Dagblaðið - 10.12.1979, Page 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
Þad spillir ekki fyrir
frægðinni
aðveratvíburar
Mikla athygli vekur jafnan ef
systur taka upp á þvi að koma fram
opinberlega á einhverju sviði, til
dæmis sem tízkusýningarstúlkur.
Ekki spillir ef þær eru tvíburar og
langbezt ef þær eru eineggja. Þá er
framtíðin björt.
Þessar tvær, sem við sjáum hér á
myndinni sætar og rjóðar (hvaða
vitleysa, þetta er svart/hvít mynd)
heita Sharon og Tina Bond. Þær
fallast fúslega á að það hafi verið
þeim mjög til framdráttar á frama-
brautinni að vera eineggja tvíburar —
þær hafa sumsé lagt sönglistina fyrir
sig síðan þær voru tólf ára gamlar og
nú hafa þær verið í „bransanum” i
fimm ár. Glöggir lesendur ættu því
að eiga auðvelt með að reikna út
aldurþeirra.
Sharon og Tina hafa nýlega sungið
inn á sína fyrstu tveggja laga plötu.
Aðallag hennar heitir Pretty Boy
(Sætur strákur).
Róm:
Tvær miklar
sprengingar
—níu slasast á skrif stof u brezka og
ísraelska f lugfélagsins
Ný og áður óþekkt hreyfing sem
kallar sig armensku andspyrnu-
hreyfinguna hefur lýst sig ábyrga fyrir
sprengingunum. Sá sem hringdi áskrif-
stofur Reuter fréttastofunnar í Róm og
lýsti sökinni á hendur hreyfingunni
sagði að flugfélögin tvö hefðu verið
valin sérstaklega og tilgangurinn væri
að berjast gegn tyrkneskum fasistum
og nýlendusinnum i heiminum. Var
beðið afsökunar á þvi að saklaust fólk
skyldi verða fórnardýr sprenginganna.
Af þeim niu sem slösuðust urðu
itölsk hjón einna alvarlegast úti. Flestir
slösuðust í síðari sprengingunni sem
varö fyrir utan brezka flugfélagið. Var
það fólk sem kom aðvífandi er það
heyrði sprengingarnar frá skrifstofu El
Al. í nóvember síðastliðnum lýsti
önnur hreyfing Armeniumanna sök á
hendur sér vegna sprenginga við skrif
stofur tyrkneska flugfélagsins í Róm og
Milanó.
Thailand:
Herinn stöðvar vatns-
og matarsendingar
Thailenski herinn hefur undan-
farið hvað eftir annað komið í veg
fyrir að matur og vatn væri flutt til
fióttamannabúða sem eru rétt innan
landamæra Kambódíu. Samkvæmt
fregnum fráThailandi er ástandið nú
orðið mjög alvariegt i búðunum sem
víðar en þar eru nú um það bil tvö
hundruð þúsund manns.
Stjómendur búðanna, sem eru
Kambódíumenn hafa hingað til
neitað fólki þar um leyfi til að halda
áfram til Thailands. Aðeins i fárra
kílómetra fjarlægð eru móttöku-
stöðvar fyrir flóttamenn innan landa-
mæra Thailands.
Fulltrúi Rauða krossins, sem
komið hefur til búðanna í Kambódíu,
segir að ekki séu matarbirgðir þar
nema til þriggja daga og vatns-
skortur séu orðinn þar tilfinnanlegur
nú þegar.
Thailenzk yfirvöld hafa tilkynnt 'að
ekki verði heimilaðar matar- og
vatnssendingar til búðanna innan
kambódísku landamæranna fyrr en i
það minnsta átta þúsund manns fái
að fara þaðan daglega til Thailands.
Fulltrúar þeirra hjálparstofnana sem
aðstoða flóttafólkið hafa þungar
áhyggjur af ástandinu. Einn þeirra,
Walter Nichler, sagði í Bonn fyrir
nokkrum dögum að líklega væri
ástandið meðal fióttafólks frá
Kambódíu að ná hámarki hörmung-
anna um þessar mundir. Hryllingur
hungurs og bjargarskorts væri nú
fyrst að byrja.
Níu manns, þar af tveir Kanada-
menn og vestur-þýzkur prestur
slösuðust er sprengja sprakk á skrif-
stofum tveggja flugfélaga í Róm í gær-
kvöld. Voru þar brezka flugfélagið
British Airways og El Al, ísraelska
fiugfélagið.
i AÐ SNÚA HEIM. Eftir áralanga baráttu f útlegð eru nú loks allar horfur á að skæruliðaleiðtogarnir Joshua Nkomo, til
vinstri á myndinni, og Robert Mugabe fái að snúa aftur til Zimbabwe'Ródesfu. Samningar eru um það bil að takast á milli
þeirra og Muzorewa biskups og forsætisráðherra rikisstjórnarinnar i Salisbury.
