Dagblaðið - 10.12.1979, Síða 4
:rókur
50.018
Kópavogur
. GartUa 28.544 . j
SandSeröias.tSTj
KelWitc 24.7431
WjwðvSt 38.813'
Grindavik 29
Lítið vöruúrval og
hátt verð en samt
langlægsta meðaltalið
Þegar meðaltalskostnaðurinn í hin-
um ýmsu byggðarlögum er skoðaður
kemur i ljós að einn staður, Borgar-
fjörður eystri, er langlægstur. Þar er
meðaltalið 9.272 kr.l Aðeins kom
einn seðill frá þessum stað og með
honum fylgdi bréf. í því segir m.a.:
„Það voru mikil viðbrigði að flytja
hingað austur hvað varðaði vöru-
úrval. Það er mjög lítið hér og allir
hlutir dýrari en í höfuðborginni. Það
er t .d. ótrúlegt að það geti kostað 300
kr. að flytja einn djúsbrúsa hingað
austur á land.
Hér vantar líka hitaveituna. Það er
mjög dýrt að kynda hús hér. Flestir
eru með olíukyndingu og margir,
þurfa að greiða allt að milljón kr. í
hitakostnað á ári. í bænum er
kostnaður við að hita samsvarandi
íbúð ekki nema um 100 þúsund kr. á
ári. Að mínu mati er þvi miklu dýrara
að búa úti á landi en í Reykjavik, i
það minnsta þar sem ekki er hita-
veita.”
Þar sem okkur þótti kostnaðurinn
ótrúlega lítill hjá þessari fjölskyldu
hringdum við austur í Borgarfjörð.
Sendandi seðilsins fullyrti að hún
hefði skrifað allt skilmerkilega niður
sem keypt hefði verið. Hins vegar var
ekkert kjötmeti í þessari upphæð.
Við spurðum nánar út í lítið vöru-
úrval sem getið var um í bréfinu.
„Þaðer sjaldan eða aldrei til nýtt
grn’nmeti og litið úrval er af
ávöxtum. Appelsínur, epli og banam
ar koma einu sinni i viku og eru þá
lljúlir að seljast upp. Einnig kemur
oft fyrir að ávextirnir virðast vera
komnir á „siðasta snúning”, í það
minnsta bananarnir,” sagði bréf-
ritarinn.
Við höfum stundum leitt að þvi
hugann hér á síðunni hvers vegna
meðaltalskostnaðurinn á hvern þann
sem búsettur er á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu hafi jafnan verið hærri
heldur en á þann sem býr úti á lands-
byggðinni. Okkur hefur komið
einmitt til hugar að skýringin væri
fólgin í því að vöruúrvalið er miklu
minna víðast hvar annars staðar en í
höfuðborginni. Það er hreinlega
miklu færra sem freistar neytenda í
verzlunum úti á landi.
Þetta er kannski að breytast, i það
minnsta er landsbyggðarmeðaltalið
hærra en höfuðborgarmeðaltalið nú
í október. Annars er varla von til þess
að vöruúrval geti verið mikið i
kauptúnum sem telja ekki nema
nokkur hundruð manns. Einu sinni
gerðum við athugun á því hve margar
tegundir af tannkremi væru til í
Grímsey. Þær reyndust vera tvær.
Önnur með flúor og hin án þess. Þær
voru hins vegar báðar á „eldgömlu”
verði, sem var mun lægra en almennt
gerist í verzlunum í höfuðborginni!
-A.Bj.
Meðaltalið af landsbyggðinni
komið yfir Stór-Reykjavíkursvæðið
—Verð á mat- og hreinlætisvörum hefur hækkað um 11% úti á landi og6% í Reykjavík, síðan í sept-
Nú hcfur það gerzt i fyrsta sinn
cftir að við lorum að bera saman
kostnað við heimilishald í hinum
ýmsu sveitarfélögum landsins að
Stór-Reykjavikursvæðið er með
lægra meðaltal en landsbyggðin. Það
bendir til þess að verðlagið stígi
hraðar úti á landi en i höfuðborginni
og nágrenni hennar. Meðaltalskostn-
aður á hvern mann á landinu í októ-
ber, án tillits til fjölskyldustærðar,
reyndist vera 36.566 kr. Meðaltalið á
hvern mann á Stór-Reykjavíkur-
svæöinu reyndist 35.588 kr., eða
aðeins lægri en landið i heild. Ef
tekið er meðaltal af öllu landinu að
frádregnu Stór-Reykjavikursvæðinu
verður talan 36.723 kr.
Ef við þerum saman þennan
meðaltalskostnað í október og sept.
sl. kemur fljós eftirfarandi:
Sept. Okt. Hækkun milli mán.
Allt landið 33.113 36.569 10%
Stór-Reykjav. Allt landið án 33.459 35.588 6%
Stór-Reykjav. 33.065 36.722 11%
Á samanburðinum sést að
hækkunin frá því í september hefur
orðið meiri á landsbyggðarmeðaltal-
inu eða 11% á móti 6% hækkun á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
-A.Bj.
Góðar kókoskökur
125 g kókósmjöl
125 g smjörl.
125 g hveiti
125 g sykur
1 lítifl egg
öllu hnoðað saman á venjulegan
hátt. Búnar til litlar kúlur úr deiginu,
látnar á plötu með smjörpappír ofan
á. Þá er þrýst ofan á kökurnar með
gaffli sem difið hefur verið ofan i
skál með heitu vatni.
Kökurnar bakast við 200°C hita í
um það bil 10 minútur þangað tit þær
eru Ijósbrúnar og gegnumbakaðar.
Geymast í luktri blikkdós.
Hráefniskostnaður er í kringum
498 kr. Deigið nægir i að minnsta
kosti 60 kökur, þannig að hver kaka
kostar því rúml. 8 kr. stykkið.
-A.Bj.
Kókosmjöl er ákaflega gott I allan bakstur. Þessar kökur eru stökkar og bókstaf-
lega bráðna I munni.
^öfa'HomiWÍi 4&331
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
DB á ne yt$ndamarkaði
TálkhaQörður
32.t