Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 14
 14 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ1979. Allir veðja á Nottm. Forest —úrslitaleikur Evrópubikarins í Miinchen íkvöld „Þetta er aðeins spurning um form leikmanna á kvöldinu. Við höfum eng- an áhuga á öðru. Möguleikarnir eru 50- 50,” sagði Bob Houghton, hinn 32ja ára Lundúnabúi, sem þjálfað hefur Malmö FF síðustu fimm árin, í Múnchen í morgun. í kvöld verður úr- slitaleikurinn i Evrópubikarnum háður á ólympíuleikvanginum í Múnchen — þá leika Nottingham Forest og Malmö FF — en þó Houghton sé kokhraustur veðja allir á sigur Forest. En Malmö gæti þó komið á óvart. Liðið hefur aðeins fengið á sig eitt mark í keppn- inni — slegið út fræg lið eins og t.d. Dynamo Kiev. En það háir Svíum í kvöld að tveir af sterkustu varnar- mönnum liðsins, Bo Larsson, sem leikið hefur 71 landsleik.og Roy Andersson, geta ekki leikið vegna meiðsla. Stjóri Forest, Brian Clough, hefur ekki viljað spá um úrslit. Þrír af leik- mönnum hans eiga við meiðsli að stríða — Archie Gemmill, Frank Clarke og Martin O’Neil. „Ég hefði viljað hafa Gemmill, O’Neil og Trevor Francis í liðinu — en þaðverður ekki þannig,” sagði Clough. „Við getum ekki haft þá allaþrjá.” Malmö hefur skorað átta mörk í leikjum sínum i Evrópubikarnum og tengiliðurinn Anders Ljungberg skoraði þrjú þeirra á 23 mín. kafla gegn Wisla Krakow. Hann er elzti maður sænska liðsins, 32ja ára. Forest hefur skorað 18 mörk í Evrópuleikjum sínum og miðherjinn ungi, Gary Birtles, hefur skorað sex þeirra. Mikill viðbúnaður er hjá lögreglunni i Múnchen. Tuttugu þúsund Eng- lendingar eru komnir til borgarinnar — og einnig er búizt við þúsundum Svía. Næturflug var leyft til Múnchen í nótt og létti það mjög á áhyggjum lögreglu- mannanna, því næturflug hefur verið bannað þar að undanfömu. Lögreglan óttaðist að þúsundir kæmu einum til tveimur dögum fyrir leikinn og það gat haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með sér. Liðsskipan hefur ekki verið gefin upp endanlega en reiknað er með að liðin verði þannig skipuð. Malmö FF: Möller, Roland Anders- son, Magnus Andersson, Jonsson, Er- lendsson, Prytz, Tapper, Ljungberg, KinnvaU, Hansson, Cervin. Nottingham Forest: Shilton, Ander- son, Lloyd, Burns, Clarke (eða Bowyer), McGovern, GemmUl, Fran- cis, Birtles, Woodcock og Robertson. í liði Malmö eru því fimm af HM- leikmönnum Svía, sem léku í Argentínu í fyrra — en tveir, Bo Larsson og Roy Anderssott, geta ekki leikið vegna meiðsla eins og áður er getið. VeðmáUn standa Forest mjög í hag — eða 6-1 og allar líkur benda til þess að Evrópubikarinn hafni á Englandi þriðja árið í röð. Liverpool sigraði í þessari keppni 1977 og 1978. Knötturinn svifur yflr Ólaf markvörð Þróttar eftir hafnaði i þverslá og hrökk út á völlinn aftur. Fyrsti \ sigurini —Víkingursigraöi „Ég er ánægður með að hafa hlotið tvö stig úr þessum leik — við vorum satt að segja hræddir við leikinn við Þrótt því fyrir hann voru sjö leik- menn Víkings í meðferð vegna meiðsla. Ekki hægt að ákveða liðið fyrr en á síðustu stund — mikil spurning hvort þrír leikmenn kæmust í gegnum upphitun fyrir leikinn,” sagði Sigurður Bjarnarson, formaður knattspyrnudeildar Vík- ings, eftir að Víkingur hafði sigrað Þrótt 2-1 á aðal-leikvanginum i Laugardal í 1. deild i gær- kvöld. Þar með hlaut Víkingur sín fyrstu stig í 1. deild í ár — vann sanngjarnan sigur — en Þróttur hefur enn ekki hlotið stig. Hinir ungu leikmenn Þróttar þurfa þó ekki að örvænta — þar er mikill efniviður fyrir hendi og allgott spil. Páll Ólafsson og Ágúst Hauksson snjallir leik- menn. Víkingur er greinilega í sókn undir stjórn dr. Youri flitchev. Það er farið að bregða fyrir fal- legum samleiksfléttum í sóknarleik hinna nettu leikmanna Sigurlásar Þorleifssonar, sem þó lék haltur mest allan leikinn, Óskars Tómassonar og Lárusar Guðmundssonar. Að baki þeún er sterk framvarðalína, Heimir Karlsson, bezti maður liðsins i leiknum þrátt fyrir meiðsli, sem að lok- um knúðu hann til að yfirgefa völlinn, Hinrik Þórhallsson og Gunnar örn Kristjánsson. Vörn- in er hins vegar vandamál þó Róbert Agnarsson vinni flesta skallabolta. Þróttur byrjaði betur í leiknum án þess að skapa sér færi — en fyrsta opna færið fékk Sigurlás á 11. mín. Spyrnti framhjá Þróttar- markinu. Eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn náði Víkingur góðum tökum á leiknum. Hinrik átti hörkuskalla í þverslá og þaðan hrökk knött- urinn til Óskars, sem var brugðið innan vítateigs án þess ágætur dómari leiksins, Guðmundur Har- aldsson, sæi ástæðu til að dæma vítaspyrnu. Þá varði Ólafur Ólafsson, markvörður Þróttar, hörkuskot frá Óskari, sem hafði fengið knöttinn eftir aukaspyrnu — drap knöttinn niður með brjóstinu og hleypti viðstöðulaust af — en Ólafur varði snilldarlega. Þróttur byrjaði einnig betur i síðari hálfleik og í Halldór Arason átti fastan skalla á Víkings- markið á 47. mín. Sigurjón Elíasson, mark- vörður Vikings, varði mjög vel — og á 54. mín.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.