Dagblaðið - 10.12.1979, Side 21

Dagblaðið - 10.12.1979, Side 21
21 Iþróttir Iþróttir I DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 1979. i Iþróttir Iþróttir Klúður IS að tapa fyrir ÍR — IRvann 102-101 íHagaskólanum ÍR-ingar eru enn með i baráttunni m íslandsmeistaratitilinn í körfu- knattleik eftir nauman sigur á Stúdent- um i íþróttahúsi Hagaskóla í gærkvöld. ÍR sigraöi 102—101 eftir að Stúdent- arnir höfðu leitt lengst af í leiknum og haft yflr i leikhléi, 61—50. Undir lok leiksins fór hins vegar flest úr böndun- um hjá ÍS og liðið situr því enn eitt og yfirgefið á botni deildarinnar. Úrslit siðustu leikja ÍS sýna það og staðfesta að ekki er mikill munur á beztu og lök- ustu liðum deildarinnar. Heppnin var hins vegar ekki fylgifiskur ÍS að þessu sinni og því fór sem fór. ÍS náði fljótlega undirtökunum í leiknum og virtist leikgleði ÍR-inganna alveg í lágmarki. ÍS komst í 16—10 en ÍR náði að jafna 24—24 um miðjan hálfleikinn. ÍS hélt áfram á sömu braut og tókst að komast örugglega yfir að nýju og þegar 4 mín. voru til leikhlés munaði 9 stigum, 50—41. Hálfleiks- tölururðu hinsvegaról—50 og þaðvar mikiðskoraðí Hagaskólanum. Varnar- leikurinn látinn lönd og leið og öll áherzla lögð á sóknina. Þessi munur hélzt til að byrja með í siðari hálfleiknum og t.d. leiddi ÍS 72— 62. Þá kom mjög góður kafli hjá ÍR og liðið breytti stöðunni í 79—76 sér i hag og síðan 85—80. Stúdentarnir neituðu að gefast upp og komust enn yfir 91 — 90. Liðin voru ákaflega jöfn lokakafl- ann og skiptust á um að skora. Þegar 56 sek. voru til leiksloka leiddi ÍR 100—99 og tókst að bæta það í 102—99 þegar 36 sek. voru eftir. Trent Smock skoraði fyrir ÍS 101—102 þegar 26 sek. voru eftir. ÍR náði knettinum og tókst að halda honum út leiktímann. Þó voru IR-ingar afar heppnir að tapa ekki knettinum lokakaflann og eitt skiptið héldu þeir knettinum á afar vafasaman hátt. Stefán Kristjánsson náði ekki að grípa knöttinn almennilega og missti hann aftur yfir endalínu. Eitthvað var stjakað við honum en ekkert dæmt. Það vakti því undrun er ÍR var dæmdur boltinn. Þarna átti annað hvort að dæma brot á varnarmanninn eða þá að ÍS átti að fá knöttinn. Hvorugt gerðist. Þó er engin ástæða til að ætla að saka dómarana um hvernig fór. Stúdentar geta engum nema sjálf- um sér um kennt. Stig ÍR: Kristinn Jörundsson 33, Mark Christensen 24; Kolbeinn Krist- insson 18, Stefán Kristjánsson 15 og Jón Jörundsson 12. Stig ÍS: Trent Smock 44, Bjarni Gunnar Sveinsson 18, Gísli Gíslason 13, Jón Héðinsson 8, Ólafur Thorodd- sen 6, Gunnar Thors 6, Albert Guð- mundsson 4 og Atli Arason 2. Dómarar voru þeir Kristbjörn Al- bertsson og Ingi Gunnarsson og dæmdu lengst af ágætlega. -SSv. Staðan í úr- valsdeildinni Staðan í úrvalsdeildinni eftir leiki helgarinnar: Njarðvik — KR 74—76 ÍR — ÍS 102—101 Njarðvík 9 7 2 765—717 14 KR 9 6 3 716—658 12 Valur 8 5 3 684—664 10 ÍR 8 4 4 680—709 8 Fram 8 2 6 622—665 4 ÍS 8 1 7 697—724 2 Síðustu leikirnir á þessu ári verða í vikunni. Á miðvikudag leika Valur og ÍS kl. 19 i Hagaskólanum og nk. sunnudag leika Fram og ÍR kl. 14. Stigahæstu menn eru nú: Trent Smock, ÍS 277 stig John Johnson, Fram 245 Tim Dwyer, Val 221 Jón Sigurðsson, KR 215 Kristinn Jörundsson, ÍR 183 Mark Christensen, ÍR 178 Símon Ólafsson, Fram 168 Ted Bee, Njarðvík 167 Njarðvíkingar áttu ekki svar við Jóni — hann skoraði 30 stig í76-74 sigri KR í Njarðvík Körfuknattleikur, úrvalsdcild, UMFN — KR, 74—76 (35—35) Greinilegt var á áhorfendaskaranum sem fyllti íþróttahúsið i Njarðvík á laugardaginn, þegar UMFN og KR kepptu i 'úrvalsdeidlinni, að