum fá menn hjá þeim
tryggingafélögum sem þeir skipta
við. Gefið ykkur tima til að fylla
hann út.
Láti menn sér ekki nægja að hafa
teppi á gólfum i stofunni heldur
teppaleggi út í hom í herbergjum líka
eykst verðmæti innbúsins enn. Líka
þarf að athuga ef fólk hefur geymslur
eða bílskúra hversu verðmætt það er
sem í þeim er.
ísskápurinn er orðinn 250 þúsund
króna virði og þvottavélin kostar á
milli 2 og 3 hundruð þúsund. Elda-
vélin kostar tæp 200 þúsund og tau-
þurrkari annað eins.
Tryggingafélögin brýna umfram
allt fyrir mönnum að gefa sér tíma í
þetta mat og vanmeta ekki verðmæti
þess sem þeir eiga.
- DS
✓