Dagblaðið - 18.06.1979, Síða 1
w
!
i
i
i
i
i
i
i
Í
i
i
i
i
i
5
!
i
i
i
i
i
fríálst
úháð
dagblað
5. ÁRG. — MÁNUDAGUR 18. JUNÍ 1979 — 135. TBL.
RITSTJORN SIÐUMULA 12. AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVFRHOI.TI 11.—AÐAI.SÍMI 27022.
RAÐHERRAR TILBUNIR
MED LÖG A FARMENN
—en Alþýðuf lokks- og Alþýðubandalagsráðherrar þurfa að ná í umboð
—Fer sáttanef nd fram á sólarhrings f rest?
Ráðherrar úr öllum flokkunum eru
klárir í bátana með lög lil að stöðva
farmannaverkfallið. Yrði sáttatillaga
þá væntanlega lögfest með einhverj-
um breytingum. Ráðherra Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags skortir
þó enn umboð frá stofnunum flokka
^sinna, eigi slik lög að verða sett án
mikils hvells í þeim flokkum.
Gert var ráð fyrir i morgun, að
sáttanefnd i farmannadeiiunni bæðt
rikissljórnina um frest í cinn sólar-
hring enn. Nefndin gengur i dag á
fund rikisstjórnar, sem tekur málið
til umræðu. Ráðherrar gerðu í morg-
un ckki ráð fyrir lagasetningu i dag.
Hugsanlegt er, að lög verði sett á
farmenn en önnur lagasmíð i kjara-
og efnahagsmálum látin biða aðeins.
í þeim efnum eru stjórnarflokkarnir
ekki sammála eins og fram hefur
komið. Þar er um að ræða iögfest-
ingu 3°/o grunnkaupshækkunar en
deilt um, hvort þá cigi aö frysta kaup
eftir það. Deilt er um, hvernig standa
eigi að lausn olíuvandans og afla
ríkissjóði tekna hans vegna. Fram-
sóknarmenn leggja þar áherzlu á
óbeina skatta, sem ekki komi inn i
kaupvisitölu, svo sem til dæmis við-
lagagjald á vöruverðið.
Ráðhcrcar sögðu i morgun, að
slikur ,,pakki” væri ekki frágenginn.
Ólafur Jóhannesson forsætisráð-
herra sagði í þjóðhátíðarræðu sinni i
gær um farmannaverkfallið, að ,,á
það verkfal! verður að binda endi og
það án tafar”. Hann vitnaði einnig í
Þorgeir Ljósvetningagoða um tlauð-
syn málamiðlunar og gaukaði þvi að
farmönnum að ,,ef vér slitum lögin,
þáslítum vcr friðinn".
- HH
Milljónaviðgerð nauðsynleg
—þarsem steypan íjieðri hluta hússins varsvikin — sjá bls. 5
l)B-mynd Hörður
Hin f ræga
sjónvarps-
ræða Sig-
urðar Líndal
-sjábls. 10-11
Að gæta sín
ásjálfumsérj
— viðtal við Dick
Higgins
— sjá bls. 13
Fullir f rysti -
klefarað
stöðva fisk-
vinnsluna
— sjá bls. 21
MARGIRVIUA
SÝNA
HÆFILEIKANA
Áhugi fyrir hæfileikakeppni
hljómsvcitar Birgis Gunnlaugs-
sonar og Dagblaðsins er prýðis-
góður. Mikið hefur verið spurzt
fyrir um hana og hæfileikafólk
víða að af landinu hefur látið skrá
sig til kcppni.
Vegna formsins á keppninni
verður að binda fjölda þátttak-
enda við þrjátíu og sex. Birgir
Gunnlaugsson hljómsveitarstjóri
skráir nýja þátttakendur og veitir
nánari upplýsingar um keppnina i
kvöld og næstu kvöld i sinta
77616.
Sjá nánar bls. 22.
Hellirigndi á
17. júní en
mannmergð
ímiðbæ
Reykjavíkur
engu að síður
— sjá bls.8-9
Mátaði
tölvunaí
13 leikjum
— sjá bls. 21