mikið var í húfi, fyrir báða aðila. Njarðvikingar sem voru efstir i deildlinni sáu mikla möguleika á að bæta enn við forskotið, vegna þess að bezti KR-ingurinn Jack- son, var í leikbanni, en þrátt fyrir það mátti fullvíst telja að þeir seldu sig dýrt — berðust til seinasta blóðdropa. Aldrei þessu vant voru einkennis- klæddir lögregluþjónar hafðir innan dyra, en þess var krafizt til að tryggja öryggi dómaranna, sem fengu heldur óblíðar móttökur í höfuðborginni fyrir skömmu. Allt fór fram með ró og spekt, — hvorki dómarar né leikmenn urðu fyrir neinu aðkasti, þrátt fyrir ósigur heimamanna, 74—76. Öðrum fremur var það Jón Sigurðs- son, sem átti stærstan þáttinn í sigri KR-inga. Njarðvíkingar réðu hreinlega ekkert við Jón sem skoraði samtals 30 K Jón Sigurðsson var óstöðvandi i Njarðvík er KR-ingar lögðu heima- menn 76—74 í úrvalsdeildinni á laugar- dag. stig, úr öllum mögulegum færum, auk þess sem hann var grimmur í fráköst- unum og komst inn í sendingar UMFN, á þýðingarmiklum augnablikum. Dugnaður hans og sigurvilji kostaði hann auðvitað fimm villur áður en lauk, en hann yfirgaf völlinn þeirra vegna, þegar tæp mínúta var til loka. KR-ingar höfðu þá fjögurra stiga forustu, 76—72. Njarðvíkingar hugðu þvi gott til glóðarinnar og ætluðu sannarlega að jafna metin að minnsta kosti, en þrátt fyrir villu á Geir Þor- steinsson, sem nú lék gegn sínum gömlu félögum, þegar 29 sek. voru eftir, þá nægði tíminn ekki að þessu sinni fyrir UMFN að skora þau fjögur sem vantaði, til að fá framlengingu, þeir náðu aðeins tveimur, stigum Jónasar Jóhannessonar. Annars var leikurinn í járnum framan af. Birgir Guðbjörnsson, sem átti mjög góðan leik, skoraði tvær fyrstu körfurnar fyrir KR-inga, en hann var mjög kræfur í leiknum, en Guðsteinn Ingimarsson og Gunnar Þorvarðarson, beztu menn UMFN, svöruðu fyrir UMFN. Síðan tók Jón Sigurðsson heldur betur við sér og skoraði í tvígang fyrir KR. Um miðjan hálfleikinn var staðan jöfn, 22—22, en þá tóku Njarðvíkingar mikinn fjörkipp og náðu 8 stiga forskoti. Héldu menn nú að „kanaleysið” væri aðsegja til sín hjá KR-ingum, en svo var nú aldeilis ekki. Áður en leikhléshringingin gall við var staðan jöfn, 35—35. Seinni hálfleikinn léku KR-ingar af mikilli yfirvegun og aldrei með ncitt fum eða fát. Jón Sigurðsson, var eins og áður drýgstur við að skora, — af fyrstu 10 í hálfleiknum, skoraði hann átta, en UMFN, reyndi að halda i \ ið KR-inga — sérstaklega Ted Bee — en allt kom fyrir ekki. Smám saman dró sundur með liðunum, þó aldrei mcira en sjö stig. Auk Jóns og Birgis áttu þeir Gcir Þorsteinsson og Garðar Jóhannesson góðan leik. Geir er að finna sig æ bctur í KR-liðinu og Garðar er ávallt santi dugnaðarforkurinn. Ted Bee hefur oft verið bctri með UMFN-liðinu en í þessum leik, en Gunnar og Guðsteinn bættu það nokkuð upp. Annars var eilthverl slen yfir liðinu og þeir áttuðu sig ekki fylli- lega á KR-ingum. Sennilega hafa þeir tekið einum of seint upp „pressuna”. Áður en leikurinn hófst var frá þvi skýrt að Lionsklúbbur Njarðvíkur hefði gefið UMFN myndsegulbands- tæki að andvirði 2,2 milljónir króna. Vonandi verður það þeim til gagns i framtiðinni, þvi ekki er ónýtt að gcta skoðað leikina eftir á og barið i brcst- ina. Stigahæstu menn UMFN: Gunnar Þorvarðarson 23, Ted Bec 21, Guð- steinn Ingimarsson 10, Júlíus Valgcirs son 6. Stigahæstu menn KR: Jón Sigurðs- son 30, Garðar Jóhannesson 14, Gcir Þorsteinsson og Birgir Guðbjörnsson 10 hvor. - cmm Nýkomi „Exclusive FÖT MEÐ VESTI RÐURINN AÐALSTRfETI 8 REYKeJAVlK- SÍMI 1EE34

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.