Dagblaðið - 10.12.1979, Page 8

Dagblaðið - 10.12.1979, Page 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979. ,Pabbi, afhverjuláta þeir ekki klippa sig' spurði barn föður sinn og fannst nóg um útganginn á Hurðaskelli og Kertasniki. Kertasníkir og Hurða skellir sprelluðu — einstaka ungviði stífnaði upp af skelfingu þegar þeir nálguðust Fólk á öllum aldri, skrautleg Ijós, lúðrahljómur, grenitré, jólasveinar og jólaskap. Allt á einum stað við Fáks- heimilið í gærdag. Þá byrjuðu félagar í Kiwanisklúbbnum Elliða að selja borgarbúum greintré og greinar til að skreyta með híbýli sín um jólin. Kiwanismenn nutu fagmannlegrar áðstoðar Hurðaskellis og Kertasnikis sem mættir voru á staðinn ofan af fjöll- um. Þeir rauðklæddu félagar heilsuöu upp á krakkana við misjafnar undir- tektir. Einstaka ungviði stífnaði upp af skelfingu við að sjá þessi síðhærðu og síðskeggjuðu voðamenni nálgast sig. önnur létu sér nærveru þeirra vel líka og áræddu jafnvel að skriða upp í fang- ið á þeim. Lúðrasveit Árbæjar og Breiðhoits blés lög sín yfir viðstadda af hjartans lysi Þau voru ekki öfundsverð krakk- .irntr af þvi að norpa úti í kuldanum meö básúnur og trompeta og blása lög út úr þeim verkfærum. Kertasníkir og Hurðaskcllir eru ekki á förum úr borginni alveg strax. Þeir hafa komið sér upp leiguhúsnæði á Njálsgötunni og halda þar til um sinn. Á sunnudaginn koma þeir aftur að Fáksheimilinu og sprella dálítið eins og þeim einum er lagið. Og núna í vikunni langar þá til að líta inn hjá Steingrími og félögum, gefa epli á línuna og góð ráð í stjórnar- myndunarstreðinu. Þeir hafa þá bjarg- föstu trú að eitt epli á mann geti gert gæfumuninn. Bara að stjórnmála- mennirnir lendi ekki á sömu gerð af eplum og ræfillinn hún Mjallhvít forð- um. Þá yrði litið úr stjórnarmyndun fyrst um sinn. - ARH Mesta úrval landsins af ÚTVARPSKLUKKUM 12 gerðir VERÐ FRÁ KR. 24.400, Þessi var ekki vitund hrædd við jóla- sveininn og þorði meira að segja að toga i skeggið á honum. DB-myndir Hörður. Ölvun íEyjum: Brotizt inn í rakarastofu Brotizt var inn í rakarastofu á Skólavegi 8 í Vestmannaeyjum aðfaranótt sunnudagsins. Þaðan var stolið þremur hljómsnældum en allt annað látið vera. Þó voru í stofunni dýr tæki, svo sem segul- bandstæki með áföstum hátölur- um og magnara. Þjófarnir brutu upp einar dyr og brutu gler í ann- arri hurð. Þá var stolið rafgeymi úr bíl við heimahús sömu nótt. Þjófarnir voru ófundnir síðdegis í gær. Talsverð ölvun var í Vest- mannaeyjum um helgina enda landlega. Dansleikir voru föstu- dags- og laugardagskvöld, en þar gekk allt „stórslysalaust,” eins og lögreglan orðaði það. -ÓV Húsaleigunefnd er tekin til starfa: VEITIR ÚRLAUSN í ÁGREININGI — leigusala og leigutaka. Kveður til sérstaka úttektarmenn er ágreiningsefni koma upp „AUir þeir sem á einhvern hátt telja sig vanhaldna af sínum húsa- leigusamningi — eöa túlkun á honum — §gta snúið sér til húsaleigunefndar skriflega sem mun leitast við að veita úrlausn eftir beztu getu og benda á hugsanlegar lausnir. Einnig yrði nefndin þakklát þeim aðilum, sem gætu komið á