Erlendar
fréttir
íranogBandaríkin:
Vánce leitar háfama
um viðskiptabann
Bandaríkjamenn vinna stöðugt að
þvi að finna leiðir til að gíslamir í
bandaríska sendiráðinu i Teheran
verði látnir lausir. í gærkvöldi flaug
Cirus Vance, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, til Evrópu en þar
hyggst hann ræða við forustumenn í
bandalagsríkjum lands síns um
möguleika á viðskiptabanni á íran.
Sabeq Qotbzadeh, utanríkis-
ráðherra írans, sagði aftur á móti i
gær að land hans gæti auðveldlega
staðizt slíkt bann eða aðrar efnahags-
legar þvinganir. — Við getum
raunverulega fengið allt sem okkur-
lystir hvaðan sem er úr heiminum,
nema þá frá Bandaríkjunum sagði
ráðherrann i sjónvarpsviðtali sem
tekið var í Teheran en útvarpaö um
Vestur-Evrópu og Bandaríkin í gær.
Hann ítrekaði fyrri yfirlýsingar
írönsku stjórnarinnar um að gíslarnir
yrðu leiddir fyrir rétt og þar
kannaður þáttur þeirra í banda-
rískum afskiptum í íran síðastliðinn
aldarfjórðung. Farið yrði líkt að og
við bandaríska dómstóla og valdir
yrðu kviðdómendur. Mundi það taka
um það bil tíu daga að sögn íranska
utanríkisráðherrans.
Haft var eftir heimildum meðal
ættingja gislanna i bandaríska
sendiráðinu að Jimmy Carter Banda-
ríkjaforseti hefði sagt þeim að hann
mundi leita eftir að allsherjar
viðskiptabann yrði sett á íran efi
gíslarnir yrðu leiddir fyrir rétt.
Vance, bandariski utanrikis-
ráðherrann, mun hafa skamma
viðdvöl í London, París, Róm og
Bonn og ræða þar husanlegar efna-
hagslegar aðgerðir gegn íran eins og
áður sagði. Vitað er að nokkrir
sendimenn frá ríkjum i Vestur-
Evrópu og Miðausturlöndum hafa
farið til Teheran og beðið gíslunum
griða. Ekki hefur Bandaríkjastjórn
viljað viðurkenna neinn þátt i þeim
ferðum og sagt að sendimennirnir
hefðu engin umboð til samninga.
Amnesty Intemational:
4 ARA FANGELSIFYRIR
IRÚARATHAFNIR SÍNAR
—Gregory Sekack í Sovétríkjunum einn af fímm samvizkuf öngunum sem
íslandsdeildin starfar fyrir
„Hann var dæmdur í apríl árið
1976 til fjögurra ára fangelsisvistar
fyrir trúarathafnir sinar. Gregory
Sekack hafði verið prestur í rétl-
trúnaðarkirkjunni þangað til árið
1962 en þá var hann rekinn úr henni
fyrir að leyfa börnum að taka
þátt í messum, samkvæmt fregnum
úr sovézku dagblaði.
Gregory Sekack er einn þeirra fimm
samvizkufanga sem íslandsdeild
Amnesty Internalional samtakanna
hefur starfað fyrir á þessu ári. Hann
er frá Sovétríkjunum.
Félagar í Amnesty International
um allan heim störfuðu á síðast-
liðnu starfsári (30.4 ’78 til 30.4. ’79).
fyrir 4153 samvizkufanga. Þar af
voru rúmlega fimmtán hundruð nýir
aðilar.
í skýrslu Amnesty International
segir að víða í rómönsku Ameriku
hafi verið haldið áfram þeirri iðju
að láta pólitíska andstæðinga
hverfa sporlaust. Siðan finnist líkin
löngu eftir að fórnarlömbin hafi
verið tekin höndum. í þessu sam-
bandi eru nefnd lönd eins og Argen-
tína, Chile, Kólombía, E1 Salvador,
Guatemala., Mexikó, Nicaragua,
Paraguay, og Uruguay. í mörgum
Asíulöndum hafi ekki verið slakað á
fangelsunum án réttarmeðferðar,
auk morða. Eru nefnd ríki eins og
Afghanistan, Kina, Kambódía,
Nepal, Pakistan, Filippseyjar og
Taiwan.
Samvizkufangarnir fimm sem hin
íslenzka deild Amnesty International
hefur reynt að hjálpa, eru i Sovétríkj-
unum, Júgóslavíu, Argentínu,
Taiwan og Ródesíu.