Dagblaðið - 10.12.1979, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979.
11
Erlendar
fréttir
REUTER
iran: H a
BARIZT UM VOLDIN
í BORGINNITABRIZ
Bardagar á milli stuðningsmanna
tveggja helztu trúarleiðtoganna í íran
voru mjög harðir í gærkvöldi í borg-
inni Tabriz. Hún er í norðvesturhluta
landsins næst Sovétríkjunum þar sem
andstaðan gegn Khomeini trúarleið-
toga er mest.
>ar reyndu stuðningsmenn Kazem
Sahriat-Madari að ná aftur á vald sitt
útvarps- og sjónvarpsstöð borgar-
innar sem herlið hollt Khomeini náði
úr höndum stuðningsmanna hins
fyrrnefnda í gær.
Vitað er að í það minnsta fimm
manns féllu og 26 særðust í
bardögunum. Er siðast fréttist höfðu
menn Khomeinis stöðina enn á sínu
valdi. í miðborg Tabriz höfðu menn
Sahriat-Madari aftur á móti betur og
réðu yfir aðalaðsetri ríkisstjóra
stjórnarinnar i Teheran.
Uppreisn íbúa Azerbaijansfylkis
hófst í síðustu viku, er tilkynnt var
um að tveir trúarleiðtogar þeirra
hefðu verið ráðnir af dögum í hinni
heilögu borg Qom. íbúar Azerbaijan
tala tyrknesku, og hafa lengi verið litt
hrifnir af valdinu frá Teheran, eru
enn minna hrifnir af hinni nýju
stjórnarskrá Irans sem leggur nær öll
völd í hendur Khomeini. Vilja þeir fá
meiri heimastjórn fylkis sins. >ar
fara þeir i kjölfar Kúrda, Balukka og
Turkomena. Hugsanlcgt er að óróinn
i Azerbaijan eigi eftir að breiðast út
víðar um íran.
Sýður upp iír hjá
Ubýu og PLO
Missætti á milli PLO, samtaka
Palestínuaraba, ogGaddafi þjóðarleið-
toga í Líbýu hefur skyndilega komið
upp á yfirborðið og valdið vinslitum.
Hefur verið tilkynnt í Tripoli í Líbýu að
fulltrúa PLO samtakanna hafi verið
vísað þar úr landi og skrifstofum þeirra
lokað.
Samkvæmt heimildum innan PLO er
Gaddafi ekki ánægður með starfsað-
ferðir PLO og vill að teknar verði upp
herskárri vinnubrögð. Deilurnar komu
Ijóslega fram í lok síðustu viku er
fulltrúar PLO í Tripólí ásökuðu libýska
öryggisverði um að hafa lokað fyrir
allan aðgang að skrifstofu PLO i borg-
inni.
Líbýumenn báru á móti þessum
ásökunum en i gærkvöldi visuðu þeir
fulltrúa PLO opinberlega úr landi, að
því er palestínska fréttastofan sagði.
í fregnum frá fréttastofunni sagði
einnig að palestínskum stúdentum í
Líbýu hefði verið tilkynnt að þeir
mættu búast við brottvísun lika ef þeir
tækju sig ekki til og stofnuðu skæru-
liðasveitir meðal félaga sinna.
Fulltrúar PLO hafa áður skorað á
libýsk yfirvöld að skipta sér ekki af
málefnum samtakanna. Haft er eftir
Yasser Arafat að líbýzk sendiráð um
allan heim mundu verða tekin herskildi
af liðsmönnum í PLO ef skrifstofa
samtakanna í Tripoli yrði ekki látin
afskiptalaus. Talsmenn samtakanna
hafa sakað Gaddafi um að hann vilji ná
yfirráðum yfir þeim og svipta þau sjálf-
stæði sinu.
Samkvæmt heimildum innan PLO
endurspegla deilurnar á milli þeirra og
Libýumanna andstæðar fylkingar, sem
ekki eru sammála um hve harðar
aðgerðir eigi að gera gegn Israelsmönn-
um og öðrum þeim sem berjast eigi
gegn.
Talsmenn þeirra sem meira mega
sin innan PLO um þessar mundir vilja
fara sér hægt, þar sem ekki megi spilla
þeim árangri sem náðst hafi á undan-
förnum mánuðum.
kim Jae Kyu fyrrum yfirmaður öryggislögreglu Suður-Kóreu hefur nú verið leidd-
ur fyrir rétt og ákærður fyrir morðið á Park forseta landsins. Myndin sýnir er
hann mætti fyrir dómarann í fyrsta skipti. Allt viröist með kvrrum kjörum í
Suður-Kóreu eftir fall Parks en margir höfðu óttazt að upp úr s.vði.
Frá Hlíöarhúsum til Bjarma-
lands er stórskemmtileg minn-
ingabók, létt og leikandi frá-
sögn, m.a. af nágrönnunum á
Vesturgötunni og lífinu í Reykja-
vík í upphafi aldarinnar, félög-
unum og brekum þeirra og
bernskuleikjum, námsárunum
í Menntaskólanum og kennara-
liði skólans, stjórnmálaafskipt-
um og stofnun Alþýðusam-
bands íslands á heimili foreldr-
anna, aðdraganda að lausn
sambandsmáisins við Dani,
stofnun Jafnaðarmannafélags-
ins og átökum í Alþýðuflokkn-
um, sögulegri för höfundarins
og Brynjólfs Bjarnasonar á 2.
þing Alþjóðasambands Komm-
únista í Leningrad 1920 o.fl.
Auk þess að vera bráðskemmti-
leg, hefur þessi bók mikið
menningarsögulegt gildi.
Hér er skráð mikil saga löngu
liöinna tíma, — saga, sem nær
óslitið yfir tvær aldir og spann-
ar ágrip af sögu sex kynslóða.
í samanþjöppuðu formi er hér
sögð saga Eggerts Ólafssonar
í Hergilsey og barna hans,
rakin fjölmörg drög að ættum
þeim, er að honum stóðu, og
eins að konum hans. Og hér er
að finna staðalýsingar, sem
gera sögusviðið og lífsbaráttu
fólksins Ijóslifandi. Þá mun
engum gleymast örlög systr-
anna Guðrúnar elstu og Stein-
unnar, en þær eru ættmæður
fjöimennra kynkvísia, svo
margir geta hér fræðst um upp-
runa sinn í sögu þeirra.
Sú þjóðlífsmynd, sem hér er
brugðið upp, má aldrei mást út
né falla í gleymsku.
JÁTVARÐUR J. JULIU:
AGRIP ÆTTARSAGNA
HERGILSEYINGA
SKUGGSJÁ
Þessi bók fjallar um efni, sem
lítt hefur verið aðgengilegt is-
lenzkum lesendum til þessa.
Sagt er frá lífi og störfum heims-
kunnra vísindamanna, sem
með vísindaafrekum sínum
ruddu brautina og bægðu
hungri, sjúkdómum og fátækt
frá dyrum fjöldans. Þeir fórn-
uðu lífi sínu og starfskröftum í
þágu heildarinnar, sköpuðu
nýja möguleika, sem þeir, er á
eftir komu, gátu byggt á og
aukið við. Ævikjör þessara
frumherja vísindanna og hinar
stórstígu framfarir í lyfja- og
læknisfræði varðar okkur öll.
í bókinni eru 20 teikningar af
þessum. kunnu vísindamönn-
um gérðar af Eiríki Smith, list-
málara.