framfæri upplýsingum til nefndarinnar um framkvæmd húsaleigumála í Reykjavík.” Þannig segir m.a. í fréttatilkynningu er blað- inu hefur borizt frá húsaleigunefnd Reykjavíkur er var skipuð af Borgar- stjórn Reykjavíkur þann 28. ágúst sl. Hlutverk nefndarinnar er sam- kvæmt lögum um húsaleigusamninga að: 1) fylgjast með framkvæmd húsa- leigumála og afla upplýsinga um þau, 2) hlutast til að úttektarmenn séu dómkvaddir, 3) gefa aðilum leigumála, sem þess óska, leiðbeiningar um ágreinings- efni og leitast við að sætta ágreining ef báðir aðilar óska. í fréttatilkynningunni vekur húsa- , leigunefnd athygli á, að alla leigu- samninga skuli gera skriflega og um þá gildi aöeins sérstök eyðublöð sem félagsmálaráðuneytið gefur út eða hefursamþykkt. Þá er vakin athygli á hlutverki út- tektarmanna. Þeir eru sérstaklega dómkvaddir af óhlutdrægum aðila, borgardómi Reykjavikur að tilhlutan húsaleigunefndar. Af störfum úttektarmanna er m.a. .nefnt að þeir ákveða sanngjarna fjár- hæð leigu, ef leigusali getur ekki sýnt fram á hversu háa fjárhæð leigutaki hefur samþykkt. Ef ekki er sinnt úr- bótum eða viðgerðum á leigðu hús- næði getur leigutaki dregið útlagðan kostnað sinn vegna viðgerða frá um- saminni leigu með samþykki úttekt- armanna. Úttektarmaður gefur skrif- lega lýsingu á húsnæði við upphaf og lok leigutíma, ef aðilar óska. Þeir sem óska aðstoðar úttektar- manna snúi sér símleiðis eða bréf- leiðis til skrifstofu borgarstjóra, sími 18800, en kostnað af vinnu úttektar- manna greiða aðilar sjálfir. - GAJ Kór meistaraflokks KR. Meistaraflokkur KR syngur inn á plötu Meistaraflokksmönnum KR í knatt- spyrnu er fleira til lista lagt en að skora mörg. Nýkomin er á markaðinn hljómplata með söng þeirra. — Þetta mun vera í fyrsta skipti, sem knatt- spyrnulið tekur sig til og syngur inn á plötu. Á þessari fyrstu KR-plötu eru tvö lög. Þau eru „Áfram KR” og „Mörk”. Árni Sigurðsson samdi bæði lögin. Hið fyrra er baráttusöngur KR- inga, en seinna lagið segir frá knatt- spyrnuaðdáanda nokkrum, sem dreymir um að sjá mörk og aftur mörk. Að sjálfsögðu eru það eingöngu KR- ingar, sem sjá um undirleik á plötunni. Þeir eru Jónas Þ. Þórisson píanóleik- ari, Ragnar Sigurðsson leikur á gítar, Kristinn I. Sigurjónsson á bassa, Þor- leifur Gíslason og Stefán S. Stefánsson á saxófóna og útgefandi plötunnar Guðjón B. Hilmarsson hægri bak- vörður í KR á trommur. Lagahöfund- urinn, Árni Sigurðsson sér um söng á plötunni með liðsmönnum meistara- flokks KR. Hann leikur einnig með á belggítar. Upptakan fór fram hjá Tóntækni hf. í byrjun síðasta sumars. Upptöku- maður var Sigurður Árnason. - ÁT TJALMÐ AF STAD 0GUPPÁNÆSTA Snarpar vindhviður gengu yfir borgina aðfaranótt sunnudagsins og um miðnættió náði ein að svipta upp kúnstugu tjaldi, sem búið var að koma upp á útimarkaðnum á Lækjartorgi. Fauk tjaldið — kúlulaga og snjóhúslegt — upp á næsta tjald. Lögreglan var kölluð til og aðstandendur tjaldsins, sem tóku það niður og fóru með heim. önnur tilraun verður gerð með það. DB-mynd- S Þ

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.